Morgunblaðið - 20.09.2007, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 20.09.2007, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2007 17 MENNING Styrkur Tónlistarsjóðs Rótarý Tónlistarsjóður Rótarý á Íslandi auglýsir eftir umsóknum um styrk. Tilgangur sjóðsins er að veita ungu tónlistarfólki sem skarað hefur fram úr á einhverju sviði tónlistar viðurkenningu í formi fjárstyrks til frekara náms. Styrkurinn verður veittur í janúar 2008 og verður að upphæð kr. 500.000. Umsóknarfrestur er til 15. október næstkomandi Umsóknum skal skilað til skrifstofu Rótarýumdæmisins, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík. Netfang: rotary@simnet.is. M b l 9 11 52 5 ÁSTA Ólafsdóttir er listakona sem hefur sinnt myndlist jafnt og þétt síðan um miðjan níunda áratug síð- ustu aldar og lagt sitt af mörkum til félagsmála myndlistarmanna en þó aldrei siglt meginstraumsleiðina. Þess heldur hefur listin fylgt henni í persónulegri tilvistarlegri leit sem m.a. felst í ferðalögum til framandi landa eða um náttúru Íslands. Því er ekki út úr korti að skoða gvass- myndir sem Ásta sýnir í Lista- mannahúsinu Startart sem ein- hverskonar ferðasögu þar sem línur verða ýmiskonar vegir eða leiðir og form eru sem óhlutbundnir staðir, oft með táknfræðilegu og eilítið as- ísku yfirbragði. Teikning leikur jafnan veigamikla rullu í verkum Ástu og gegn um tíð- ina hef ég einmitt heillast af því hvernig hún notar teikningu í þrí- víðum innsetningum. Og því fann smá söknuð í þessa tvívíddar- þrívíddar-teikni-túlkun þegar ég stöð inni í sýningarrýminu. En vissulega standa gvassmyndirnar fyrir sínu, einar og sér, enda vinnu- aðferðin ekki svo ólík innsetningum listakonunnar, nema að hér er það litríkur flöturinn sem verður að hug- rænu rými. Er sýningin vel þess virði að heimsækja vilji maður hverfa inn í óhlutbundna heima þar sem ferðin sjálf er áfangastaðurinn. Þegar ferðalag verð- ur áfangastaðurinn MYNDLIST Listamannahúsið Startart Opið virka daga 10-17 og laugardaga 11- 16. Sýningu lýkur 28. sept. Aðgangur ókeypis. Ásta Ólafsdóttir Jón B. K. Ransu Gvassmyndir Línur verða vegir og form verða staðir. ÍSLENSKU sjónlistarverðlaunin verða veitt í annað sinn þann 21. september nk. á hátíðlegri sam- komu á Akureyri í beinni útsend- ingu Sjónvarpsins. Þann 25. ágúst opnaði sýning í Listasafni Ak- ureyrar á verkum þeirra lista- manna og hönnuða sem tilnefndir eru til verðlaunanna í ár: Birgir Andrésson, Hekla Dögg Jóns- dóttir, Hrafnkell Sigurðsson, Ni- kita, Studio Granda og Össur hf. Mjög margir aðilar koma að verkefninu í heild sinni en Lista- safn Akureyrar með Hannes Sig- urðsson safnstjóra í fararbroddi sá um uppsetningu sýningarinnar í samvinnu við listamennina. Það er ekki einfalt verkefni að stilla sam- an áhugaverðri sýningarheild með ólíkum verkum aðila innan mynd- listar og hönnunar sem eiga kannski lítið sameiginlegt annað en að vera valdir úr sem þeir áhugaverðustu eða bestu á hverj- um tíma. Þess vegna kemur sýn- ingin skemmtilega á óvart fyrir þá alúð sem lögð hefur verið í fram- setninguna. Hannes hefur tekið þann kostinn að para saman verk listamanns og hönnuða á sjón- rænum og hugmyndafræðilegum forsendum þannig að sú staðhæf- ing samtímans um að skil milli myndlistar og hönnunar sé yf- irstigin verður hér einstaklega sannfærandi. Hin leikandi léttu fant- asíukenndu fossa- og flugeldaverk Heklu Daggar sem gerð eru úr hljóðnæmum bakskautsljósum og öðru tæknidóti fara ævintýralega vel í sama rými og ekki síður fant- asíukenndur gervifótur Össurar Proprio food. Þótt augljóst sé að samanlögð vinna, hugvit og fjár- magn sem eytt hefur verið við gerð gervifótarins sé gífurlegt þá eru það frekar framsæknar hug- myndir um fagurfræðilega þætti í hönnun hans sem verða áhuga- verðastar í þessu samhengi. Samspil verka Hrafnkels Sig- urðar og Nikita-hönnuðanna er einnig áhugavert. Jafnvel þótt verkin séu sýnd í aðskildum rým- um myndast skemmtileg samræða milli verkanna. Hinar blóðrauðu lífrænu ljósmyndir Hrafnkels sem sýna brotakennd yfirborð af sjó- stakkaklæddum sjómönnum ná að tjá dulúðugt eðli og innri veruleika veiðimennsku. Innsetning hans á grafísku líkamlegu og olíukenndu þrykki beint á veggina ásamt olíu- tunnum af athafnasvæði nálgast enn fremur tjáningu sjálfsmyndar ákveðinnar stéttar sem áður tengdist sjálfsmynd þjóðarinnar meira en nú. Nikita-hönnuðirnir eru á sömu slóðum í verulega skemmtilegri og metnaðarfullri fatalínu sem er ætluð snjó- brettakonum í leik og starfi. Þótt verkin séu hvort á sínum for- sendum þá er það hugmynda- fræðin að baki þeirra sem nær að draga fram ákveðinn sýnilegan samhljóm um leið og að draga fram nýja sýn í umræðunni um eðli og eiginleika hins karllega og hins kvenlega. Studio Granda er tilnefnt til Sjónlistarorðunnar í annað sinn, nú fyrir hönnun á viðbyggingu við Vogaskóla og einbýlishúsið að Hofi á Höfðaströnd. Myndir og líkön af verkunum sannfæra áhorfandann um að sá heiður sé verðskuldaður. Ljósmyndirnar af hönnun íbúðar- húsnæðisins sýna nýstárlegan samruna gamla og nýja tímans þar sem nýting á og sköpun rýmis er samþætt ekki bara náttúrunni heldur einnig draummyndum í þjóðarsálinni. Það kemur ekki á óvart hversu vel myndlistarverk Birgis Andréssonar njóta sín vel í þessu samhengi en hann hefur haft íslenska þjóðarsál sem við- fangsefni á margvíslegan hátt um árabil. Íslensku fánarnir í sauðalit- unum sem rötuðu á Feneyjatvíær- inginn á sínum tíma undirstrika mikilvægi þess sem við köllum huglægt rými. Skrift og lestur táknuð sem eyður í fyrirframgerðu rými, pappakassar sem hafa verið skorin göt í sýna fram á hve marg- slungin eða samslungin skynjun okkar af veröldinni er og hvernig við lesum hana í tengslum við eig- in reynslu. Sýningin er sú besta sem ég hef séð á árinu og það kemur ekki bara til af því að hér eru á ferðinni framúrskarandi myndlistarmenn og hönnuðir sem hafa verið valdir af dómnefnd sem verðugir heldur ekki síður af velheppnaðri heild- armynd. Sýningarstjórinn Hannes Sigurðsson sem einnig á heiðurinn af tilurð Sjónlistarverðlaunanna sýnir hér og sannar hve miklu máli skiptir uppsetning verka og samhengi. En fleira þarf til en frá- bæra listamenn og góðan sýning- arstjóra til að stórviðburður sem þessi verði vel heppnaður enda kemur að verkefninu fjöldi aðila: Máttarstólpar verkefnisins Sjón- list eru Akureyrarbær, mennta- málaráðuneyti og iðnaðar- og við- skiptaráðuneyti. Aðalstyrktaraðilar eru Flugfélag Íslands og Glitnir en einnig styrkja Ásprent, Flugsafn Íslands og Landsvirkjun verkefnið. Sam- starfsaðilar eru Listasafnið á Ak- ureyri, SÍM, Form Ísland, Sjón- varpið, Listaháskóli Íslands, CIA og Hönnunarvettvangur. Inn fjár- festing veitir verðlaunafé fyrir vinningshafann í myndlist að upp- hæð 2 milljónir króna og Montana sömu upphæð fyrir vinningshafa í hönnun. Nánari upplýsingar um myndlistamennina, dómnefnd og fyrirkomulag Sjónlistar 2007 má finna á heimasíðu Listasafnsins á Akureyri og í væntanlegri sýning- arskrá sem var því miður ekki komin út þegar undirrituð heim- sótti sýninguna. Verðlaunasýningin Sjónlist 2007 Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Flugeldar Hluti innsetningar Heklu Daggar í Listasafninu á Akureyri. MYNDLIST / HÖNNUN Listasafnið á Akureyri Sýningin stendur til 14. október. Opið alla daga nema mánudaga frá kl. 12-17. Tilnefningar til Íslensku sjónlistaverð- launanna 2007 Þóra Þórisdóttir DAGINN er andlátsfregn Zawinuls barst um heimsbyggðina lék Booga- blú-kvartettinn djassfönk eins og það gerðist best áður en Miles Davis, Zawinul og félagar byltu öllum hug- myndum manna um fönkdjass, djass- rokk og rafdjass. Hér hljómaði klass- ískasti gamalfönkslagari allra tíma „Watermelon Man“ eftir Herbie Hancock ásamt týpísku djassfönki eftir trompetleikarana Lee Morgan og Blue Mitchell og saxófónsnilling- inn Eddie Harris. Tónleikarnir hófust á verki annars saxófónleikara, sem blásið hefur á Íslandi eins og Eddie, Jimmy Heath. „Doing The Right Thing“ hét ópusinn og blés Eyjólfur Þorleifsson hann flott í tenórinn og dálítill Red Garland læddist inn í pí- anósóló Sunnu Gunnlaugs. Að vísu var hún fórnarlamb tækninnar fram að hléi því þjónustufólk hafði slökkt á mögnurum og drukknaði leikur henn- ar að mestu í sterku spili þeirra hryn- bræðra Þorgríms Jónssonar og Scotts McLemours. Þó mátti vel heyra firnafínan sóló hennar í svíngandi „Opus De Funk“ eftir Hor- ace Silver. Eftir hlé gat kvartettinn farið að gera hið rétta, því nú heyrðist vel í píanóinu og þar var ekki allt af djassfönkættinni því bæði hljómaði „Caravan“ Ellingtons og Tizols og „But Not For Me“ Gershwins. Sunna lék fína sólóa í báðum þessum döns- um og gaman hversu vel hún er heima í hinum ýmsu stílbrigðum djassins. Sunna er ekki bara Sunna að spila Sunnu. Þetta er fín stuð- dagskrá og hefðu fleiri mátt mæta, en kannski hafa menn ekki áttað sig á því að Múlatónleikarnir eru á mið- vikudagskvöldum á DOMO í vetur, en ekki fimmtudagskvöldum eins og áður – svo mætti kynda kjallarann betur þótt tónlistin sé heit. Djassfönk af gömlu gerðinni TÓNLIST Tónleikar Boogablú. Miðvikudagskvöldið 12. september 2007.  Múlinn á DOMO Vernharður Linnet AFMÆLISSÝNING Jónasar Hall- grímssonar, Skyldi ég vera þetta sjálfur, í Ketilshúsinu á Akureyri inniheldur verk eftir tuttugu og einn listamann sem sýningarstjórinn Þórarinn Blöndal valdi með tilliti til listaskáldsins góða. Listamennirnir nálgast arfleifð Jónasar á mismun- andi hátt en eins og titill sýning- arinnar ber með sér þá er áherslan á sjálfsmyndina áberandi. Þar má nefna þemu þar sem sjálfsmynd listamannsins blandast við sjálfs- mynd þjóðarinnar eða sjálfsmynd listamannsins. Verkin á sýningunni eru fjöl- breytileg og skemmtilegt að sjá hvernig einstakir listamenn vinna inn í hið gefna samhengi sýning- arinnar sem hverfist um þjóðskáldið. Margir þeirra nota eða vísa í texta og ljóð Jónasar meðan aðrir leggja áherslu á táknrænt myndmál hans. Nokkuð ber á góðlátlegri kaldhæðni ef þannig má að orði komast, ekki síst í garð rómantísku stefnunnar og þjóðernisupphafningar hennar. Þjóðernisrómantík Íslendinga teng- ist hinni þýsku mjög og hefur á seinni árum verið nokkur umræða um neikvæðar hliðar hennar. Verk Jónu Hlífar Halldórsdóttur Enginn étur sjálfan sig dregur einna best fram kjarna sýningarinnar þar sem gullin stytta af skáldinu, í senn verðlaunagripur og minnismerki, sýnir táknmynd rómantíska snill- ingsins. Verkið kallast skemmtilega á við orð Matthíasar Þórðarsonar sem Þórarinn Blöndal vísar til í sýn- ingarskrá: „Slíkum höfuðsnillingum meðal bestu sona sinna er þjóð vorri vandgert að reisa hæfilegan minn- isvarða úr málmi eða marmara.“ Einnig orð Sigrúnar Bjarkar Jak- obsdóttur, bæjarstjóra Akureyrar, um Jónas í opnunarávarpi sínu í sömu skrá: „Hann er óendanlegur brunnur hugmynda og snilli. Ferli sköpunarinnar á rómantíska tím- anum var gjarnan líkt við tímgun, (karl)listamaðurinn gat af sér, lét frjóvgast og fæddi af sér lifandi verk.“ Þessi myndhverfing lifir enn góðu lífi í orðræðu listarinnar og hefur orðið mörgum listakonum til- efni til nánari skoðunar. Sýningin er metnaðarfull og varp- ar fram mörgum áhugaverðum punktum sem gæti orðið efni í áframhaldandi pælingar um arfleifð Jónasar og sjálfsmynd þjóðarinnar og óhætt að mæla með því að fólk leggi leið sína í Ketilhúsið á Ak- ureyri. Höfuðsnillingur MYNDLIST Ketilhúsið Akureyri Sýningin stendur til 23. september. Opið alla daga nema mánudaga frá kl. 13-17. Aðgangur ókeypis. Samsýning 21 listamanns í tilefni 200 ára afmælis Jónasar Hallgrímssonar Þóra Þórisdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.