Morgunblaðið - 20.09.2007, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2007 43
Velferðarsvið Reykjavíkurborgar veitir styrki úr forvarnarsjóði Reykjavíkurborgar til
forvarnarverkefna.
Markmiðið með styrkjunum er að styrkja samstarfsverkefni á sviði forvarna til samræmis við
forvarnastefnu Reykjavíkurborgar.
Umsóknum skal skila á sérstökum eyðublöðum sem nálgast má á heimasíðu Reykjavíkurborgar
www.reykjavik.is
Meðferð umsókna fylgir almennum reglum um styrkjaúthlutanir Reykjavíkurborgar,
www.reykjavik.is
Allar umsóknir verða lagðar fyrir samráðshóp um forvarnir í Reykjavík til umsagnar og fyrir
velferðarráð Reykjavíkurborgar til samþykktar.
Umsóknum skal skilað til skrifstofu Velferðarsviðs, Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík,
fyrir 10. október nk.
Styrkir til forvarnarverkefna í Reykjavík
M
b
l 9
11
30
4
Velferðarsvið
Þinghólsbraut 41 - sérhæð
Opið hús í dag milli kl. 18 og19
Skólavörðustíg 13
Sími 510 3800
Fax 510 3801
www.husavik.net
Reynir Björnsson
lögg. fasteignasali
Mikið endurnýjuð og frábærlega staðsett ca 140 fm neðri hæð með sér inngangi.
Eignin er með glæsilegu eldhúsi sem er hannað af Rut Káradóttur arkitekt. Þá eru
stofur bjartar og fallegar. Frá borðstofu er útgangur út á svalir til suðurs með fallegu
útsýni. Fjögur herbergi, geymsla og baðherbergi inn af herbergisgang. Eignin hefur
verið mikið endurnýjuð undanfarin ár og má þar nefna eldhús, bað, þakjárn, ofnar og
ofnalagnir. Verð 34,8 millj.
Arnar og Kristjana taka vel á móti gestum milli kl. 18 og 19 i dag.
Teikningar á staðnum
Húsavík – þar sem gott orðspor skiptir máli
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„MÉR var bara bent á þetta. Ég veit
ekkert hver stendur á bak við síðuna
og maður getur ekki haft samband
við neinn. Maður getur hreinlega
ekki hönd fyrir höfuð sér borið,“
segir Stefán Hilmarsson söngvari
sem uppgötvaði nýverið að einhver
hefur sett á laggirnar MySpace-síðu
á Netinu í hans nafni, en þó án alls
samráðs við hann.
Við fyrstu sýn mætti halda að
Stefán stæði sjálfur á bak við síðuna,
enda ýmsar upplýsingar um söngv-
arann þar að finna. „Venjulegt fólk
sem rambar þarna inn veit sjálfsagt
ekki betur en að ég eða einhver
tengdur mér standi á bak við þetta,“
segir Stefán. „En þarna er eitt og
annað sem ég myndi aldrei láta út úr
mér eins og t.d. „here for dating“,
sem er vitaskuld út í hött og frekar
smekklaust, sé mið tekið af hjúskap-
arstöðu minni.“
Saklaust en vafasamt
Ýmsar upplýsingar sem finna má
á síðunni eru réttar, svo sem aldur
Stefáns, sveitir sem hann hefur
sungið með og meira að segja eft-
irlætis knattspyrnulið hans. Þar má
þó einnig finna nokkrar rang-
færslur, til dæmis þær að Stefán hafi
sérstakan áhuga á garðrækt eða að
kennilegt og skrýtin tilfinning að
geta ekki haft neitt um þetta að
segja,“ segir Stefán sem grunar að
síðan hafi verið uppi um nokkurt
skeið.
Þess má loks geta að víða erlendis
halda hljómsveitir og söngvarar úti
opinberum heimasíðum sínum á
sama tíma og aðdáendur halda úti
síðum tileinkuðum sömu aðilum. Í
þeim tilfellum fer þó sjaldnast á milli
mála hver hin opinbera síða er, og
hver síða aðdáandans er.
Hver er orginal?
Vefsvæðið www.myspace.com/stefanhilmars er ekki á vegum Stefáns Hilmarssonar, ólíkt því sem halda mætti
Enginn garðyrkjumaður Stefán segist ekki hafa mjög græna fingur.
Umrædd síða er á slóðinni
www.myspace.com/stefanhilmars
hann sé smásagnahöfundur. „Ég get
nú tæplega kvittað undir það því ég
hef ekki mjög græna fingur og hef
ekki samið eina einustu smásögu,“
segir Stefán og hlær.
Stefán segir að vissulega sé þessi
síða fremur sakleysisleg, en telur
hana þó vekja ákveðnar spurningar.
„Þótt viðkomandi hafi sjálfsagt bara
gert sér þetta til gamans og líklega
vegna áhuga á mér eða minni tónlist,
þá fer maður ósjálfrátt að hugsa
hver sé staða þeirra sem lenda í
svona. Fljótt á litið virðist hún vera
frekar léleg,“ segir hann. „Það er
auðvitað enginn stórskaði að þessu,
en óneitanlega er þetta svolítið ein-
MySpace Eins og sjá má er mynd af Stebba og Eyfa á síðunni.
Ljósmynd/Ha
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
„VERKIN á sýningunni eru öll
unnin með olíu á striga og ég nota
sterka óblandaða liti. Myndefnið er
fólk, eða fígúratíft abstrakt. Það
má sjá konur að snertast, menn að
snertast og konur og menn að
snertast,“ segir Vilhelm Anton
Jónsson, betur þekktur sem Villi
naglbítur, um myndlistarsýningu
sem hann opnar í Deiglunni á Ak-
ureyri á laugardaginn kemur.
Sér liti í lögunum
Þetta er fjórða einkasýning Vil-
helms og á henni má eingöngu sjá
nýjar myndir sem málaðar voru nú
í ár. „Þessi verk eru svipuð þeim
sem ég hef gert áður, myndirnar
eru reyndar ekki jafn grófar og
fyrri verk og ég skrifa ekki lengur
inn á þær,“ segir Vilhelm sem er
hvorki lærður í myndlist né tónlist
heldur með BA gráðu í heimspeki.
„Ég er haldinn meðfæddri sköp-
unarþörf, frá því ég var lítill hef ég
alltaf verið að mála og teikna og ég
ætlaði alltaf að mennta mig í
myndlist en hef ekki gert það
ennþá.“
Vilhelm sendi nýverið frá sér
plötuna The Midnight Circus.
Spurður hvernig gangi að lifa af
listinni segir hann það ganga
ágætlega. „Ég hef a.m.k ekki
þurft að vinna við annað en
myndlist og tónlist seinustu þrjú
árin. Það er alltaf eitthvað af
verkum sem selst, annars er það
algjör draumur að geta lifað af
þessu.“
Að sögn Vilhelms fer það vel
saman að mála, semja tónlist og
skrifa. „Ég hugsa tónlistina mjög
mikið í myndum eins og á nýjustu
plötu minni, ég sé liti í lögunum.
Þeir sem hafa hlustað á The Mid-
night Circus og fara á myndlist-
arsýninguna geta örugglega séð
eitthvað sameiginlegt með mynd-
unum og lögunum. Það er einhver
losti yfir þessu hjá mér.“
Vilhelm er með tvær myndlist-
arsýningar bókaðar á næsta ári,
eina í Reykjavík og aðra á Ak-
ureyri. „Það er svo gaman að
sýna fyrir norðan, þar er svo
margt um að vera í listaheiminum
og mikil gróska í öllu.“
Sýning Vilhelms verður opnuð
kl. 14 í Deiglunni laugardaginn
22. september.
Losti yfir listinni
Listamaður Vilhelm hugsi með eitt verka sinna í baksýn.
Morgunblaðið/Frikki