Morgunblaðið - 20.09.2007, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 20.09.2007, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. ÖNNUR ATLAGA HILLARY CLINTON Hillary Clinton hyggst nú geraaðra atlögu að því að koma áumbótum í bandarísku heil- brigðiskerfi. Clinton sækist eftir út- nefningu demókrata til framboðs í forsetakosningunum á næsta ári og í upphafi vikunnar greindi hún frá áætlun sinni um að tryggja öllum Bandaríkjamönnum heilsugæslu og sjúkratryggingu. Kostnaður við breytingarnar er áætlaður 110 millj- arðar dollara (um sjö billjónir króna) á ári og hyggst Clinton fjármagna hann með því að draga til baka skattalækkanir, sem stjórn George Bush hefur veitt þeim sem hafa yfir 250 þúsund dollara (15 milljónir króna) í tekjur á ári. Talið er að 47 milljónir Bandaríkjamanna séu ekki með sjúkratryggingu, eða um einn Bandaríkjamaður af hverjum sex. Slíkt hefur ekki verið reynt frá því að hún fékk það hlutverk í stjórn manns síns, Bills Clintons, 1993 til 1994. Tilraun Hillary Clinton misheppn- aðist hrapallega og var það rakið til ýmissa þátta, meðal annars persónu hennar og vinnubragða, auk þess sem ýmsum þótti ekki við hæfi að forsetinn skyldi fela eiginkonu sinni þetta mikilvæga verkefni. En mestu skipti hins vegar að öflugir hags- munahópar í heilbrigðiskerfinu, með tryggingafélög fremst í flokki, lögð- ust af alefli gegn tillögum hennar. Það var gert með auglýsingum, sem ætlað var að hræða Bandaríkjamenn, sem voru með tryggingar, og ríku- legum framlögum til stjórnmála- manna. Clinton segir að hún hafi lært af fyrri mistökum. Í hinum nýju hug- myndum hennar er farin allt önnur leið, en fara átti fyrir 13 árum. Nú á að byggja á því kerfi, sem fyrir er og grundvallast á því að tryggingar fara í gegnum vinnuveitendur. Þess er vandlega gætt að hin nýja áætlun muni ekki hafa áhrif á neytendur til að velja sjálfir hvers konar trygg- ingu þeir vilji fá, en óttinn við að fyrri áætlun myndi takmarka val- frelsi bandarískrar millistéttar reyndist banabiti fyrri áætlunarinn- ar. Nú eru engar tillögur um banda- rískt heilbrigðisráð með víðtækt vald til að setja ramma utan um heilbrigð- iskerfið. Sérfræðingar segja að nýja hugmyndin sé gerólík þeirri fyrri og í raun sé ekki sanngjarnt að líkja þeim saman. Keppinautar Clinton meðal demó- krata hafa tekið hugmyndum Clinton fálega, sem kemur ef til vill ekki á óvart, tveir þeirra, Barak Obama og John Edwards, hafa lagt fram sínar eigin hugmyndir um að endurbæta kerfið. Repúblikanar voru fljótir að gagnrýna hana og segja að hún ætl- aði að innleiða evrópskt skrifræði í Bandaríkjunum. Hugmyndin um heilbrigðiskerfi fyrir alla hefur aldrei náð flugi í Bandaríkjunum. Á dögum kalda stríðsins var viðkvæðið að yrði slíkri vinstri villu veitt brautargengi yrði stutt í sovéskt alræði í Bandaríkj- unum. Hér skal ekki sagt um það hvort hugmyndir Hillary Clinton séu sú allra meina bót, sem bandarískt heil- brigðiskerfi þarf á að halda, en það fer ekki á milli mála að rækilegra umbóta er þörf. Þessu gera flestir bandarískir stjórnmálamenn sér grein fyrir, hvar í flokki sem þeir standa. En það virtist líka vera stuðningur fyrir umbótum á heil- brigðiskerfinu fyrir einum og hálfum áratug og samt fór sem fór. Banda- rískt heilbrigðiskerfi er að mörgu leyti með því besta sem gerist, en það hefur líka skuggahliðar og með ólíkindum að það skuli látið viðgang- ast að svo stór hluti þjóðarinnar eigi ekki kost á heilbrigðisþjónustu. Nú stefnir allt í það að heilbrigðismálin verði sett á oddinn í næstu forseta- kosningum í Bandaríkjunum. Það verður athyglisvert að fylgjast með hvernig þeirri baráttu reiðir af og til hvaða ráða þau rótgrónu öfl, sem eiga hag í að viðhalda núverandi kerfi, munu grípa. FÉ TIL GÓÐRA VERKA Viðbygging húss MS-félags Ís-lands er langt komin og verður væntanlega tekin í notkun 1. desem- ber. Við það mun hlutur MS-sjúk- linga batna verulega. Í viðtali við Morgunblaðið á mánudag sagði Sig- urbjörg Ármannsdóttir, formaður fé- lagsins, að aðstaða til dagvistunar, sjúkra- og iðjuþjálfunar og umönn- unar myndi batna mikið. Að sögn Sigurbjargar hefur pláss- leysi valdið verulegum vandræðum í starfseminni. 40 manns njóta nú þjónustu í húsinu á hverjum degi og koma þangað um 70 einstaklingar á aldrinum 28 til 67 ára á viku. MS-félagið hefur þurft að leita stuðnings víða til að geta reist við- bygginguna og munaði þar mest um framlag úr Minningarsjóði Mar- grétar Björgólfsdóttur, sem nam tuttugu milljónum króna eða þriðj- ungi byggingarkostnaðar, en einnig safnaði MS-félagið 10 milljónum króna og stjórnarnefnd um málefni fatlaðra lagði fram 10 milljónir. Sjóðurinn var stofnaður árið 2005 í minningu Margrétar Björgólfsdótt- ur, sem lést af slysförum árið 1989 aðeins 33 ára gömul. Að sjóðnum standa foreldrar Margrétar, Þóra Hallgrímsson og Björgólfur Guð- mundsson, og var stofnfé hans 500 milljónir króna. Sjóðurinn hefur styrkt einstak- linga og margvísleg verkefni. Styrk- urinn til MS-félagsins var veittur í byrjun mars á þessu ári og var fyrsta skóflustungan tekin þá. Ánægjulegt er að sjá hve hratt hefur gengið að reisa viðbygginguna og hvað fé úr Minningarsjóði Margrétar Hall- grímsdóttur nýtist vel til góðra verka. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ „Getur þú ekki fundið fyrir mig góða refa- skyttu?“ Sæmundur föðurbróðir minn lá afturábak í rúmi sínu á dvalarheimilinu fyrir fáeinum mánuðum þar sem hann hafði að eigin sögn verið bundinn við polla. Hann lýsti lífi sínu stuttlega: ,,Ég hef verið til sjós, á togurum og stórum skipum úti í heimi, siglt um öll heimsins höf og komið á hvern einasta stað í heim- inum sem ég kæri mig um. Ég hef verið í bisness og gengið vel, eignast frábæra konu og börn og barnabörn. Hvað get ég beðið um meira, er þetta ekki bara orðið gott, frændi?“ Það var hægt að tala við Simma frænda um öll atvik úr fortíðinni en skammtímaminnið var horfið. Hann spurði mig hvað ég væri að gera og ég sagði honum sem var að ég væri hjá Tryggingamiðstöðinni. ,,Og hvað gerir þú þar?“ spurði frændi og hló svo ánægju- lega þegar ég sagði honum að ég væri for- stjóri. Gleymdi því svo strax og spurði: ,,Eru heildagsmaður hjá Herði Fel og Gunna?“ Hann notaði orðið einmitt þann- ig, heildagsmaður, hvaðan svo sem það var komið. Í annarri heimsókn kom ég inn þar sem hann lá í rúminu og sagði höst- Hann var stoltu að hann hefði ve færslu. Mér ski heldur til trafal Svo einn góða mundur af land landi í ein fimm hann stýrimann stýrimaður á st frökturum og o urinn var undir stýrimaður á ri margir gullborð Akureyri. Ungur horfði minn sem ég ha til Íslands með þýsk og fimmtá Hann leigði kyt held að hafi aða aði þar heildver verða hinn hluti Magnús frá Me fyrsta víxilinn o mund. Það var h að flytja inn og sem honum dat uglega við hann: ,,Hvaða aumingjaskapur er þetta, liggur þú í bælinu um miðjan dag?“ Það stóð ekki á svarinu: ,, Hvern andsk. ætti ég annars að gera?“ Því var vandsvarað við mann á níræðisaldri á elli- heimili. Þessi stuttu orðaskipti sýna glöggt skapgerð og framkomu frænda míns. Hann fór ævinlega beint framan að hlut- unum og hlífði þá síst sjálfum sér. Fyrir vikið var návist við hann stundum úfin en jafnan logn og blíða undir niðri. Aldrei undiralda, allt hreint og beint; blátt áfram. Ungur maður á Akureyri stundaði hann sjóinn. Simmi í Esju, lágvaxinn tog- aramaður, harður nagli og kunnur slark- ari í landi. Þurfti stundum að slá aur en alltaf var það fyrsta verk að fara hringinn og gera upp næst þegar borgað var út. Svo fór hann stundum annan hring og sló upp á nýtt. Og annan síðar til að borga. Hann var skilamaður með eindæmum: ,,Í okkar fjölskyldu hefur aldrei fallið víxill, mundu það, frændi.“ Á þessum brokk- gengu árum fór Sæmundur engu að síður í Verslunarskólann og tók verslunarpróf. Sæmundur Óskarsson Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is Fasteignafélagið Samson Properties, semer í eigu Björgólfsfeðga, kynnti hug-myndir um uppbyggingu nýs miðborg-arkjarna á svonefndum Barónsreit við ofanverðan Laugaveg á fundi í Listasafni Íslands í gær undir yfirskriftinni „Lifandi miðborg“. Í máli Kims Nielsens arkitekts, aðaleiganda 3xN arkitekta í Danmörku og höfundar tillög- unnar, kom fram að hann sér uppbyggingu svæð- isins fyrir sér sem jökul sem mótaður sé inn í borgarlandslagið og látinn flæða yfir reitinn með það að markmiði að skapa heildstæða götumynd. „Við horfum á þennan kjarna sem framleng- ingu á Laugaveginum. Á Laugaveginum í dag er mjög skemmtileg flóra af sérverslunum og veit- ingastöðum. Þarna er að finna flesta þá þætti sem þarf til að skapa líf í hjarta borgarinnar. Það vant- ar hins vegar eitthvað. Það vantar pumpu í hjart- að. Við teljum að svona kjarni geti orðið til að pumpa lífi í miðborgina, en leggjum áherslu á að hann er einungis liður í heildarmyndinni,“ segir Sveinn Björnsson, framkvæmdastjóri Samson Properties, í samtali við Morgunblaðið. Stefnt er að opnun miðborgarkjarnans í lok árs 2010. Að sögn Sveins er markmiðið með hugmynd- inni að blása lífi í efri hluta Laugavegar og efla miðborg Reykjavíkur sem miðstöð mannlífs og verslunar á höfuðborgarsvæðinu, en hún hafi átt undir högg að sækja í samkeppni við úthverfin og nærliggjandi sveitarfélög. „Við teljum að með því að skoða svæðið heildstætt og horfa á heilar götu- myndir í stað einstakra húsa skapist auknir möguleikar til uppbyggingar og aukið svigrúm.“ Virða sögu og sérstöðu miðborgarinnar Fram kom í máli Sveins að þær tvær lykilspurn- ingar sem hafðar hefðu verið til hliðsjónar við út- færslu hugmyndarinnar væru annars vegar hvernig árangursríkast væri að skapa lifandi mið- borg og hins vegar hvernig skapa mætti sátt um sjónarmið verndunar og uppbyggingar í miðbæ Reykjavíkur. Sagði hann ríka áherslu verða lagða á að öll uppbygging yrði í sátt við verndunarsjón- armið þannig að nýjar byggingar yrðu í samhengi við það sem fyrir er. Þannig skapaðist mannleg, söguleg og menningarleg umgjörð um nýjan mið- borgarkjarna. „Við erum þarna að tala um svæði í miðborginni sem hefur mikla sögu og sérstöðu sem ber að virða. Sökum þessa verða nýbygg- ingar í miðborginni að vera í samhengi við það sem fyrir er. Þær þurfa að kallast á við umhverfi sitt og mega alls ekki kæfa það,“ segir Sveinn. Bendir hann á að hæð nýbygginganna á reitnum muni þannig taka mið af hæð þeirra húsa sem fyr- ir eru frá Laugavegi og norður fyrir Hverfisgötu, sem þýði að skuggavarp nýbygginganna verði ekki meira en nú er. Fram kom í máli Björns Gunnlaugssonar, framkvæmdastjóra Fasteignaþróunar ehf., að hugmyndir um miðborgarkjarna á Barónsreit hefðu verið lengi í vinnslu og að ætlunin væri að skapa þar aðlaðandi umhverfi fyrir verslanir, af- þreyingu og íbúðir. Sagði hann gert ráð fyrir um 25 þúsund fermetra rými undir verslanir og þjón- Kjarninn verði Barónsreitur Reiturinn afmarkast af Laugavegi, V Inngangur að kjarnanum Samkvæmt tillögunni er verði látin víkja fyrir inngangi að miðborgarkjarna  Hugmynd að nýjum miðborgarkjarna á Barónsreit k opna nýjan miðborgarkjarna í lok árs 2010  Um er að

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.