Morgunblaðið - 20.09.2007, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 20.09.2007, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR AFLAVERÐMÆTI íslenskra skipa nam 46 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins 2007 samanbor- ið við 40,4 milljarða á sama tímabili 2006. Aukningin nemur 5,6 milljörð- um króna eða 14% milli ára. Afla- verðmæti júnímánaðar nam 5,7 milljörðum en í júní í fyrra var verð- mæti afla 6,4 milljarðar samkvæmt upplýsingum Hagstofu Íslands. Aflaverðmæti botnfisks var í lok júní orðið 34,1 milljarður miðað við 30,4 milljarða á sama tíma árið 2006 og er um 12,2% aukningu að ræða. Verðmæti þorskafla var 18,3 millj- arðar og jókst um 23,7%. Aflaverð- mæti ýsu nam 6,6 milljörðum, sem er 15,7% aukning, og ufsaaflinn jókst að verðmæti um 11,7%, var 2,1 milljarð- ar króna. Aukin verðmæti í uppsjávarfiski Verðmæti flatfiskafla dróst saman um 17,9%, nam 2,6 milljörðum króna. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 42,7% og nam 8,8 milljörð- um. Munar þar mestu um verðmæti loðnu sem nam 4,2 milljörðum sam- anborið við 2,2 milljarða í fyrra og kolmunna að verðmæti 2,8 milljarðar samanborið við 3,1 milljarða 2006. Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innan- lands var 21,2 milljarðar króna, sem er aukning um 5,1 milljarð eða 31,3%. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 23,3%, var 7,9 milljarðar. Aflaverðmæti sjófrystingar var 11,7 milljarðar og dróst saman um 7,4% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 4,3 millj- örðum sem er 3,3% aukning. Mest verðmæti á Suðurnesjum Mest aflaverðmæti skiluðu sér á land á Suðurnesjum fyrstu sex mán- uði ársins, alls 9,5 milljarðar króna. Það er 35,4% aukning frá árinu áð- ur. Á höfuðborgarsvæðinu voru verðmætin 7,7 milljarðar og dróg- ust þau saman um 3,7%. Á Austur- landi námu verðmæti landaðs afla 6,2 milljörðum króna sem er 23,1% aukning. Aflaverðmæti á Norður- landi eystra var 5,8 milljarðar króna og jókst um 13,3%. Suður- land kom næst með 4,6 milljarða og þar var aukningin 11%. Á Vestur- landi var aflaverðmæti 2,8 milljarð- ar króna og þar er aukningin milli ára langmest eða 52,2%. Á Norður- landi vestra var verðmætið 2,8 milljarðar sem reyndist samdráttur um 6% og loks var landað afla að verðmæti 2,4 milljarðar króna á Vestfjörðum. Þar var um 10,5% aukningu að ræða. Hækkandi fiskverð Að meðaltali er verðmætaaukn- ingin um 14%. Frávik frá meðaltal- inu má skýra með ýmsum hætti en fyrst og fremst er það tilfærsla á löndunum miðað við sama tíma í fyrra, sem ræður úrslitum. Aukin verðmæti stafa ekki af auknum afla nema að litlu leyti. Skýringin liggur í verðhækkunum afurða á erlend- um mörkuðum, sem leiða síðan til hækkandi fiskverðs upp úr sjó hér á landi. Aflaverðmæti 46 milljarðar              !  " #   ! $     %   &   '((   ) *+ ,   -./!01 1--02 2.32/0- -03 0   "               # 4   3-. 5 0" .11501 /./10 1!-0/ 201   #   " -.2 503 -1 0- /530 2202 0   ! 3 .3/102 3.22!0! !.2/10/ " "0 0!             Í HNOTSKURN »Verðmæti þorskafla var18,3 milljarðar og jókst um 23,7%. Aflaverðmæti ýsu nam 6,6 milljörðum, sem er 15,7% aukning »Mest aflaverðmæti skil-uðu sér á land á Suð- urnesjum fyrstu sex mánuði ársins, alls 9,5 milljarðar króna. Það er 35,4% aukn- ing frá árinu áður »Á Vesturlandi var afla-verðmæti 2,8 milljarðar króna og þar er aukningin milli ára langmest eða 52,2% Aukningin fyrstu sex mánuðina 5,6 milljarðar króna FRAMKVÆMDASTJÓRI aðal- skrifstofu Evrópusambandsins á sviði sjávarútvegsmála, hr. Fokion Fotiatis hitti fulltrúa sjávarútvegs- ráðuneytis og utanríkisráðuneytis á fundi í Reykjavík í síðustu viku og var þar rætt samstarf Evrópusam- bandsins og Íslands á sviði sjáv- arútvegsmála. „Fulltrúar ESB vilja kynna sér fiskveiðistjórnunarkerfi þeirra ríkja sem hafa náð góðum árangri í stjórnun auðlindarinnar og sýndu þeir íslenska fiskveiðistjórn- unarkerfinu mikinn áhuga. Sér- staka athygli vakti gott eftirlits- kerfi á Íslandi, en eftirlit með fiskveiðum hefur verið vandamál hjá ýmsum Evrópuþjóðum,“ segir meðal annars í frétt sjávarútvegs- ráðuneytisins um fundinn. Menn voru sammála um að góð samvinna í baráttunni við sjóræningjaveiðar hafi borið árangur og töldu rétt að halda þeirri samvinnu áfram. Þá var rætt um tvíhliða fiskveiði- samning ESB við Ísland frá árinu 1993. ESB lýsti ánægju sinni með samninginn, sem kveður á um gagnkvæm skipti á aflaheimildum. Ísland ræddi einnig tollamál og þá grundvallarafstöðu Íslands að afnema skuli alla tolla á fiski. Loks var rætt um vinnu ESB að stefnu þess í málefnum hafsins. Fundað með ESB ÚR VERINU STJÓRNENDUR Mjólkursamsöl- unnar kynna tillögur um viðamiklar breytingar á skipulagi mjólk- urvinnslu í landinu á fundi full- trúaráðs MS/Auðhumlu í næstu viku. Í tillögunum felst að mjólkurvinnslu verður hætt í mjólkursamlaginu á Egilsstöðum og stöðinni breytt í dreifingarstöð. Guðbrandur Sigurðs- son, forstjóri MS, segir að einnig verði breytingar á starfsemi samlag- anna í Búðardal, á Blönduósi, Ak- ureyri og Selfossi, auk Reykjavíkur, en vill ekki segja nú hvað breytist á þessum stöðum. Áður hafa verið gerðar breytingar á Ísafirði. Í mjólkursamlaginu á Egilsstöðum eru starfsmenn í sem svarar til fjór- tán stöðugilda. Tekið er við alls um 4,6 milljónum lítra af mjólk á ári og unnið úr henni skyr og mozz- arellaostur, auk mjólkur. Forstjóri Mjólkursamsölunnar kynnti tillögur um að hætta þessari vinnslu í upphafi næsta árs á fundi með fulltrúum bænda fyrir austan á mánudag og síðan einnig fyrir starfs- fólkinu. Níu til tíu starfsmönnum verður sagt upp störfum. Guðbrandur segir að samlagið sé lítið, með aðeins tæp 4% af mjólk- urframleiðslunni í landinu, og allar þær vörur sem þar eru framleiddar séu einnig framleiddar í öðrum mjólkurbúum. Því sé verulegt hag- ræði af því að fækka vinnslustöðvum. Nefnir að breytingarnar fyrir austan spari 60 til 80 milljónir kr. á ári. Mjólkin verður lögð inn á Akureyri en vörurnar sem framleiddar hafa verið á Egilsstöðum verða fram- leiddar á fleiri stöðum. Tilbúnar mjólkurvörur verða fluttar til Egils- staða og dreift þaðan. Segir Guð- brandur að fyrirtækið muni kapp- kosta að rækta markaðinn á Austurlandi og þjóna innleggjendum á svæðinu áfram vel. Starfsfólkið slegið „Þetta leggst illa í starfsfólkið, það er almennt slegið yfir þessu,“ segir Friðrik Gauti Kjartansson, bílstjóri hjá mjólkursamlaginu á Egilsstöðum og trúnaðarmaður ófaglærð starfs- fólks. Hann segir að starfsfólkið sé al- mennt með langan starfsaldur. Til dæmis er Friðrik að vinna sitt 28. ár. „Þótt ég reyni alltaf að vera bjart- sýnn tel ég yfirgnæfandi líkur á að þetta verði framkvæmt,“ segir Frið- rik. Það gæti þýtt að starfsfólkið fengið uppsagnarbréf sín um næstu mánaðamót og missti vinnuna um áramót, að hans sögn. Hann segir að rekstur mjólk- ursamlagsins hafi ekki gengið illa. Hins vegar telji stjórnendur fyr- irtækisins hægt að græða meira með því að leggja niður vinnsluna. „Þetta er farið að snúast eingöngu um gróða,“ segir Friðrik. Vegna stórframkvæmdanna hefur verið mikil vinna á Austurlandi. „Fólkið fær vonandi vinnu, eins og staðan er núna,“ segir Friðrik en bætir því við að ástandið sem verið hafi á vinnumarkaðnum verði ekki til frambúðar. Á næstu mánuðum dragi verulega úr framkvæmdum og ekki víst að svo mikil vinna verði á Fljóts- dalshéraði í framhaldinu. Leita annarra leiða Fulltrúar bænda eru mótfallnir því að vinnsla verði lögð niður á Egils- stöðum og óttast afleiðingarnar fyrir mjólkurframleiðslu á svæðinu. „Við lítum svo á að þetta sé upphafið að endalokum mjólkurframleiðslu hér á Austurlandi. Við sitjum eftir á algeru jaðarsvæði,“ segir Gunnar Jónsson, bóndi á Egilsstaðabúinu og formaður Austurlandsdeildar MS/Auðhumlu, og spyr jafnframt til hvaða hagræð- ingaraðgerða verði gripið næst: „Verður þetta ekki talið óhagkvæmt svæði? Ég er hræddur um að það styttist í það og að ekki verði talið borga sig að sækja mjólkina til okk- ar,“ segir Gunnar. Hann telur að þessi aðgerð geti leitt til óöryggis meðal bænda. Þeir verði ragir við að fara út í fram- kvæmdir og kaupa kvóta. „Það er kannski það sem einhverjir vilja,“ segir Gunnar og vísar til þess að margir vilji fá til sín aukinn kvóta og meiri mjólk til að vinna. Gunnar hefur efasemdir um útreikninga á hagræði MS af því að leggja niður vinnsluna, telur til dæmis að það vanti upp á að gert sé ráð fyrir öllum kostnaði við flutninga á mjólkinni til Akureyrar og aftur til baka. Tillögur um hagræðingu í mjólk- urvinnslunni verða kynntar á full- trúaráðsfundi MS/Auðhumlu næst- komandi fimmtudag. Stjórn Mjólkursamsölunnar mun taka end- anlega ákvörðun í kjölfarið. Gunnar Jónsson telur að grund- völlur sé fyrir rekstri stöðvarinnar á Egilsstöðum. Ef MS ákveður að hætta mjólkurvinnslu verði annarra leiða leitað til að vinna mjólk á svæð- inu. Nefnir í því sambandi að vel komi til greina að leita til keppinautar MS, Mjólku, til að athuga hvort það fyr- irtæki geti komið að slíkum rekstri. Breytingar í öllum stöðvum Mjólkursamsölunnar Áform eru uppi um að hætta mjólkurvinnslu á Egilsstöðum og breyta starfsemi í öll- um stöðvum MS. Helgi Bjarnason kynnti sér málið og ræddi við hagsmunaaðila. Morgunblaðið/Steinunn Ostagerð Mozzarellaosturinn er stolt starfsfólks mjólkurstöðvarinnar á Egilsstöðum. Guðgeir Björnsson handleikur oststykkið. Í HNOTSKURN »MS rekur sjö starfs-stöðvar, í Reykjavík, Búð- ardal, á Ísafirði, Blönduósi, Akureyri, Egilsstöðum og Sel- fossi. »Á Egilsstöðum er tekið við4,6 milljónum lítra af mjólk á ári, frá kúabændum á svæðinu frá Vopnafirði til Djúpavogs. »Starfsmenn MS á Egils-stöðum eru fjórtán, þar af þrír mjólkurfræðingar. FARÞEGI sem kom til landsins með flugi klukkan 22.30 í fyrrakvöld var svo aðframkominn að hann kastaði af sér vatni í landgangin- um skömmu eftir að hann steig frá borði við Flugstöð Leifs Eiríks- sonar. Lögreglan var umsvifa- laust kölluð til og á lögregluvefnum kemur fram að farþeginn verður kærður fyrir at- hæfið og má hann búast við peninga- sekt. Á vefnum kemur einnig fram að lögreglan á Suðurnesjum hafi að undanförnu leitað að krökkum sem hafa stundað það á kvöldin að sprengja skotelda í Grindavík. Mikið hefur verið hringt í lögregluna vegna þessa og eru foreldrar beðnir að at- huga hvort börn þeirra hafi vitn- eskju um þetta mál. Kærður fyr- ir að spræna STJÓRN Faxaflóahafna hefur sam- þykkt að fela hafnarstjóra að taka upp viðræður við sveitarstjórn Hval- fjarðarsveitar um gerð tilboðs í eign- ir ríkisins í Hvalfirði, en um er að ræða húseignir, tækjabúnað og bryggju fyrrverandi olíubirgða- stöðvar NATO. Þá er á svæðinu lóð sem er um 18,6 hektarar að stærð. Björn Ingi Hrafnsson, stjórnar- formaður Faxaflóahafna, segir hafn- irnar hafa áhuga á að skoða þetta svæði og verði málið unnið í sam- starfi við sveitarfélögin. „Þarna er augljóslega hafnaraðstaða á starfs- svæði Faxaflóahafna sem nær frá Borgarnesi og upp til Reykjavíkur. Þetta er inni á miðju því svæði og þess vegna fullkomlega eðlilegt að við sýnum þessu áhuga,“ segir hann. Tilboðsfrestur vegna eignanna er til 10. október. Hjá Ríkiskaupum fengust þær upplýsingar að mikill áhugi væri fyrir eignunum. Íhuga tilboð í eignir í Hvalfirði ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.