Morgunblaðið - 20.09.2007, Síða 6

Morgunblaðið - 20.09.2007, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is TVEIR svonefndir spánarsniglar hafa fundist á höfuðborgarsvæðinu í haust, að sögn Erlings Ólafssonar, skordýrafræðings hjá Nátt- úrufræðistofnun Íslands. Sniglarnir þykja hin mesta plága, en þeir eru afar gráðugir. „Hann étur allt sem fyrir verður og er geysimikið át- vagl,“ segir Erling um snigilinn. Þá séu mikil óþrif af sniglinum. „Fari þeir yfir grasflöt um nótt verður hún öll mjög slímug,“ segir hann. Báðum sniglunum sem fundist hafa í haust var komið til Nátt- úrufræðistofnunar. Annar þeirra fannst í Salahverfi í Kópavogi og hinn á Arnarnesi í Garðabæ. Erling segir ljóst að sniglarnir hafi lifað af sumarið þrátt fyrir að þurrkatíð hafi verið. „Þurrkarnir hafa slæm áhrif á snigla, þeir dafna þá illa. En spánarsnigill er aðlag- aður þurrkum,“ segir Erling, en snigillinn er ættaður frá Íber- íuskaga. Erling segir að til þess að komast af í þurru veðri þurfi snigill- inn að framleiða mikið af eggjum. „En þegar kvikindið berst á blautari slóðir eru lítil afföll af eggjum.“ Spurður hvernig spánarsnigillinn hafi borist hingað til lands segir Er- ling að Íslendingar séu mjög dug- legir við að flytja inn alls kyns gróð- urvörur og jarðvegur fylgi þeim „Það er óæskilegt að flytja jarðveg til landsins,“ segir hann. Kvikindi á borð við spánarsnigil berist hingað aðallega sem egg og ungviði í jarð- veginum en séu ekki á yfirborðinu. Fólk fari með sniglana á Náttúrufræðistofnun Erling biður þá sem kunna að rekast á spánarsnigil í garði sínum að koma með þá á Náttúru- fræðistofnun. Eigi fólk þess ekki kost sé best að koma sniglunum fyr- ir kattarnef. Hann segir ljóst að spánarsniglinum verði ekki útrýmt héðan af. „En það má reyna að tefja fyrir honum og það er óþarfi að horfa framhjá honum. Þetta er með því verra sem við gátum fengið til landsins af svona kvikindum. Nú er búið að rigna í allt sumar í Skandin- avíu og fjölmiðlar þar eru búnir að segja margar sögur af spán- arsniglum.“ „Hann étur allt sem fyrir verður“ Tveir spánarsniglar hafa fundist í haust en þeir þykja plága Í HNOTSKURN »Spánarsnigill er oftastrauðbrúnn á lit en er til í ýmsum rauðum og brúnum litum. »Snigillinn er mjög stór, 7-15 cm langur. »Hans varð fyrst vart á Ís-landi árið 2003. »Á vef Náttúrufræðistofn-unar segir að landnám snigilsins sé slæm tíðindi. »Full ástæða sé til aðmæta þeim af hörku og hyggst stofnunin fylgjast grannt með framvindu mála á næstunni. Ljósmynd/Erling Ólafsson Slímug slóð Mikill óþrifnaður er af Spánarsniglinum sem skilur eftir sig mikið slím þar sem hann fer um. Snigillinn er auk þess mjög gráðugur. HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands vestra hefur dæmt karlmann á þrí- tugsaldri til fimm mánaða fangels- isvistar, skilorðsbundinnar til tveggja ára, fyrir líkamsárás. Mað- urinn réðst að dyraverði skemmti- staðarins Mælifells á Sauðárkróki í vor eftir að hann hugðist vísa ákærða á dyr vegna óspekta. Brást ákærði illkvæða við afskipt- unum; sló dyravörðinn þungu hnefa- höggi í höfuð með þeim afleiðingum að hann féll aftur fyrir sig og hlaut auk þess mar á höfði, eymsli á bak við eyra og bólgu yfir klettabeini. Með háttsemi sinni rauf ákærði skilorð dóms sem kveðinn var upp yfir honum fyrir tveimur árum vegna nytjastulds, ölvunaraksturs og fleiri brota. Voru bæði málin því tekin til meðferðar og dæmd í einu lagi. Við ákvörðun refsingar var meðal annars horft til skýlausrar játning- ar ákærða og þess hversu litla áverka dyravörðurinn hlaut af höggi hans. Hlaut dóm fyrir árás á dyravörð Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is SAMKAUP hafa haft samband við Faxaflóahafnir og sótt um lóð. Fyr- irtækið er nú með vöruskemmu í Grafarvogi en að sögn forstjóra Samkaupa, Sturlu Eðvarðssonar, er sú aðstaða orðin allt of lítil. Til greina komi að Samkaup reisi sér hús á hafnarsvæði Reykjavíkur. „Ef það eru spennandi lóðir í boði gerum við það. Við rekum fyrirtæki sem heitir Búr, það flytur inn ávexti og grænmeti og er einn helsti keppi- nautur Banana,“ segir Sturla. „Við erum í húsnæðisþrengingum í Graf- arvoginum vegna aukinnar sölu og þess vegna sækjum við um lóð undir vöruhús og viljum náttúrlega fá hús- næði undir allt birgðahald fyrirtæk- isins, einnig þurrvöru. Hafnarsvæði Reykjavíkur er stórt, það nær út í Örfirisey og þetta er opin umsókn hjá okkur. Við vilj- um auðvitað komast inn á höfuð- borgarsvæðið og það er alveg ljóst að ábyrgð sveit- arstjórnaraðila og Faxaflóahafna er mjög mikil. Til að hægt sé að halda uppi eðli- legri samkeppni á höfuðborgar- svæðinu þurfum við lóð undir matvöruverslun og vöruhús.“ Sturla segir að Baugur og Kaupás [Krónan] séu líklega með um 90% markaðshlut á matvörumarkaði í Reykjavík. Vilja auka samkeppni í matvöruverslun í Reykjavík „Við viljum bara að neytendur hafi val um fleiri kosti en þessa tvo. Það getur varla verið eðlileg sam- keppni til lengri tíma að tveir aðilar skipti á milli sín markaðnum. Við vildum gjarnan geta opnað matvöru- verslun í húsinu í Grafarvoginum en það er ekki hægt. Það eru þinglýst ákvæði um að ekki megi opna þar fleiri matvöruverslanir.“ Samkaup reka verslanir víða á landsbyggðinni þar sem eru þreng- ingar í atvinnulífinu. „Þeir aðilar sem eru búnir að koma sér vel fyrir á höfuðborgarsvæðinu eru nú farnir að sækja í þessi stærri byggðarlög, m.a. hafa bæði Krónan og Bónus opnað verslanir á Akranesi. Menn eru því í eins konar vernduðu um- hverfi í Reykjavík og geta svo leyft sér hvað sem er á landsbyggðinni. Ég hef átt fund með borgarstjóra og skrifað öllum borgarfulltrúum bréf um að við viljum fá lóðir í Reykjavík til að auka samkeppnina. Ég hef ekki fengið svör, aðeins Dag- ur B. Eggertsson þakkaði mér er- indið með tölvupósti, aðrir hafa engu svarað. En þetta er ekki nýtt, for- veri minn í þessu starfi sótti oft um lóð í Reykjavík en það gekk ekki eft- ir,“ segir Sturla Eðvarðsson. Samkaup vilja fá lóð hjá Faxaflóahöfnum Hafa hug á að reisa nýja matvöruverslun í Reykjavík Sturla Eðvarðsson SKIPULAGSRÁÐ hefur samþykkt að byggt verði sambýli á tveimur hæðum fyrir sex geðfatlaða einstak- linga við Holtaveg í Laugardal. Þetta var samþykkt með atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokks, Fram- sóknarflokks og Samfylkingar, en fulltrúi VG var á móti og einnig áheyrnarfulltrúi Frjálslynda flokks- ins. Byggingin er ekki á sama stað og fyrirhugað var að byggja tvö hús fyr- ir geðfatlaða einstaklinga á útivist- arsvæði fyrir neðan Langholtsskól- ann, en íbúasamtök við Laugardal lögðust gegn byggingunni á þeim stað, svo sem þau höfðu einnig gert gegn fyrri hugmyndum um bygging- ar á svæðinu. Málið fer nú til með- ferðar í borgarráði. Í bókun VG og frjálslyndra af þessu tilefni segir að í ljósi athuga- semda og þeirrar staðreyndar að gengið sé með afgerandi hætti á Laugardalinn leggist þeir gegn til- lögunni. „Fulltrúar Vinstri grænna og F-lista kjósa við þessa afgreiðslu að standa með Laugardalnum sem er eitt þeirra grænu svæða í borginni sem á sannarlega undir högg að sækja þar sem ásælni í svæðið fer vaxandi og jafnvel með gjaldtöku af ýmsu tagi,“ segir einnig. Í bókun meirihlutans segir að þörfin fyrir sambýli af þessu tagi sé brýn og mikilvægt að geðfatlaðir ein- staklingar njóti nábýlis við opin og græn svæði. „Með þessari staðsetn- ingu er í engu gengið á útivistar- svæði í Laugardalnum, enda hefur þetta svæði hingað til verið umráða- svæði garðyrkjustjóra.“ Hildur Hafstein, talsmaður íbúa við Laugardal, sagðist vera mjög leið yfir þessari niðurstöðu og „mér finnst mjög sérkennileg sú áhersla að byggja á grænum svæðum í borg- inni“. Hún sagði aðspurð að þessi lausn væri skömminni skárri en sú sem fyrr hefði verið uppi á borðum, en báðar væru slæmar. Þá hryggði það hana að íbúum væri stillt upp sem andstæðingum geðfatlaðra í þessu máli. Um það hefði málið aldr- ei snúist heldur einungis um það að varðveita Laugardalinn. Hildur bætti því að borgaryfirvöld hefðu lofað íbúaþingi um Laugardal- inn og það væri mjög undarlegt að taka þessa ákvörðun áður það þing hefði verið haldið. Sambýli byggt við Holtaveg Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is EINHVERJIR undarlega innrétt- aðir skemmdarvargar gerðu það að leik sínum í fyrrinótt að rífa upp dagblaðapakka sem skildir höfðu verið eftir fyrir blaðbera og dreifa blöðunum út um víðan völl. Fréttablaðið, Blaðið og Morgun- blaðið fengu öll að fjúka en skv. upplýsingum frá Blaðadreifingu Árvakurs vantaði aðeins einn blað- bera Morgunblaðsins sinn pakka en Blaðið hvarf frá fjórum blaðber- um. Aukablöð voru því borin út í hús. Eftir hádegi í gær lágu ekki fyrir upplýsingar hjá Pósthúsinu, sem dreifir Fréttablaðinu, um hversu mörgum bunkum var stolið. Bílstjóri sem ekur fyrir Farm, sem dreifir Morgunblaðinu, sagði að dagblaðaslóðin hefði legið frá Bollagörðum á Seltjarnarnesi og út á Hringbraut í Vesturbænum. Víðar í borginni var dreift úr dagblaðapökkum, m.a. á Fálka- götu, Sundlaugavegi, Reykjavegi, Brúnavegi og Austurbrún, að sögn Guðna Hannessonar, eftirlitsverk- stjóra hjá framkvæmdasviði Reykjavíkurborgar. Tveir verktak- ar voru ræstir út til hreinsunar- starfa og áætlaði Guðni að reikn- ingurinn fyrir þrifin myndi hljóða upp á 70-100.000 krónur. Ekki var minna um fjúkandi blöð á Seltjarnarnesi. „Þetta var eins og hálfgerð skæðadrífa,“ sagði Óskar Einarsson, verkstjóri í áhaldahúsi Seltjarnarness. Hann telur augljóst að viðkomandi hafi skorið upp pakkana og síðan dreift úr þeim úr bíl. Bæjarstarfsmenn voru þegar sendir út til að taka til og auk þess kom 6. bekkur D úr Mýrarhúsaskóla þeim til aðstoðar. „Við fórum út með ruslapoka og tókum Austurströndina og Eið- istorgið og Nesveginn út að bæj- armörkum,“ sagði Soffía Frí- mannsdóttir, kennari 6.D. Krakkarnir vildu reyndar helst fá borgað fyrir þetta starf, eða frjáls- an tíma í tölvum, en lendingin varð sú að á morgun verður spilatími. Tiltektin verður flokkuð sem tími í lífsleikni. Blaðaböðlunum sem voru á ferð í fyrrinótt veitti líklega ekki af slíkri kennslu. Dagblöðum dreift um götur borgarinnar Blaðaböðlar rifu upp blaðapakka                                 

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.