Morgunblaðið - 20.09.2007, Blaðsíða 24
ferðalög
24 FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Áhugi fólks hefur verið aðaukast og þá sérstaklega ámeðal Íslendinga og í þvíhefur aukin fjölbreytni í
gistingu , m.a. tilkoma Hótel Flat-
eyjar skipt miklu máli, þó að ekki séu
síður góð tækifæri þar fyrir dags-
ferðalanga,“ segir Kristrún Konráðs-
dóttir sem er sölu- og markaðsstjóri
hjá Sæferðum, fyrirtækinu sem sér
um ferjuflutninginn yfir til Flateyjar.
Mikið hefur breyst í Flatey á sl. ára-
tugum og staðurinn verið að byggj-
ast upp sem ferðamannastaður sl. ár.
„Fyrir 30 árum leit þorpið í Flatey út
eins og draugabær, flest var þá í nið-
urníðslu enda stutt síðan að rekstur
útgerðar og hraðfrystihúss lognaðist
út af. Smám saman hafa eigendur
húsanna hins vegar verið að taka þau
í gegn og síðastliðin tíu ár hefur mik-
ið gerst. Þegar gengið er inn í þorpið
í dag er það svo eins og að ganga 50-
60 ár aftur í tímann,“ segir Kristrún.
Mörg hús á eyjunni eru gömul ís-
lensk timbur- og bárujárnshús sem
gerð hafa verið upp í gamla stílnum
og flestar nýbyggingar eru reistar í
stíl sem passar við gömlu húsin en í
þorpinu sjálfu eru um það bil 25-30
hús. Fyrir vikið má í Flatey finna
nokkuð heildstæða mynd gamalla
húsa sem mörg hver eru frá 19. öld
og fyrri hluta 20. aldar.
„Yfir veturinn eru aðeins fjórir
ábúendur í eyjunni, tvenn hjón sem
búa þar og lifa af landsins gæðum.
En á sumrin breytist þetta mikið og
því er mjög árstíðaskipt hve margir
eru í eyjunni. Á sumrin geta verið
þar 200-300 manns sem er svipaður
fjöldi og bjó í Flatey á gullaldarárum
hennar um aldamótin 1900.“
Kristrún segir ennfremur að áhugi
Íslendinga fyrir Flatey hafi aukist
mikið, enda sé hún náttúruperla sem
auðvelt sé að komast til þó að fáir
hafi í raun komið þangað.
„Það sem hefur hjálpað okkur
mikið er aukinn áhugi ferðamanna á
Vestfjörðum. Fólk nýtir sér í auknu
mæli Breiðafjarðaferjuna Baldur
sem tengingu upp á Vestfirði og
stoppar þá gjarnan í Flatey á leiðinni
þangað. Það er jafnvel hægt að senda
bílinn á undan sér yfir fjörðinn en
ferjan hefur alltaf viðkomu í Flatey á
báðum leiðum.“
Enginn að flýta sér
Unnið er að því að auka veg ferða-
þjónustu í Flatey en liður í því er að
gera náttúruperluna aðgengilega
fyrir hinn almenna ferðamann.
„Eyjan er vel þekkt meðal erlendra
ferðamanna sem fuglaskoðunar-
staður en aftur á móti er hún ekki
eins þekkt á meðal almennings. Það
er tilvalið fyrir fólk að koma út í Flat-
ey, ná andanum og komast í tíma-
laust umhverfi þar sem náttúran og
mannlífið gengur saman í takt. Hér
er enginn að flýta sér,“ segir Krist-
rún.
Flatey býður upp á margskonar
gistimöguleika en þar er eins og áður
segir nýtt hótel, Hótel Flatey, sem
uppgert er úr gömlum pakkhúsum
og þar ráða ríkjum þær Ingunn Jak-
obsdóttir, Ingibjörg Á. Pétursdóttir,
Álfhildur Ingadóttir og Ásdís Bene-
diktsdóttir. Sömuleiðis stendur þá til
boða bændagisting, tjaldsvæði og
einnig er hægt að leigja smáhýsi.
Fyrir þá sem hyggja á heimsókn
til Flateyjar má benda á að til boða
standa skipulagðar ferðir um eyjuna
fyrir hópa þar sem farið er yfir sögu
eyjarinnar, náttúrusögu og kirkjan
skoðuð, en hún var byggð árið 1921
og hefur að geyma altaristöflu eftir
Baltasar listmálara og endurspeglar
að miklu leyti það andrúmsloft sem
ríkir í Flatey.
Næsta vor verða svo kynntar til
sögunnar fjögurra daga siglingar um
Breiðafjörðinn, þar sem farþegar
gista allar nætur í Flatey, en síðan er
siglt á vit ævintýranna á daginn.
Vonast er til þess að þetta hjálpi til
við að lengja ferðamannatímann í
eyjunni.
ingvarorn@mbl.is
Hótel Flatey Pakkhúsið hefur fengið nýtt hlutverk sem hótel.
Ljósmyndir/Frank Bradford
Til móts við fortíðina Húsabyggðin í Flatey minnir um margt á fyrri tíma.
Eyjaskeggjar Mikið fuglalíf er í eyjunni og er lundinn til að mynda meðal
þeirra fugla sem þar ber mikið á.
Griðastaðurinn Flatey
Á Breiðafirði er að finna
Flatey, þjóðjörð sem er
rík af nytjum, menningu
og sögu en líka eyju sem í
dag höfðar sífellt meira
til fólks sem leitar mót-
vægis við amstri hins
daglega lífs. Ingvar Örn
Ingvarsson tók Krist-
rúnu Konráðsdóttur tali
en hún vinnur meðal ann-
ars að því að auka ferða-
mannastraum til eyj-
arinnar.
Þegar gengið er inn í
þorpið í dag er það
svona eins og að ganga
50-60 ár aftur í tímann
www.saeferdir.is
www.hotelflatey.is
Höllin blasir við gestumþegar þeir koma gang-andi niður af hæðum semmynda eins konar skeifu í
kringum hana. Í kvikmyndinni
Dreggjum dagsins sjást bílar aka að
höllinni og fjölmargar útitökur sýna
hana, umhverfið og undurfagra
garða.
Dyrham Park er í eigu National
Trust, sjálfstæðrar stofnunar, sem
hefur m.a. það hlutverk að vernda og
halda opnum fyrir almenningi yfir
300 sögufrægum byggingum og görð-
um í Englandi. Starfsemi National
Trust byggist á árgjöldum styrkt-
arfélaga, gjöfum, hagnaði af minja-
gripasölu og aðgangseyri gesta. Fé-
lagar í National Trust eru 3,4
milljónir og yfir 12 milljónir manna
heimsækja hallir eða garða. Auk þess
er talið að 50 milljónir gesta komi á
opin svæði sem heyra undir National
Trust sem hefur einnig umsjón með
skógum, fenjum, ströndum og rækt-
unarlandi, eyjum, fornleifum, köstul-
um, þorpum og ýmsu öðru.
Mikil leit hófst að góðum tökustöð-
um eftir að ákveðið var að kvikmynda
Dreggjar dagsins. Dyrham Park var
valinn fyrir allar útimyndatökur en
Badmington House og Corsham Co-
urt í Avon og Powderham Castle í
Devon urðu sögusvið myndarinnar
innan dyra. Þar skipti miklu að eld-
hús og íbúðir þjónustufólks væru enn
óbreyttar og í góðu ástandi enda
fjallar myndin aðallega um yfirþjón-
inn Stevens (Anthony Hopkins) og
bústýruna Miss Kenton (Emma
Thompson). Í myndinni, sem gerist
að mestu á fjórða áratug 20. aldar,
hefur höllin hlotið nafnið Darlington
Hall. Þar þjóna Stevens og Kenton
Darlington lávarði sem er hallur und-
ir nasista og reynir að koma á vin-
áttusambandi milli Þjóðverja, Breta,
Í leikmynd Remains of the Day
Ljósmynd/ Fríða
Fólk fellur í stafi Fegurðin hefur mikil áhrif á þá sem heimsækja Dyrham Park og þeir njóta þess að skoða lífið í
tjörninni eða bara sitja og horfa á dýrðina sem felst í umhverfinu og arkitektúrnum.
Það er svolítið undarlegt
að vera allt í einu kominn
inn í leikmynd úr þekktri
kvikmynd. Fríða Björns-
dóttir fann það vel þegar
hún stóð fyrir framan
Dyrham Park-höll
skammt norðan við Bath
í Englandi þar sem kvik-
myndin The Remains of
the Day, eða Dreggjar
dagsins, var tekin að
stórum hluta árið 1993.