Morgunblaðið - 20.09.2007, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 20.09.2007, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Sæmundur Ósk-arsson stór- kaupmaður fæddist á Akureyri 10. ágúst 1924. Hann lést á Hjúkrunar- heimilinu Eir 10. september síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Óskar Sæmundsson kaup- maður á Akureyri, f. 29.12. 1897, d. 26.8. 1970 og Guð- rún Magnúsdóttir ljósmóðir og hús- móðir, f. 13.4. 1900, d. 2.1. 1947 Systkini Sæmundar eru Guð- finna, f. 15.6. 1928 og Magnús, f. 10.6. 1930, d. 23.1. 1999. Sæmundur kvæntist 11.6. 1949 fyrri konu sinni Eivor Holm, f. í Svíþjóð 22.8. 1920. Þau skildu 1951. Dóttir Sæmundar og Eivor er Guðrún Kristína, f. 9.9. 1950, áður gift Martin Planefjord, en nú í sambúð með Göran Ander- son. Dætur hennar og Martins eru 1) Marie Helene, f. 29.11. 1976, gift Fredrik Sten Malm. prófi frá Verzlunarskóla Íslands 1942. Hann fluttist síðar til Sví- þjóðar og lauk prófi frá verzl- unarskólanum Barlock Institute í Stokkhólmi 1947 og þar kynntist hann fyrri konu sinni Eivor Holm. Er Sæmundur kom til baka til Íslands starfaði hann bæði sem sölumaður og sjómaður á síldarskipum og togurum. 1953 flutti hann aftur til Svíþjóðar og vann m.a. hjá skipafélaginu Svenska Lloyd sem leiddi hann um öll heimsins höf. Í einni af ferðunum kom hann til Lübeck þar sem hann kynnist seinni konu sinni Ingrid Frida Erika Sommer sem starfaði þar við bókhald. Sæmundur lauk prófum frá stýrimannaskólunum í Härnö- sand 1957 og Kalmar 1958. Sæ- mundur og Ingrid, ásamt Guð- rúnu dóttur hans, fluttu alkomin til Íslands 1959. Hann stofnaði heildverslunina S.Óskarsson & Co hf. 1962 og rak hana til 1981 er hann seldi hana og stofnaði heildverslunina Esju hf. ásamt Ingrid konu sinni. Sæmundur var alla sína ævi einarður stuðnings- maður KA og var stofnandi KA klúbbsins í Reykjavík og fyrsti formaður hans. Sæmundur verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15 Dóttir þeirra er Tuva, f. 29.3. 2007. 2) Irene Christina, f. 14.8. 1980, unnusti Jan-Erik Krendel. Sæmundur kvænt- ist 11.9. 1957 Ingrid Fridu Eriku Som- mer, f. í Þýskalandi 20.6. 1937, d. 3.1. 2000. Foreldrar hennar voru Rudolf Luis Johann Som- mer, f. 23.11. 1899, d. 22.2. 1945 og Herta Anna Marie Auguste Paula Sommer, fædd Kampf, f. 8.2. 1902, d. 14.9. 1972. Börn Sæmundar og Ingrid eru 1 ) Helga, f. 26.3. 1965, gift Guðna Inga Johnsen. Börn þeirra eru Sæmundur Ingi, f. 27.6. 1988, Þórður Ingi, f. 1.9. 1993 og Guðný Helga, f. 21.7. 1998. 2) Óskar, f. 4.2. 1970, kvæntur Torf- hildi Silju Sigurðardóttur. Börn þeirra eru Helena Rakel, f. 13.7. 1997 og Sæmundur, f. 11.7.2000. Sæmundur ólst upp á Akureyri en fluttist til Reykjavíkur og lauk Ég er á langferð um lífsins haf og löngum breytinga kenni. Mér stefnu frelsarinn góður gaf. Ég glaður fer eftir henni. Mig ber að dýrðlegum, ljósum löndum. Þar lífsins tré gróa’ á fögrum ströndum. Við sumaryl og sólardýrð. Og stundum sigli ég blíðan byr og bræðra samfylgd þá hlýt ég og kjölfars hinna er fóru fyrr án fyrirhafnar þá nýt ég. Í sólarljósi er særinn fríður og sérhver dagurinn óðum líður, er siglt er fyrir fullum byr. En stundum aftur ég aleinn má, í ofsarokinu berjast. Þá skellur niðadimm nóttin á, svo naumast hægt er að verjast. Ég greini ei vita né landið lengur, en ljúfur Jesús á öldum gengur, um borð til mín í tæka tíð. Mitt skip er lítið, en lögur stór og leynir þúsundum skerja. En granda skal hvorki sker né sjór því skipi, er Jesús má verja. Hans vald er sama sem var það áður, því valdi’ er særinn og stormur háður. Hann býður: Verði blíðalogn! Þá hinsti garðurinn úti er, ég eigi lönd fyrir stöfnum. Og eftir sólfáðum sæ mig ber, að sælum blælygnum höfnum. Og ótal klukkur ég heyri hringja. Og hersing ljósengla Drottins syngja. Velkominn hingað heim til vor. Lát akker falla! Ég er í höfn. Ég er með frelsara mínum. Far vel þú æðandi dimma dröfn! Vor Drottinn bregst eigi sínum. Á meðan akker í æginn falla. Ég alla vinina heyri kalla, sem fyrri urðu hingað heim. (Þýð. Vald. V. Snævarr) Góða ferð elsku pabbi minn. Þín Helga. „Komdu og sestu aðeins hjá mér Tóta,“ sagði tengdapabbi við mig þegar ég var ung stúlka, nýfarin að venja komur mínar á heimili Óskars míns. Ég settist hjá honum hálf- skjálfandi og vissi ekkert hvað hann ætlaði að ræða við mig. „Ef þú eign- ast einhvern tímann son með honum Óskari mínum, ertu þá ekki til í að skíra hann Sæmund?“ Ha, jú jú sagði ég, ekki mikið farin að spá í barneignir. Svo varð ég ófrísk haustið ’96 og í júlí ’97 fæddist hún Helena okkar. Haustið ’99 varð ég ófrísk aftur og var á leiðinni í sónar í febrúar. Þá sagði tengdapabbi við mig: „Hvernig er það Tóta, ætlið þið ekki að fá að vita kynið á barninu?“ Nei ætli það, sagði ég. „Heyrðu, ertu ekki til í að biðja sónarsérfræð- inginn að athuga með kynið á barninu og skrifa það á miða og setja í umslag og merkja mér, svo ég fái að vita kynið. Ég er nefnilega alveg viss um að þetta sé strákur.“ Ja, þú segir nokkuð, sagði ég og í framhaldinu ákváðum við Óskar að fá að vita kynið og það reyndist rétt hjá Sæmundi, strákur var það. Tengdapabbi hafði hermt upp á mig á brúðkaupsdaginn okkar að ég hefði lofað því að skíra strákinn Sæ- mund og ég stóð auðvitað við það. Tengdapabbi hafði frábæran húmor og kunni margar skemmti- legar sögur og það var alltaf gaman að spjalla við hann. Fáir hafa lifað jafn viðburðaríku lífi og hann. Við áttum mjög gott skap saman og það er kannski ekki skrýtið því að við vorum ekkert ólík. Bæði hvatvís, dálítið skapmikil, þrjósk, ákveðin og þolinmæðin ekki okkar stærsti kostur, makar okkar hins vegar með nóg af þolinmæði fyrir báða í hjónabandinu. Sæmundur var alltaf óspar á hrós. Ef honum fannst ég vera fín til fara, þá sagði hann mér það alltaf og ef honum fannst ég ekki nógu fín þá fékk ég líka að vita af því. Ég var einhvern tíma í nýjum íþróttagalla og fannst ég bara fín til fara, þá sagði tengdapabbi: „Gleymdirðu að fara úr náttfötunum í morgun?“ Hann var alltaf hreinskilinn og það kunni ég vel að meta. Honum þótti afar vænt um barna- börnin sín og þau fundu það svo sannarlega, hann kallaði Helenu Rakel fegurðardrottningu og var af- ar stoltur af alnafna sínum, Sæ- mundi Óskarssyni yngri. Honum fannst við eiga myndarleg og efni- leg börn og þeim fannst alltaf gam- an að heimsækja afa sinn. Síðustu árin bjó tengdapabbi á Eir, fyrst í eignaríbúð og svo þegar heilsu hans fór að hraka fór hann á hjúkrunardeild. Starfsfólk Eirar á svo sannarlega hrós skilið fyrir að hugsa einstaklega vel um tengda- pabba. Einnig var hún Helga mágkona mín einstaklega dugleg að hugsa um pabba sinn. Hún fór mjög oft til hans, sá um að þvo allan þvott af honum og sinnti honum einstaklega vel. Nú er komið að kveðjustund, tengdapabbi er búinn að fá hvíldina, hann var svo viss um að hann mundi hitta Ingrid sína aftur og ég er viss um að hún tekur vel á móti honum. Ég mun sakna elsku tengdapabba mikið, svona miklir karakterar eru vandfundnir. Takk fyrir allt saman. Þín tengdadóttir, Torfhildur Silja. Kveðja frá K.A. Árin milli stríða eru mörgum Ak- ureyringum kær í endurminning- unni. Ekki bara veðurfarið, heldur tilfinningin fyrir því að vera búsett- ir í samfélagi sem er ekki fjölmenn- ara en svo, að allir þekktu alla. Þannig var umhverfið sem Sæ- mundur Óskarsson ólst upp í og naut til þeirrar fullnustu að liðna tíðin bjó hjá honum sem ljúf end- urminning þótt fullorðinsárin liðu annars staðar. Já sannarlega ann- arsstaðar því að slík fjölbreytni í námi og störfum var sannarlega óvenjuleg. Það átti jafnt um verslun og viðskipti og langsiglingar um heimshöfin. Á Akureyri var hann fé- lagi í K.A. og lék þar knattspyrnu og þótti sem „senter“ markgráðug- ur eins og félagar hans minnast frá þeim tíma. Gengi K.A. var honum alltaf mikilvægt, og svo mjög, að þegar móti blés hjá félaginu árið 1976 sendi hann hressilegar ábend- ingar í Degi um hvað betur mætti fara í frammistöðu, jafnt hjá leik- mönnum og stjórnendum. Þessu svaraði Stefán Gunnlaugsson for- maður knattspyrnudeildarinnar frísklega og lauk þeim orðaskiptum þannig að Sæmundur spurði ein- faldlega, hvað getum við gert hér fyrir sunnan, og vatt sér í að stofna K.A. klúbbinn í Reykjavík. Klúbb- urinn reyndist síðan K.A. keppend- um ómetanlegur bakhjarl. Það fólst í ýmsu, m.a. að sækja liðin á flug- völlinn og skila þeim til baka auk ýmissa snúninga. Síðast en ekki síst að vera „K.A. áfram kórinn“ á pöll- unum þegar keppt var. Þetta segja margir yngri félagar að hafi verið ómetanleg hvatning til dáða, og vilja koma þökkum sínum á framfæri. Þá er ógetið fjárhagslegs stuðnings klúbbsins við framkvæmdir hjá K.A. Fyrst á 50 ára afmæli félagsins 1978, og enn frekar, þegar veglegt framlag þeirra olli því á lokasprett- inum, að K.A. heimilið var afhent fé- laginu skuldlaust árið 1986. Ekki þarf að tíunda það hér, hvað slík heimahöfn er og hefir verið mikil- væg fyrir alla flokka K.A. í mörgum íþróttagreinum. Að auki þess sem áður er getið má ekki gleyma ýms- um hvatningarverðlaunum í formi bikara og annarra verðlauna sem komu að sunnan. Hvatningin var alltaf til staðar úr þeirri átt. Starf Sæmundar á þessu sviði var mikils metið af forystusveit K.S.Í. og stjórnendum K.A. og hann heiðr- aður með gullmerkjum beggja. Ljóst má vera að hér er fallinn frá K.A. félagi, sem til hinstu stundar vildi félaginu allt hið besta. Fyrir það er sannarlega þakkað að leiks- lokum, og fjölskyldu hans sendar innilegar samúðarkveðjur. Jón Arnþórsson, fyrrv. formaður K.A. Í dag er til moldar borinn vinur minn Sæmundur Óskarsson, í vina- hópi kallaður Simmi, en hann lést á 84. aldursári. Sæmundur var sér- stæður persónuleiki, hafði ákveðnar skoðanir á hlutunum og vék ekki frá þeim. Hann gat verið harður í horn að taka, en þegar betur var að gáð var hann hjartahlýr og raungóður. Hann kom viða við á lífsleiðinni, tók stýrimannspróf í Svíþjóð og starfaði sem fyrsti stýrimaður á stórum fragtskipum. Þegar til Íslands kom stofnsetti hann heildsölufyrirtæki og rak það af myndarskap, lengst af í Sundaborg. Við hjónin kynntumst Sæmundi og hans ágætu eiginkonu Ingrid fyrir um það bil 40 árum, en hún er nú látin. Íbúðir okkar lágu saman í fjölbýlishúsi. Þar sem húsið var ekki fullgert vorum við Sæmundur tilnefndir ásamt þriðja manni í byggingarnefnd. Það var ekki ónýtt að hafa Sæmund sér við hlið í þeirri vinnu. Yfir kaffibolla á kvöldin bár- um við gjarnan bækur okkar saman hvað byggingarframkvæmdir snerti. Einnig beindist spjallið að viðskiptum og verslun en það var áhugavert umræðuefni þar sem við báðir störfuðum í þeirri grein. Sæmundur var heiðarlegur og orðheldinn maður sem er aðals- merki manna, ekki síst þeirra sem viðskipti stunda. Það er gaman að rifja það upp, sem Sæmundur hafði orð á, og ekki skemmdi það kvöld- stundina, þegar lítil dóttir okkar hjóna steig upp á stól og söng eitt lag, þetta kunni Sæmundur að meta. Þrátt fyrir að við flyttum hvor í sína áttina, héldum við góðu sam- bandi okkar á milli. Seinni árin hittumst við Sæmund- ur sjaldan, þó kom það fyrir þegar leið okkar lá á sama tíma í sund- laugar, en hann stundaði sund með- an heilsan leyfði. Ég og fjölskylda mín minnumst Sæmundar með hlý- hug og sendum börnum hans okkar dýpstu samúðarkveðjur. Hvíl í friði, kæri vinur. Gunnar Snorrason. Sæmundur Óskarsson ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, MARÍA UNNUR SVEINSDÓTTIR frá Ólafsvík, lést þriðjudaginn 18. september á Hrafnistu í Reykjavík. Aðalsteinn Guðbrandsson, Sigríður Aðalsteinsdóttir, Ole Dangvard Jensen, Sjöfn Aðalsteinsdóttir, Guðrún Aðalsteinsdóttir, Ævar Guðmundsson, Þórheiður Aðalsteinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Okkar ástkæri SIGURÐUR G. GUÐMARSSON, sem lést af slysförum þann 11. september, verður jarðsunginn frá Áskirkju mánudaginn 24. septem- ber kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarsjóð Brunavarðarfélags Reykjavíkur. Þórunn Sigurðardóttir, Ingi Þór Sigurðsson, Laufey Klara Guðmundsdóttir, Pétur Sigurðsson, Þórunn Sigurðardóttir, Joost Schrander, Einar Hansson, Birgit Hansson og barnabörn. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EGGERT Ó. BRYNJÓLFSSON, Kleppsvegi 64, Skjóli, lést á Landspítalanum við Hringbraut laugardaginn 15. september. Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 26. september kl. 13.00. Björn Hafsteinsson, Óttar Eggertsson, Elín Anna Sigurjónsdóttir, Ester Eggertsdóttir, Bjarni Eyjólfsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Okkar ástkæri GUÐBJARTUR GUÐMUNDSSON, Árskógum 6, Reykjavík, lést þriðjudaginn 18. september. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 27. september kl. 13.00. Linda Guðbjartsdóttir, Magnús Ársælsson, Steinunn Hlín Guðbjartsdóttir, Erlendur Magnússon, Pétur Guðbjartsson, Birna Margrét Guðjónsdóttir, Jónina Guðbjartsdóttir, Kolbeinn Ágústsson, börn og barnabörn, Anna Kristín Linnet.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.