Morgunblaðið - 07.10.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 273. TBL. 95. ÁRG. SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
SUNNUDAGUR
LEIÐ
SAMNINGA
HERVALD ER
TÍMASKEKKJA
VIÐTAL VIÐ HANS BLIX >> 28
ÚTHLÍÐ
BÝR Í MÉR
SÉRSTAKAR
LJÓÐMYNDALINDIR
GÍSLI SIGURÐSSON >> 40
Eftir Freystein Jóhannsson
freysteinn@mbl.is
HANN ritar fagurri hendi í fallega
bók, staldrar við og horfir stundarkorn
út í loftið, heldur svo áfram þannig að
bros læðist fram á varir hans. Það er
af nógu að taka því Björn Björnsson á
Sauðárkróki er hafsjór af sögum og
vísum og vísast að bókin, þótt þykk sé,
dugi hvergi til að tæma það allt.
Það fer ekki hjá því að einhverjar
sögur og vísur slæðist með, þegar
Björn lítur um öxl í samtali við sunnu-
dagsblaðið og rekur feril sinn frá
framsóknarmanni í Eyjafirði til sjálf-
stæðismanns í Skagafirði.
Til Sauðárkróks kom hann að sjón-
varpsvæða staðinn og gaf því tvö ár.
En hann flutti aldrei suður aftur,
heldur gerðist kennari við barnaskól-
ann og skólastjóri, en var ýtt til hliðar
er skólarnir voru sameinaðir. Hans
fyrstu viðbrögð voru að hætta að
kenna, en þá bauðst skólastjórastaða
á Hofsósi sem hann þáði. Er pólitískir
andstæðingar hugðust knésetja hann
þar slógu Hofsósingar skjaldborg um
sinn skólastjóra. Þá liðveizlu launaði
hann með því að fella bát sinn betur
að fegurðarsmekk þeirra og rær nú á
honum stýrishúslausum.
Þegar 95 ára reglan gekk í garð hjá
honum sagði hann skilið við skóla-
starfið en heldur áfram úti báti sínum
frá Hofsósi og dásamar fótaferð
dagsins og lognværa kvöldblíðuna,
þegar komið er fram.
Björn hefur lengi haft puttann á
pólitíkinni sem bæjarritari, bæjar-
fulltrúi, oddviti kjörstjórnar og í vor
veitti hann skrifstofu Sjálfstæðis-
flokksins forstöðu. Í þeim hugrenn-
ingum minnist hann sérstaklega
Einars Odds Kristjánssonar, sem
hann kynntist í menntaskóla á Ak-
ureyri, en harmar að hafa týnt þar til
í kosningabaráttunni í vor. | 22
Björn Björnsson, fréttaritari á Sauðárkróki, færir sagnasjóð sinn til bókar
Hafsjór af
skemmtun
Löngum skólamaður og stjórnmála-
maður – rær nú á eigin báti
Ljósmynd/Óli Arnar
Glaðbeittur Björn Björnsson segir það skipta mestu að vera hreinskiptinn
og fyrir öllu að koma heill út úr málum: „Það finnst mér að mér hafi tekizt.“
VERZLUNARSKÓLI Íslands hefur sótt til
menntamálaráðuneytisins um að fá að taka upp
námsbraut, þar sem kennt verður á ensku.
Menntamálaráðuneytið hefur ekki svarað um-
sókninni og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra sagðist í samtali við Morg-
unblaðið ekki vilja ræða hana. En almennt um
kennslu á ensku í framhaldsskólum sagði ráð-
herra: „En íslenzkan er það tungumál sem á að
vera númer eitt alls staðar og af því verður enginn
afsláttur gefinn meðan ég er menntamálaráð-
herra.“ Ingi Ólafsson, skólastjóri Verzlunarskól-
ans, segir umsóknina tilkomna fyrir orð viðskipta-
ráðs og Finnur Oddsson hjá Viðskiptaráði Íslands
segir tilmælin sprottin af ákveðnum almennum
áhuga á því að gera íslenzkt atvinnuumhverfi al-
þjóðlegra en nú er og tekur fram að íslenzkum
nemendum yrði kennt móðurmálið samkvæmt
námsskrá.
Eina námsbrautin í framhaldsskóla þar sem
kennt er á ensku með heimild menntamálaráðu-
neytisins er IB-braut til alþjóðlegs stúdentsprófs í
Menntaskólanum við Hamrahlíð. Stærstu bank-
arnir eru hættir að gefa ársskýrslur sínar út á ís-
lenzku, bara á ensku, en fjárfestingarbankinn
Straumur gefur sína ársskýrslu út bæði á íslenzku
og ensku. Ársreikningar bankanna eru enn gefnir
út á íslenzku líka. Gísli Sigurðsson, rannsókn-
arprófessor við Árnastofnun, segir tvítyngi sem
opinbera stefnu á misskilningi byggt:
„Við þurfum að vera vakandi fyrir því að móð-
urmálið verður alltaf að vera sterkt og við þurfum
að halda vel utan um það áður en við förum að nota
önnur mál, í hvaða tilgangi sem það er.“
Íslenzka er það, heillin!
Verzló vill fá enska námsbraut
Ársskýrslur banka bara á ensku Tvítyngd málstefna misskilningur því móðurmálið
þarf að vera sterkt Íslenzka á að vera númer eitt alls staðar segir menntamálaráðherra
Eftir Freystein Jóhannsson
og Pétur Blöndal
Með hjálp hersins, iðngeirans og
KGB hefur Valdimír Pútín veikt
eða fjarlægt allar hömlur á per-
sónulegt vald sitt og eflt getu rík-
isins til að brjóta réttindi borgara.
Hinn nýi alráður
Rússlands
Nú telja þýsk yfirvöld vaxandi líkur
á að liðsmenn austur-þýsku örygg-
islögreglunnar, Stasi, hafi myrt
Alfred Herrhausen stjórnar-
formann Deutsche Bank 1989.
Stasi á bak við
hryðjuverkin?
Eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur
gudrung@mbl.is
NÝLEGA var húsið Hverfisgata 44
flutt á lóðina Bergstaðastræti 16 og
sómir það hús sér þar vel á horni
sem áður var bílastæði en er nú
orðið að tveimur flutningslóðum.
En svo kaldhæðnislega vill til að við
hliðina á auðu flutningslóðinni,
Bergstaðastræti 18, er hús, rösk-
lega 100 ára gamalt, að grotna nið-
ur.
Hafa fengið neitun um að rífa
Um er að ræða Bergstaðastræti
20 sem er myndarlegt að gerð og
vel viðað að mati Magnúsar Skúla-
sonar, forstöðumanns Húsafrið-
unarnefndar, sem sækir fast að
þetta hús verði endurnýjað. Eig-
andi umrædds húss er ÞV verktak-
ar sem sótt hafa um að rífa húsið en
fengið neitun og sýna því nú vægast
sagt litla ræktarsemi.
Að sögn Magnúsar Sædal bygg-
ingarfulltrúa er ekki að sjá að ný
umsókn um niðurrif muni leiða til
annarrar niðurstöðu en nú er uppi.
Hann kvað koma til greina í slíkum
tilvikum sem þess að gefa eig-
endum frest til að endurnýja húsið,
að viðlögðum dagsektum ef út af er
brugðið. | 36
Framtíð 100
ára húss í
uppnámi
Yfirvöld vilja endur-
nýja Bergstaðastræti
20 en eigandinn rífa
Í niðurníðslu Bergstaðastræti 20.
VIKUSPEGILL
Er leikhúsið griðastaður
sálarinnar? >> 76
Leikhúsin í landinu