Morgunblaðið - 07.10.2007, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 07.10.2007, Blaðsíða 64
64 SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Útfararþjónusta Davíðs Ósvaldssonar ehf. Davíð Ósvaldsson Útfararstjóri S. 896 6988 / 553 6699 Óli Pétur Friðþjófsson Útfararstjóri S. 892 8947 / 565 6511 ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNLAUGUR ARNÓRSSON, fyrrverandi aðalendurskoðandi Seðlabanka Íslands, Bakkavör 11, Seltjarnarnesi, lést á Landspítala Fossvogi miðvikudaginn 26. september. Útförin fer fram mánudaginn 8. október frá Fossvogskirkju kl 13.00. Blóm afþökkuð en þeim sem vilja minnast hins látna er bent á líknarfélög. Sofía Thorarensen, Eiður Th. Gunnlaugsson, Örn Gunnlaugsson, Heiðrún Bjarnadóttir, Sunna Gunnlaugsdóttir, Scott McLemore, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Útför elskulegs eiginmanns míns, föður, tengda- föður, afa, langafa, langalangafa, bróður og mágs, SIGURÐAR JÓNSSONAR, Hjallabraut 33, Hafnarfirði, áður Flókagötu 16a, Reykjavík, verður gerð frá Hjallakirkju í Kópavogi miðvikudaginn 10. október kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Barnaspítala Hringsins eða Krabbameinsfélagið. Helga Sigríður Ólafsdóttir, Jón Ólafur Sigurðsson, Ragnheiður Þórðardóttir, Guðný Sjöfn Sigurðardóttir, Þórarinn Sigurðsson, Sigurður Þór Jónsson, Erla Sigfúsdóttir, Guðni Jónsson, Elín Jóhannesdóttir, Bjarki Már Jónsson, Birgitta Sif Jónsdóttir, Ingólfur Freyr Þórarinsson, Hannes Berg Þórarinsson, Svanhildur Jónsdóttir Svane, Gunnar O. Svane, langafabörn og langalangafabarn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ERLA KRISTJÁNSDÓTTIR, hjúkrunarheimilinu Skógarbæ, áður til heimilis að Einholti 7, Reykjavík, sem lést mánudaginn 1. október, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 9. október kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð Skógarbæjar. Guðrún Gunnarsdóttir, Eyvör Gunnarsdóttir, Björgvin R. Leifsson, Hreinn Gunnarsson, Benjamín Gunnarsson, Dagbjört Þórhallsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir, amma og langamma, KRISTJANA SIGURÐARDÓTTIR, áður til heimilis að Arahólum 4, verður jarðsungin frá Fella- og Hólakirkju mánudaginn 8. október kl. 13.00. Elísabet Kristinsdóttir, Guðmundur Sveinsson, Sigríður Sigurðardóttir, Jóhann Vilbergsson, Reynir Sigurðsson, Sigríður Bragadóttir, Hlín Sigurðardóttir, Gísli Jónsson, Júlíana Sigurðardóttir, Hannes Pétursson, barnabörn og langömmubörn. ✝ Reynir Ragn-arsson fæddist á Fífustöðum í Arnar- firði hinn 21. des- ember 1921. Hann lést á Dvalarheim- ilinu Hlíð á Akur- eyri 16. september sl. Foreldrar hans voru hjónin Ragnar M. Einarsson frá Hringsdal í Arnar- firði, f. l887, d. 1954, og Ragnhildur Gísladóttir á Fífu- stöðum, f. 1889, d. 1984. Reynir ólst upp á Fífustöðum og Kirkjubóli, bæ hinum megin ár í Fífustaðadal. Systir hans er María Ragnarsdóttir, f. 1914, ógift, búsett á Akureyri. Reynir hóf nám í Iðnskólanum á Ak- ureyri haustið 1943 og lauk þaðan prófi bæði í húsa- og húsgagna- smíði vorið 1947. Hann var góður námsmaður og tók hæsta próf er nokkru sinni hafði verið tekið frá Iðnskólanum. Hann vann um skeið á Akureyri en árið 1948 fluttist hann á Sauðárkrók og vann þar á verk- stæði Sigurðar Sig- fússonar. Á Sauðár- króki kynntist hann konu sinni, Hólm- fríði Árnadóttur frá Ketu í Hegranesi, f. 1920, d. 2006. Þau bjuggu fyrst á Króknum en síðan á Akureyri þar til þau fluttust til Svíþjóðar árið 1968. Árið 1998 komu þau aftur til Íslands, bjuggu í tvö ár á Sauðárkróki, en síðan á Akureyri til dauða- dags. Bæði voru þau jarðsett á Sauðarkróki, í kyrrþey að eigin ósk. Sonur þeirra er Baldur, f. 1955, hjúkrunarfræðingur í Svíþjóð. Kona hans er Monika Reynisson. Þau eiga saman tvö börn, en áður en þau giftust höfðu þau eignast tvö börn hvort svo barnabörnin voru sex, og dvöldust þau oft á heimili þeirra Reynis og Hólm- fríðar í Svíþjóð. Útför Reynis hefur farið fram í kyrrþey. Þegar foreldrar mínir fluttust að Fífustöðum vorið 1934 leið ekki á löngu þar til við Reynir urðum hinir mestu mátar og síðan æskuvinir. Frá þessum uppvaxtarárum er margs að minnast. Heimili hans á Kirkjubóli varð sem annað heimili mitt þar sem ég var ætíð velkominn, fagnað af frændfólki en ég var ná- skyldur báðum foreldrunum sem voru systkinabörn, bæði afkomend- ur séra Gísla Einarssonar sem var prestur í Selárdal 1785-1829 og konu hans Ragnheiðar Bogadóttur frá Hrappsey. Leið varla sá dagur að við hittumst ekki við Fífustaðaána til að veiða silung eða við Skerið þaðan sem róið var og við ýttum oft fleyi á flot til að draga fisk skammt undan landi. Stundum eyddum við dögun- um í Steinhúsinu, verbúðinni við Skerið, tókum kríuegg á rifinu, suð- um þau á prímus og borðuðum með rikling og hertum rauðmaga. Þetta voru unaðslegir æskudagar þegar lóaði ekki við stein og sólin bakaði gulan sand. En fyrr en varði vorum við komnir á unglingsár, orðnir stjórnarmenn í Umf. Morgni, Reynir formaður þess. Stundum æfðum við leikrit eða döns- uðum fram undir morgun. Ég minn- ist þess að eitt sinn er dans skyldi stiginn forfallaðist spilarinn en Reynir lét sér hvergi bregða, dró upp munnhörpu sína, þandi hana og bjargaði þar með ballinu svo að ung- lingaskarinn gat dansað glaður og reifur. Tíminn flaug hratt og brestur kom í byggðina. Bretavinnan togaði til sín unga fólkið og við skynjuðum að framtíðar var ekki að vænta í þessari sveit en báðir vorum við fremur frá- hverfir landbúnaðarstörfum. Þegar ég kom til Akureyrar vorið 1945 fagnaði Reynir mér á bryggj- unni ásamt Maríu systur sinni sem ég bjó hjá þetta vor og þreytti próf upp í annan bekk MA. Hann lóðsaði mig um bæinn en í mínum sveita- mannsaugum var Akureyri stór og spennandi staður. Næstu árin hitt- umst við oft en svo fluttist hann til Sauðárkróks og ég suður og varð þá vík milli vina. Við vissum þó ætíð hvor af öðrum, skiptumst á kveðjum og bréfum. Á sjöunda áratug liðinnar aldar kreppti að í byggingariðnaði og olli Reynir Ragnarsson ✝ Guðjón BjörgvinGuðmundsson fæddist 7.8. 1975, sonur hjónanna Guðmundar Guð- jónssonar og Ástu Katrínar Vilhjálms- dóttur. Guðjón lést í Kaupmannahöfn 23.9. 2007. Hann átti systkinin Ást- hildi Guðmunds- dóttur f. 17.10. 1971 og Brynjar Karl Guðmundsson, f. 8.7. 1978. Dóttir Guðjóns er Eva Lind, f.12.11. 1994, móðir hennar er Perla Torfadóttir. Guðjón gekk í Selja- skóla þegar hann var 6 ára og stundaði þar nám í 10 vetur og lauk þar grunnskólaprófi með góðum einkunnum, auk þess var hann virkur í félagslífi og var meðal annars plötusnúður skól- ans og var honum veitt bókargjöf frá foreldrafélagi skólans þar. Síðan lá leiðin í Fjöl- brautaskólann í Breiðholti, þar sem hann var við nám í u.þ.b. 2 ár og fékk mjög góðar ein- kunnir í mörgum námsgreinum. Hann gerði hlé á námi sínu en hóf svo nám nokkrum árum síðar í tölvunar- fræðum við Iðnskól- ann í Reykjavík og lauk hann þar sér- verkefni sínu í Linux forritun með mjög góðri einkunn. Þegar leitað var til stærðfræði- og tölvunarfræði- kennara skólans eftir hæfileika- ríkum starfsmanni bentu þeir gjarnan á Guðjón Björgvin. Auk starfa við viðgerðir á tölvun og uppsetningar á tölvuhugbúnaði stundaði Guðjón á námsárum þakpappalagnir með móður- bróður sínum. Kveðja frá foreldrum Þessi orð eru skrifuð til minningar um elskulegan son og góðan dreng. Guðjón Björgvin var traustur og góður vinur þeirra sem hann tengd- ist og alltaf glaðvær, kurteis og þakklátur. Hann átti dótturina Evu Lind og voru samskipti þeirra feðg- ina ávallt mjög góð enda sýndi hann öðrum börnum mikla hlýju og tillit- semi. Undir þetta taka fyrrverandi vinkonur Guðjóns sem bera honum afar vel söguna og hafa tekið þátt í söknuði okkar og sorg við fráfall hans. Foreldrar mínir, Bryndís Guð- mundsdóttir og Guðjón Björgvin Jónsson, voru honum einnig mjög hjálpsamir og vildu alltaf vita af hon- um, hvar hann væri og hvernig hann hefði það. Hans verður sárt saknað af þeim sem honum kynntust um ókomna tíð. Guð blessi og varðveiti hann og minningu hans að eilífu. Við spyrjum drottin særð, hvers vegna hann hafi það dularfulla verkalag að kalla svona vænan vinnumann af velli heim á bæ um miðjan dag. Og þó, með trega og sorg, skal á það sæst, að sá með rétti snemma hvílast megi í friði, er hafði, fyrr en sól reis hæst, fundið svo til, að nægði löngum degi. (Jóhann S. Hannesson.) Ég hafði aldrei heyrt þetta kvæði þegar það var lesið fyrir mig rétt eft- ir að pabbi minn dó. En mér finnst það eiga vel við – ég er særð af því að pabbi minn dó svona ungur og hann var vænn og góður við mig, ég veit líka að hann fann oft mjög mikið til. En þótt pabbi sé nú horfinn verða minningarnar mínar um hann til meðan ég er sjálf til. Þegar ég var um 6 ára fórum saman til Danmerk- ur til frænda míns og svo í Legoland. Síðan fórum við til Ásthildar frænku minnar í Þýskalandi, þetta var skemmtileg ferð. Við pabbi hittumst líka oft hér heima á Íslandi. Pabbi var mikill dýravinur, hann átti marga hunda sem ég var oft með, stundum fórum við pabbi saman með þá út að ganga. Við pabbi töl- uðum mjög mikið saman. Ég veit að hann var duglegur að læra og fékk góðar einkunnir og vildi að ég yrði líka dugleg í skóla. Mér finnst sorg- legt að hann dó svona ungur en svona er lífið. Ég vildi að ég gæti breytt þessu en það get ég ekki og verð því að sætta mig við að hann er farinn. Eva Lind Guðjónsdóttir. Elsku Guðjón, þú ert farinn og ég gat ekki kvatt þig. Ég reyndi að skrifa þér bréf í sumar en fann ekki réttu orðin. Nú er það orðið of seint en vonandi færðu þessi skilaboð þrátt fyrir allt. Mér þykir svo leiðinlegt hversu stopult samband okkar var en ég vil að þú vitir að ég hugsaði alltaf til þín og vonaði að þú fyndir aftur leiðina til sjálfs þín. Af því þú sjálfur varst svo góður og blíður. Mér þykir svo sárt að hafa ekki getað hjálpað þér en ég vissi ekki hvernig. Það eina sem ég get núna gert er að lofa að vera til staðar fyrir dóttur þína þeg- ar hún þarf á mér að halda. Þessi nokkur ár, þegar allt gekk vel hjá þér, eru árin sem ég ætla að muna eftir. Þá hugsaðir þú svo vel um Evu Lind og komst líka oft og heimsóttir mig. Ég ætla að muna eftir þegar þú dansaðir við mig í brúðkaupinu mínu, þegar þið Eva Lind komuð í heimsókn eftir að Nói fæddist, og þegar við vorum lítil og lékum okkur saman. Ég ætla að gleyma að hverju heimur fíkniefnanna gerði þig, því það varst ekki þú. Þú varst klár, myndarlegur, duglegur strákur og hvers manns hugljúfi. Fyrir mig verður þú alltaf bróðir minn, sem mér þykir svo vænt um, og á alltaf eftir að þykja vænt um. Ég vona að þú sért kominn í betri heim, í heim þar sem möguleikarnir bíða enn handan við hornið. Mögu- leikar sem voru ekki lengur til stað- ar í okkar heimi. Guðjón Björgvin Guðmundsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.