Morgunblaðið - 07.10.2007, Blaðsíða 75

Morgunblaðið - 07.10.2007, Blaðsíða 75
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 2007 75                    !" #! $ # % & $ ' &  (&) *   )  (& +&  , (                 ! "  #  $  "         % %             $   ! " $$ #&%   %"      '       ' ( ) (( ) ( *   +, -.       /0 -     $$122)3435 $  +   6  7  8199):      %  . %        Hönnunarsvið Bókagerð Kennari: Anna Snædís Sigmarsdóttir Tímasetning: 12 kennslust., kl. 18–22.15. Þri. 23. okt. og fim. 25. okt. Staðsetning: Iðnskólinn í Reykjavík, stofa 418. Lýsing: Unnar verða 2–3 bækur ýmis konar. Nemendur fá einnig að vinna áferð á pappír fyrir bækurnar, annars koma þeir sjálfir með þann pappír sem þeir vilja nota. Verð: 12.000 kr. Gríska myndastyttan Kennari: Þór Rögnvaldsson. Tímasetning: 6 kennslust., kl. 10.30–12.30. Lau. 20. og 27. okt. Staðsetning: Iðnskólinn í Reykjavík, stofa 407. Lýsing: Fyrst verður farið stuttlega í forsöguna og list Egyptalands. Því næst verður farið í list Grikklands (frá upphafi sögunnar og fram að endalokum hellenismans) með megináherslu á myndastyttuna. Til hliðsjónar verður höfð Saga listarinnar eftir E.H. Gombrich. Skyggnusýningar. Verð: 7.000 kr. Silfursmíði fyrir byrjendur Kennari: Harpa Kristjánsdóttir. Tímasetning: 30 kennslust., kl. 18–21.40þ Þri. 9. okt. til 13. nóv. Staðsetning: Iðnskólinn í Reykjavík, stofa 239 (gullsmíðastofa). Lýsing: Einföld í skartgripasmíði hringar, hálsmen eyrnalokkar og/eða nælur. Námsefni: Frá kennara. Verð: 33.000 kr. Silfursmíði fyrir byrjendur, frh. Kennari: Harpa Kristjánsdóttir. Tímasetning: 30 kennslust., kl. 18–til 21.40. Þri. frá 11. okt. til 15. nóv. Staðsetning: Iðnskólinn í Reykjavík, stofa 239 (gullsmíðastofa). Lýsing: Einföld skartgripasmíði – hringar, hálsmen, eyrnalokkar og/eða nælur. Forkröfur: Silfursmíði fyrir byrjendur Námsefni: Frá kennara. Verð: 33.000 kr. Collage-gerð eða klippitækni Kennari: Anna Snædís Sigmarsdóttir Tímasetning: 12 kennslust., kl. 18–22.15. Þri. 6. nóv. og fim. 8. nóv. Staðsetning: Iðnskólinn í Reykjavík, stofa 412. Lýsing: Nemendur læra að vinna með klippi- myndatækni og allt sem fylgir því, t.d. búa til myndir og gjafakort Verð: 12.000 kr. Hönnun og gerð barnajakka Kennari: Hrönn Traustadóttir. Lýsing: Notast er við eitt grunnsnið sem er breytt eftir efnum og aðferðum. Tímasetning: 24 (4x6) kennslust., kl.18. Fim., 18. og 25. okt. og 1. og 8. nóv. 2007. Fyrir hverja er námskeiðið: Fólk sem eitthvað hefur fengist við að sauma og hefur vél til umráða (þarf að mæta með saumavél). Staðsetning: Iðnskólanum í Reykjavík, stofu 205. Verð: 7.000 kr. Inngangur að tölvustuddri hönnun og framleiðslu Kennari: Skúlína Hlíf Kjartansdóttir. Lýsing á námskeiðinu: Kynnt verða grunnatriði tölvustuddrar hönnunar og framleiðslu (CAD-CAM) – allt frá hugmynd til frumgerðar. Veitt verður innsýn í virkni eins tóls til þrívíddar- mótunar (Rhinocerus) og nokkrar helstu teikniaðferðir þjálfaðar. Stefnt er að því að nemendur vinni eitt einfalt hönnunarverkefni sem lokið verði með gerð frumgerðar (rapid prototyping) og prentað í þrívíddarprentara. Tímasetning: 30 kennslut., kl. 9–16. Lau., 3., 10. og 17. nóv. Fyrir hverja er námskeiðið: Fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér grunnatriði iðnhönnunar, fá innsýn í tölvustudda hönnun og mótun í þrívíðu rými, framleiðslu og ferli við gerð frumgerða. Forkröfur: Góð almenn þekking á tölvum og tölvuvinnslu. Stofur og búnaður: Stofa 415, með fartölvuvagni. Verð: 33.000 kr. Andlit og hár Teiknikennsla auk fyrirlestrar um andlit með gullinsniði Kennari: Hrönn Traustadóttir. Lýsing: Kynntir mismunandi blýantar og aðferðir til að ná fram tónum og skyggingu í andlits- og hárteikningu. Til frekari útskýringa verður fyrirlestur um mismunandi andlit. Tímasetning: 18 (3x6) kennslust., kl.18. Fim., 15., 22. og 29 nóv. Fyrir hverja er námskeiðið: Byrjendur og lengra komna. Staðsetning: Iðnskólanum í Reykjavík, stofu 205 Verð: 7.000 kr. SKRÁNING Á WWW.IR.IS/NÁMSKEIÐ UPPLÝSINGAR Í SÍMA 522 6500. . VEFSÍÐA VIKUNNAR: www.foundmagazine.com» Eftir Gunnhildi Finnsdóttur gunnhildur@mbl.is Vefritið FOUND hóf göngu sína sem hefðbundið tímarit á pappír, sem rithöfundurinn Davy Rothbart og ljósmyndarinn Jason Bitner föndruðu heima hjá sér. Þeir fengu hugmyndina að tímaritinu eitt kvöldið þegar Rothbart fann miða undir rúðuþurrkunni á bílnum sín- um sem var greinilega ekki ætlaður honum. Á honum stóð: Mario, Ég hata þig, þú sagðist vera að fara að vinna svo af hverju er bíllinn þinn HÉR heima hjá HENNI? Þú ert helvítis LYGARI ég hata þig ég fokking hata þig. Amber P.S. Hafðu samband á eftir. Þegar Rothbart og Bitner sýndu vinum sínum þetta bréf fengu þeir að heyra ótal svipaðar sögur um skilaboð sem rötuðu aldrei til réttra viðtakenda, fjölskyldumyndir sem fundust innan í bókasafnsbókum, gömul heimaverkefni barna og ým- islegt fleira smálegt sem fólk hafði skilið eftir sig hér og þar. Þessi litlu brot gáfu óvænta innsýn í líf ókunnugra frá sjónarhorni sem fólk sýnir umheiminum vanalega ekki. Mynd sem er of asnaleg til þess að fá inni í fjölskyldualbúminu er skilin eftir á glámbekk, hjartalínurit dett- ur út úr sjúkrabíl fyrir utan spítala, innkaupalista er fleygt fyrir utan búðina og sumt af þessu ratar á end- anum í hendurnar á fólki sem kann að meta þessi pappírssnifsi og rifr- ildi og litlu sögurnar sem fylgja þeim. Upp úr þessu varð tímaritið til, fyrst sem handgert smárit sem þeir Rothbart og Bitner klipptu og límdu í efni, en síðan hefur það vaxið og getið af sér vefsíðu og nokkrar bæk- ur með sama efni. Orðrómurinn hef- ur borist víða og nú fá aðstandendur síðunnar senda fundna fjársjóði alls staðar að úr heiminum. Á hverjum degi er ein mynd eða texti birtur á vefsíðunni með skýringum um það hvar fundurinn var gerður. Vefsíðan www.foundmagaz- ine.com gefur forvitnum kost á að gægjast inn í líf ókunnugra án þess þó að ryðjast inn í einkalíf neins, því efnið á síðunni er nafnlaust og til- heyrir engum, eða kannski frekar öllum. Fundnir fjársjóðir Fundin Þessi ljósmynd fannst inni í orðabók í fornbókabúð í Rio de Janeiro og endaði í vefritinu Found. Á bakhlið hennar er ártalið 1889. Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.