Morgunblaðið - 07.10.2007, Blaðsíða 52
52 SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Nýkomið í einkasölu sérlega fallegt einbýli auk innbyggðs
bílskúrs, samtals 151,3 fm. Rúmgóð yfirbyggð úti sundlaug
með sturtuaðstöðu ofl. Einstök staðsetning. Hraunlóð.
Útsýni. Myndir á mbl.is. V. 43 millj.
Álfaskeið - Hf - Einbýli
Sörlaskjól 94
Glæsileg neðri sérhæð ásamt bílskúr.
Opið hús í dag frá kl. 14-16.
Glæsileg 109 fm neðri sérhæð í góðu steinsteyptu þríbýlishúsi
ásamt 25 fm bílskúr á þessum eftirsótta stað í vesturbæ
Reykjavíkur. Hæðin er mikið endurnýjuð á vandaðan og smekklegan
hátt m.a. gólfefni, innréttingar og innihurðir og skiptist m.a. í tvær
rúmgóðar stofur, tvö herbergi og vandað eldhús. Svalir til suðves-
turs. Fallegt útsýni til sjávar. Laus til afh. við kaupsamning.
Verð 49,0 millj.
Eignin verður til sýnis í dag,
sunnudag, frá kl. 14 -16.
Verið velkomin.
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505.
OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is
Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali.
FASTEIGNASALA
STÓRHÖFÐA 27
Sími 594 5000
Halla Unnur Helgadóttir
löggiltur fasteignasali.
Sérlega glæsileg, 115,9 fm íbúð á 1. hæð með
stórum svölum út að sjó. Glæsilegar innréttingar
og gólfefni. Tvö baðherbergi í íbúð, þvottah. í
íbúð og aukaherb. í kjallara úr íbúð.
VERÐ 28,4 millj.
Upplýsingar gefur Ingvar Ragnarsson
lögg. fast. 822-7300.
NAUSTABRYGGJA - 110 RVK.
Opið hús sunnudaginn 7. okt.
milli klukkan 15:30 og 16:30
í Garðaflöt 1
Fallegt einbýlishús á einni hæð á Flötunum í Garðabæ. Húsið sem er 185 fm hefur verið mikið gert
upp á síðustu árum og byggt hefur verið við það. Allir útveggir voru endureinangraðir, múraðir og
steinaðir. Einnig var settur fallegur þakkantur á húsið, skipt um allar útihurðir og skipt um alla glugga
og gler. Góð hellulögð aðkeyrsla með snjóbræðslu er að bílskúr og inngangi ásamt góðum skjól-
veggjum og stórum palli með heitum potti. Fyrir vikið er aðkoman að húsinu sérlega glæsileg. Þá hef-
ur verið byggt við húsið og forstofa og stofa stækkuð til muna. Á stofu var settur fallegur útskots-
gluggi sem gerir mikið fyrir hana. Öll loft hafa verið klædd og gert er ráð fyrir ríkulegri lýsingu í stofu.
Að lokum hefur baðherbergið allt verið nýlega tekið í gegn með glæsilegri innréttingu, sturtu og vegg-
hengdu klósetti. Verð 54,9 milljónir.
Allar frekari upplýsingar veitir Albert Björn Lúðvígsson sölumaður í síma 617-1818.
Guðrún Árnadóttir lögg. fasteignasali
MIKILL styr hefur staðið um
ummæli Gunnars
Gunnarssonar, sál-
fræðings og höf-
uðbeina- og spjald-
hryggsjafnara, og
spunnist út frá þeim
mjög áhugaverðar um-
ræður. Fólki hefur
verið mikið niðri fyrir
í málflutningi sínum
um ágæti heildrænna
meðferða (óhefðbund-
inna lækninga).
Óspart hefur verið
vísað til rannsókna
sem ýmist bera brigð-
ur á eða sanna virkni
þessara meðferða. Í þessari um-
ræðu allri virðist vera sjálfsagt að
gera lítið úr heilum starfsstéttum
að ekki sé minnst á einstaklingana
sem kjósa að nota þjónustu þeirra.
Í umræðunni eru menn orðnir svo
uppteknir af því hver hefur rétt
fyrir sér að þáttur neytandans
gleymist alveg. Það er einungis á
valdi hvers einstaklings að meta
hvað er rétt fyrir hann hverju
sinni. Engum er skylt
að nota þjónustu
græðara. Valið er öll-
um frjálst!
Réttindi og skyld-
ur græðara
Eina ferðina enn
eru helstu rök and-
stæðinga heildrænna
meðferða að um sé að
ræða „kukl og fjár-
plógsstarfsemi“. Því
þykir græðurum
tímabært, m.a. vegna
nýtilkominna laga um
störf og stöðu græð-
ara, að lyfta umræðunni upp á
hærra plan.
Bandalag íslenskra græðara
(BIG) var stofnað árið 2000.
Bandalagið er regnhlífarsamtök
níu fagfélaga um ólíkar meðferðir.
Það hefur frá upphafi haft það að
markmiði að byggja upp lagalegt
umhverfi sem miðar að öryggi
þeirra sem leita eftir þjónustu
græðara.
Árið 2005 voru á Alþingi sam-
þykkt lög um græðara (sjá http://
www.althingi.is/lagas/
nuna/2005034.html). Með þessum
lögum rættust óskir græðara um
að lagaleg staða þeirra yrði skýrð
og skilgreind. Yfirlýst markmið
laganna er enda að stuðla að aukn-
um gæðum heilsutengdrar þjón-
ustu græðara og öryggi þeirra sem
nýta sér slíka þjónustu og er það
m.a. gert með frjálsu skráning-
arkerfi græðara (sjá http://
www.big.is).
Bandalag íslenskra græðara hef-
ur verið í samstarfi við NSK (Nor-
ræn samstarfsnefnd um óhefð-
bundnar meðferðir) frá stofnun
þess. NSK eru samtök fagfélaga á
Norðurlöndum sem vinna að sam-
ræmingu menntunar og viðurkenn-
ingar á heildrænum meðferðum.
NSK hefur tvo áheyrnarfulltrúa á
ráðstefnum Alþjóðaheilbrigð-
ismálastofnunarinnar (WHO) um
málefni heildrænna meðferða.
Menntun og fagmennska
Meðferðaraðilar í fagfélögum
sem eiga aðild að Bandalagi ís-
lenskra græðara byggja nám sitt á
áratuga reynslu og jafnvel ár-
hundraða. Þeir starfa af fag-
mennsku og ábyrgð enda setur
hvert fagfélag skýrar kröfur um
menntun og hæfni sinna fé-
lagsmanna þar sem m.a. er tekið
mið af tilmælum WHO.
Þitt val – þinn réttur – þín heilsa
Allir landsmenn eiga rétt á
heilsuþjónustu við sitt hæfi.
Við veljum það sem okkur hent-
ar hverju sinni.
Ef það virkar ekki þá notum við
það líklega ekki aftur.
Ef það er of dýrt kaupum við
það ekki.
En við höfum valið!
Virðum val einstaklingsins
Anna Birna Ragnarsdóttir
skrifar um starfsemi græðara » Það er einungis ávaldi hvers ein-
staklings að meta hvað
er rétt fyrir hann hverju
sinni. Engum er skylt að
nota þjónustu græðara.
Valið er frjálst!
Anna Birna
Ragnarsdóttir
Höfundur er formaður Bandalags ís-
lenskra græðara.
Rakarastofan
Klapparstíg
S: 551 3010
Hair play frá
Rakarastofan
Klapparstíg