Morgunblaðið - 07.10.2007, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 07.10.2007, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ TUNGUMÁL OG SAMFÉLAG gefið í þessum efnum, því mennta- málaráðuneytið hefur ekki gefið heimild til þessa náms. Finnur Oddsson hjá Viðskiptaráði Íslands segir áhugann á enskri námsbraut annars vegar sprottinn af ákveðnum almennum áhuga á því að gera íslenzkt atvinnuumhverfi al- þjóðlegra en nú er. Meðal annars sé talað um alþjóðlega fjármála- miðstöð, en til þess að slík hugmynd eigi raunhæfa möguleika þarf ekki einasta að líta til skattaumhverfisins og slíkra praktískra hluta, heldur þarf einnig að líta til skólakerfisins. Það þarf til dæmis að geta boðið börnum erlendra starfsmanna upp á menntun og þannig gert íslenzkt umhverfi meira aðlaðandi fyrir út- lendinga. Og hins vegar er Íslend- ingum nauðsyn að vera vel að sér í öðru tungumáli en íslenzku og þá skipta góð tök á ensku mestu máli. Námsbraut á ensku myndi því líka koma Íslendingum til góða. „Þetta munum við að sjálfsögðu gera þann- ig, að íslenzkan bíði engan hnekki af,“ segir Finnur. „Íslenzkum nem- endum yrði kennt móðurmálið í sam- ræmi við námsskrá.“ Á það er að líta, að kennsluefni á ensku er notað í framhaldsskólum af því að kennslubækur á íslenzku eru ekki fyrir hendi, en kennslan fer fram á móðurmálinu. Ingvi Pét- ursson, rektor MR, segir stutt og laggott: Ekki hér, þegar hann er spurður um það, hvort vegur ensk- unnar sem kennslumáls fari vaxandi. Og hann bætir við að hann sjái ekki fram á breytingu þar á. „Við höldum fast við íslenzkuna, nema hvað vita- skuld er töluð enska í enskutím- unum.“ Hann nefnir þau tilvik þegar kennarar eru erlendir, en nú kennir japanskur kennari japönsku við MR og fer sú kennsla fram á ensku og japönsku. Um ensku sem kennslutæki í framhaldskólum segir mennta- málaráðherra, að þeir skólar sem vilja fá stuðning ríkisins verði að kenna á íslenzku og prófa á íslenzku. Menn geti svo sem þýtt námsskrána yfir á ensku og kennt hana þannig, en þeir fá þá ekki stuðning ríkisins. Hins vegar þurfum við að auð- velda okkar fólki samskipti við al- þjóðasamfélagið. Og við viljum laða til okkar erlenda kennara. Því eru ákveðnir kúrsar í háskólunum kenndir á ensku. „En íslenzkan er það tungumál sem á að vera númer eitt alls staðar og á því verður eng- inn afsláttur gefinn meðan ég er menntamálaráðherra.“ Útlendingarnir og íslenzkan Þegar menn líta til fjölmenning- arþjóðfélagsins er aldrei allt sem sýnist. Það er því rétt að staldra við og gefa gaum að hlutunum. Eitt sinn var því haldið fram að tvennir siðir myndu slíta sundur friðinn í landinu. Alveg eins má halda því fram, að nái undanhald íslenzkunnar inn á ís- lenzkan vettvang sé samkenndin úti og móðurmálið í hættu. Mönnum þykir næsta skiljanlegt, að hjá því erlenda vinnuafli, sem hingað kemur til skamms tíma, að ekki sé talað um fjölþjóðlega hópa, fyrirfinnist engin íslenzka. Annað tungumál verður hið opinbera vinnu- mál og ríkir í samskiptum Íslend- inga og útlendinga. En þegar útlendingar setjast hér að eða erlendur starfskraftur þjón- ustar Íslending, til dæmis í verzl- unum og á heilbrigðisstofnunum, skiptir málið máli. Þangað má und- anhald íslenzkunnar ekki ná. Einar Skúlason, forstöðumaður Alþjóðahússins, segist telja framboð á íslenzkunámi fyrir útlendinga við- unandi, þótt ekki sé það nóg. Með auknu framboði hafi fjöldi nemenda líka aukizt. 200 milljóna króna fram- lag ríkisins (miðað við 20 milljónir í fyrra) hefur skipt sköpum. Nú anna menn ekki eftirspurninni og segir Einar það fyrst og fremst stafa af skorti á kennurum. Þar sem hann þekkir til úti á landi er sama sagan; færri komast á námskeið en vilja og eru þó allar klær úti til þess að manna kennarastöðurnar. Einar segir að það sem nú þurfi að gera sé að byggja upp samræmt námskerfi, sem yrði þrepaskipt eftir grunnmenntun fólks og framtíð- armarkmiðum. Nokkuð hefur verið kvartað yfir því, að erlendir starfsmenn í verzl- unum og sjúkrastofnunum tala margir hverjir litla ensku og enga íslenzku, sem hefur kallað á mis- skilning og vakið gremju hjá Ís- lendingum, eins og m.a. hefur mátt sjá á síðum Morgunblaðsins. Sagan um gamla manninn, sem gisti ís- lenzka stofnun, en bað dóttur sína að koma sér aftur heim til Íslands, því í kringum hann talaði enginn ís- lenzku er ekki með öllu út í loftið. Þótt Bónus ráði erlendan starfs- kraft vilja menn ekki að vinnumálið verði enska, að því er Svanur Val- geirsson, starfsmannastjóri fyr- irtækisins, sagði. Þar á bæ er lagt kapp á að erlent starfsfólk læri ís- lenzku og fyrirtækið stendur fyrir námskeiðum á vinnutíma í sam- starfi við Alþjóðahúsið í vinnu- tengdri íslenzku. Dagrún Hálfdánardóttir og Magnea B. Jónsdóttir á skrifstofu starfsmannamála Landspítalans segja, að á Landspítala séu um 330 starfsmenn með erlent ríkisfang eða um 8% starfsmanna og hefur er- lendum starfsmönnum á Landspít- ala fjölgað mikið undanfarin ár. Málakunnátta þeirra er mjög mis- jöfn enda koma starfsmennirnir frá tæplega 50 löndum. Sum svið spít- alans byggja starfsemi sína að miklu leyti á erlendum starfsmönnum. Á spítalanum er lögð mikil áherzla á að taka vel á móti erlendu starfs- fólki. Spítalinn hefur verið með ís- lenzkukennslu í samvinnu við Mími – símenntun, sem hefur verið styrkt af stéttarfélögum og mennta- málaráðuneytinu og hvetja stjórn- endur spítalans erlenda starfsmenn til að sækja íslenzkunámskeið. Á haustönninni eru t.d. fimm starfs- tengd námskeið í gangi miðað við mismunandi kunnáttu. Mikil vinna hefur verið lögð í að vinna starfs- tengt námsefni og hafa kennarar í Mími séð um það í samvinnu við starfsmenn spítalans. Reglulega eru haldin stöðupróf til að meta kunn- áttuna og námskeiðin sett upp í samræmi við niðurstöður þeirra. Námskeiðin eru mjög eftirsótt og alltaf meiri eftirspurn en hægt er að anna. Fleiri stofnanir en spítalar verða að reiða sig á erlent starfsfólk, þ.m.t. leikskólar. Þar er málið hins vegar þannig vaxið, að erlendur starfskraftur, sem talar litla eða enga íslenzku, getur ekki stutt við málþroska barna eða eflt málvitund þeirra. Dæmi er um foreldra sem tóku barn sitt af leikskóla af þessum sökum, en þar starfaði aðeins einn Íslendingur, annað starfsfólk var erlent. Þetta ber að sama brunni og ummæli Vilhjálms Egilssonar um að þegar að þjónustu kemur skiptir öllu máli hver á að njóta þjónust- unnar. Ef sá er Íslendingur verður sá, sem þjónustuna veitir, að tala ís- lenzku og hana reiprennandi, þegar börn og/eða unglingar eiga í hlut. Þurfum ekki tví- tyngda stjórnsýslu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segist skilja Ágúst Ólaf Ágústsson svo, að hann sé að tala um að gera sambandið við alþjóðaheiminn auðveldara. Að hennar mati er það nógu auðvelt eins og er, hvort heldur talað er um hin Norðurlöndin eða til dæmis hinn enskumælandi heim. „Við þurfum ekki tvítyngda stjórnsýslu. Þá eru menn að senda ákveðin skilaboð um að íslenzkan sé sett til hliðar og það hugnast mér ekki.“ Vilhjálmur Egilsson segir að menn verði að gera glöggan grein- armun á þjónustu og stjórnskip- aninni sem slíkri þegar þeir tala um tvítyngda stjórnsýslu. Stjórn- skipanin og okkar lagamál og ákvarðanataka í samfélaginu er og verður á íslenzku. Hins vegar þurfi víða að veita opinbera þjónustu þeim sem lítt eða ekkert skilja í ís- lenzku og þá þarf þjónustan að vera tvítyngd og ekki víst að enska sé þá aðalmálið, til dæmis megi nefna pólsku í þessu sambandi. Þarfir þeirra sem á þjónustunni þurfa að halda eiga að ráða þessu. Ef stjórnsýslan getur ekki þjón- ustað fólk og séð til þess að það þrífist í samfélaginu bregst stjórn- sýslan. Hins vegar hafa íslenzk lög, reglugerðir og fleira opinbert ver- ið þýtt á erlend tungumál til hægð- arauka fyrir þá sem þurfa á slíku að halda. Þ að eru ekki síður enskar fræðibækur en íslenskar á skrifstofu Gísla Sigurðssonar rannsóknarprófessors við Árnastofnun. Íslenskan hrærist í alþjóðlegu umhverfi og það er ekkert nýtt – heldur veruleiki sem ís- lenskan hefur alltaf búið við. Gísli vill að Íslend- ingar sameinist um það áfram að halda íslensk- unni sem tæki til að takast á við nútímann og auðveldi fólki sem flyst til landsins að læra tungumálið. „Fólk kann að sjálfsögðu ekki tungumálið þeg- ar það kemur hingað og við höfum engin úrræði til að hjálpa því að læra íslensku,“ segir hann. „Í stað þess að bjóða upp á það förum við að tala við það á ýmsum málum, sem við erum misgóð í. Það gengur stundum ágætlega, en getur valdið leið- indum og fólk gosið í reiðiköstum þegar það er orðið mjög pirrað.“ Enska í frystihúsinu fyrir 30 árum Gísli segir gefið að fólk muni halda áfram að koma hingað til að vinna, sem ekki tali íslensku – vinnumarkaðurinn sé orðinn þannig. „Þegar ég vann fyrir 30 árum í frystihúsinu á Suðureyri var það ekkert frábrugðið. Þá voru flest störf á gólfinu unnin af útlendingum og við töluðum mest ensku í vinnusalnum. Það var ekki vegna þess að það væri opinber stefna, heldur voru það bara viðbrögð við aðstæðum. Og þá var ekkert hugsað fyrir því að það gæti verið gott að kenna fólkinu íslensku. Við þurfum að taka pólitíska ákvörðun um hvernig við ætlum að gera fólki kleift að læra tungumálið. Ég held að fólk hafi áhuga á því, ef námið kostar ekki mikið og er að- gengilegt. Því þrátt fyrir allt er íslenskan lykill að því að líða vel hér og komast inn í sam- félagið.“ Mikilvægt er að þýða öll gögn um réttindi og skyldur fólks yfir á móðurmál þess, að sögn Gísla. „Það er ekki hægt að svína á því í krafti þess að það þekki ekki til aðstæðna hér á landi. Við eigum að hjálpa því í gegnum byrjunarörð- ugleika með því að gera allt kynningarefni að- gengilegt strax við komuna til landsins, en um leið ættum við að ákveða að því sé boðið upp á ís- lenskukennslu og að það sé gert í samvinnu við vinnuveitendur, þannig að það sé eðlilegur hluti þess að ráða fólkið í vinnu að hjálpa því með tungumálið. Þetta verður aldrei gert með stjórn- valdsaðgerð eingöngu, heldur verður að vera al- mennur vilji í samfélaginu fyrir því.“ Hann segir að taka þurfi ákvörðun um að íslenskan sé gjald- geng á öllum sviðum og það eigi einnig við um fjármálalífið, þó að það sé að miklum hluta í al- þjóðlegum samskiptum. „Við búum við sama veruleika og aðrar þjóðir sem ekki hafa ensku að móðurmáli, engu að síður tala Þjóðverjar um fjármál á þýsku og þannig er það á öllum sviðum mannlífsins – allar þjóðir nota eigið tungumál og hafa enga minnimáttarkennd út af því. Það er til dæmis mikill misskilningur að við séum eina þjóðin í heiminum sem ekki noti ensku til allra hluta í tölvuskrifum, forritun og netvæðingu.“ En það er liður í því að bjóða fólk velkomið til landsins að þýða lagaumhverfið yfir á tungumál sem það skilur. „Það er ekki óeðlileg tillaga að á sambærilegan hátt séu reglur og lög um fjármál og viðskipti til á fleiri málum en íslensku, en þessi umræða er mjög fljót að komast á það stig að við eigum að taka upp tvítyngda stjórnsýslu og gera ensku jafnhátt undir höfði og íslensk- unni, jafnvel taka hana upp sem samskiptamál á ýmsum sviðum,“ segir Gísli.„Það er ný hugsun sem hlýtur að kalla á viðbrögð. Þá er stutt í það að íslenskan lokist af í daglegu heimilis- og fjöl- skyldulífi. Og kannski menningu þar sem tungu- málið kemur við sögu. Um leið og við takmörk- um það svið sem íslenskan er gjaldgeng á, þá er mjög stutt í að hún lokist inni sem heimilismál og haldi ekki áfram að þróast með tímanum og ég held að það sé þróun sem við viljum ekki sjá. Þá er spurning hverju við viljum kosta til og hvað þarf að gera.“ Gísli segir Íslendinga hafa ágæta þjálfun í að flytja íslenskuna með sér inn í alþjóðlegt um- hverfi. „Íslenskan var tungumál bænda og sjó- manna, heimilislífs, bókmennta, sagnalistar og kvæðagerðar, en við höfum verið dugleg að búa til ný orð og þýða yfir á íslensku kennslubækur og umræðu um flókin mál í vísindum og tækni. Ekkert af þessu hefur gerst sjálfkrafa heldur kostað mjög meðvitaða stefnu og miklu vinnu margra, sem hafa haft einlægan áhuga á því að íslenskan væri áfram gjaldgengt tungumál á öll- um sviðum, ekki bara þetta heimilismál sem gæti hæglega orðið örlög tungumáls sem ekki hefur opinbera stöðu þjóðtungu í ríki. Við höfum mörg dæmi um þannig tungumál.“ Sjálfstæði, sjálfsvitund og tungumál Sérstaða íslenskunnar skýrist að miklu leyti af því að Íslendingum auðnaðist að byggja hér upp sjálfstætt ríki og öðlast sterka sjálfsvitund sem þjóð sem talar sérstakt tungumál, að sögn Gísla. „Ef sú sérstaða hyrfi, þá er mjög líklegt að mikið af því frumkvæði og drifkrafti sem hefur ein- kennt íslenskt samfélag, og má að miklu leyti þakka sterkri sjálfsmynd og sjálfstæði þjóð- arinnar, myndi fjara út og þau sem eru í forystu myndu missa kraftinn og stuðninginn, sem hefur verið mjög almennur við þá stefnu sem rekin hefur verið.“ – Hvað finnst þér um að sumar ársskýrslur ís- lenskra fyrirtækja séu einungis gefnar út á ensku? „Það er stórlega ofmetið hvað Íslendingar kunna góða ensku,“ segir Gísli. „Fólk gleymir því oft að móðurmálið er tungumál, sem fólk hef- ur möguleika á að læra til einhverrar hlítar og hafa vald á blæbrigðum, stílbrögðum og listræn- um tökum á því tungumáli, sem eru hverfandi líkur til að fólk hafi möguleika á að ná á erlendu máli. Það eru mjög fáir sem ráða við ensku, sem er þó það tungumál sem Íslendingar eru kannski bestir í, hvað þá að þeir ráði við að skrifa ensku sem telst frambærileg í ensku móðurmáls- samfélagi, þó að hún skiljist í alþjóðlegu um- hverfi, þar sem fólk hefur ensku sem annað mál.“ Gísli segir að það hefti mjög tjáningarmögu- leika fólks ef það geti ekki notað móðurmálið og eins séu yfirgnæfandi líkur á því að fólk muni aldrei skilja mjög vel það sem það les á ensku, þó að það átti sig á meginatriðum í merkingunni. „Þess vegna byggist öll umræða um að taka upp tvítyngi sem opinbera stefnu á miklum misskiln- ingi um hvað við getum lært og hvað við kunnum í öðru tungumáli en móðurmálinu. Og það eru mörg sorgleg dæmi um fólk sem elst upp við mörg tungumál án þess að lögð sé rækt við eitt móðurmál; það verður kjaftafært á þessum tungumálum, en nær aldrei slíkum tökum á neinu þeirra að það geti menntað sig til nokk- urrar hlítar. Þess vegna þurfum við að vera vak- andi fyrir því að móðurmálið verður alltaf að vera sterkt og við þurfum að halda vel utan um það, áður en við förum að nota önnur mál, í hvaða tilgangi sem það er.“ – Eru málverndunarsinnar eins hávær hópur og áður? „Það er ómögulegt að segja. Ég held að það sé mikil innri ritskoðun á fjölmiðlum, fólk sem miðlar upplýsingum frá degi til dags og tjáir skoðanir sínar vill pluma sig vel. Það hefur eng- an áhuga á að láta standa sig að miklu málklúðri og vitleysum og vill gjarnan fá uppbyggilegar leiðbeiningar um málnotkun. Það er kannski ekki jafnströng afstaða að leiðrétta einstök at- riði með rauðum penna. Málstefnan eða mál- verndin snýst frekar um að vekja fólk til um- hugsunar um hvað sé gott mál eða vont, hvað sé skýr hugsun og óskýr hugsun. Við treystum svo máltilfinningu fólks um einstakar beygingar, sem var kannski tilhneiging til að samræma óþarflega mikið á árum áður. Þágufallssýkin svokallaða naut til dæmis gríðarlegrar athygli langt umfram mikilvægi hennar fyrir gott mál eða vont.“ Og það verður áfram hluti af þessari málvernd eða málstefnu að finna íslensk orð sem eru upp- lýsandi um merkingu orða, frekar en að taka orð sem eru tilbúin úr öðrum tungumálum. „Það hef- ur verið talið í þágu alþýðu og talandi Íslendinga að fólk hafi möguleika á því að skilja orðin út frá tungumálinu, frekar en að þurfa að læra merk- ingu tökuorðsins eins og um erlent orð væri að ræða,“ segir Gísli. „Þetta hefur verið gert til þess að opinber umræða um tækni sem kemur með ný orð inn í tungumálið lokist ekki inni í heimi þeirra sem er menntaðir á því sviði, heldur sé aðgengilegt fyrir aðra að vita hvað talað sé um. Þess vegna hefur þessi stefna, ólíkt því sem heyrist stundum þegar hún er gagnrýnd, ekki verið til að hefta aðgengi að tungumálinu heldur til að halda tungumálinu opnu fyrir alla. Það breytir ekki því að einstakar starfsstéttir munu alltaf tala sín á milli tungumál og nota hugtök sem eru óskiljanleg öðrum – það liggur í hlut- arins eðli.“ KALLAR Á NÝJA HUGSUN Morgunblaðið/Frikki Íslenskan Gísli Sigurðsson segir fólk aðeins læra móðurmálið til nokkurrar hlítar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.