Morgunblaðið - 07.10.2007, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 07.10.2007, Blaðsíða 36
borg í deiglu 36 SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Nýlega var hús sem stóð viðHverfisgötu 44 flutt aðBergstaðastræti 16. Þarvar áður autt bílastæða- svæði. Við hlið þessa nýflutta húss sem sett var á nýsteyptan grunn er lóðin Bergstaðastræti 18, sem sam- kvæmt deiliskipulagi er einnig ætlað það hlutskipti að vera flutningslóð. Húsið Bergstaðastræti 20 er næsta hús við fyrrnefndar lóðir og hefur staðið á sínum stað frá upphafi, en það er rösklega 100 ára gamalt. Það er myndarlegt hús en nú þegar búið er að flytja gamalt hús við hlið þess vekur athygli hversu sárlega vanrækt það er. Það hefur staðið autt eftir að nýir eigendur keyptu það fyrir fáein- um árum. Magnús Skúlason, forstöðumaður húsafriðunarnefndar ríkisins, sagði að mikið hefði þegar verið fjallað um örlög Bergstaðastrætis 20 innan kerf- isins og nú liggur fyrir að ekki má rífa það. „Bergstaðastræti 20 er háð ald- ursreglum um hús sem byggð voru fyrir 1918. Það þarf að koma til álit húsafriðunarnefndar til að breyta því, rífa það eða flytja það. Húsafrið- unarnefnd hefur lagst eindregið gegn niðurrifi eða flutningi á þessu húsi,“ segir Magnús Skúlason. – Er þetta hús endurnýjanlegt að ykkar mati? „Já, þetta er fínt hús og á heima í þessari götumynd. Ég fagna sér- staklega flutningi hússins við Hverf- isgötu 44 því það hús mun styrkja götumynd Bergstaðastrætisins mjög. Til stóð að byggja þar tiltölulega háa blokk sem ekki féll að nærliggjandi byggð.“ – Er hægt að gera Bergstaðastræti 20 upp? „Já, það er hægt að gera Berg- staðastræti 20 vel upp, þetta er ein- falt hús í góðum hlutföllum, vel viðað en það hefur verið vanrækt að halda því við undanfarin ár. Ég, sem for- stöðumaður hjá húsafriðunarnefnd, sæki fast að þetta hús verði endurnýj- að í upphaflegri mynd og fái að standa þannig á sínum stað.“ Vel þekkt aðferð að láta hús grotna niður til að fá að rífa þau „Annað mál er að það vantar sár- lega hús á lóðina nr. 18, sem er flutn- ingslóð sem fyrr var getið. Miðað við þær áætlanir sem uppi eru um flutn- ing eða niðurrif húsa, t.d. á Bar- ónsreit, ætti að vera hægt að finna hús sem hæfir lóðinni nr. 18.“ – Er núverandi götumynd Berg- staðastrætis mikilvæg? „Já, hún er mjög mikilvæg fyrir miðbæinn og er tiltölulega heilleg. Flest húsin eru gömul. Götumyndin er falleg, dálítið sundurleit, en einmitt það gerir hana fallega. Við höfum skipt okkur af tilvist hússins við Bergstaðastræti 20 vegna þess að það er mikilvægt í götumyndinni. Það kostar talsvert að gera upp þau hús sem lent hafa í áralangri niðurníðslu eins og umrætt hús – en það borgar sig vel þegar upp er staðið.“ – Hefur verið reynt viljandi að þínu mati að láta þetta hús grotna niður svo leyft verði að rífa það? „Slíkt er gamalþekkt aðferð og það mætti láta sér detta í hug í þessu til- viki að hún kynni að hafa verið not- uð.“ Í húsaskrá Árbæjarsafns segir að Bergstaðastræti 20 sé reist árið 1905 og var fyrsti eigandi hússins Guð- brandur Þórðarson skósmiður en hönnuður hússins er ókunnur. Þetta hús var frá upphafi notað sem íbúðar- hús, það er tvílyft úr timbri og bind- ingi, klætt með bárujárni á þrjá vegu og þaki en eldvarnargafl er á norð- urhlið. Húsið er óbreytt frá byggingu þess en bílskúr, sem er á lóðinni en er nú lítið eftir af, er talinn frá 1940. Ekki er að finna leyfi fyrir bíl- skúrnum. Listrænt gildi hússins felst í því að það er einfalt sveitserhús og menn- ingarsögulegt gildi þess felst í að það þykir góður vitnisburður um al- þýðuhíbýli um aldamótin 1900. Um- hverfisgildi þess felst svo í því að það hefur sterka stöðu í götumyndinni og það er lítið breytt frá upprunalegri gerð. Húsið nýtur verndar í svoköll- uðum appelsínugulum flokki, þ.e. all- ar breytingar eru háðar lögum um húsafriðun nr. 104/2001 vegna aldurs. Svæðið nýtur verndar byggðamynst- urs í ljósgulum flokki skv. húsvernd- arskrá Reykjavíkur sem þýðir að það á að vernda byggðarmynstrið. Í brunavirðingu dagsettri 31.10. 1905 segir að auk Guðbrands skó- smiðs hafi byggt húsið Guðmundur Sæmundsson. Niðri í húsinu eru fjög- ur íbúðarherbergi, eldhús, gangur og einn fastur skápur, allt þiljað, og her- bergin eru með striga og pappír á veggjum og í loftum, allt málað. Á þeirri hæð eru þrír ofnar. Uppi er sama herbergjaskipan sem og annar frágangur. Þar eru þó fjórir ofnar og einnig eldavél. Kjallari er tvær og hálf alin á hæð undir öllu húsinu. Við vesturhlið hússins er inn- og upp- gönguskúr, hann er byggður eins og húsið og í honum eru tveir gangar og fastur skápur. Að sögn Helgu Maureen Gylfadótt- ur, safnvarðar hjá Árbæjarsafni, er flutningur hússins við Hverfisgötu 44 á lóðina Bergstaðastræti 16 til styrkt- ar byggðarmynstrinu á þessu svæði. Þess má geta að Árbæjarsafn hefur lagst gegn niðurrifi Bergstaðastrætis 20 á grundvelli verndunarsjónarmiða og byggðarmunsturs svæðisins. Bergstaðastræti 20 hefur frá 2004 verið í eigu ÞV verktaka sem vildu fá að rífa það en fá ekki. Áður var það í skamman tíma í eigu Sighvats Snæ- björnssonar en hann keypti húsið haustið 2002 af Einari Torfa Ásgeirs- syni sem þangað flutti með fjölskyldu sinni 1989. Einar mun ekki hafa breytt húsinu neitt heldur bara haldið því við og málað það. Ekki þarf að horfa lengi á þetta hús nú til að sjá að bregðast þarf við til að bjarga því frá eyðileggingu. Eigandi Bergstaða- strætis 20 vill rífa húsið en fær ekki. Magnús Skúlason, forstöðumaður Húsafriðunarnefndar rík- isins, vill að húsið verði endurnýjað og það vill Magnús Sædal Svav- arsson byggingarfulltrúi líka. Guðrún Guðlaugs- dóttir ræddi við þá og Þorvald Gissurarson, framkvæmdastjóra ÞV verktaka sem eiga húsið en hafa ekki hafist handa við endurnýjun ennþá. Samkvæmt ákvæðum í byggingarreglugerð má beita dagsektum í slíkum tilvikum ef í nauðirnar rekur. Árið 1972 Bergstaðastræti 20. Myndarlegt bárujárnsklætt timburhús. Leitað var til ÞG verktaka sem eiga Bergstaðastræti 20 og hafa átt í nokkur ár. Þorvaldur Gissurarson er fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins. – Hver er ætlun þessa fyrirtækis með húsið Bergstaðastræti 20? „Í nokkuð langan tíma höfum við sótt um að fá að rífa húsið til þess að byggja nýtt hús á lóðinni og við það situr,“ segir Þorvaldur. – Breytir hið nýflutta hús í Berg- staðastræti 16 að einhverju leyti þessari fyrirætlan? „Nei.“ – Hefur þessi ráðagerð ykkar, að fá að rífa húsið Bergstaðastræti 20, verið umfangsmikið ferli? „Ferlið hefur verið langt en alls ekki umfangsmikið.“ Forsendur til að koma Berg- staðastræti 20 í hið besta lag Samkvæmt samtali við Magnús Sædal Svavarsson byggingarfull- trúa var umsókn um niðurrif á Berg- staðastræti 20 synjað hinn 7. mars 2006. „Þessi synjun er rökstudd með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa og þar kemur fram að það sé lagst gegn niðurrifi á húsinu því það hafi áhrif á byggðarmynstur þar í kring og götumynd.“ – Er ástæða til að ætla að ný um- sókn myndi breyta þessari nið- urstöðu? „Ég sé ekki að ný umsókn muni leiða til niðurrifs,“ segir Magnús Sædal. – Hvað er gert af hálfu borg- arinnar ef eigendur vilja rífa hús og fá að byggja annað hús á lóðinni en fá synjun og láta þá hið gamla hús grotna niður? „Það er hægt í slíkum tilvikum að grípa til ákvæða sem eru í bygging- arreglugerð þar sem mönnum er gefinn frestur til að endurnýja húsið að viðlögðum dagsektum ef út af er brugðið.“ – Nú virðist ástand hússins í Bergstaðastræti 20 vera komið á hættustig. „Það sem gerist í svona húsum er að útigangsfólk reynir að koma sér fyrir í þeim, við höfum gert kröfu um að húsinu sé lokað fyrir slíku. Ef borgaryfirvöld eru of þreytt til að hafa frekari afskipti af málinu þá kemur til greina að þvinga fram við- gerðir á húsinu, allavega á ytra byrði þess. Þess má geta að Bergstaða- stræti 19, skáhallt á móti Bergstaða- stræti 20, var af þáverandi eiganda talið ónýtt og hann vildi rífa það. Frá þessum áformum var fallið og núna er það hús komið í besta lag. Ég tel allar forsendur til að koma Berg- staðastræti 20 í besta lag á sama hátt,“ sagði Magnús Sædal að lok- um. Niðurrif Berg- staðastrætis 20 ekki leyft Ljósmynd/Sveinn Þórðarson Götumynd Gömul yfirlitsmynd af svæðinu, örin sýnir Bergstaðastræti 20. Sækir fast að Bergstaða- stræti 20 verði endurnýjað Vanrækt hús Bergstaðastræti 20 er meira en 100 ára,eigandi vill rífa en fær ekki. Glæsilegt Bergstaðastræti 19 sem talið var ónýtt en var endurnýjað og er nú góður vitnisburður um al- þýðuhús frá því um 1900.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.