Morgunblaðið - 07.10.2007, Page 20

Morgunblaðið - 07.10.2007, Page 20
|sunnudagur|7. 10. 2007| mbl.is Stella McCartney Hönnuðurinn notast hvorki við leður í fatnaði né fylgihlutum. Baráttan um athygli neyt-enda í tískuheiminumverður sífellt harðari.Tískuhúsin leita sífellt nýrra leiða í þessari baráttu og eru helstu tískumerkin ekki undanskilin. Merki á borð við Stella McCartney og Yves Saint Laurent eru þar ekki undanskilin en þau gera sér grein fyrir því að auglýsingar í glans- tímaritum eru ekki lengur besta leiðin til að ná til viðskiptavina sinna. Til viðbótar dreifa þau bæklingum úti á götu, nota vefsíður og samvinnu við önnur fyrirtæki til að vekja enn meiri athygli á veru sinni. McCartney er með samninga við Adidas vegna íþróttalínu, Le- Sportsac um töskur og nærföt hjá Bendon auk þess að hafa hannað fatalínur í takmörkuðu upplagi fyrir verslanakeðjurnar H&M og Target í Ástralíu. „Án sýnileika er lúxusmerki ekki lúxusmerki,“ sagði Cedric Charbit, innkaupastjóri kvenfatatísku hjá frönsku stórversluninni Printemps í samtali við fréttastofu AP. Hann segir stefnu Stellu McCartney skyn- samlega, hún tali til núverandi og væntanlegra viðskiptavina sinna, sem gjarnan hafni núverandi stefnu margra lúxustískuhúsa, vegna þess að hún sé of áberandi og augljós. Skynsamleg stefna McCartney er farin að borga sig. Nýjar tölur sýna að tískumerki hennar náði hagnaði í fyrsta sinn í fyrra, ári fyrr en eig- andinn Gucci Group hafði sett sér, en langan tíma tekur að byggja upp ný tískumerki. Niðurstaðan sýnir að það er mögulegt að ná árangri á lúx- usmarkaðnum, þrátt fyrir að notast hvorki við leður né loðfeldi. McCart- ney er grænmetisæta og stóð nýlega fyrir baráttuherferð fyrir réttindum dýra í netleiknum Second Life. Tískuhúsið Yves Saint Laurent notfærir sér líka netið. Í vikunni opnaði fyrirtækið nýja og end- urbætta síðu sína á www.ysl.com en nú er þar að finna ýmislegt sérefni á borð við stuttmyndir og líka net- verslun fyrir Bandaríkjabúa. Listrænn stjóri merkisins, Stef- ano Pilati, kynnti líka nýverið Mani- festo, sérstakan kynningarbækling, sem dreift var á götum New York, Parísar, London og Mílanó í síðasta mánuði. „Ég hóf Manifesto- auglýsingaherferðina því ég vildi tala beint til fólks. Hefðbundnar auglýsingaherferðir eru ekki nóg. Í tímaritunum eru handtöskuauglýs- ingarnar áberandi, því þar eru pen- ingarnir, en hvað með hönnun mína?“ sagði hann við breska dag- blaðið The Times. Meðfylgjandi myndir sýna nýj- ustu línurnar frá fyrrnefndum tísku- húsum auk vorlínu Chanel en það vörumerki þarfnast vart meiri kynn- ingar enda eitt það heitasta sem stendur. ingarun@mbl.is Chanel Dúllulegt en töff í svörtu og hvítu frá Karli Lagerfeld. Yves Saint Laurent Ekkert óþarfa skraut hér. Stella McCartney Líflegur og sumarlegur blómakjóll. Chanel Margir fá áreiðanlega stjörnur í augun yfir þessu. Yves Saint Laurent Pilati sleppti pífunum í þetta sinn. Í leit að athygli Mörg helstu tískuhús heims sýndu komandi vor- og sumartísku á tískuviku í París sem lýkur í dag. Inga Rún Sigurðardóttir flaut með tískustraumunum og kannaði nýjustu leiðirnar í baráttu tískuhúsanna um athygli neytenda. REUTERS Stella McCartney Hönnuðurinn hlaut þjálfun á Savile Row. Chanel Mikill glamúr í nýjustu töskunni hjá Karli Lagerfeld. daglegtlíf Björn Björnsson á Sauðárkróki er hættur að kenna, gælir áfram við pólitík og sinnir nú sínum báti og sinni bók. » 22 lífshlaup Hans Blix var undir ógnarþrýst- ingi í aðdraganda Íraksstríðs- ins. Afvopnun og loftslagsmál eru honum efst í huga. » 28 stjórnmál Vala Gestsdóttir tónlist- armaður og hljóðmaður gerði diskinn Indigó ásamt Ingólfi Þór Árnasyni. » 26 tónlist

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.