Morgunblaðið - 07.10.2007, Side 31
fyrirmynd að þessu sem hefur
heppnast mjög vel. Oslóarbúar
settu umferðina undir Karljohan,
aðalgöngugötu Oslóarborgar, og
endursköpuðu miðbæinn sinn með
mjög góðum árangri. Þannig ráku
þeir af sér slyðruorðið að vera
stærsta sveitaþorp Evrópu.
Veðurfarsaðstæður og inni-
miðbær
Víða erlendis þar sem veðurfars-
aðstæður hafa sent borgarbúa inn í
hús hafa menn kosið að byggja upp
miðbæi með lokuðum tengibygg-
ingum og -brúm til að hægt sé að
ganga um miðbæinn innandyra yfir
vetrartímann. Mér finnst þetta
vera góð hugmynd sem eigi vel við
okkur.
Með göngugötu sem liggur frá
Hótel Borg og alla leið út að Arn-
arhóli með tengibrúm á annarri eða
þriðju hæð er hægt að njóta mið-
bæjarins í hvaða veðri sem er og
þannig verður til einskonar inni-
miðbær yfir vetrartímann. Göngu-
gatan er svo tengd helstu bílakjöll-
urum og -húsum á svæðinu.
Miðgarðsormur Heimskringlu
prýðir Lækjartorg
Sem listamanni finnst mér mik-
ilvægt að við fáum táknrænt lista-
verk í miðbæinn sem tengist sögu
okkar og menningu. Ég setti fram
tillögu um Miðgarðsorminn sem
hlykkjast upp úr Lækjartorgi og
myndar leiksvið við áhorf-
endasvæðið á Arnarhóli. Miðgarðs-
ormurinn hélt heiminum saman í
Heimskringlu og þess vegna fannst
mér við hæfi að slíkt verk yrði sett
upp á þessum stað. Til að brjóta
svæðið enn frekar upp væri tilvalið
að hafa gosbrunn þar sem Lækj-
argata og Bankastræti mætast á
hringtorgi. Leita ég hér með að
hugmyndum að honum.
Aldrei verða allir sammála
Uppi eru skiptar skoðanir um
framtíð miðbæjarins og lausnir
varðandi samgöngumál borgarinnar
eða hvort eigi að reisa nýjan
miðbæ eða ekki. Allt er þetta góðra
gjalda vert og mikilvægt að halda
uppi líflegri og opinni umræðu um
þetta mál sem stendur okkur öllum
svo nærri. Engu að síður hefur
sagan sýnt það að gamlar hefðir og
sögulegt hlutverk staða í borgum
hefur reynst ansi lífseigt. Ég held
því að Lækjartorg og Arnarhóll sé
í huga Íslendinga þeir staðir þar
sem Íslendingar vilja koma saman
og fagna eða njóta í nánustu fram-
tíð. Í upphafi skal endinn skoða.
» Lækjargata lægi þá
neðanjarðar frá
Skúlagötu og út að
Miklubraut og í staðinn
kæmi mikið og fallegt
torg sem lægi frá nýja
tónlistarhúsinu og út að
Tjarnargötu. Hverf-
isgatan færi í undirgöng
undir Lækjartorgið.
Morgunblaðið/ÞÖKMorgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Miðbær Reykjavíkur Lækjartorg og Arnarhól eru staðir sem skapað hafa hafa sér sess í hjörtum borgarbúa, þar sinna þeir hversdagslegum erindum og koma saman hvort sem þeir vilja fagna
eða mótmæla einhverju. Með því að byggja biðstöðuhús strætisvagna Reykjavíkur á torginu var Arnarhóll klipptur af upphaflegri heildarmyndinni.
Höfundur er hönnuður,
myndlistarmaður og múrari.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 2007 31
Ferðaskrifstofa
Páskaferð til Natal og Pipa
16. mars í 9 eða 13 daga.
VISUAL PRAYA – PONTA NEGRA DORISOL HOTEL – PIPA
Dorisol er byggt ofan á kletti yfir einni fegurstu
strönd Brasilíu, "Dolphins Bay". Einstakt hótel
umlukt fallegum garði. Herbergi eru rúmgóð
og öll með svölum eða verönd.
Verðdæmi: 142.810,- m. morgunv.
á mann m.v. 2 í herbergi, 16. mars í 9 nætur.
Verðdæmi: 141.434,- m. morgunv.
á mann m.v. 2 í herbergi, 16. mars í 9 nætur.
Fyrsta flokks 4ra stjörnu hótel á ströndinni með
góðum loftkældum herbergjum. Hótelið er í
göngufæri við Natal en þar er úrval af góðum og
spennandi veitingastöðum, börum og verslunum.
Natal hefur slegið í gegn. Það er magnað
að ganga meðfram ströndinni, sjá
kókoshnetutré innan um hvítar strendur
og gleðina í heimamönnum sem dilla
sér í sannkölluðum sambatakti.
Veitingastaðirnir eru hverjum
öðrum betri og það merkilega
er að maturinn bragðast
öðruvísi í Brasilíu. Kryddið
er betra, ávextirnir sætari
og grænmetið ferskara.