Morgunblaðið - 07.10.2007, Síða 50
Sóleyjarimi 7
112 Reykjavík
Opið hús í dag 15:00-15:30
Stærð: 101,2 fm
Fjöldi herbergja: 3
Byggingarár: 2005
Brunabótamat: 19
Bílskúr: Já
Verð: 26.900.000
Glæsileg 3ja herbergja 101,2 m2 íbúð á 2. hæð með sérinngangi ásamt stæði í
bílageymslu í Sóleyjarima 7, Grafarvogi sem er fyrir 50 ára og eldri. Íbúð með glæsilegu
útsýni. Mjög góð staðsetning, stutt í alla þjónustu eins og heilsugæsla, samtök eldri
borgara, golf og fl. Innréttingar afar snyrtilegar og íbúðin er rúmgóð. Sjón er sögu ríkari.
Lind
Þórarinn Jónsson
Lögg. fast. hdl.
Baldur Jóhannsson
Sölufulltrúi
thorarinn@remax.is
baldur@remax.is
Gunnar Valsson
Sölufulltrúi
gv@remax.is
Opið
Hús
Íbúð fyrir 50ára og eldri
RE/MAX Lind - Bæjarlind 14-16 - 201 Kópavogur - Sími: 5209500 - www.remax.is
864 1813
822 3702
50 SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Kríuás 5 - sérhæð Hafnarfirði
Vorum að fá í sölu nýlega glæsilega 4ra herbergja efri sérhæð,
138,1 fm. auk innbyggðs bílskúrs, 28,6 fm samtals 166,7 fm í
vönduðu fjórbýli í Áslandinu. 3 svefnherbergi, stofa, borðstofa,
sjónvarpshol, sér þvottaherbergi, baðherbergi, eldhús ofl. s-svalir.
Alno innréttingar. Stutt í skóla og leikskóla. Laus fljótlega.
Verð 40,9 millj.
*NÝTT Á SKRÁ.* Vorum að fá í sölu rúmgóða 102,2 fm 4ra herbergja ENDAÍBÚÐ á 2.
hæð í litlu fjölbýli við Breiðuvík 2 í Grafarvogi. Þetta er vönduð og smekkleg íbúð.
Kirsuberjaparket og flísar á gólfum, 3 góð svefnherbergi með fataskápum, bað-
herbergi með baðkari og sturtu og eldhús með góðum borðkrók. Góð staðsettning –
stutt í skóla og leikskóla. Verð 26,9 m.
Breiðavík – 4ra herb. – Rvk
*NÝTT Á SKRÁ.* Vorum að fá í sölu 90,5 fm 2ja herbergja íbúð á EFSTU HÆÐ í 4ra
hæð fjölbýli fyrir 50 ára og eldri. Þetta er vönduð lyftublokk með bílakjallara. Íbúðin er
björt og rúmgóð, eikarparket og flísar á gólfum og fallegar eikarinnréttingar í eldhúsi,
baði og svefnherbergi. Stór stofa og borðstofa og svalir eru yfirbyggðar og með gler-
hurðum sem hægt er að opna. Sundlaug, líkamsrækt og golfvöllur, allt í göngufæri við
húsið. Verð 31,5 m.
Einar Páll Kjærnested
löggiltur fasteignasali.
Sími 586 8080 • Fax 586 8081
www.fastmos.is
Lúðvík, s. 897-7518
tekur á móti gestum
í dag á milli kl. 14-15.
*NÝTT Á SKRÁ.* Vorum að fá í sölu afar glæsilega 3ja til 4ra herbergja endaíbúð á efstu
hæð í nýlegu 3ja hæða fjölbýli við Þrastarhöfða 5 í Mosfellsbæ. Íbúðin er mjög glæsi-
leg, með eikarplankaparketi og flísum á gólfi, hnotu innhurðar og innréttingar
hvítar/hnota. Hér hefur hvergi verið til sparað – frábær staður, sundlaug, líkamsrækt,
skóli, leikskóli, golfvöllur og gönguleiðir rétt við húsið. Verð 33,2 m.
Þrastarhöfði – 3/4 ra herb. + bílskýli
Mjög glæsileg 3ja herbergja endaíbúð á jarðhæð í 4ra hæða lyftublokk með bílastæði í
lokaðri bílageymslu við Tröllateig 20 í Mosfellsbæ. Íbúðin er mjög stór og rúmgóð, stór
stofa og borðstofa, eldhús með fallegri eikarinnréttingu, tvö svefnherbergi, flísalagt
baðherbergi og stórt þvottahús ásamt geymslum. Bílastæði í bílageymslu og tvær
stórar geymslur. Þetta er topp íbúð á besta stað í húsinu. Verð 30,9 m.
Tröllateigur – 133,5 fm endaíbúð
FÖLBÝLI M. BÍLAGEYMSLU
FÖLBÝLI M/BÍLAGEYMSLU
Klapparhlíð – 50 ára og eldri
STÓRGLÆSILEG ÍBÚÐ Í "ALASKAREITNUM"
Vorum að fá í einkasölu þessa óvenju glæsilegu íbúð í nýlegu fjölbýli. Íbúðin
er með sérinngangi og er brúttóstærð 142,9 fm ásamt stæði í bílgeymslu og
hlutdeild í mikilli sameign. Sérafnotaréttur að garði í suður fylgir þessari eign
með hellulagðri verönd að hluta. Mjög vandaðar innréttingar og gólfefni.
Massívt parket á öllum gólfum, Alno-innrétting í eldhúsi. Vandaður ljósabún-
aður frá Lumex. (Gengið upp á pall á milli nr. 41 og 43
og þar til innst til hægri, sjá skilti.)
Ólafur B Blöndal frá fasteign.is verður á staðnum
ásamt eiganda milli kl. 14 og 15 í dag.
SKÓGARSEL 43, 2. HÆÐ
OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL. 14-15
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali.
M
b
l 9
18
90
6
LANDSSÖFNUN Kiwanis-
hreyfingarinnar til stuðnings geð-
sjúkum og aðstandendum þeirra fer
fram dagana 4.-7. október. Kjörorð
söfnunarinnar er Lykill að lífi og er
hún haldin í tengslum við alþjóðlega
geðheilbrigðisdaginn 10. október.
Ágóði landssöfnunarinnar að þessu
sinni rennur til þriggja málefna;
Geðhjálpar, BUGL og Forma.
BUGL er deild innan geðsviðs
Landspítala – háskólasjúkrahúss
sem sérhæfir sig í mati og meðferð
á hvers kyns geðröskun barna og
unglinga. Ætlunin er að nýta þann
ágóða sem af söfnuninni hlýst og
kemur í hlut BUGL til að styrkja
verkefni sem miðar að því að gera
börnunum á BUGL kleift að fá
þjálfun og afþreyingu utan deild-
arinnar. Þar ber fyrst að nefna end-
urnýjun á útileikaðstöðu legu-
deildarsjúklinga. Leiktæki við
legudeild barna eru gömul og úr sér
gengin, en eins og gefur að skilja er
nauðsynlegt fyrir börnin að geta
farið út að leika sér í öruggu og
skemmtilegu umhverfi. Það stuðlar
að líkamlegum og félagslegum
þroska þeirra, auk þess að veita
þeim nauðsynlega
hreyfingu og dægra-
dvöl. Einnig verður
komið upp leik-
aðstöðu utandyra fyr-
ir legudeild unglinga,
en vegna nýrrar við-
byggingar varð
körfuboltavöllurinn
sem tilheyrði deild-
inni og var hennar
eina útileikaðstaða að
víkja. Körfuboltavöll-
urinn var afar vinsæll
meðal skjólstæðinga
deildarinnar og er
hans sárt saknað. Auk þessa eru
uppi hugmyndir um að auðvelda
skjólstæðingum BUGL að komast í
líkamsrækt, sund og stunda annars
konar tómstundir utan deildarinnar.
Það er ómetanlegt fyrir börnin og
unglingana að geta fengið holla
hreyfingu og stundað uppbyggilega
tómstundaiðju sem þessir hlutir
myndu eiga stóran þátt í að veita
þeim. Slíkt getur stuðlað að skjótari
bata og aukinni vellíðan þeirra
barna og unglinga sem verða vanda
síns vegna að leggjast inn á BUGL.
Gengið verður í hús um land allt,
sölumenn verða við verslunarmið-
stöðvar og aðra fjölfarna staði, auk
þess sem leitað er til fyrirtækja um
stuðning. Þá verður einnig hægt að
leggja inn á reikning söfnunarinnar;
1100-26-55000, kennitala 640173-
0179. Sparisjóðirnir á Íslandi eru
fjárvörsluaðili söfnunarinnar og að-
albakhjarl hennar ásamt Toyota,
Olís og Bónus. Hægt verður að
leggja söfnuninni lið með því að
fara inn á heimabanka sparisjóð-
anna og millifæra. K-lykillinn verð-
ur ennfremur til sölu í öllum versl-
unum Bónuss og á þjónustustöðvum
Olís.
Við á BUGL vonum að sem flest-
ir sjái sér fært að leggja þessum
góðu málefnum lið. Með fyrirfram
þökkum til allra þeirra sem leggja
sitt af mörkum.
Þjálfun og afþreying utan deild-
ar fyrir skjólstæðinga BUGL
Guðrún Bryndís Guðmunds-
dóttir og Ragna Kristmunds-
dóttir skrifa í tilefni af sölu
K-lykilsins
»Nýta á ágóða semkemur í hlut BUGL
til verkefna sem miða að
því að gera börnunum á
BUGL kleift að fá þjálf-
un og afþreyingu utan
deildarinnar
Ragna
Kristmundsdóttir
Guðrún Bryndís er yfirlæknir BUGL
og Ragna er sérfræðingur í geð-
hjúkrun barna og unglinga við LSH.
Guðrún Bryndís
Guðmundsdóttir