Morgunblaðið - 07.10.2007, Side 69
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 2007 69
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Þriggja daga keppni í
félagsvist hefst 8. október kl. 14.
Næst verður spilað 15. og 22. okt.
Verðlaun.
Bólstaðarhlíð 43 | Haustferð verður
farin frá Bólstaðarhlíð 43, miðviku-
daginn 10. okt. kl. 12.30. Krýsuvík-
urleiðin að Strandarkirkju, kaffihlað-
borð á veitingastaðnum Hafinu bláa.
Verð kr. 2.900. Skráning og greiðsla
á skrifstofunni í síðasta lagi mánu-
daginn 8. okt. Uppl. í s. 535-2760.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Fé-
lagsvist er spiluð í Gullsmára á mánu-
dögum kl. 20.30, en í Gjábakka á mið-
vikudögum kl. 13 og á föstudögum kl.
20.30.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Dansleikur kl. 20, Caprítríó leikur fyr-
ir dansi. Menningarhátíð FEB í Borg-
arleikhúsinu 16. október. Uppl. og
miðasala í Borgarleikhúsinu og á
skrifstofu FEB, s. 588-2111. Námskeið
í framsögn hefst 23. október, leið-
beinandi Bjarni Ingvarsson, skráning
á skrifstofu FEB.
Félagsstarf Gerðubergs | Tréút-
skurður og fjölbreytt handavinna má-
nud. og miðvikud. kl. 9-16.30. Frá kl. 9
á þriðjud. er glerskurður. Á miðvikud.
kl. 10 er dansæfing. Fimmtud. kl.
12.30 myndlist og á föstud. bókband.
Uppl. á staðnum, s. 575-7720 og
wwwgerduberg.is. Strætisvagnar 4,
12 og 17.
Furugerði 1, félagsstarf | Furugerð-
iskórinn verður með kaffisölu kl. 14-
16.
Hraunbær 105 | Boðið verður upp á
bólusetningu gegn inflúensu í Fé-
unarfræðingur og verður boðið upp á
bólusetningu gegn inflúensu, skrán-
ing í síma 411-2730.
Kirkjustarf
Áskirkja | Safnaðarfélag Áspresta-
kalls verður með kaffisölu í safn-
aðarheimili kirkjunnar eftir messu í
dag.
Bústaðakirkja | Á miðvikudögum kl.
13-16.30 er starf eldri borgara. Spil-
að, föndrað og handavinna. Gestur
kemur í heimsókn.
Fríkirkjan Kefas | Sunnudagaskóli kl.
11, kennsla, söngur, leikir og samvera.
Almenn samkoma kl. 14 þar sem Sig-
rún Einarsdóttir prédikar. Á samkom-
unni verður lofgjörð, barnastarf og
fyrirbænir. Að samkomu lokinni verð-
ur kaffi og samvera.
Grafarvogskirkja | Haustfundur
safnaðarfélags Grafarvogskirkju
verður haldinn mánud. 8. okt. kl. 20, í
safnaðarsal kirkjunnar. Eyþór Eð-
varðsson, stjórnendaþjálfari og fyr-
irlesari hjá Þekkingarmiðlun flytur
fyrirlestur um tilfinningagreind.
Grindavíkurkirkja | Sl. sunnudag var
vígt nýtt 25 radda ísl. orgel í Grinda-
víkurkirkju. Friðrik Vignir Stefánsson
organisti heldur tónleika í Grindavík í
dag kl. 17, þar sem hann leikur verk
eftir Bach, Buxtehude, Boëllmann
o.fl., á hið nýja orgel.
Laugarneskirkja | TTT-hópurinn
kemur saman undir handleiðslu sr.
Hildar Eirar og Andra Bjarnasonar kl.
13 (5.-6. bekkur). Kl. 16 Harðjaxlar,
fullfrísk og fötluð börn saman í leik
og vináttu. Stella Rún Steinþórs-
dóttir og Þorkell Sigurbjörnsson leiða
starfið.
lagsmiðstöðinni Hraunbæ 105, fimm-
tud. 11. október kl. 13-14.30. Munið
eftir afsláttarkortinu. Skráning á
skrifstofu eða í síma 411-2730.
Hæðargarður 31 | Enn er hægt að
komast í styrktar- og þjálfunarhóp
World Class Laugum. Bókmenntah.
kl. 20, 9. okt. Anna Karlsdóttir fjallar
um Ólöfu frá Hlöðum. Listasmiðjan
opin alla daga. S. 568-3132.
Korpúlfar Grafarvogi | Ganga frá
Grafarvogskirkju á morgun, mánudag
kl. 10.
Kvenfélag Bústaðasóknar | Fundur
verður mánudaginn 8. október kl. 20
í safnaðarheimilinu. Vetrardagskrá
kynnt og kaffiveitingar.
Kvenfélag Kópavogs | Félagsfundur
verður 10. okt. kl. 20, í sal félagsins
að Hamraborg 10, 2. hæð, gengið inn
að sunnanverðu. Dagskrá: Málefni fé-
lagsins. Gestir velkomnir.
Lífeyrisþegadeild Landssambands
lögreglumanna | Fyrsti sunnudags-
fundur vetrarins er í dag kl. 10 á
Grettisgötu 89.
Thorvaldsensfélagið | Haustfundur
Thorvaldsensfélagsins verður hald-
inn á Hótel Loftleiðum mánudaginn
8. október kl. 20. Kynnt verða jóla-
merki og jólakort félagsins. Einnig
verður kynning á nýrri heimasíðu
Thorvaldsensfélagsins. Gestur fund-
arinns verður Klara Hilmarsdóttir
sem segir frá „Blindum börnum“.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Árlegur
haustfagnaður verður miðvikudaginn
10. október kl. 17, dans, matur,
skemmtiatriði , happdrætti. Upplýs-
ingar og skráning í síma 411-9450.
Þórðarsveigur 3 | Föstudaginn 12.
október kl. 11-12 kemur hjúkr-
85ára afmæli. Jón Þor-berg Eggertsson fyrr-
verandi skólastjóri Barrholti
7, Mosfellsbæ er áttatíu og
fimm ára í dag, sunnudaginn
7. október. Jón og kona hans
Rósa Kemp Þórlindsdóttir
taka í dag á móti sínum nán-
ustu ættingjum á heimili sínu
kl. 16.
dagbók
Í dag er sunnudagur 7. október, 280. dagur ársins 2007Orð dagsins: En hvert tré þekkist af ávexti sínum, enda lesa menn ekki fíkj-
ur af þistlum né vínber af þyrnirunni. (Lúkas 6, 44.)
Alþjóðamálastofnun Háskól-ans og Rannsóknaseturum smáríki efna til mál-þings á þriðjudag, 9. októ-
ber í fyrirlestrarsal Þjóðarbókhlöð-
unnar.
Yfirskrift málþingsins er Svæð-
isbundnar alþjóðastofnanir: Ösku-
buskur eða góðar álfkonur? (e.
Subregional Organizations: Cinde-
rellas or Fairy Godmothers?)
Alyson Bailes er gestakennari við
Háskóla Íslands og einn af skipu-
leggjendum málþingsins: „Við mun-
um velta fyrir okkur þeirri spurn-
ingu hvort svæðisbundnar
alþjóðastofnanir í Evrópu séu lít-
ilfjörlegar stofnanir sem fást við lítt
spennandi verkefni, eða hvort sé í
raun meira í þær spunnið, og að þar
sé að finna spennandi pólitískan
vettvang til að fást við ýmis mál,“
segir Alyson.
Öðruvísi samskiptaleiðir
Svæðisbundnar stofnanir starfa
vítt og breitt um Evrópu: „Þær
tengja saman nágrannaþjóðir, og
starfa þar iðulega hlið við hlið þjóðir
í ólíkri aðstöðu, t.d. þjóðir sem eru
ýmist innan eða utan Evrópusam-
bandsins eða NATO, og geta stofn-
anirnar þannig verkað til að brjóta
upp hefðbundnar samskiptaleiðir,“
segir Alyson, og nefnir sem dæmi
tengsl Íslands við aðrar þjóðir gegn-
um Norðurskautsráðið og Eystra-
saltsráðið. „Þessar stofnanir fást
iðulega við mjúk öryggismál á borð
við landamæravörslu, umhverf-
isvernd, heilbrigðissamstarf og
slysavarnir, en virðast um leið vera
hálfgerðar uppeldisstofnanir þar
sem þjóðir geta lært hver af annarri
í umhverfi þar sem ekki ríkir mikil
spenna eða rígur. Samskipti þjóða,
sem geta verið mjög stirð á aðal-
leikvöllum alþjóðastjórnmálanna,
eru oft mun liprari innan þessara
stofnana.“
Alyson flytur inngangserindi mál-
þingsins. Aðrir fyrirlesarar eru Val-
ur Ingimundarson, prófessor við
sagnfræðiskor; Victoria Popescu,
sendiherra Rúmeníu gagnv. Svíþjóð;
Natalia Gherman, sendiherra Mol-
davíu gagnv. Svíþjóð; Kornelíus Sig-
mundsson sendiherra og Madeleine
Ströje-Wilkens, sendiherra Svíþjóð-
ar gagnv. Íslandi.
Málþing þriðjudagsins hefst kl. 9
og stendur til 12.30. Að fyrirlestrum
loknum verða umræður, og bjóða
Háskólinn og Sendiráð Svíþjóðar
upp á léttar veitingar.
Alþjóðasamskipti | Málþing um hlutverk svæðisbundinna alþjóðastofnana
Öskubuskur eða álfkonur?
Alyson Judith
Kirtley Bailes
fæddist í Man-
chester 1949.
Hún hlaut MA-
gráðu í sagn-
fræði frá Ox-
ford-háskóla
1969. Alyson
starfaði við
bresku utanríkisþjónustuna frá
1969 til 2002, m.a. sem sendiherra í
Finnlandi, auk þess sem hún sinnti
störfum m.a. við Vestur-Evrópu-
sambandið og varnarmálaráðu-
neyti Bretlands. Hún er nú gesta-
kennari við Háskóla Íslands
Tónlist
Grafarvogskirkja | Franski fiðlusnilling-
urinn Gilles Apap leikur ásamt Hjörleifi
Valssyni, Bardukha og Íslensku kamm-
ersveitinni á tvennum tónleikum í dag.
Allur aðgangseyrir rennur til ofbeldissjóðs
Unifem. Tónleikarnir hefjast kl. 16 og kl.
20. Sala aðgöngumiða á midi.is og við
innganginn.
Grindavíkurkirkja | Friðrik Vignir Stef-
ánsson organisti heldur tónleika í Grinda-
vík kl. 17, þar sem hann leikur verk eftir
Bach, Buxtehude, Boëllmann o.fl. á nývígt
orgel Grindavíkurkirkju.
Hásalir (safnaðarheimili Hafnarfjarð-
arkirkju) | Tónleikar kl. 17. Fram koma
flautuleikararnir Ian Clark og Averill Willi-
ams auk Einars Jóhannessonar klarín-
ettleikara, Ingunnar Hildar Hauksdóttur
píanóleikara og Íslenska flautukórnsins.
Einnig munu um 100 flautunemendur
koma fram. Frumflutt verður nýtt verk
fyrir flautu og klarínett eftir Þorkel Sig-
urbjörnsson.
Myndlist
Heilsugæslan Hvammur, Kópavogi |
Myndlistarsýning Sigrúnar Sigurðardóttur
er opin á opnunartíma stöðvarinnar kl. 9-
18 virka daga.
Smáralind | Ljósmyndasýning frá Wuhan-
borg í Kína opnuð kl. 14 í Vetrargarðinum
í Smáralind. Sýningin stendur til 7. októ-
ber.
Söfn
Safnahús Kópavogs | Sýning á kínversk-
um listmunum í einkaeign, í húsakynnum
Bókasafns og Náttúrufræðistofu Kópa-
vogs.
Skemmtanir
Íþróttamiðstöðin Versalir | Sýning Loft-
fimleikaflokks Wuhan í íþróttamiðstöðinni
Versölum (sami staður og Salalaug) kl. 16.
Mannfagnaður
Breiðfirðingafélagið | Spiluð verður fé-
lagsvist í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14,
sunnudaginn 7. október kl. 14.
Kvikmyndir
MÍR-salurinn | 4. október voru liðin 50 ár
frá því Sovétmenn skutu fyrsta geim-
farinu á braut umhverfis jörðu. Þessa er
minnst í MÍR, Hverfisgötu 105, með sýn-
ingu þriggja heimildarkvikmynda nk.
sunnudag, 7. okt. kl. 15: Rússland í geimn-
um, Heimili mitt Stjörnuborg og Vega
flýgur inn í fortíðina. Aðgangur ókeypis.
Fyrirlestrar og fundir
Geðhjálp | Geðhjálp auglýsir eftir ein-
staklingum sem vilja hjálpa til við að
halda utan um eftirfarandi sjálfshjálp-
arhópa: sjálfshjálparhóp þunglyndra, fé-
lagsfælinna, aðstandendahóp og kvíða-
hóp. Vinsamlegast hafið samband við
Geðhjálp í síma 570 1700.
Frístundir og námskeið
www.ljosmyndari.is | 2ja daga ljósmynd-
anámskeið á Suðurlandi, í Fjölbrautarskól-
anum Selfossi, 5. og 6. nóv. kl. 18-22, og á
Hótel Hvolsvelli 7. og 8. nóv. kl. 18-22.
Myndavélin, myndatökur og tölvumálin.
Verð 12.900 kr. Leiðbeinandi Pálmi Guð-
mundsson, s. 898 3911. Nánar uppl. og
skráning á www.ljosmyndari.is.
3ja daga ljósmyndanámskeið þar sem tek-
ið er fyrir myndavélin, myndatökur, stúdíó,
tölvumálin og Photoshop. Næstu nám-
skeið verða 15.-18. okt., 22.-25. okt., 12.-
15. nóv., 19.-22. nóv. og 3.-6. des. Kennslu-
tími kl. 18-22. Verð 17.900. Leiðbeinandi
Pálmi Guðmundsson.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
í október
frá kr. 14.990 (báðar leiðir)
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Búdapest
Heimsferðir bjóða allra síðustu sætin til Búdapest í október á frábærum kjörum.
Ein fegursta borg Evrópu og eftirlæti Íslendinga sem fara þangað í þúsundatali á
hverju ári með Heimsferðum. Haustið er frábær tími til að heimsækja borgina.
Búdapest býður einstakt mannlíf, menningu og skemmtun auk frábærra
veitinga- og skemmtistaða. Fyrstur kemur – fyrstur fær!
Verð frá kr. 14.990
Netverð á mann, m.v. flugsæti báðar leiðir með
sköttum, út 16. okt. og heim 19. okt.
Gisting frá kr. 2.900
Netverð á mann pr. nótt, m.v. gistingu í tvíbýli með
morgunverði á Tulip Inn ***.
Gisting á Hotel Nemzeti **** kr. 4.300 á nótt á mann.
Allra síðustu sæ
tin - bókaðu nún
a!
Helgarferð 19.-22. okt.
frá kr. 34.990 – flug + gisting
Netverð á mann. Flug, skattar og gisting í tvíbýli á Hotel Tulip Inn *** í 3 nætur með morgunverði.
Gisting á Mercure Nemzeti **** kr. 5.000 aukalega.
EINUNGIS um 700 fjallagórillur eru eftir í öllum heiminum. Þær lifa allar á landa-
mærum Rúanda, Úganda og Kongó. Hér passar górillan Bilali vel upp á nýfætt af-
kvæmi sitt í Virunga-þjóðgarðinum í Kongó.
REUTERS
Fjallagórillur í Kongó
FRÉTTIR
AÐALFUNDUR Ungra vinstri
grænna í Reykjavík var haldinn 29.
september síðastliðinn. Kosið var í
stjórn félagsins á fundinum og er nýr
formaður félagsins Brynja Björg
Halldórsdóttir. Aðrir í stjórn eru Ást-
ríður Pétursdóttir, Claudia Overesch,
Sigurður Kári Árnason og Ísleifur
Egill Hjaltason. Kolbrún Ýr Odd-
geirsdóttir og Sigrún Vala Þorgríms-
dóttir voru kjörnar varamenn.
Aðalfundurinn lýsir yfir ánægju
vegna aðgerða lögreglustjóra höfuð-
borgarsvæðisins sem ráðist var í gegn
nektarstöðum í Reykjavík. Sömuleið-
is fagnar fundurinn því að lögreglu-
yfirvöld leggja nú aukna áherslu á ör-
yggi í miðborg Reykjavíkur.
Fundurinn telur að til að stuðla að
varanlegri lausn á vandanum sé nauð-
synlegt að samhliða aðgerðum af
þessu tagi verði forvarnir meðal
barna og ungmenna efldar, bæði hvað
varðar áfengi og vímuefni, en einnig
hvað varðar virðingu bæði gagnvart
sjálfum sér og öðrum einstaklingum.
Fagna frumkvæði
lögreglustjóra