Morgunblaðið - 07.10.2007, Síða 70
70 SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Kalvin & Hobbes
ÉG ÆTLA AÐ
LÆRA AÐ HJÓLA
ÞÓ ÞAÐ
VERÐI MITT
SÍÐASTA VERK
SVONA,
LÁTTU VAÐA ERTU
DAUÐUR?
EKKI ENN-
ÞÁ. BARA
MJÖG ILLA
MEIDDUR
Kalvin & Hobbes
HÉR KEMUR SIGGA. ÉG
ÆTLA AÐ FLEYGJA Í
HANA KÖNGLI
Kalvin & Hobbes
MARK!
SPILUM
EINHVERN
ANNAN
LEIK
Risaeðlugrín
© DARGAUD
dagbók|velvakandi
Um útvarp og sjónvarp
MIG langar til að spyrja hvað sé eig-
inlega að gerast hjá stofnuninni
sjónvarpi og útvarpi. Maður opnar
ekki svo blað að ekki sé sagt frá ein-
hverjum fréttamanni sem hættir.
Aldrei er auglýst eftir nýjum frétta-
mönnum. Um daginn hætti hins veg-
ar ein þula og þá var auglýst eftir
þulu. Svo kemur sjálfur útvarps-
stjórinn og les fréttir, mér til ar-
mæðu. Gæti hann ekki allt eins
brugðið sér í gervi þulu, fyrst hann
getur verið fréttaþulur?
Svo langar mig líka til að taka
undir með þeim sem hafa verið að
gagnrýna dagskrá sjónvarpsins.
Mér finnst hún alveg með afbrigðum
léleg og ég tala nú ekki um yfir sum-
artímann. Ef ekki væri þátturinn Út
og suður þá væri ekki hægt að
kveikja á sjónvarpinu. Þessir nýju
menningarþættir eru ekki fyrir
venjulegt fólk, þetta er bara fyrir
einhverja menningarfræðinga og
hinn almenni sjónvarpsáhorfandi
skilur þetta ekki. Það væri alveg
eins hægt að hafa þessa þætti í út-
varpi.
Þóra Þorsteinsdóttir.
Óréttlæti
NÚ ER von á þrjátíu flóttamönnum
hingað til lands í næstu viku. Og það
eru til peningar og húsnæði fyrir
þetta fólk.
En þegar fólkið okkar hér heima
skortir bæði peninga og húsnæði þá
eru ekki til peningar. Hvernig stend-
ur á því?
Bæði ýmsir forsvarsmenn og al-
þingismenn koma fram í sjónvarpi
og viðtölum þegar flóttafólk kemur.
En enginn hefur áhuga á að koma
fram í sjónvarpi til að tala um fá-
tæka Íslendinga. Hvernig stendur á
því?
Elísabet Aradóttir.
Frábær mynd
MIG langar til að taka undir með
fólki sem hefur skrifað um myndina
Veðramót því hún er alveg þrælgóð í
alla staði og mæli með að fólk fari að
sjá þessa frábæru mynd!
Ólafur!
Gosi er enn týndur.
GOSI tapaðist frá
Hótel Kattholti
25. september sl.
Hann er gul-
bröndóttur og
hvítur högni,
eyrnamerktur
00G99. Upplýs-
ingar í síma 567-
0723, Pétur, og Kattholt, s. 899-4038,
Sigga.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
Konan lætur ekki ys og þys borgarlífsins trufla sig við skriftirnar og horfir
angurvær og hugsi út um gluggann á fólkið þjóta framhjá í rigningunni
meðan hún nýtur ylsins inni fyrir.
Morgunblaðið/Golli
Kyrrð á kaffihúsi
Fyrirtækið, sem er áratugagamalt fjölskyldufyrirtæki,
samanstendur af stóru bakaríi, fallegri bakarísbúð og
söluturni, í eigin húsnæði.Við bakaríið eru einnig tvær
mjög góðar íbúðir.Tekjur eru stöðugar og framlegðar-
aukning verið umtalsverð sl. ár. Ýmiskonar eignaskipti
athugandi. Áhugasamir vinsamlega sendi nafn og
síma til casafirma@visir.is.
Rótgróið bakarí og söluturn í Hveragerði
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn