Morgunblaðið - 14.10.2007, Side 1
STOFNAÐ 1913 280. TBL. 95. ÁRG. SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is
SUNNUDAGUR
GLUGGI AÐ
UMHEIMI
BÓK DAVÍÐS LOGA
UM ÁTAKASVÆÐI
BÆKUR >> 34
ÓTRÚLEG
UPPLIFUN
HAMRAHLÍÐARKÓR-
INN VAR Í KÍNA
FERÐALÖG >> 40
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
og Orra Pál Ormarsson
„EF enginn vekur okkur munum við fljóta sof-
andi að feigðarósi. Eins og staðan er kemur
nær ekkert að ofan. Það vantar valdboð um það
að fólk verði að taka sér tak. Ég er ekki bara að
tala um hvatningu frá stjórnvöldum heldur líka
að stjórnvöld verði öðrum fyrirmynd. Það
vantar fræðslu inn í skólana, ríkið getur líka
sýnt gott fordæmi með því að kaupa spar-
neytna bíla fyrir stofnanir sínar og niðurgreiða
þá fyrir almenning. Við getum montað okkur af
vistvænu orkunni en engu öðru. Er ekki tími til
kominn að leggja línurnar?“ segir Heiða Björk
Sturludóttir, umhverfisfræðingur og kennari
við Fjölbrautaskólann við Ármúla, þegar hún
er spurð um viðbúnað Íslendinga vegna lofts-
lagsbreytinga af mannavöldum en flestum vís-
indamönnum ber nú saman um að þar sé raun-
veruleg vá fyrir dyrum.
Morgunblaðið hleypir í dag af stokkunum
greinaflokki um þessi mál þar sem leitað verð-
ur svara við því hvað venjulegur Íslendingur
getur gert til að sporna við vandanum.
Vistvernd í verki er alþjóðlegt umhverfis-
verkefni fyrir heimili en Heiða Björk hefur
verið meðal leiðbeinenda á námskeiðum verk-
efnisins. Markmið Vistverndar í verki er að
styðja og hvetja fólk til að taka upp vistvænni
lífsstíl skref fyrir skref á þeim hraða sem hver
velur sér. Meira en 700 heimili hafa nú þegar
tekið þátt í verkefninu á Íslandi.
Verkefnið er sannkallað grasrótarstarf og
segir Heiða Björk það lýsa viðhorfinu hér á
landi vel. Þetta hefur hún reynt á eigin skinni
en hún sótti um þróunarstyrk til menntamála-
ráðuneytisins fyrir um þremur árum til að
koma á umhverfisstefnu í skólanum en fékk
höfnun. Hún gafst þó ekki upp og nú hefur
skólinn hlotið umhverfisviðurkenninguna
Grænfánann. Heiða Björk kennir nú val-
áfanga, umhverfisfræði 103, í FÁ annað árið í
röð. „Það var alfarið mín hugmynd að bjóða
upp á þennan áfanga. Í fyrra voru nemend-
urnir tíu. Nú eru þeir 28.“ | 10
Fljótum sofandi að feigðarósi
Stjórnvöld þykja sýna loftslagsbreytingum af mannavöldum lítinn áhuga Er tíminn að hlaupa
frá okkur? Frumkvæðið hjá einstaklingum Kennari í FÁ kom sjálfur á áfanga í umhverfisfræði
Í HNOTSKURN
»Nútímalifnaðarhættir eru óhemjuorkufrekir og sú orka er að mestu
fengin með bruna á jarðefnaeldsneyti.
» Íslendingar þykja standa öðrum þjóð-um í Norður-Evrópu langt að baki
hvað varðar upplýsta umræðu um málið.
Út í loftið
VEFVARP mbl.is
Bandaríski rithöfundurinn Mark
Winegardner hefur skrifað tvær
bækur í framhaldi af Guðföður
Mario Puzo, sem Marlon Brando
túlkaði í samnefndri kvikmynd.
Framhaldslíf
Guðföðurins
Rétt eins og búddatrúarmenn hafa
hætt lífi sínu til að taka afstöðu með
lýð́ræði í Búrma hafa margir
kristnir menn látið að sér kveða í
öðrum löndum.
Þegar trúin
verður afl til góðs
VIKUSPEGILL
Alltaf fjör á fjölunum -
allar sýningar á einum stað! >> 76
Leikhúsin í landinu
irtæki í Kauphöllinni. Ég hef heyrt
eftir á að þetta kunni að hafa tengst
fundi sem FL Group var með í Lond-
on. Mér var ekki kunnugt um það á
neinu stigi að hraðinn hefði miðast við
það. Kannski væri rétt að spyrja
Bjarna Ármannsson að því. Það kom
aldrei til umræðu.“
Aðspurður hvort hugmyndir hafi
komið fram um kauprétt til stjórn-
armanna segir Vilhjálmur: „Björn
Ingi ræddi það við mig hvort stjórn-
armenn í Orkuveitunni og í REI, utan
Bjarna Ármannssonar, ættu að fá að
kaupa hlutafé. Hann setti ekki fram
neinar tillögur um það. En mér
fannst það að sjálfsögðu ekki koma til
greina.“
Hvað varðar fund sem forysta
flokksins hélt með borgarstjórn-
arflokknum án Vilhjálms segir hann:
„Það kom mér mjög á óvart. Og ég tel
að það sé umhugsunarefni hvort hún
hefði átt að gera það með þessum
hætti. Þetta gaf tilefni til margskonar
vangaveltna.“
VILHJÁLMUR Þ. Vilhjálmsson segir
að orðalag hafi verið misvísandi í til-
lögu á eigendafundi, þar sem hafi stað-
ið að Orkuveita Reykjavíkur sam-
þykkti fyrirliggjandi samning við
Reykjavík Energy Invest hf. „um að-
gang að tækniþjónustu o.fl.“ og að for-
stjóra yrði veitt heimild til undirrit-
unar hans.
„Samningurinn sem lá þar til
grundvallar var ekki ræddur á fund-
inum og er mun víðtækari en orðalagið
gefur til kynna. Ég held að ekki hafi
margir stjórnarmenn gert sér grein
fyrir að þetta væri einkaréttarsamn-
ingur til tuttugu ára sem útilokaði í
raun og veru Orkuveituna frá því að
veita öðrum fyrirtækjum sérfræðiað-
stoð á erlendri grundu án þess að fara
í gegnum REI. Það er ekki í tillögunni
að um sé að ræða einkaréttarsamn-
ing.“
Var bara talað um aðgang
að tækniþjónustu
– Hefði það breytt einhverju?
„Ég hugsa að menn hefðu velt þessu
vandlega fyrir sér. Fullyrt er að þetta
sé ekki einsdæmi hér á landi. En það
má deila um hvort rétt sé að gera
þetta svona. Og það gafst engum tæki-
færi til að taka afstöðu til þess. Það
var bara talað um aðgang að tækni-
þjónustu í þeim tillögum sem lágu fyr-
ir fundinum, en ekki einkarétt á að-
gangi að „Svæðinu“, sem er heimurinn
utan Íslands! Orkuveitan er bundin af
þessu í tuttugu ár og það má velta því
fyrir sér hvort það sé eðlilegt.“
Vilhjálmur segir um hraða atburða-
rásarinnar að það hefði örugglega ver-
ið hægt að standa að málum með betri
og skilvirkari hætti. „Málið var unnið í
samstarfi REI, Orkuveitunnar og
Geysis Green Energy. Ef til vill var
erfitt að vera með undirbúning máls-
ins á opinberum vettvangi. Það getur
verið viðkvæmt þegar í hlut á fyr-
Einkaréttarsamningur til 20 ára
ekki í tillögum á eigendafundi
Morgunblaðið/Golli
Borgarstjórinn Vilhjálmur segir mikla fjölmiðlaumræðu hafa gert borg-
arstjórnarflokknum erfiðara fyrir að útkljá sín mál.
Eftir Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Sameining og sundrung | 30