Morgunblaðið - 14.10.2007, Qupperneq 24
24 SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Sá nýi Mark Wine-
gardner þykir takast
vel upp við framhald
Guðföðursins.
Eftir Freystein Jóhannsson
freysteinn@mbl.is
S
umar sögupersónur lifa
höfund sinn þannig að
þær halda sínu löngu eft-
ir að sá sem bjó þær til er
kominn yfir móðuna
miklu. Aðrar eru færðar nýjum rit-
höfundum í fang til þess að eignast
framhaldslíf.
Höfundur James Bond, Ian Flem-
ing skrifaði 14 bækur um njósnar-
ann 007, fjórir aðrir bættu röskum
tuttugu við og nú bíður ný bók
fimmta höfundarins; Sebastian
Faulks, þess að koma út á næsta ári,
þegar Fleming hefði orðið 100 ára.
Alistar MacLean varð margfaldur
metsöluhöfundur 29 bóka og nafn
hans dugði vel einum átta bókum að
honum gengnum, sem dánarbúið
fékk Alastair MacNeill til að skrifa
upp úr hugmyndum og handrits-
brotum sem MacLean var sagður
hafa látið eftir sig.
Nú hefur bandaríski rithöfundur-
inn Mark Winegardner skrifað tvær
bækur í framhaldi af Guðföður Mar-
io Puzo. Winegardner er eins og aðr-
ir sporgöngumenn ráðinn til verks-
ins af útgáfufyrirtæki, sem græðir
áfram á tá og fingri á því að spenna
nýjan og nýjan klár fyrir vagninn.
Það er þó langt í frá eitthvert létti-
verk að feta í fótspor meistaranna,
því útkoman verður að vera slík að
hæfi bókum þeirra og sögupersónum
og hún verður að falla lesendum í
geð. Í tilfelli Guðföðurins er það ekki
aðeins bók Mario Puzo sem eftir-
maðurinn þurfti að taka með í reikn-
inginn, heldur og samnefnd kvik-
mynd Francis Ford Coppola, sem
var byggð á handriti Puzo og Cop-
pola, og tvær framhaldskvikmyndir;
Guðfaðirinn II og III, sem Coppola
gerði eftir handritum þeirra Puzo.
„Ferill“ handan grafar
Jonathan Karp, sem var ritstjóri
Mario Puzo hjá útgefanda hans, hef-
ur sagt, að hann hafi ítrekað reynt að
fá Puzo til þess að skrifa framhalds-
bók Guðföðurins, en rithöfundurinn
alltaf hafnað hugmyndinni, þótt
hann legði sitt til handritanna að
kvikmyndum Coppola. En einn góð-
an veðurdag lagði hann blessun sína
yfir bókarframhald og sagði fjöl-
skyldu sína hafa frjálsar hendur að
sér látnum. Karp segir þetta hafa
verið í fyrsta skipti sem rithöfundur
ræddi hreinskilnislega við hann um
„feril sinn“ handan grafar.
Þegar tilhlýðilega langt var liðið
frá brotthvarfi Puzo úr þessum
heimi og þau tvö handrit, sem hann
lét eftir sig, voru komin út á bók, létu
menn til skarar skríða og hófu leit-
ina að manni sem gæti haldið áfram
með sögu Corleoneættarinnar.
Framboðið var mikið, margir vildu
verða næsti Puzo, en fáir voru út-
valdir. Þegar hópurinn var kominn
niður í fjóra segir Karp að hver
þeirra sem er hefði getað hlotið
hnossið, en á endanum varð Mark
Winegardner fyrir valinu. Karp seg-
ir það hafa ráðið úrslitum að Wine-
gardner var á líku reki og Puzo, þeg-
ar Guðfaðirinn kom út og eins og
Puzo hafði Weingardner skrifað
tvær skáldsögur. Þær fjalla um
skipulagða glæpastarfsemi og fengu
góða dóma. Winegardner ákvað að
taka áskoruninni, sem var bundin til-
hlýðilegri virðingu fyrir Puzo og per-
sónum hans og kvikmyndum Ford
Coppola.
Fyrsta bókin; Guðfaðirinn snýr
aftur ( The Godfather Returns) kom
út 2004 og þótti Winegardner yfir-
leitt takast vel upp í fótsporum Puzo.
Þrátt fyrir að vera bundinn í báða
skó þótti Winegardner takast að
skapa sér svigrúm til að beita
ímyndunaraflinu og kímninni til að
prjóna söguefnið á sinn hátt og tæk-
ist það svo að ekki væri bara um
framhald að ræða, heldur spennandi
og skemmtilega bók. Winegardner
sagði Guðföðurinn vera meistara-
verk en Puzo hefði að ósekju mátt
hafa meiri húmor í sögunni, því maf-
íugæjarnir væru þrátt fyrir allt ekki
sneyddir öllum húmor. Hins vegar
sló Winegardner ekkert af grimmd-
inni í glæponunum og þótti í þeim
efnum sem öðrum halda svo vel á
spöðunum að betur yrði varla gert.
Tilboð sem þú getur ekki hafnað
og Framhald sem lesandinn getur
ekki hafnað sögðu gagnrýnendur og
vísuðu þar til frægrar setningar
Guðföðurins, Vito Corleone: „Ég
ætla að gera honum tilboð, sem hann
getur ekki hafnað.“ Þessi setning
lenti í öðru sæti, þegar Bandaríska
kvikmyndastofnunin valdi fleygustu
setningar kvikmyndasögunnar, en í
fyrsta sæti urðu orðin, sem Rhett
Butler sagði við Scarlett O’ Hara í Á
hverfanda hveli: Mér er einfaldlega
alveg sama, væna mín.
Heitt járnið hamrað
Eins og bókarheitið ber með sér
tók Winegardner upp þráðinn, þar
sem Puzo hafði sleppt honum í Guð-
föðurnum, og skrifaði bókina þar í
frá og fram í fyrri framhaldsmynd
Coppola. Tíminn eru árin 1955-62
Tími Guðföðurins voru árin 1945-55,
og bók Winegardner gerist á árun-
um 1955-62.
Gott brautargengi bókarinnar
sýndi að menn höfðu veðjað á réttan
hest og sjálfsagt að hamra járnið
meðan það væri heitt. Önnur bók
Weingardner; Hefnd Guðföðurins
(The Godfather’s Revenge); kom út
2006. Þar tók Winegardner upp
þráðinn eftir Guðföðurinn II og sag-
an gerist 1963-64. Bókin hlaut ekki
síðri móttökur en sú fyrri; hún stað-
festi að Winegardner kunni að slá
rétta tóninn og hafði sem fyrr kjark
til þess að fara sínar eigin leiðir án
þess að segja upp trúnaði við þá
Puzo og Coppola.
Guðfaðirinn stendur í ströngu
Þegar fyrri bók Winegardners
hefst hefur Michael Corleone fest
sig í sessi sem höfuð fjölskyldunnar;
nýr Guðfaðir. Meginsvið bókarinnar
er Las Vegas og barátta Michael til
þess að þvo blóðið af fjölskyldunafn-
inu. Weingardner er með kvikmynd-
ina Guðföðurinn II hangandi yfir
höfði sér, og verður að skrifa þannig,
að sagan raski engu í kvikmyndinni.
Þetta tekst honum svo, að bókin fell-
ur að þungamiðju kvikmyndarinnar
eins og flís við rass. En hann tekur
sér allt það frelsi sem hann má og er
fundvís á göt til þess að stoppa svo
lesandinn fær fyllri mynd af per-
sónum sögunnar og forsendur til að
skilja betur framvindu hennar.
Hefnd Guðföðurins gerist eftir
Guðföðurinn II og talsvert löngu fyr-
ir Guðföðurinn III, sem gerist 1979-
80. Þarna er greinilega gat sem get-
ur dugað til bókar eða bóka, ef áhugi
á slíku framhaldi er fyrir hendi.
Sem fyrr sækir margt að Guðföð-
urnum. Dómsmálaráðherrann hefst
handa gegn mafíunni og setur Mich-
ael Corleone undir þann hatt, því
þótt hann hafi hamast við að hreinsa
fjölskyldunafnið, var hann með í
þeim mafíuráðum sem tryggðu bróð-
ur ráðherrans forsetaembættið.
Tíminn og fjarlægðin hafa unnið til
þess að Winegardner þarf ekki að
tipla í kringum menn eða málefni,
heldur getur næsta opinskátt fjallað
um mafíuna, Frank Sinatra og Ken-
nedybræðurna, því þótt nöfnum sé
breytt fer ekkert á milli mála hverjir
eru þar á ferð. En sem fyrr er það
nafnið Corleone sem hæst ber.
Einkalífið er Guðföðurnum ekki
síður þungt í skauti, afturganga
Fredo bróður hans, sem hann lét
taka af lífi fyrir að gaspra um mál
fjölskyldunnar við utanaðkomandi,
sækir að honum og Tom Hagen, að-
alráðgjafi hans og „bróðir“ lendir í
havaríi út af kvennamálum sínum.
En þótt margt sé Guðföðurnum
mótdrægt er hefnd hans blóðug og
afdráttarlaus sem fyrr.
Steve Warmbir, gagnrýnandi Chi-
cago Sun-Times, segir að Winegar-
dner standi í sporum sérfræðingsins
sem lagar málverk gamals meistara.
Menn telji sig þekkja málverkið út
og inn og við það verði engu bætt, en
Weingardner sé svo góður penni að
honum takist að varpa á það nýju
ljósi og auka á dýpt þess.
Grein sem þú
getur ekki hafnað
BÆKUR»
Mafía? Guðfaðirinn og aðalráðgjafi hans og „bróðir“; Michael Corleone (Al Pacino) og Tom Hagen (Robert Duvall) við yfirheyrslur fyrir þingnefnd.
Í HNOTSKURN
»Mark Winegardner fædd-ist 24. nóvember 1961 í
Bryan, Ohio, þar sem hann
ólst upp.
»Hann útskrifaðist fráMiami-háskólanum og
nam skapandi skrif við George
Mason háskóla.
»Winegardner var 26 áraþegar fyrsta bókin hans
kom út.
»Hann hefur kennt viðýmsa háskóla, síðast pró-
fessor í skapandi skrifum við
háskólann í Tallahassee í
Florida.
Bækur | Þótt Mario Puzo, skapari Guðföðurins, sé látinn heldur rithöfundurinn Mark Winegardner merkjum beggja
á lofti. Trúarbrögð | Búrmískir munkar bjóða öryggissveitum einnar mestu ógnarstjórnar heims byrginn. Sam-
félagið | Á Bretlandi er deilt um réttmæti þeirrar ákvörðunar verslunarkeðju að veita íslömsku starfsfólki undanþágu frá að afgreiða áfengi.
VIKUSPEGILL»
Kvikmyndajöfurinn
Francis Ford Coppola
hefur gert þrjár myndir
um Guðföðurinn. Guðfaðirinn Al Pacino í hlutverki Michael Corleone, sem
nýju bækurnar fjalla um.
Tvær framhaldsbækur um Guðföðurinn eru komnar út.
Höfundurinn varð að halda í heiðri bók Puzo og kvikmyndir Coppola
Don Vito Marlon Brando
lék Guðföðurinn í fyrstu
mynd og hlaut Óskarinn
fyrir sem hann reyndar
tók ekki við.
Höfundurinn Mario
Puzo höfundur Guðföð-
ursins vildi ekki skrifa
framhaldsbók um Cor-
leoneættina.