Morgunblaðið - 14.10.2007, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2007 25
Auður Jónsdóttir og Þórarinn Leifsson
audur@jonsdottir.com og totil@totil.com
Þessi kona er stórkostleg, skríkti Þórarinn yfirgrein um Doris Lessing á news.bbc.co.uk/2/hi/entertainment. Hún brosir krúttleguömmubrosi en státar af svipaðri orðfimi og
Guðbergur Bergsson á góðum degi.
Með hausinn ofan í tölvunni tautaði Auður að orðfimin
ætti sinn þátt í að hún hlyti bókmenntaverðlaun Nóbels.
Doris hefur sína skýringu á því, sagði Þórarinn. Eftir
að tilkynnt hafði verið að hún hlyti verðlaunin sagði hún
að ekki væri hægt að veita þau einhverjum sem væri
dauður svo líklega hefði nefndarmönnum þótt ráðlegt að
veita henni þau áður en hún hrykki upp af. Hins vegar er
hún ánægð með heiðurinn, ekki síst í ljósi þess að fyrir
rúmum fjörutíu árum kom til hennar sérstakur sendi-
boði til að segja að nóbelsverðlaunanefndinni líkaði ekki
við hana svo hún kæmi aldrei til með að fá þau!
Auður flissaði: Til hvers að senda svoleiðis skilaboð?
Kannski flæktist það fyrir þeim að Doris er kona,
giskaði Þórarinn. Hún er aðeins ellefta konan
til að hljóta nóbelsverðlaunin í bókmenntum
síðan þau voru stofnuð árið 1901. En hún tek-
ur þeim með ró og segir bara að þau verði
efni í mikið af ræðum og veislum. Svo var líka
gaman að kynnast orðkynngi Dorisar í suð-
ur-afrísku blöðunum. Á fréttasíðu elsta dag-
blaðs Jóhannesarborgar www.thestar.co.za
er að finna dásamlega umfjöllun um hana með fyrirsögn-
inni: ,,Ég hef unnið öll verðlaun í Evrópu“ – og í viðtalinu
botnar hún setninguna í þessum dúr: „Allt heila draslið.“
Veistu hvort Al Gore sagði eitthvað kjarngott þegar
hann hlaut friðarverðlaunin? spurði Auður. Hann er
hvorki Doris né Guðbergur, sagði Þórarinn. Á
news.bbc.co.uk er haft eftir Gore að verðlaunin séu mun
merkilegri af því hann deildi þeim með loftslagsnefnd
Sameinuðu þjóðanna.
Auður yppti öxlum. Svona hljómar orðvar maður í
góðu skapi, sagði hún. Þórarinn samsinnti því og bætti
hugsi við að Katalónar hefðu gott af því að eignast glað-
beittan nóbelsverðlaunahafa á næstu árum. Samkvæmt
El Periodico.com hafi ekki blásið byrlega fyrir þeim sem
gestaþjóð á bókamessunni í Frankfurt til að byrja með.
Þar var vitnað í virt breskt fagblað thebookseller.com
sem sló því upp að fámennt hefði verið á fyrsta frétta-
mannafundi gestaþjóðarinnar og hringborðsumræð-
urnar aðeins verið sóttar af örfáum hræðum og engum
útlendingum. Að auki hefði urgur verið á meðal spænsku-
mælandi rithöfunda í Katalóníu þar sem í fyrstu átti aðeins
að bjóða þeim sem skrifa á katalónsku. Það hafði orðið til
þess að frægir spænskumælandi rithöfundar
á borð við Carlos Ruiz-Zafón, sem skrifaði
metsölubókina Skuggi vindanna, hótuðu að
sniðganga messuna. Skipuleggjendur gesta-
þjóðarinnar verja sig með því að þeir hafi ætl-
að að púrra upp katalónskar bókmenntir til
mótvægis við þær spænsku sem sækja styrk í
hálfan milljarð sálna meðan þeir sem mæla á
katalónska tungu eru rétt rúmar átta miljónir. Þórarinn
þagnaði eitt augnablik og dæsti síðan: Þetta er nú meiri
menningarslagurinn alltaf hreint!
Auður leit loksins upp út tölvunni. Sem Íslendingur skil
ég þá vel. Hvernig eiga Spánverjar að skilja hvernig að það
er að vernda fámennt málsvæði?
Katalónía er ólíkt fjölmennara málsvæði en Ísland,
muldraði Þórarinn. En maur undir fílsfæti ef maður ber
katalónsku saman við spænsku, sagði Auður. Þess vegna
styð ég heilshugar að bæði Katalónía og Ísland fái að
kynna menningu sína sem gestaþjóðir á bókamessunni.
Æj, mig langar bara að taka lífinu með ró, sagði Þór-
arinn. Svona eins og Doris Lessing sem hélt að verið væri
að taka upp sápuóperu í götunni hennar þegar hún kom
heim úr búðinni og mætti þar fréttamannastóði sem til-
kynnti að hún hefði hlotið nóbelinn. Kannski er hann út af
fyrir sig sápuópera!
FÖST Í FRÉTTANETI»
Sápuópera í bókmenntum
Hún er aðeins ell-
efta konan til að
hljóta nóbels-
verðlaunin í bók-
menntum.
Höfundar eru heimavinnandi hjón í Barcelona.
Viðurkenning til
framúrskarandi
menningarstarfs
• Úthlutunarnefnd tilnefnir þrjú verkefni
úr hópi umsækjenda um Eyrarrósina 2008
• Eitt þeirra hlýtur viðurkenninguna, 1.500.000 kr.
og verðlaunagrip til eignar
• Viðurkenningin verður afhent í ársbyrjun
2008 á Bessastöðum
• Verkefnið sem hlýtur viðurkenninguna fær
sérstaka kynningu í tengslum við Listahátíð
í Reykjavík 2008
• Verndari Eyrarrósarinnar er Dorrit Moussaieff
forsetafrú
HÉR MEÐ ER AUGLÝST EFTIR UMSÓKNUM
UM EYRARRÓSINA 2008
Lýsing á verkefninu
Lögð skal fram greinargóð lýsing á verkefninu; umfangi þess,
sögu og markmiðum.
Tíma- og verkáætlun
Gerð skal grein fyrir stöðu og áætlaðri framvindu verkefnisins
og áformum á árinu 2008. Skilyrði er að verkefninu hafi nú
þegar verið hleypt af stokkunum.
Upplýsingar um aðstandendur
Lagðar skulu fram ítarlegar upplýsingar um helstu aðila sem
að verkefninu standa og grein gerð fyrir þeirra þætti í því.
Fjárhagsáætlun
Tilgreina skal tekjur og gjöld verkefnisins á þessu ári.
Uppgjör ársins 2006 fylgi umsókn.
• Ef umsókn fylgja ekki ofangreindar upplýsingar
verður hún ekki tekin til greina
• Umsækjendur geta verið m.a. stofnun, safn,
tímabundið verkefni eða menningarhátíð
• Umsóknarfrestur er til 19. nóvember 2007
og verður öllum umsóknum svarað
• Viðurkenningin verður veitt í janúar 2008
• Umsóknir skal senda til Listahátíðar í Reykjavík,
pósthólf 88, 121 Reykjavík, merktar Eyrarrósin
UMSÓKNUM SKAL FYLGJA:
Allar nánari upplýsingar veitir
framkvæmdastjóri Listahátíðar í Reykjavík
í síma 561 2444, hrefna@artfest.is
www.listahatid.is
Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Flugfélag Íslands
standa saman að Eyrarrósinni, viðurkenningu sem veitt
er árlega einu afburða menningarverkefni á starfssvæði
Byggðastofnunar á landsbyggðinni. Eyrarrósin hefur
verið afhent þrisvar sinnum og hafa eftirtaldir hlotið
viðurkenninguna: Þjóðlagahátíðin á Siglufirði árið 2005,
LungA – Listahátíð ungs fólks á Austurlandi árið 2006 og
Strandagaldur árið 2007.
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Álfabakka 16, 109 Reykjavík sími 585-1300 www.heilsugaeslan.is
Bólusetning gegn inflúensu
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins vill vekja athygli almennings á því að skipulögð
bólusetning gegn inflúensu hefst á öllum heilsugæslustöðvunum mánudaginn 15. október 2007.
Hverjum er einkum ráðlagt að láta bólusetja sig?
• Öllum sem orðnir eru 60 ára.
• Öllum, bæði börnum og fullorðnum, sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og
lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
• Starfsfólki heilbrigðisþjónustu og öðrum sem daglega annast fólk með aukna áhættu.
Þeir sem tilheyra ofangreindum hópum fá bóluefnið sér að kostnaðarlausu en greiða komu-
gjald samkvæmt reglugerð nr. 1090 2006. Í síðasttalda hópnum á það einungis við um
heilbrigðisstarfsmenn. Fyrirkomulag bólusetningar getur verið mismunandi milli heilsu-
gæslustöðva. Vinsamlegast leitið upplýsinga á vef Heilsugæslunnar www.heilsugaeslan.is eða
hafið samband við hlutaðeigandi heilsugæslustöð.
Heilsugæslan Árbæ, Reykjavík s: 585 7800
Heilsugæslan Efra-Breiðholti, Reykjavík s: 513 1550
Heilsugæslan Efstaleiti, Reykjavík s: 585 1800
Heilsugæslan Fjörður, Hafnarfirði s: 540 9400
Heilsugæslan Garðabæ s: 520 1800
Heilsugæslan Glæsibæ, Reykjavík s: 599 1300
Heilsugæslan Grafarvogi, Reykjavík s: 585 7600
Heilsugæslan Hamraborg, Kópavogi s: 594 0500
Heilsugæslan Hlíðum, Reykjavík s: 585 2300
Heilsugæslan Hvammi, Kópavogi s: 594 0400
Heilsugæslan Miðbæ, Reykjavík s: 585 2600
Heilsugæslan Mjódd, Reykjavík s: 513 1500
Heilsugæsla Mosfellsumdæmis s: 510 0700
Heilsugæslan Seltjarnarnesi s: 561 2070
Heilsugæslan Sólvangi, Hafnarfirði s: 550 2600
Heilsugæslan Lágmúla 4, Reykjavík s: 595 1300
Heilsugæslan Salahverfi, Kópavogi s: 590 3900
Búast má við að bólusetning geti veitt a.m.k. 70% vörn gegn sjúkdómnum auk þess sem hann
verður vægari hjá þeim í hópi bólusettra sem veikjast. Þeim sem leita vilja ráðgjafar er bent á
sína heilsugæslustöð.
Upplýsingar er að finna á vef Heilsugæslunnar, www.heilsugaeslan.is
Fræðsluefni um inflúensu má finna á vef Landlæknisembættisins, www.landlaeknir.is
Reykjavík 14. október 2007.