Morgunblaðið - 14.10.2007, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2007 27
Reykjavíkurborg auglýsir eftir tilboðum í byggingarrétt
á reit sem afmarkast af Sléttuvegi, Háaleitisbraut,
Fossvogsvegi og Kringlumýrarbraut. Um er að ræða
þétta byggð sérbýlis- og fjölbýlishúsa í grónu umhverfi.
Leitast er við að fella nýju byggðina sem best að þeirri byggð
sem fyrir er í Fossvogi, þar sem eru einbýlishús, parhús og
fjölbýlishús neðst í dalnum en allt að 6 hæða fjölbýlishús ofan
Sléttuvegar. Neðst á nýja svæðinu er gert ráð fyrir tvíbýlishúsum,
raðhúsum og sambýli fyrir fatlaða. Á svæðinu er fyrirhugað
að Hrafnista reisi íbúðir fyrir aldraða, hjúkrunarheimili og
þjónustumiðstöð. Einnig er fyrirhugað að Samtök aldraðra byggi
íbúðir fyrir félagsmenn líkt og eru á næstu lóð að Sléttuvegi
19-23. Þá eru nemendagarðar fyrirhugaðir á svæðinu sem og
almennar íbúðir í fjölbýli.
SKILAFRESTUR TIL 19. OKTÓBER
Tilboðum í byggingarrétt skal skila til Framkvæmdasviðs Reykjavíkurborgar,
Skúlatúni 2, fyrir kl. 16:15 föstudaginn 19. október 2007. Tilboð skulu
gerð á tilboðseyðublöð sem Framkvæmdasvið lætur í té. Greiða skal
tilboðstryggingu, 300.000 kr. þegar tilboði er skilað.
Lóðir í grónu umhverfi
Fossvogsdals
ÚTBOÐSGÖGN OG SKILMÁLAR
Öll gögn varðandi lóðirnar og útboð byggingarréttarins eru aðgengileg
á heimasíðu Framkvæmdasviðs, www.reykjavik.is/fs. Enn fremur
fást tilboðseyðublöð og skipulagsuppdráttur afhent í þjónustuveri
Framkvæmdasviðs, Skúlatúni 2.
SLÉTTUVEGUR
FJÖLBÝLISHÚS: EIN LÓÐ, 28 ÍBÚÐIR.
RAÐHÚS (KEÐJUHÚS): 13 LÓÐIR, 13 ÍBÚÐIR.
SAMTENGD TVÍBÝLISHÚS: 8 LÓÐIR, 16 ÍBÚÐIR.
ÚTBOÐIÐ TEKUR TIL EFTIRTALINNA LÓÐA:
»Ég held að það gangi enginn þess dulinn að viðerum að taka við völdum við mjög sérstakar
aðstæður.
Dagur B. Eggertsson, verðandi borgarstjóri, eftir að nýr meiri-
hluti var myndaður í kjölfar átaka um Orkuveitu Reykjavíkur og
hlut hennar í útrásarfyrirtækinu Reykjavík Energy Invest.
»Ég tek þetta mjög nærri mér vegna þess aðsamstarf okkar Vilhjálms hefur verið mjög
gott.
Björn Ingi Hrafnsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokks, um
samstarfið við Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson, sem gegnir embætti
borgarstjóra fram á þriðjudag, eftir að nýr meirihluti var mynd-
aður í borginni.
»Við teljum að Björn Ingi Hrafnsson hafi komiðfram af miklum óheilindum.
Gísli Marteinn Baldursson, formaður borgarstjórnarflokks Sjálf-
stæðisflokks, eftir að borgarstjórn var bylt.
» Þetta hefur kannski bara ekki komist inn í um-ræðuna í öllu því sem á undan er gengið.
Hjörleifur Kvaran, forstjóri Orkuveitunnar, um það hvers vegna
fyrst kom upp á yfirborðið á föstudag að Orkuveitan hefði gert
þjónustusamning til 20 ára við Reykjavík Energy Invest og Geysi
Green Energy.
» Þetta er aðeins upphafið.
Al Gore, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, fékk frið-
arverðlaun Nóbels ásamt vísindanefnd Sameinuðu þjóðanna um
loftslagsbreytingar fyrir þátt sinn í baráttunni fyrir aðgerðum til
að stemma stigu við loftslagsbreytingum af manna völdum.
» Það er alls ekki ólíklegt að íslensk börn, eðaönnur börn sem dvelja hér í lengri eða
skemmri tíma, sé að finna í gagnagrunni Interpol
sem samanstendur af um 700 þúsund myndum af
um 20 þúsund börnum sem sýna þau á kynferð-
islegan eða klámfengin hátt.
Petrína Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla, sem stóð
fyrir ráðstefnu þar sem meðal annars var fjallað um sölu á börn-
um til vinnu og kynlífsþrælkunar.
Ummæli vikunnar
Netspaug Á netinu gekk þessi samsetta mynd þar sem snúið er út úr auglýsingu Símans til að lýsa atburðarásinni
þegar borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks biðu eftir Birni Inga Hrafnssyni í Höfða.
Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn