Morgunblaðið - 14.10.2007, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2007 33
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
-
8
1
4
6
Fyrsti bíllinn í Evrópu með sjö ára ábyrgð
2.090.000 kr.
KIA cee’d Crdi dísil 115 hestöfl
KIA cee’d er fyrsti bíllinn í Evrópu sem er boðinn
með sjö ára ábyrgð. Þessi staðreynd undirstrikar
hvers vegna KIA er sá bílaframleiðandi sem er í
hvað mestum vexti í heiminum í dag. Glæsileg
hönnun, gæði og hagkvæmni.
Komdu og prófaðu einn athyglisverðasta
fólksbílinn á markaðnum í dag.
KIA umboðið á Ís landi er í e igu HEKLU.
Ríkulegur staðalbúnaður:
• álfelgur • loftkæling
• USB-tengi fyrir iPod • 6 diska geislaspilari
• aðgerðastýri • rafræn stöðugleikastýring
• sex öryggisloftpúðar • upplýsingatölva
5 STJÖRNU BÍLL
Á FRÁBÆRU VERÐI
Eini bíllinn í Evrópu sem hlotið hefur 5 stjörnur
í Euro NCAP og er með sjö ára ábyrgð
KIA • Laugavegi 172 • Reykjavík • s ími 590 5700 • www.kia. is
Hættumat fyrir
Ísafjörð
Hættumatsnefnd Ísafjarðarbæjar
Í samræmi við ákvæði laga nr. 49/1997 og reglugerðar nr. 505/2000 hefur
verið unnin tillaga að hættumati vegna ofanflóða fyrir Seljalandshverfi,
Tunguskeið, Tungudal, Dagverðardal og Innri-Kirkjubólshlíð. Tillagan liggur
nú frammi til kynningar á bæjarskrifstofunni á Ísafirði. Athugasemdum skal
skilað til bæjarskrifstofu Ísafjarðarbæjar fyrir 15. nóvember 2007.
þeir starfsmenn Orkuveitunnar
sem tengjast útrásinni fengju
kauprétt. Síðan var það stjórnar
REI að vinna úr því. Ég sá ekki
neina lista þar að lútandi og var
ekki með puttana í því hvaða gengi
ætti að vera hjá þessum aðilum.
En það kom mér sérstaklega á
óvart hvað forstjóri REI var með
háa tölu, 30 milljónir. Í ljósi um-
ræðu og þeirrar gagnrýni sem
þetta mál fékk lagði ég til við
Bjarna Ármannsson stjórn-
arformann REI að hætt yrði við
slíka kauprétti. Nú eru bara tveir
aðilar með kauprétt fyrir utan
annað starfsfólk, Bjarni Ármanns-
son og Jón Diðrik Jónsson, en ég
vissi ekki af þeim síðarnefnda.“
– Af hverju?
„Mér var ekki sagt frá því. Ég
hefði getað sagt í upphafi að það
yrðu engir kaupréttir í þessu fyr-
irtæki. En mér fannst í ljósi þess
að við vildum halda í þennan
mannauð sem þarna er og hefur
lagt grunninn að útrásinni, þá
fengju þeir kauprétt eða heimildir
til að kaupa hlutabréf. En þeir
mega ekki selja þennan rétt innan
tveggja ára og ef þeir skila þessu
innan þess tíma fá þeir bara end-
urgreitt á nafnvirði að viðbættum
2% vöxtum. Ég átta mig á því að
þessi mál eru viðkvæm, en þetta
hefur tíðkast í fjölmörgum fyr-
irtækjum, aðallega einkareknum.
En þetta eru ekki upphæðir sem
eru sambærilegar við það.“
– Komu fram hugmyndir um það
að stjórnarmenn fengju kauprétt?
„Björn Ingi ræddi það við mig
hvort stjórnarmenn í Orkuveitunni
og í REI, utan Bjarna Ármanns-
sonar, ættu að fá að kaupa hlutafé.
Hann setti ekki fram neinar til-
lögur um það. En mér fannst það
að sjálfsögðu ekki koma til
greina.“
– Þér var borið á brýn að hafa
fengið lista með nöfnum lyk-
ilstjórnenda REI og Orkuveit-
unnar sem átti að selja hlutafé og
neitað svo að kannast við hann.
„Það kemur fram í þessu,“ segir
Vilhjálmur og dregur fram minn-
isblað, „sem er frá Hjörleifi B.
Kvaran [forstjóra Orkuveitunnar]
að listanum var aðeins dreift til
Svandísar Svavarsdóttur og Sig-
rúnar Elsu Smáradóttur á stjórn-
arfundi, en ekki til annarra stjórn-
armanna enda málið ekki til
afgreiðslu á fundinum og ekki
skráð í fundargögn þessa stjórn-
arfundar.“
– Þú vissir um kauprétt Bjarna?
„Já, ég hafði ekki lagst gegn því
að Bjarni fengi kauprétt, en eftir á
að hyggja var það ekki gott inn-
legg í þetta mál í heild sinni.
Bjarni óskaði eftir því, hafði trú á
fyrirtækinu og taldi mikilvægt að
hann sem stjórnarformaður gæti
sýnt öðrum sem hann talaði við að
hann hefði trú á fyrirtækinu. Þetta
tíðkast víða erlendis, en er vissu-
lega viðkvæmt þegar um er að
ræða opinbera aðila í samstarfi við
einkaaðila.
En aðkoma minnihlutans er at-
hyglisverð, því af minnisblaði
Hjörleifs til borgarstjóra má ráða
að Svandís hafi fyrir sitt leyti sam-
þykkt að kaupréttur forstjóra yrði
30 milljónir eftir að hann hafði
lækkað úr 100 milljónum. Svandís
tekur því þátt í þessu sjálf og kem-
ur með tillögur um tölur og gengi
og hvaðeina.“
Og Vilhjálmur heldur áfram:
„Aðalatriði í árásum hennar á
mig var að ég hefði logið því að ég
hefði ekki séð listann, eins og haft
var eftir henni á Visir.is, en svo
dró hún það til baka í borg-
arstjórn. Enda er búið að staðfesta
af öllum sem þekkja til málsins að
ég fékk aldrei listann. Ég var ekk-
ert með puttana ofan í þessu sér-
staklega, treysti fulltrúum borg-
arinnar í stjórn REI til að afgreiða
málið á þessum nótum, en skipti
mér ekki af gengi eða nákvæmri
upphæð. En það var greinilegt að
minnihlutinn hafði áhuga á því,
einkum að finna út hvað kosn-
ingastjóri Björns Inga, sem var
kominn til starfa í REI, væri að fá
mikið og þau réðust hart að Birni
Inga út af því. En núna er ekkert
meira talað um það.“
Hvað verður um flugvöllinn?
– Hvernig verður framhaldið?
„Það var athyglisvert að fylgjast
með Svandísi í Kastljósi á fimmtu-
dag. Þar forðaðist hún að gefa
Birni Inga stuðningsyfirlýsingu,
sagðist hafa handsalað að meiri-
hlutinn myndi ganga vel, en án
þess að ræða málefnin. Og neitaði í
þrígang að ræða hvort hún myndi
samþykkja samruna REI og
Geysis Green Energy ef endurtaka
þyrfti atkvæðagreiðsluna.
Annað stórmál sem engu hefur
verið svarað um er flugvallarmálið.
Samfylkingin og Vinstri grænir
gerðu að sínu stærsta kosninga-
máli að losna við flugvöllinn úr
Vatnsmýrinni og það var stærsta
kosningamál Frjálslynda flokksins
að innanlandsflugið yrði áfram í
Vatnsmýrinni. Út á það fengu þeir
fylgi fyrst og fremst að mínu
mati.“
Þegar Vilhjálmur kveður segir
hann og lítur ögn alvarlegur á
blaðamann: „Þrátt fyrir allt undr-
ast ég hvað ég tek þessu með mik-
illi ró. Ég hef haldið innra jafnvægi
– og þó er þetta stór viðburður í
Íslandssögunni. Þessu hafa vissu-
lega fylgt erfiðar stundir, en ég á
gríðarlega marga vini og kunn-
ingja sem hafa stutt mig í mínu
pólitíska starfi og hingað komu 200
manns á heimili mitt á fimmtu-
dagskvöld til að hitta mig og fara
yfir málin.“
Það færist blik í augun.
„Það koma tímar og það koma
ráð. Og við sjáum hvað setur.“
pebl@mbl.is