Morgunblaðið - 14.10.2007, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2007 43
menningur uppi með sárt ennið. Um þetta eru
dæmi í íslenzkri viðskiptasögu. Það hefur áreið-
anlega enginn þeirra, sem að þessu máli koma
áhuga á því að eitthvað slíkt gerist.
Samningarnir
V
instri grænir öðrum fremur standa
nú frammi fyrir nokkrum áleitn-
um spurningum, sem þeir geta
ekki leyft sér að bíða í nokkra
mánuði með að svara. Fyrsta
spurningin snýr að kaupréttar-
samningum. Fráfarandi borgarstjóri hafði þegar
gert ráðstafanir til þess að jafna rétt fólks til
kaupa á hlutabréfum að vissu marki. En hvað
ætlar Svandís Svavarsdóttir að gera? Ætlar hún
að láta það, sem eftir stendur óhreyft? Var það
ekki hún, sem sagði, að forráðamenn Orkuveit-
unnar væru að umgangast eigur borgarinnar
eins og sjoppu, sem þeir ættu sjálfir?!
Svandís verður að standa við stóru orðin enda
ljóst af frásögn af fundi Vinstri grænna um þessi
mál, sem birtist í Morgunblaðinu í dag, laug-
ardag, að innan Vinstri grænna er megn
óánægja með þann farveg, sem málið allt er
komið í. Það er eins gott fyrir Svandísi að van-
meta ekki útgöngu Birnu Þórðardóttur og þá
merkingu, sem hún hefur.
Samningarnir, sem gerðir voru um kauprétti
sýna hvað það er erfitt að blanda saman opinber-
um rekstri og einkarekstri. Það er nánast
ómögulegt. Það sem kann að þykja eðlilegt í
einkarekstri er það alls ekki í opinberum rekstri.
Það er eins gott að stöðva þessa þróun í opinber-
um rekstri strax.
En það eru ekki bara samningarnir um kaup-
réttinn, sem Vinstri grænir þurfa að taka af-
stöðu til strax. Hvað segja þeir um þann ótrú-
lega „þjónustusamning“ til 20 ára, sem komið
hefur í ljós síðustu daga. Í Morgunblaðinu í dag,
laugardag, er birtur orðréttur kafli úr þeim
samningi, sem leggur svo ótrúlegar skuldbind-
ingar á Orkuveitu Reykjavíkur í þágu Reykjavík
Energy Invest, að með algerum ólíkindum er. Sú
spurning hlýtur að vakna við lestur þess texta,
hvort forráðamenn Orkuveitunnar hafi getað
skuldbundið opinbert fyrirtæki með þessum
hætti án þess að leggja þá samninginn fram í
borgarstjórn til umræðu þar og samþykktar.
Gæti stjórn Landsvirkjunar samþykkt sams
konar samning um afsal á réttindum og óefn-
islegum eignum Landsvirkjunar í hendur einka-
aðila án þess að tala við eigendur sína? Það færi
allt á annan endann á Alþingi ef slíkt yrði gert.
Og hér er enginn munur á. Það hlýtur að verða
eitt fyrsta verkefni Svandísar Svavarsdóttur að
kanna með hvaða hætti hægt er að rifta þessum
fáránlega samningi. Ætla Vinstri grænir að láta
þetta yfir sig ganga? Það getur einfaldlega ekki
verið.
Morgunblaðið birtir líka í dag, laugardag,
samrunasamning Reykjavík Energy Invest og
Geysis Green Energy. Í þeim samningi er verið
að ráðstafa Hitaveitu Suðurnesja, þessu mynd-
arlega orkufyrirtæki, sem Suðurnesjamenn hafa
byggt upp og er til algerrar fyrirmyndar og hef-
ur verið frá upphafi.
Reykjanesbær á að eignast meirihluta í smá-
sölufyrirtæki, sem á að bera þetta nafn en hverj-
ir eignast grunnstarfsemina og orkulindirnar?
Það þýðir ekki fyrir Svandísi Svavarsdóttur að
skoða það mál í marga mánuði. Ef einkaaðilar
eru að eignast grunnstarfsemi Hitaveitu Suð-
urnesja, sem 7. töluliður samrunasamningsins
bendir til en hér skal ekki fullyrt að sinni er það
sambærilegt við það ef einkaaðilar eignuðust
grunnstarfsemi Orkuveitu Reykjavíkur í Mos-
fellssveit og á Hellisheiði. Finnst borgarfulltrú-
um hins nýja meirihluta í borgarstjórn Reykja-
víkur það sjálfsagt? Finnst Svandísi
Svavarsdóttur, sem augljóslega er þungamiðjan í
hinum nýja meirihluta, það sjálfsagt?
Alvarleg mistök
Þ
ótt spjótum sé hér beint að Svan-
dísi Svavarsdóttur er auðvitað
ljóst, að fyrri meirihluti í borg-
arstjórn Reykjavíkur með Sjálf-
stæðisflokkinn í fararbroddi hefur
gert hér mjög alvarleg mistök. Það
er algerlega óskiljanlegt að þeir samningar, sem
hér hafa verið nefndir hafi verið gerðir í nafni
hins opinbera fyrirtækis, Orkuveitu Reykjavík-
ur. Það eina, sem hægt er að segja borgar-
fulltrúum Sjálfstæðisflokksins til varnar er að
þeir stungu við fótum á síðustu stundu. Kannski
of seint. Það á eftir að koma í ljós vegna þess að
það er óhugsandi annað en reynt verði að snúa
þessu máli öllu við. Og það væri auðvitað öllum
fyrir beztu.
Það getur ekki verið að þeir einkaaðilar, sem
við sögu koma hafi áhuga á að starfa í því klúð-
urslega umhverfi, sem slík blöndun opinbers
rekstrar og einkarekstrar kallar á. Þeir hljóta að
hugsa um það eitt þessa dagana, hvernig þeir
geti komizt frá málinu, þannig að þeir fái frið til
þess að vinna að sínum áhugamálum á þessu
sviði. Þetta er ekki umhverfi, sem hentar einka-
rekstri.
» Svandís Svavarsdóttir, oddviti Vinstri grænna í borg-arstjórn, sem margir innan þess flokks líta til sem framtíð-
arleiðtoga er yfirleitt mjög skýrmælt. En hún hefur átt ótrúlega
erfitt með að skýra afstöðu Vinstri grænna til málefna Orku-
veitunnar síðustu daga eftir að nýr meirihluti hafði verið mynd-
aður í borgarstjórn Reykjavíkur.
rbréf
Morgunblaðið/Golli
Nýr meirihluti Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, svarar spurningum á blaðamannafundi, sem haldinn var við Tjörnina eftir að nýr borgarstjórnarmeirihluti var myndaður.