Morgunblaðið - 14.10.2007, Qupperneq 52
52 SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
FANNBERG FASTEIGNASALA ehf.
ÞRÚÐVANGI 18 - 850 HELLU
Guðmundur Einarsson, lögg. fasteignasali
Jón Bergþór Hrafnsson, viðskiptafræðingur Sími 487 5028
SUMARHÚS
Í FLJÓTSHLÍÐ
Til sölu er 39 fm sumarhús, ásamt 5.000 fer-
metra eignarlóð í landi Múlakots í Fljótshlíð.
Húsið er staðsett undir hamrabelti með einkar
fallegu útsýni. Mikill gróður er á lóðinni og á
vesturmörkum hennar er lítil á með fallegum
fossi. Húsið er byggt árið 1989 úr timbri og
klætt að utan með liggjandi timburklæðningu,
við það er verönd úr timbri. Eignin telur and-
dyri, eldhús, stofu bðaherbergi og svefnher-
bergi. Óskað er eftir tilboðum í eignina.
Nánari upplýsingar og myndir á www.fannberg.is og á skrifstofu.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Hraunhamar fasteignasala var að
fá í einkasölu sérlega bjarta og
fallega 2ja herbergja, 77,2 fer-
metra íbúð á 7. hæð í nýlegu
lyftuhúsi á þessum frábæra stað
miðsvæðis í Kópavogi. Eignin
skiptist í forstofu, hol, stofu, eld-
hús, baðherbergi, gang, herbergi,
þvottahús og geymslu. Fallegar
innréttingar og gólfefni eru park-
et og flísar. Frábært útsýni. Snyrti-
leg sameign. Verð 21,9 millj.
Upplýsingar veitir Þorbjörn Helgi sölumaður, s. 896-0058.
NÚPALIND - KÓPAVOGI
Hraunhamar kynnir sérlega fall-
ega íbúð með sérinngangi á þess-
um vinsæla stað í Ásahverfinu í
Garðabæ. Þetta er frábær útsýn-
isíbúð í litlu fjölbýli. Íbúðin er
115,9 fermetrar með geymslu.
Skipting eignarinnar: Forstofa,
hol, 3 svefnherbergi, sjónvarps-
hol, eldhús með borðkróki, stofa,
borðstofa, baðherbergi, þvotta-
hús og tvær geymslur auk reglubundinnar sameignar. Gólfefni á íbúðinni eru
parket og flísar. Frábært útsýni.
Upplýsingar veitir Þorbjörn Helgi sölumaður,
s. 896-0058.
ASPARÁS - GARÐABÆ
2JA HERBERGJA
4RA HERBERGJA
SUÐURGATA 7, 101 REYKJAVÍK, • www.hibyli.is • hibyli@hibyli.is
Falleg og vel skipulögð, 4ra herbergja, 98,3 fm hæð í góðu steinhúsi vestast í Vest-
urbænum. Íbúðin er björt með mikilli lofthæð á 2. hæð í fjórbýlishúsi með frábæru
útsýni yfir Sundin og höfnina. Tvískiptar stórar stofur með fallegum rósettum og tvö
rúmgóð svefnherbergi. Fallegt eldhús og bað með tengi fyrir þvottavél. Á gangi í
miðrými er geymsla/fataherbergi en í kjallara er geymsla sem er ekki inni í fermetra-
tölu. Í kjallara er inngangur frá sameiginlegum garði og þvottahús. Allt var endurnýj-
að á baði og eldhúsi árið 2001 og allt rafmagn er nýtt í húsinu. Til stendur að endur-
nýja þak á kostnað núverandi eiganda. MJÖG GÓÐ STAÐSETNING, STUTT Í
VERSLUN, SKÓLA OG ÞJÓNUSTU. Verð 29,5 millj. LAUS STRAX.
Íbúðin er til sýnis í dag, sunnudag og taka Guðrún og Ólafur á móti gestum
milli kl. 16 og 17. Nánari upplýsingar í síma 6939656.
VESTURGATA - 4RA HERB.
OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL. 16-17
Ingibjörg Þórðardóttir, löggiltur fasteignasali. M
b
l 9
22
73
4
Finnbogi Hilmarsson,
Einar Guðmundsson og
Bogi Pétursson
löggiltir fasteignasalar
Opið mán.- fös. frá kl. 9-17
Sími
530 6500
www.heimili.is
Öldugata - tvær samþykktar íbúðir
Heimili fasteignasala kynnir í einkasölu tvær
íbúðir í fallegu fimm íbúða húsi við miðbæinn.
Þær geta selst saman eða í sitt hvoru lagi.
Annars vegar er 115 fm efri sérhæð og hins
vegar 45 fm risíbúð. Eignirnar eru mikið
endurbættar og fallega innréttaðar. Risíbúðin
er 2ja-3ja herbergja og hæðin 4ra herbergja.
Í sameign er sérgeymsla fyrir hvora íbúð og
sameiginlegt þvottahús. Hellulögð sameigin-
leg verönd og góður bakgarður. Fallegt hús á
vinsælum stað. Verð 55,0 millj.
Eignirnar verða til sýnis þriðjudaginn
16. október frá kl 17:30-18:30
MÉR rann kalt
vatn milli skinns og
hörunds þegar ég
heyrði formann
Starfsgreina-
sambandsins, Kristján
Gunnarsson, hrópa út
yfir fulltrúa á þingi
samtakanna 3. þ.m.,
að þingið ætti að
krefjast þess að rík-
isstjórnin undirbúi
samningsviðræður við
Evrópusambandið um
aðild Íslands að því.
Umræðulítið ályktaði þingið í anda
formannsins.
Rök hans voru einkum þau, að
þá væri hægurinn hjá að skipta um
gjaldmiðil, taka upp evru fyrir ís-
lenska krónu. Formaður SGS trúir
þeirri kenningu að ís-
lenskt launafólk eigi
lífsafkomu sína undir
því að Ísland sé aðili
að Evrópusambandinu,
yfirþjóðlegu sam-
bandsríki (bandaríki)
og hafna þar með að
fullu pólitísku sjálf-
stæði og fullveldi Ís-
lands. Honum nægir
ekki að Ísland sé
aukaðili að Evrópu-
sambandinu á grund-
velli samnings um
Evrópska efnahags-
svæðið, sem raunar hefur í sér
fólgna verulega skerðingu á full-
veldi. Nú skal bæta um betur og
afsala því sem eftir er af fullveld-
inu. Enda er það eins konar póli-
tískur rétttrúnaður að aukaaðildin
hafi staðið undir umtöluðu íslensku
efnahagsundri, sem hefði orðið
sýnu meira ef fullrar aðildar hefði
notið við.
En allt eru þetta missýnir og
Missýnir
og glæfrahugmyndir
Ingvar Gíslason skrifar um
Evrópumál og íslenskt efna-
hagslíf
»… betur treysti égdómgreind Davíðs
Oddssonar og Ingi-
mundar Friðrikssonar
en niðurstöðum reikni-
meistara sem dunda sér
við að reikna íslenskt
sjálfstæði og sjálfstæð-
istákn til andskotans …
Ingvar Gíslason
NÆTURLÍF mið-
bæjarins hefur verið
mikið til umfjöllunar á
undanförnum miss-
erum. Hafa ábend-
ingar íbúa um meiri
hávaða, ofbeldi og
ósæmilega hegðun
aukist. Borgarafundur
var haldinn um mál-
efni miðbæjarins og
kom sá vilji fram hjá
yfirvöldum að finna
úrlausnir á núverandi
vanda.
Afleiðingar reyk-
ingabannsins hafa ekki
aðeins áhrif inni á veitinga- og
skemmtistöðum bæjarins, heldur
einnig á götum hans. Raunin er sú
að þegar gestir stíga út í hópum til
að njóta tóbaksins veldur það meiri
hávaða, áreiti, slagsmálum og
neyslu áfengis utan-
dyra. Staðreynd er sú
að miðbærinn býður
ekki nógu mikla að-
stöðu fyrir almenning
til að koma í veg fyrir
árekstra. Almenn-
ingsklósett eru of fá,
illa staðsett og ekki
nógu frambærileg til
þess að þau séu kost-
ur. Einnig eru of fáir
leigubílar á háanna-
tímum og leiðir óþol-
inmæði oft til þess að
ósætti komi upp á
milli þeirra sem bíða
eftir því að komast heim.
Lögreglan hefur brugðist við og
reynir að stemma stigu við þessari
þróun. Lögreglustjóri hefur hert
eftirlit og lætur ekki ósæmilega
hegðun í miðbænum óátalda og
sýnileiki lögreglu hefur stóraukist.
Sú staðreynd að miðbærinn er
öruggari vekur ánægju flestra, en
þegar höfundur heyrir að fjöldi ein-
staklinga sé handsamaður og yf-
irheyrður, og aðeins fáir vegna al-
varlegs athæfis eins og
fíkniefnabrota en stærsti hópurinn
fyrir ósæmilega framkomu, t.d að
gera þarfir sínar á götum úti, þá
verður lítið úr ánægjunni.
Því óskar höfundur eftir öðrum
úrræðum en valdbeitingu gegn
borgurum. Eitt af úrræðunum væri
að setja upp fleiri almenn-
ingsklósett eða ferðaklósett, því
oftar en ekki er erfitt og tímafrekt
að komast aftur inn á skemmtistað-
inn til að fara á salernið. Einnig
væri gott úrræði að fjölga leyfum
fyrir leigubílarekstur og brjóta upp
gamla leigubílakerfið eða taka upp
strætisvagnaleiðir að næturlagi um
helgar.
Með því að nálgast vandamálið á
annan máta er auðséð að aukin
harka gegn frelsi einstaklingsins til
þess að skemmta sér er ekki rétta
leiðin. Aukin löggæsla og sýnileiki
er af því góða, en felur ekki í sér
lausnina á miðbæjarvandanum.
Önnur úrræði í miðbænum
Hallgrímur Viðar Arnarson vill
önnur úrræði en valdbeitingu
gegn borgurum í miðbænum
»Með því að nálgastvandamálið á annan
máta er auðséð að aukin
harka gegn frelsi ein-
staklingsins til þess að
skemmta sér er ekki
rétta leiðin.
Hallgrímur Viðar
Arnarson
Höfundur er Formaður
Týs, f.u.s í Kópavogi.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
Fréttir
í tölvupósti