Morgunblaðið - 14.10.2007, Qupperneq 54
54 SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
DREKAVELLIR - HAFNARFJÖRÐUR
Vorum að fá í sölu sex raðhús á Völlunum. Húsin skiptast í 3, góð svefnherbergi, 2
stofur, eldhús og tvö baðherbergi. Þvottahús, geymsla og bílskýli í kjallara. Húsin af-
hendast fullbúin að utan og fokheld að innan. Verð frá 31 millj. 7030
BYGGÐARENDI - LAUS FLJÓTLEGA
Vel skipulögð, 5-6 herbergja, neðri, 132,5 fm sérhæð (jarðhæð) í vel staðsettu tvíbýlis-
húsi sem er innst í botnlanga. Hæðin skiptist m.a. í forstofu, hol, stofu, borðstofu,
sjónvarpsstofu, eldhús, baðherb., 3 svefnherb. og geymslu. Sameigninlegt þvottahús
og sérgeymsla í sameign. Á gólfum eru flísar og parket. V. 34,0 m. 6982
ÍBÚÐIN VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG SUNNUDAG FRÁ 16-17.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Mávahlíð - sérinngangur og bíl-
skúr Falleg, 4ra herbergja neðri sérhæð
sem hefur verið endurnýjuð að hluta. Eign-
in skiptist í forstofu, hol, tvö herbergi,
stofu, borðstofu, eldhús og baðherbergi.
Sérgeymsla í kjallara og sameiginlegt
þvottahús. Íbúðin er vel skipulögð. Svalir
eru í suður. V. 31,5 m. 7028
Keilugrandi - laus strax Mjög falleg,
nýstandsett, 99 fm, 4ra herb. íbúð á 3.
hæð í litlu fjölbýli. Stæði í bílageymslu fylg-
ir. Íbúðin skiptist m.a. í stofu, sjónvarpshol
og þrjú herbergi. Sjávarútsýni. Lán að fjár-
hæð 19,5 millj. fylgir. ÍBÚÐIN ER LAUS
STRAX. V. 29,8 m. 7038
Ofanleiti - sérinngangur Mjög fal-
leg, 3ja herb., 87 fm íbúð á jarðhæð. Útaf
stofu er gengið út á hellulagða verönd til
suðurs. Nýlega standsett baðherbergi.
Blokkin er nýmáluð. Sérinngangur í íbúð-
ina. 7043
Laufásvegur - byggingarlóð Um
er að ræða einbýlishús sem byggt er um og
rétt eftir aldamótin 1900. Húsið er timb-
urhús á einni hæð, á stein kjallara. Húsið
stendur á 447,9 fm eignarlóð. Hugmyndin
er að selja lóðina undir nýtt hús og fjarlægja
gamla húsið. Tilboð óskast í lóðina. 7041
Lundarbrekka 3ja herbergja, 100,5 fm
íbúð er skiptist í hol, stofu, eldhús, tvö
herbergi, baðherbergi og búr/geymslu. Í
kjallara er sérgeymsla og sérfrysti-og kæli-
hólf. Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni.
V. 18,9 m. 7036
Engjasel - útsýnisíbúð 4ra-5 her-
bergja, glæsileg íbúð á 3. hæð ásamt
stæði í bílageymslu. Íbúðin skiptist í rúm-
gott hol, stofu, eldhús, baðherbergi og 3
svefnherbergi. Íbúðin er sjálf 113 fm með
geymslunni sem er 7,4 fm en henni fylgir
einnig 24,5 fm sérherbergi í kjallara. Mjög
góð lóð fyrir framan húsið sem er með
leiktækjum o.fl. Blokkin hefur verið klædd
með steni. V. 27,5 m. 7029
Háaleitisbraut - Sigvalda-blokk
Falleg og vel skipulögð, 4-5 herbergja íbúð
á 4. hæð. Íbúðin skiptist í 3 herbergi, tvær
stofur, eldhús, sérþvottahús, baðherbergi
og hol, í kjallara er sérgeymsla. Húsið er
teiknað af Sigvalda Tordarsyni arkitekt. V.
25,9 m. 6989
Frostaskjól - einstök eign Vel
skipulagt og fallegt, 229,2 fm einbýlishús í
Vesturbæ Reykjavíkur sem skiptist þannig:
Á 1. hæð er anddyri, hol, stofa, borðstofa
og eldhús. Á neðri palli (kjallari/jarðhæð) er
þvottahús, geymslur, sjónvarpsherbergi og
svefnherbergi með sérbaðherbergi ( Þetta
herbergi er bílskur á teikningu). Á efri palli
eru þrjú svefnherbergi og baðherbergi.
Nánari upplýsingar veitir Heiðar sölumaður
í síma 824-9092. V. 69,8 m. 6594
Hólavað - Norðlingaholt Glæsilegt
167,2 fm endaraðhús með innbyggðum
bílskúr. Húsið skiptist m.a. í stofu, borð-
stofu og fjögur rúmgóð herbergi. Mikil loft-
hæð á efri hæð hússins. Stórar flísalagðar
svalir út af stofu. Húisð hefur verið innrétt-
að á vandaðan og smekklegan hátt. Inn-
anhússarkitekt er Berglind Berndsen. Nán-
ari upplýsingar veitir Magnea Sverrisdóttir
fasteignasali í síma 861-8511. V. 54,0 m.
6922
Op
ið
h
ús
ATVINNUHÚSNÆÐI TIL LEIGU
Bakkabraut 4 - Kópavogi
Til leigu mjög gott ca 625 m2 iðnaðarhúsnæði við Bakkabraut í Kópavogi. Fiskvinnsla hefur
verið rekin í húsinu á undan förnum árum. Húsnæðið skiptist í tvo sali með innkeyrsludyrum,
kæliklefa, starfsmannaaðstöðu og litla skrifstofuaðstöðu á efri hæð. Gott malbikað plan er
fyrir framan. Hér er um að ræða mjög rúmgott húsnæði sem hentað getur margvíslegri starf-
semi. Húsnæðið er laust, hagstæð leigukjör.
Allar frekari upplýsingar veitir Jón Gretar Jónsson
sölumaður Húsakaupa í síma 617 1800.
Guðrún Árnadóttir lögg. fasteignasali
*NÝTT Á SKRÁ.* Vorum að fá í sölu rúmgóða 102,2 fm, 4ra herbergja ENDAÍBÚÐ á
2. hæð í litlu fjölbýli við Breiðuvík 2 í Grafarvogi. Þetta er vönduð og smekkleg íbúð.
Kirsuberjaparket og flísar á gólfum, 3 góð svefnherbergi með fataskápum, bað-
herbergi með baðkari og sturtu og eldhús með góðum borðkrók. Góð staðsetning –
stutt í skóla og leikskóla. LAUS FLJÓTLEGA. Verð 26,9 m.
Breiðavík – 4ra herbergja – Rvk.
Einar Páll Kjærnested
löggiltur fasteignasali.
Sími 586 8080 • Fax 586 8081
www.fastmos.is
Lúðvík, s. 897-7518
tekur á móti gestum
í dag á milli kl. 14-15.
NÚ ÞEGAR deilur standa sem
hæst um Orkuveitu Reykjavíkur
og aðgang að auð-
lindum Íslands
hvarflar hugurinn
óhjákvæmilega til
Mosfellsbæjar en þar
hvílir í iðrum jarðar
eitt stærsta lág-
hitasvæði landsins.
Uppspretta 60% af
heitu vatni sem
Reykvíkingar nota er
í Mosfellsbæ. Hita-
veita Reykjavíkur
keypti verðmætustu
vatnsréttindi land-
eigenda um 1935 á
verði sem borgarstjórn Reykjavík-
ur óx á sínum tíma í augum, þ.e.
150 þúsund kr. Fáir áttuðu sig þá
á því verðmæti sem fólst í jarðhit-
anum. Í dag rennur auðlindin án
viðkomu í bæjarsjóði Mosfells-
bæjar um hitaveitulagnir Reykja-
víkur. Hitaveitan á sennilega
stærstan þátt í velmegun höf-
uðborgarbúa og því sanngirnismál
að leiðrétta hlut Mos-
fellsbæjar. Þetta óaft-
urkræfa afsal á end-
urnýjanlegum
auðlindum og sú staða
sem Mosfellsbær er í
núna, þ.e. að vera ekki
einu sinni meðeigandi
í Orkuveitu Reykjavík-
ur, ætti að vera þörf
áminning þeim sem
gæta eiga auðlind-
arinnar í umboði al-
mennings. Það er
kaldhæðnislegt að það
sveitarfélag sem
drýgstan skerf leggur til hitaveitu
á Reykjavíkursvæðinu njóti þess í
engu umfram önnur sveitarfélög.
Þvert á móti situr það uppi með
ókostina sem eru hitaveituskúrar
Orkuveitunnar með tilheyrandi
ónæði fyrir íbúa, náttúrugersemar
s.s. gróðursæll heitur jarðvegur
og hverir eru horfnir af yfirborði
jarðar, Varmáin sem hægt var að
baða sig í er orðin jafn köld og
rigningin og til að kóróna kald-
hæðnina er skipulagsmálum
stjórnað af bæjaryfirvöldum sem
gleymt hafa jarðsögunni, atvinnu-
sögunni og menningarsögunni sem
öll á sér þó uppsprettu í heita
vatninu.
Dómur sögunnar virðist blasa
við. Í sumar sóttu Varmárs-
amtökin um styrk til Orkuveitu
Reykjavíkur til að hefja jarð-
hitasögu sveitarfélagsins til vegs
og virðingar með sýnilegum hætti
á yfirborði jarðar. Umsókninni var
hafnað. En burtséð frá því.
Sala á heitavatnsréttindum í
Mosfellsbæ ætti að geta orðið öðr-
um sveitarfélögum á suðvest-
urhorninu víti til varnaðar.
Hvaðan kemur auður
Orkuveitunnar?
Sigrún Pálsdóttir skrifar um
jarðvarma í Mosfellsbæ » Það er kaldhæðn-islegt að það sveitar-
félag sem drýgstan
skerf leggur til hitaveitu
á Reykjavíkursvæðinu
njóti þess í engu um-
fram önnur sveitar-
félög.
Sigrún Pálsdóttir
Höfundur er stjórnarmaður
í Varmársamtökunum.
smáauglýsingar
mbl.is