Morgunblaðið - 14.10.2007, Blaðsíða 58
58 SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Hraunhamar fasteignasala hefur tekið í einkasölu/-leigu glæsilegt skrifstofu-
og iðnaðarhúsnæði. Eignin er 918,7 fm, vel staðsett innst í botnlanga við
Drangahraun 14 í Hafnarfirði. Húsnæðið skiptist í 3x123 fermetra með góðum
innkeyrsludyrum og göngudyrum þar sem lofthæð er um 4,50 metrar, ett bil
með tveimur innkeyrsludyrum sem er 186 fermetar og fylgir því skrifstofuhæð
sem fyrsta hæð, 121 fm, samtals um 307 fermetrar, og tvær skrifstofuhæðir
sem eru 2x121 fermetrar. Lyfta er í húsinu. Húsið afhendist fullbúið (klætt) að
utan, og að innan eru skrifstofubilin fullfrágengin en iðnaðarbilin tilbúin und-
ir tréverk. Lóð, sem er 1.712 fm, verður fullfrágengin.
Upplýsingar veitir Þorbjörn Helgi sölumaður,
s. 896-0058.
DRANGAHRAUN - HF.
Hraunhamar fasteignasala hefur fengið í sölu/leigu glæsilegt verslunar- og
skrifstofuhúsnæði á frábærum stað við Tjarnarvelli 3, fremst í Vallahverfi í
Hafnarfirði. Framhlið hússins snýr að Reykjanesbraut og býður upp á mikið
auglýsingagildi. Húsið er fjórar hæðir og er nú þegar uppsteypt. Á svæðinu
munu rísa mörg stór hús með mikla atvinnustarfsemi og þjónustu, sum þeirra
eru nú þegar komin. Þarna verður framtíðarþjónustu- og verslunarsvæði. Næg
bílastæði. Nánari upplýsingar á hraunhamar.is.
Upplýsingar veita sölumenn Hraunhamars.
TJARNARVELLIR - HF.
ATVINNUHÚSNÆÐI
Finnbogi Hilmarsson,
Einar Guðmundsson og
Bogi Pétursson
löggiltir fasteignasalar
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 14-15
ÁNALAND 2, 108 REYKJAVÍK
Opið mán.- fös. frá kl. 9-17
Sími
530 6500
Fallegt 263,4 fm, 2ja hæða einbýli/parhús með innbyggðum bíl-
skúr á besta stað vestan megin í Fossvoginum, byggt 1983.
Fjögur svefnherbergi. Tvö baðherbergi. Parket og flísar á gólfum.
Arinn, sólstofa og verönd. Góð aðkoma. Bílastæði malbikuð.
Skjólgóður garður í góðri rækt. Hiti í plani og stéttum.
Verð 79,9 millj.
Gústaf (895-7205) og Guðrún (895-3990)
taka á móti öllum áhugasömum.
www.heimili.is
Daniel G. Björnsson
Sölufulltrúi • Lögg. leigumiðlari
Sími 530 6500 • daniel@heimili.is
M
bl
.9
21
92
1
Grensásvegur 12, Reykjavík
Fasteignakaup kynna Grensásveg 12 í Reykjavík, 1.576,3 fm á besta stað í borginni. Eignin
í framhúsi er 1.104,5 fm og skiptist í tvær hæðir, á annarri og þriðju hæð, og 462 fm eru á
fyrstu hæð í bakhúsi. Húsið hefur verið notað undir skrifstofur og kennslustofur. Hér er um
góðan fjárfestingarkost að ræða. Hagstæð lán áhvílandi.
Óskað er eftir tilboðum í eignina.
Nánari upplýsingar gefa sölufulltrúar Fasteignakaupa,
Páll Höskuldsson, s. 864-0500, og Guðmundur Valtýsson, s. 865-3022
Erna Valsdóttir lögg. fast.-, skipa- og fyrirtækjasali.
Sími 515 0500 www.fasteignakaup.is
Óskar R. Harðarson og Jason Guðmundsson, löggiltir fasteignasalar
F A S T E I G N A S A L A N
MIKLABORG
Síðumúli 13 Sími 569 - 7000 www.miklaborg.is
Í dag er opið hús frá kl. 15 til 16 í þessari glæsilegu íbúð í
Sjálandinu í Garðabæ. Iða Brá tekur á móti gestum.
Verönd og svalir. Sérlega glæsileg, um 130 fm, 4ra herb. íbúð með sól-
ríkum garði, timburverönd og svölum í fallegu fjölbýlishúsi í þessu eftir-
sótta hverfi. Húsið er byggt af Byggingarfélagi Gunnars & Gylfa. Eignin
sem er á 1. hæð frá götu og jarðhæð frá garði skiptist m.a. í sjónvarps-
hol, tvö herbergi, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi og þvottahús.
Sérgeymsla í kjallara. Lyfta er í húsinu. Fallegt sjávarútsýni.
STRANDVEGUR 18 – GARÐABÆ
Op
ið
h
ús
ÞAÐ þarf engan að undra þótt tal-
meinafræðingar segi sig frá samn-
ingum við Tryggingastofnun rík-
isins.
Í skilningi talmeinafræðinga er
gert ráð fyrir að hver almenn með-
ferð sé metin sem 50 mínútna
vinnuframlag (í meðferð er innifal-
in umsýsla, svo sem undirbúningur
þjálfunar, ljósritun, símtöl eða bréf
til annarra sérfræðinga, bókun og
kvittun fyrir þjálfunartíma).
Tryggingarstofnun stendur á því
fastar en fótunum að hver meðferð
skuli vara í 50 mínútur (umsýsla
ekki innifalin). Það er ekki verið að
hugsa um „meðferðina“ á bless-
uðum börnunum. Jafnvel leik-
manni hlýtur að skiljast að faglega
undirbúin og hæfilega löng með-
ferð hlýtur að skila betri árangri
en illa undirbúin löng meðferð.
Talmeinafræðingar, sem starfa
samkvæmt samningi við
Tryggingastofnun eru núna sex-
tán. Þeir sem að gefnu tilefni
sögðu sig frá samningi eru sjö.
Tryggingastofnun skirrist ekki við
að mismuna sjúkratryggðu fólki
sínu með því að neita að end-
urgreiða sumum og benda þeim á
að fara á biðlista hjá þeim átta sem
eftir eru á Stór-Reykjavíkursvæð-
inu.
Um miðjan nóvember n.k. verð-
ur að líkindum enginn talmeina-
fræðingur á samningi hjá
Tryggingastofnun, ef ekki breytist
viðhorf þeirra, sem koma að þess-
ari samningsgerð og túlkun af
hálfu TR, þangað til.
Samningurinn við Trygginga-
stofnun gildir út árið 2008. Flestir
launasamningar renna út um
næstu áramót. Þess vegna spyr ég
heilbrigðisráðherra, hvort honum
þyki gáfulegt að láta einhverja
þverskalla hjá Tryggingastofnun
setja þennan samning í uppnám.
Finnst honum e.t.v. að það sé af
hinu góða að tryggingatakar rík-
isins gefist upp við að sækja lög-
boðnar tryggingar sínar til ríkisins
og greiði bara sjálfir.
ÞÓRHALLUR
HRÓÐMARSSON,
Bjarkarheiði 19, Hveragerði.
Talmeina-
þjónusta
í uppnámi
Frá Þórhalli Hróðmarssyni
Norræn samvinna. Norræna ráðið.
Norræna ráðherranefndin. Nor-
rænir samningar. Til hvers?
Fyrir 45 árum síðan var sagt að
allt væri það til
að auðvelda
frjálst flæði fólks
á opnum atvinnu-
markaði um öll
Norðurlöndin.
Einnig að
tryggja réttindi
manna. Til þess
var 6. okt. 1997
undirritaður, í
Helsinki, af
fulltrúum ríkisstjórnar Danmerkur,
landsstjórnar Færeyja og rík-
isstjórna Finnlands, Íslands, Nor-
egs og Svíþjóðar:
Samningur milli Norðurlandanna
til að komast hjá tvísköttun að því
er varðar tekjur og eignir.
Í sænska samningnum stendur:
„Skatter på inkomster och på
förmögenheter.“
Hvernig fór?
Í Morgunblaðinu 27. nóvember
2005 er viðtal við Baldur Guð-
laugsson, ráðuneytisstjóra fjár-
málaráðuneytis. Svarar hann þar
grein tveggja lögfræðinga 26. nóv-
ember, sem gagnrýndu 30. grein
laga 129/2004 „... hafi ríkisstjórnin
heimild til að koma í veg fyrir að
aðilum verði gert að greiða skatt af
sama skattstofni bæði á Íslandi og
erlendis. Skattstofn sé hugtak inn-
an landsréttar og ólíklegt sé að
önnur ríki skilgreini skattstofn með
sama hætti og gert er í íslenskum
lögum“. Telja þeir að gera verði
breytingar á 30. grein ella verði
gerð tvísköttunarsamninga „í al-
gjörum ólestri.“
Baldur sagði að 30. grein væri
áratuga gömul. Áður hafi sagt
...koma í veg fyrir tvísköttun tekna
og eigna. Nú falli eignaskattur nið-
ur. Því hafi orðalagi ákvæðisins
verið breytt til að koma í veg fyrir
túlkunarvanda.(?) Í stað ...tekjur og
eignir sé talað um skattstofna.
Ekki treystir undirritaður sér til
að ræða þann feril sem þarna er
lýst, né skilgreina hvort átt sé við
túlkun laga eða túlkun milli landa.
Ofangreindur samningur var
undirritaður í október 1996. Og við-
aukinn 6. október 1997 fjallar að
mestu leyti um túlkun eða skýringu
ákvæða á þessari eða hinni þjóð-
tungu Norðurlandanna.
Og enn versnar það.
Í máli öryrkja gegn íslenska rík-
inu, vegna tvísköttunar örorku
hans, eftir að hann flutti heim til
Íslands, vitna lögmenn beggja aðila
ítrekað í tvísköttunarsamninginn
og 15. 18. 25. og 26. greinar hans.
En í dómnum segir að samning-
urinn hafi ekki gildi í málinu! Hann
hafi ekki verið staðfestur af Al-
þingi. Samkvæmt 77. grein stjórn-
arskrárinnar megi einungis skatt-
leggja samkvæmt lögum.
Hinsvegar hafi samningurinn verið
staðfestur af þjóðþingum hinna
Norðurlandanna og þar öðlast laga-
gildi.
Er ekki mál til komið? Eftir 10
ár. Eða ætlum við enn að vera
stikkfrí?
INGVAR KJARTANSSON,
læknir.
1997 – 6. október – 2007
Frá Ingvari Kjartanssyni
Ingvar Kjartansson
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn