Morgunblaðið - 14.10.2007, Síða 65
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2007 65
✝ Ingibjörg Jóns-dóttir fæddist á
Dynjanda í Arnar-
firði 14. apríl 1914.
Hún lést á hjúkr-
unarheimilinu
Holtsbúð í Garðabæ
27. september síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru Guð-
munda Guðmunds-
dóttir og Jón Jóns-
son, bændur á
Dynjanda. Ingi-
björg var áttunda í
röð tíu systkina sem
nú eru, með henni, öll gengin.
Ingibjörg hélt suður til Reykja-
víkur snemma á þrí-
tugsaldri og stund-
aði þar ýmis störf.
Ingibjörg giftist
árið 1962 Ágústi Jó-
hannssyni, d. 1963.
Hún eignaðist tvö
börn, Leif Jósteins-
son, f. 1940, d. 1998,
og Hafdísi Ágústs-
dóttur, f. 1948.
Barnabörnin eru
sex og barna-
barnabörnin sex.
Ingibjörg var
jarðsungin frá
Garðakirkju 4. október, í kyrr-
þey.
Góð vinkona og frænka, Ingibjörg
Jónsdóttir frá Dynjanda, er nú látin,
93 ára að aldri, og langar mig að
skrifa nokkur orð í minningu hennar.
Ég mat Ingibjörgu mikils en ég
kynntist henni þegar ég fór að vera
með systursyni hennar, Arnþóri
Kristjánssyni. Ingibjörg var þá ung
kona um fertugt og urðum við fljótt
bestu vinkonur þrátt fyrir aldurs-
mun en ég var þá um tvítugt.
Ingibjörg var mjög sérstök kona,
hún var grannleit, frekar dökk yf-
irlitum og lagleg, það sem gerði hana
sérstaka var hve mikil listakona hún
var. Segja má að hún hafi verið á
undan sinni samtíð því hún gerði sér
far um að nýta sem mest úr um-
hverfinu og náttúrunni í sín lista-
verk. Enda liggur margt fallegt
handverkið eftir hana sem á vafa-
laust eftir að gleðja afkomendur
lengi.
Það var alltaf gott að koma til
Ingibjargar og hún lét mann alltaf
finna hve velkominn maður var. Í
„þá daga“ var maður alltaf að sauma
á börnin og mikið var þá notalegt að
geta komið á Kvisthagann og fengið
leiðbeiningar enda tók Ingibjörg
manni alltaf afskaplega vel.
Af Kvisthaganum fluttu þau Ingi-
björg og Ágúst í Silfurtún í Garðabæ
þar sem þau byggðu sér fallegt hús
við Faxatún. Börnunum okkar Arn-
þórs þótti alltaf mjög gaman að fara
til frænku sinnar og þegar ég spurði
þau hvort þau vildu fara í Silfurtúnið
kom margradda svar; já, já, já. Enda
var það eins og ævintýri að fara til
hennar, allt umhverfið eins og í sveit
og náttúran allt um kring. Þá var
farið í fjöru og tíndar skeljar og
steinar, eða í móann og tíndur mosi
og blóm til að þurrka. Síðan var hald-
ið heim í Faxatún til að búa til mynd-
ir úr þessum efnivið undir styrkri
handleiðslu Ingibjargar.
Ingibjörg var uppáhaldsfrænka
Arnþórs mannsins míns. Minningar
hans um hana tengdust ávallt Dynj-
anda sem var æskuheimili hennar
því hann var þar hvert sumar fram
undir unglingsár hjá afa sínum og
ömmu og er sá tími honum ákaflega
kær.
Ingibjörgu minntist oft á ferð sem
hún fór vestur á Dynjanda. Þá kom
hún með Súðinni frá Reykjavík til
Bíldudals þar sem henni var falið að
taka Arnþór með sér aðeins tveggja
ára gamlan yfir að Dynjanda. Farið
var á opnum bát yfir á Hjallkárseyri
og dvalið um nóttina hjá frændfólki
og síðan áfram inn fjörðinn að Dynj-
anda næsta dag til ömmu og afa þar
sem Arnþór átti að dveljast um sum-
arið.
Ingibjörg hafði ótrúlegt minni og
fram á síðasta dag var hægt að
spyrja hana um ýmislegt það sem
gerst hafði í gegnum tíðina. Henni
þótti líka afar vænt um fjölskylduna
sem heild og fylgdist vel með hver
hafði eignast barn, hver væri að gift-
ast og hvernig þessi eða hinn tengd-
ist inn í fjölskylduna.
Elsku Hafdís og fjölskylda, við
Arnþór og börnin okkar sendum
ykkur innilegustu samúðarkveðjur.
Ég vil sérstaklega þakka Ingi-
björgu þá góðu vináttu sem við átt-
um í yfir 50 ár.
Bergljót Baldvinsdóttir.
Ingibjörg Jónsdóttir
Vönduð og persónuleg þjónusta
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Sími 551 7080
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
Ólafur Örn
útfararstjóri,
s. 896 6544
Inger Rós
útfararþj.,
s. 691 0919
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
hlýhug, styrk og stuðning við andlát og útför okkar
ástkæru eiginkonu, móður, tengdamóður, systur,
ömmu og langömmu,
EDDU ÁSGERÐAR BALDURSDÓTTUR,
Rjúpufelli 46,
Reykjavík.
Garðar Árnason,
Guðný Svana Harðardóttir,
Þóra Björk Harðardóttir, Ómar Bjarni Þorsteinsson,
Árný Lilja Garðarsdóttir,
Sigrún Jóna Baldursdóttir, Róbert Jón Jack,
Helgi Gunnar Baldursson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts móður okkar, tengdamóður, ömmu,
langömmu og langalangömmu,
DÓRU S. HALLDÓRSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 3a á Grund
fyrir einstaka umönnun og hlýju.
Svanhildur Magnúsdóttir,
Hilmar Magnússon,
Ólöf Magnúsdóttir, Þórarinn Haraldsson,
Málhildur Þ. Angantýsdóttir,
Sigurður Angantýsson,
ömmu-, langömmu- og langalangömmubörn.
✝
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar
móður, tengdamóður, ömmu og langömmu,
FRIÐRIKKU BJARNADÓTTUR,
hjúkrunarheimilinu Sóltúni,
áður til heimilis í Hæðargarði 35.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins
Sóltúns fyrir góða umönnun og einstaka hlýju.
Bjarni Ólafsson, Rannveig Guðmundsdóttir,
Bjarney Ólafsdóttir, Richard A. Hansen,
Ólafur E. Ólafsson, Guðrún Gunnarsdóttir,
Jón S. Ólafsson, Caroline Nicholson,
Dómhildur Ingibjörg Ólafsdóttir, Jón Hilmar Friðriksson,
Þóra Sigríður Ólafsdóttir, Páll M. Pálsson,
barnabörn og langömmubörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför,
ÁSGEIRS STEFÁNSSONAR,
Fagradal,
Breiðdal.
Stefán Stefánsson,
Auður Stefánsdóttir, Birgir Einarsson
og fjölskylda.
✝
Við þökkum af alhug öllum þeim sem sýndu okkur
hluttekningu og hlýhug við andlát og útför okkar
ástkæra
SIGURÐAR G. GUÐMARSSONAR,
Ásvegi 11,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir viljum við færa Slökkviliði höfuð-
borgarsvæðisins og Brunavarðafélagi Reykjavíkur.
Þórunn Sigurðardóttir,
Ingi Þór Sigurðsson, Laufey Klara Guðmundsdóttir,
Pétur Sigurðsson,
Þórunn Sigurðardóttir, Joost Schrander,
Einar Hansson, Birgit Hansson
barnabörn og aðrir aðstandendur.
✝
Þökkum auðsýnda samúð og vinsemd vegna
fráfalls móður okkar, tengdamóður, ömmu,
langömmu og langalangömmu,
KARENAR ELISABETHAR BRYDE,
Lindarhvammi 8,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks 3. hæðar á
Vífilsstöðum fyrir alúðlega umönnun og hlýju.
Bent K. Bryde, Margrét Eðvalds,
Leif K. Bryde, Amalía Stefánsdóttir,
Inga Anna Lisa Bryde, Sveinn Halldórsson,
Axel K. Bryde, Elsa Þorsteinsdóttir.
✝
Hugheilar þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
KRISTÍNAR ÁGÚSTU ÁGÚSTSDÓTTUR,
hjúkrunarheimilinu Skjóli,
áður Grandavegi 47,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins
Skjóls fyrir frábæra umönnun.
Garðar Gíslason, Margrét Bjarnadóttir,
Ögmundur Magnússon, Dóra Garðarsdóttir,
Sigurður Magnússon, Hulda Friðgeirsdóttir,
Hjalti Magnússon, Jónína Þorbjörnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
MARÍU UNNAR SVEINSDÓTTUR
frá Ólafsvík.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki á deild
A3 á Hrafnistu í Reykjavík fyrir góða umönnun
og hlýju.
Aðalsteinn Guðbrandsson,
Sigríður Aðalsteinsdóttir, Ole Dangvard Jensen,
Sjöfn Aðalsteinsdóttir,
Guðrún Aðalsteinsdóttir, Ævar Guðmundsson,
Þórheiður Aðalsteinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.