Morgunblaðið - 14.10.2007, Side 68
68 SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AUÐLESIÐ EFNI
Nýr borgarstjórnar-meirihluti
undir for-ystu Dags B.
Eggertssonar tekur við
völdum í Reykjavík eftir helgi.
Á fimmtu-daginn ákvað Björn
Ingi Hrafnsson, borgar-fulltrúi
Framsóknar-flokksins, að
enda meirihluta-samstarf sitt
við Sjálfstæðis-flokk og hefja
sam-starf við Sam-fylkingu,
Vinstri græna og F-lista.
Björn Ingi sagði að vegna
óeiningar um mál-efni
Orku-veitu Reykjavíkur (OR)
og hluta hennar í Reykjavík
Energy Invest (REI) yrði í
fram-tíðinni erfitt að vinna
með sjálfstæðis-mönnum að
vissum verkefnum.
Björn Ingi sagði að
ósamkomu-lag hefði verið
milli borgar-fulltrúa
Sjálfstæðis-flokks og sín um
sölu á hlut OR í REI, og að
líka hefði verið óeining innan
borgar-stjórnarflokks
sjálfstæðis-manna.
Þeir segja tal um óeiningu í
þeirra röðum vera fyrir-slátt af
hálfu Björns Inga sem hafi
komið fram af miklum
óheilindum.
Þetta er í fyrsta sinn í sögu
Reykjavíkur sem nýr
meiri-hluti tekur við á miðju
kjör-tímabili. Dagur verður
fjórði borgar-stjórinn síðan
Ingibjörg Sólrún lét af
emb-ætti árið 2003.
Meiri-hluti fallinn í borginni
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Nýi meiri-hlutinn hélt blaðamanna-fund við tjörnina á fimmtu-dag.
Gordon Brown,
forsætis-ráðherra
Bret-lands, hefur til-kynnt
að hann boði
ekki til
kosninga í
haust. Í
við-tali við
BBC sagði
hann að
einnig væri
ólík-legt að
al-mennar
kosningar yrðu á næsta ári.
Hann verður þó að boða til
kosninga í síðasta lagi í
maí 2010.
Sam-kvæmt könnun hefur
dregið úr stuðningi við
Verkamanna-flokkinn, en
fylgi hans jókst eftir að
Brown tók við em-bættinu í
júní. Leið-togi Frjáls-lynda
demókrata-flokksins segir
að Brown hefði tekið
hags-muni flokksins fram
yfir hags-muni þjóðarinnar.
Brown segist telja að það
sé betra fyrir kjós-endur að
fá meiri tíma til að kynna
sér sýn hans á land og
þjóð.
Brown
boðar ekki
til kosninga
Gordon
Brown
Sigur Rós fékk
nýbreytni-verðlaun
Hljóm-sveitin Sigur Rós
hlaut á mánu-daginn
nýbreytni-verðlaun breska
tónlistar-tímaritsins Q. Á
meðal annarra sem fengu
verð-laun á há-tíðinni voru
Kylie Minogue, Damon
Albarn, Ian Brown, Muse,
Amy Winehouse og bítillinn
Paul McCartney sem hlaut
sér-stök heiðurs-verðlaun.
Verð-laun Alþjóð-legrar
Kvikmynda-hátíðar
Ung-verska kvik-myndin Ferð
Isku eftir Csaba Bollók hlaut
Gullna lundann,
aðal-verðlaunin á Alþjóð-legu
kvikmynda-hátíðinni í
Reykjavík. Í dóm-nefnd sátu
Hal Hartley, Friðrik Þór
Friðriksson og Gréta
Ólafsdóttir. Danska myndin
Listin að gráta í kór eftir Peter
Schønau Fog fékk FIPRESCI
verð-launin og einnig
verð-laun þjóð-kirkjunnar.
Áhorfenda-verðlaunin hlaut
enska kvik-myndin Stjórn
sem fjallar um ævi
tónlistar-mannsins Ian Curtis
eftir ljós-myndarann Anton
Corbijn. Dóm-nefnd Amnesty
International verð-launaði
síðan kvik-myndina Lög-mál
hagnaðarins.
Listir
Á þriðju-daginn komu 27
flótta-menn frá Kólumbíu til
landsins í boði íslenskra
stjórn-valda. Þetta voru allt
konur og börn, en þrír
flótta-menn frá sama landi
höfðu þegar komið.
Fólkið var flutt frá
Ekvador, þangað sem það
hafði flúið frá heima-landi
sínu vegna stríðs-átaka og
of-sókna.
Flótta-manna-stofnun
Sam-einuðu þjóðanna fór
fram á það við íslensk
stjórn-völd að fólkinu yrði
veitt hæli vegna að-stæðna
þeirra. Reykjavíkur-borg og
Rauði krossinn sjá um
mót-töku fólksins, sem nú
tekur þátt í 12 mánaða
aðlögunar-verkefni á vegum
félagsmála-ráðuneytisins.
Flótta-fólk
frá Kólumbíu
Á þriðjudags-kvöld var kveikt á friðar-súlu
Yoko Ono í Viðey, en þann dag hefði fyrrum
eigin-maður hennar bítillinn John Lennon
orðið 67 ára, hefði hann lifað.
Hug-myndin að lista-verki sem yrði
leiðar-ljós fyrir heims-frið kviknaði fyrir
mörgum ára-tugum. Fyrir þremur árum ákvað
Yoko Ono svo að verkið skyldi sett upp á
Íslandi. Hún áleit Ísland vera vel til þess fallið
landfræði-lega að senda strauma friðar eftir
jarð-kúlunni, auk þess sem Ísland er her-laust
land. Það skipti hana einnig máli að orkan
sem þarf til að láta verkið loga er unnin úr
jarð-hita en ekki olíu. Ringo Starr fyrrum
trommu-leikari Bítlanna, og Olivia Harrison,
ekkja bítilsins George Harrisons, voru
viðstödd vísluna. Starr sagðist viss um að
John Lennon hefði orðið ánægður með
súluna. „Já, hann hefði orðið mjög hrifinn, og
ég held reyndar að John sé með okkur. Hann
er með okkur hér á Íslandi í kvöld.“
Friðar-súla
tendruð í Viðey
Morgunblaðið/Golli
Enski rit-höfundurinn Doris
Lessing hlýtur
Nóbels-verðlaunin í
bók-menntum í ár. Sænska
akademían segir, að Lessing
sé hetja hinnar kven-legu
reynslu, sem hafi sett
tví-skipta menningu undir
mæli-ker. Lessing er 87 ára
og því elsti hand-hafi
verð-launanna. Lessing kom
til Íslands árið 1986 á vegum
Lista-hátíðar.
Al Gore, fyrrum vara-forseti
Banda-ríkjanna, og
loftslags-nefnd Sam-einuðu
þjóðanna deila
friðar-verðlaunum Nóbels í ár
fyrir að safna saman og
koma á fram-færi þekkingu á
loftslags-breytingum af
manna-völdum og leggja
grund-völl að nauðsyn-legum
að-gerðum til að mæta
þessum breyt-ingum.
Lessing og Gore fá
Nóbels-verðlaun
REUTERS
Doris Lessing
Um seinustu helgi urðu
FH-ingar bikar-meistarar í
fyrsta skipti. Þeir unnu þá
Fjölni 2:1 í fram-lengdum
úrslita-leik á
Laugardals-vellinum.
Ólafur Jóhannesson ákvað
í vikunni að láta af störfum
sem þjálfari karlliðs FH í
knatt-spyrnu sem hann hefur
stýrt í 5 ár. Heimir
Guðjónsson aðstoðar-maður
Ólafs, tekur við starfinu.
,,Ég er ánægður að vera
búinn að taka ákvörðun. Hún
var erfið en mér fannst réttur
tíma-punktur að hætta núna.
Þetta er búinn að vera
frá-bær tími sem ég hef átt
hjá FH. Mér hefur tekist að
vinna allt sem hægt er að
vinna með liðinu og ég get því
ekki sagt annað en að ég
skilji sáttur við það,“ sagði
Ólafur.
FH-ingar
bikar-meistarar
Morgunblaðið/Sverrir
Ólafur fagnar með FH.
Netfang: auefni@mbl.is