Morgunblaðið - 14.10.2007, Page 69
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2007 69
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Minnum á fjögurra daga keppnina í félagsvist og er enn hægt
að taka þátt. Spilað næstu mánudaga. Verðlaun í lokin.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrifstofan í Gullsmára 9 er opin mánudaga
og miðvikudaga kl. 10-11.30. S. 554-1226. Skrifstofan í Gjábakka er opin á mið-
vikudögum kl. 15-16. S. 554-3438. Félagsvist er í Gullsmára á mánudögum kl.
20.30, en í Gjábakka á miðvikudögum kl. 13 og á föstudögum kl. 20.30.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Dansleikur kl. 20, Klassík leikur fyrir dansi.
Menningarhátíð FEB í Borgarleikhúsinu 16. október uppl. og miðasala í Borg-
arleikhúsinu og á skrifstofu FEB s. 588-2111. Námskeið í framsögn hefst 23.
október, leiðbeinandi Bjarni Ingvarsson, skráning á skrifstofu FEB.
Félagsheimilið Gjábakki | Anna Linda Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur
verður með fræðsluerindi um heyrnarskerðingu og heyrnartæki 16. okt. kl. 20.
Íþróttafélagið Glóð stendur fyrir fræðslunni.
Félagsstarf Gerðubergs | Alla virka daga er fjölbreytt dagskrá, m.a. opnar
vinnustofur, spilasalur, sungið, dansað o.m.fl. Veitingar í hádegi og kaffitíma í
Kaffi Berg. Á föstud. kl. 10.30 er leikfimi, Ringó boltaleikur o.fl. í Íþróttahúsi ÍR
við Skógarsel. Vetrardagskráin er komin út. S. 575-7720.
Hvassaleiti 56-58 | Sviðaveisla verður 19. október. Óskar Pétursson syngur
einsöng, Þorvaldur Halldórsson leikur fyrir dansi. Húsið opnað kl. 18. Uppl. og
skráning í síma 535-2720 eða á staðnum.
Hæðargarður 31 | Gönguferðir, Mullersæfingar, glerlist, styrktarþjálfunarhópur
í World Class, almenn leikfimi, Thai Chi, útskurður, flos, postulín, bókmennta-
hópur, bútasaumur, línudans, pakkaskreytingar, myndlist, söngur, skart-
gripagerð, félagsvist, magadans, skrautskrift, tölvufræðsla. 568-3132.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun, mánudag, er ganga frá Grafarvogskirkju kl.
10.
Slysavarnadeildin Varðan | Fyrsti félagsfundur Slysavarnadeildarinnar Vörð-
unnar verður haldinn í Gaujabúð mánudaginn 15. október kl. 20. Gestur fund-
arins, Guðfinna S. Bjarnadóttir alþingismaður og sálfræðingur, ræðir um árang-
ursstjórnun.
Kirkjustarf
Bústaðakirkja | Árlegt kirkjukaffi viðlagasjóðsnefndar Súgfirðingafélagsins
verður haldið að lokinni messu í Bústaðakirkju í dag. Prestur sr. Pálmi Matt-
híasson, við messu verða Súgfirðingar virkir þátttakendur. Á miðvikudögum kl.
13-16.30 er starf eldri borgara. Spilað, föndrað og handavinna. Gestur kemur í
heimsókn.
Fríkirkjan Kefas | Sunnudagaskóli í dag kl. 11, kennsla, söngur, leikrit og leikir.
Almenn samkoma kl. 14. Björg R. Pálsdóttir prédikar. Á samkomunni verður lof-
gjörð, barnastarf og fyrirbænir og að henni lokinni verður kaffi og samvera.
Laugarneskirkja | TTT-hópurinn kemur saman undir handleiðslu sr. Hildar Eirar
og Andra Bjarnasonar kl. 13. (5.-6. bekkur) Harðjaxlar halda fund undir hand-
leiðslu Stellu Rúnar Steinþórsdóttur og Þorkels Sigurbjörnssonar kl. 16.
Óháði söfnuðurinn | Kirkjudagurinn er haldinn í dag og hefst kl. 14 með messu
og að henni lokinni mun kvenfélagið hafa sínu árlegu kaffisölu, verð 1.000 kr.
fyrir fullorðna og 500 kr. fyrir börn.
60ára afmæli. ÞóraÓlafsdóttir, Ljós-
heimum 20, Reykjavík er sex-
tug í dag, 14. október. Hún
býr við bágan en batnandi
hag. Þóra er að heiman í dag.
50ára afmæli. Óli JóhannKristjánsson, fram-
kvæmdastjóri Iceland on
Track, Fagrahjalla 92, Kópa-
vogi er fimmtugur í dag,
sunnudaginn 14. október.
Hann mun eyða deginum í
faðmi fjölskyldunnar en það
má senda honum kveðju á
tölvupóstfangið OliJKristjans-
son@gmail.com.
85ára afmæli. Í dag, 14.október, eiga tvíbura-
systurnar Svanhildur og
Hlaðgerður Snæbjörnsdætur
85 ára afmæli. Þær fæddust í
Svartárkoti í Bárðardal. Þær
munu halda upp á afmælið í
faðmi fjölskyldunnar.
dagbók
Í dag er sunnudagur 14. október, 287. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Því ég segi yður: Héðan í frá mun ég eigi drekka af ávexti vínviðarins, fyrr en Guðs ríki kemur. (Lk. 22, 18.)
Alþjóðamálastofnun HÍ og Asíu-ver Íslands bjóða til hádeg-isfyrirlestrar á morgun,mánudag. Fyrirlesari er dr.
Henry Rosemont, prófessor emeritus í
heimspeki og kínverskum fræðum við
St. Mary’s College og gestaprófessor við
Brown-háskóla, og flytur hann erindið
Kína og Bandaríkin – hver ógnar hverj-
um?
Henry segist ætla að fást við fjórar
spurningar í erindi sínu: „Fyrst spyr ég
hvort sú sýn margra Bandaríkjamanna
sé á rökum reist, að Kína sé ógn bæði
hernaðarlega og efnahagslega – og er
svarið við spurningunni: nei. Næsta
spurning varðar hvort sýn sumra Kín-
verja á Bandaríkin sem efnahagslega og
hernaðarlega ógn eigi rétt á sér – og er
svarið: já,“ segir Henry. „Þriðja spurn-
ingin er hver er mesta ógnin við Banda-
ríkin í dag, og er svarið: Bandaríkin.
Loks er fjórða spurningin, hver er
mesta ógnin við Kína í dag, og er svarið:
Kína.“
Að sögn Henrys myndu Bandaríkin
og Kína bæði hagnast mjög af bættum
samskiptum og aukinni samvinnu: „Fyr-
irsjáanlegt er að í nánustu framtíð verði
Kína orðið næststerkasta efnahagsveldi
heims á eftir Bandaríkjunum. Kína er
einnig að reyna að láta rödd sína heyr-
ast á alþjóðavettvangi, og leggur m.a.
áherslu á að vinna mikið í gegnum Sam-
einuðu þjóðirnar. Aðferðir og metnaður
Kína býður m.a. upp á þann möguleika
fyrir Bandaríkin að létta af herðum sín-
um mörgum af þeim byrðum heimsins
sem landið hefur tekið að sér að axla.“
Aðspurður um þætti á borð við spill-
ingu, mannréttindabrot og hernaðar-
vöxt sem oft eru nefnd í umræðu um
Kína er Henry allbjartsýnn: „Sú spilling
sem þekkist í Kína virðist ekki hafa nei-
kvæð áhrif á hagvöxt, þó vissulega þurfi
að hreinsa upp spillingu á sumum svið-
um. Kína er líka eftirá hvað varðar
fyrstu kynslóðar mannréttindi, en
Bandaríkin, að sama skapi, mættu bæta
sig í annarrar kynslóðar mannrétt-
indum. Veitir ekki af þrýstingi á bæði
löndin hvað varðar mannréttindamál,“
segir hann. „Loks má nefna að framlög
Kína til hernaðarmála eru aðeins 8% af
framlögum Bandaríkjanna, og hernað-
arvald þeirra miklum mun minna en hið
bandaríska.“
Utanríkismál | Fyrirlestur á mánudag í Norræna húsinu kl. 12 til 13.
Kína og Bandaríkin
Henry Rose-
mont fæddist í Chi-
cago 1934. Hann
lauk doktorsgráðu
í heimspeki við
Washington-
háskóla 1967, en
hann gegndi rann-
sóknarstöðu við
MIT-háskóla 1969-
1971. Hann kenndi um 22 ára skeið við
St. Mary’s College í Maryland, kenndi
einnig við Fudan-háskóla í Sjanghæ
og er nú gestaprófessor við Brown-
háskóla. Henry er kvæntur JoAnn
Rosemont og eiga þau fimm dætur og
tólf barnabörn.
Söfn
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn |
Sýning á fágætum kínverskum list-
munum. Laugardag og sunnudag,
verður boðið upp á leiðsögn um sýn-
inguna. Guðbjörg Kristjánsdóttir sér
um leiðsögnina sem hefst kl. þrjú báða
dagana. Sýningin bregður ljósi á sögu
Kína allt aftur til 31. aldar fyrir Krist.
Leiklist
Halaleikhópurinn | Í tilefni af 15 ára af-
mæli Halaleikhópsins verður kaffi-
húsakvöld í Halanum, Hátúni 12. í kvöld
kl. 20.30. Sólóstund leikarans, ljóða-
lestur og stuttverkið „Hvað drap asn-
ann“ eftir Ármann Guðmundsson.
Kvikmyndir
MÍR-salurinn | Kvikmyndin Tarkovskís
frá 1972, Solaris, verður sýnd í MÍR,
Hverfisgötu 105, í dag kl. 15. Myndin er
byggð á vísindaskáldsögu pólska rit-
höfundarins Stanislaws Lem um dul-
arfulla atburði í rannsóknarstöð úti í
geimnum. Rússneska – enskur texti.
Fyrirlestrar og fundir
ITC | Fundur verður í Vonarhöfn Safn-
aðarheimili Hafnarfjarðarkirkju þriðju-
dag 16. nóv. kl. 20.15. Þjálfun í mann-
legum samskiptum.
Kristniboðssalurinn | Aðalfundur KFH
verður haldinn 15. október kl. 20. Á
dagskrá venjuleg aðalfundarstörf.
Hugvekju flytur Margrét Hróbjarts-
dóttir.
Fréttir og tilkynningar
Færeyska sjómannaheimilið | Sam-
koma á Færeyska Sjómannaheimilinu
kl. 17, Árni Jacobsen frá Færeyjum tal-
ar. Kaffi á eftir.
Lionsklúbburinn Muninn og Ýr |
Kirkjuferð klúbbanna verður farin 28.
október nk. Hlýtt verður á messu hjá
sr. Svavari Stefánssyni í Fellasókn.
Akstur frá, Gullsmára, Kópavogsbraut
1A og 1B og Gjábakka. Skráning á
þátttökulista á viðkomustöðum. Lkl.
Muninn og Ýr.
LEIKKONURNAR Sarah Jessica Parker, Cynthia Nixon og Kristin Davis sjást hér í
hlutverkum sínum við tökur á kvikmyndagerð sjónvarpsþáttanna vinsælu Sex and the
City. Myndbrotið vekur óneitanlega margar spurningar um söguþráðinn. Af hverju er
Carrie með grænar strípur í hárinu? Kemur hún þessum fallega blómvendi í vatn í
tæka tíð? Já, og gæti hún máski verið að fara að gifta sig – og þá hverjum? Svör við
þessum spurningum ættu að fást í lok maí á næsta ári.
Tökur á kvikmyndagerð Sex and the City í fullum gangi
Gifting í borginni?
Reuters
MORGUNBLAÐIÐ
birtir til kynningar um
afmæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira lesend-
um sínum að kostnað-
arlausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir
sunnudags- og mánu-
dagsblað.
Samþykki afmælis-
barns þarf að fylgja af-
mælistilkynningum
og/ eða nafn ábyrgðar-
manns og símanúmer.
Hægt er að hringja í
síma 569-1100.
Bréf skal stíla á
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.
FRÉTTIR
VERKEFNIÐ Framtíð í nýju landi
efnir til námskeiðs í svokallaðri
Rassias-aðferð við kennslu erlendra
tungumála sem ætlað er kennurum
í íslensku fyrir innflytjendur vikuna
15. til 19. október nk.. Leiðbeinandi
á námskeiðinu er höfundur aðferð-
arinnar, John A. Rassias.
Í fréttatilkynningu segir m.a. að
Rassias-aðferðin gangi út frá menn-
ingu og tungumáli sem einni heild
og tungumálinu sem lykli að því að
skilja „sál“ hverrar þjóðar eða
menningarheildar. Lifandi þættir í
tungumálakennslunni samkvæmt
aðferð Rassiasar eru leikur og leik-
ræn tjáning, mikil hreyfing og tíð
svörun milli nemenda og kennara –
allt upp í 65 sinnum í 50 mínútna
kennslustund. Þá eru mál-
fræðilegar meginreglur settar fram
með óhefðbundnum hætti og yfir 50
mismunandi uppbyggðar æfingar
notaðar til að festa lærdóminn í
sessi.
Framtíð í nýju landi er verkefni
sem ætlað er að aðstoða ungmenni
af erlendum uppruna við að afla sér
menntunar og skipuleggja líf sitt.
Þannig er verkefninu ætlað að
hjálpa þessum ungmennum að
verða virkir þátttakendur í íslensku
samfélagi.
Námskeiðið fer fram í salar-
kynnum Eflingar-stéttarfélags,
Sætúni 1 í Reykjavík.
Framtíð í
nýju landi
NÁTTÚRUFRÆÐISTOFNUN hef-
ur ákveðið að ganga til samninga
við Urriðaholt ehf. um að reist
verði 3.500 fermetra skrifstofu- og
rannsóknarhúsnæði stofnunarinnar
í Urriðaholti í Garðabæ. Jón Gunn-
ar Ottósson, forstjóri Náttúrufræði-
stofnunar segir að í kjölfar útboðs
hafi verið ákveðið að ganga til
samninga, og nú hilli undir að hús-
næðismál stofnunarinnar verði loks
leyst, en hún hefur verið í bráða-
birgðahúsnæði í 48 ár.
Öll starfsemi stofnunarinnar
verður hýst í hinu nýja húsnæði en
sýningarsafnið hefur verið flutt
undir menntamálaráðuneytið og
stendur því ekki til að það flytji í
Garðabæinn með stofnuninni. Ráð-
inn hefur verið forstöðumaður sýn-
ingarsafnsins og er unnið að því að
finna því stað.
Jón Gunnar segir að nú taki við
ferill þar sem gengið verði til samn-
inga með aðstoð framkvæmdasýslu
ríkisins, stefnt er á að stofnunin
verði flutt í nýtt húsnæði haustið
2009, sem Jón Gunnar segir vel við
hæfi, þar sem þá verði liðin hálf öld
frá því að hún flutti í bráðbirgða-
húsnæði við Hlemm, þar sem hún
hefur síðan verið.
Náttúrufræði-
stofnun flytur
í Garðabæ
ÁRLEGT málþing Kennaraháskóla
Íslands sem haldið er í samráði við
Kennarasamband Íslands, Mennta-
og Leikskólasvið Reykjavíkur-
borgar, menntamálaráðuneyti,
Þroskaþjálfafélag Íslands, Félag ís-
lenskra framhaldsskóla, Heimili og
skóla og Grunn – félag forstöðu-
manna skólaskrifstofa, verður
haldið í húsnæði KHÍ við Stakka-
hlíð 18. og 19. október.
Í fréttatilkynningu segir að dag-
skráin sé að venju viðamikil þar
sem reynt er að höfða til fagfólks
sem starfar á stórum vettvangi.
Auk opnunarfyrirlestrar og stærri
málstofa verða flutt um 80 erindi í
málstofum báða daga. Málþingið er
öllum opið og aðgangur er ókeypis.
Vegna prentunar dagskrár er
nauðsynlegt að gestir skrái sig.
Dagskrá málþingsins má nálgast á
heimsíðunni www.khi.is
Málþing
Kennarahá-
skóla Íslands