Morgunblaðið - 14.10.2007, Qupperneq 70
70 SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Kalvin & Hobbes
ERU NOKKUR SKRÍMSLI
UNDIR RÚMINU MÍNU?
NEI
ENGIN
NEI
EN EF ÞAÐ VÆRU
SKRÍMSLI UNDIR RÚMINU
MÍNU. HVERSU
STÓR VÆRU ÞAU?
BARA
MJÖG
LÍTIL
MAMMA!
Kalvin & Hobbes
KALVIN, HEFUR VERIÐ
BREYTT Í PÖDDU. HANN
RÉTTIR BLAÐIÐ AF MEÐ
ERFIÐIS MUNUM
EINA LEIÐIN FYRIR HANN
AÐ BJARGA SÉR, ER AÐ
SKRIFA BRÉF TIL FJÖLSKYLDU
SINNAR Á ÞESSA RITVÉL
HANN HOPPAR Á
MILLI TAKKANNA
HVER SKRIFAÐI „HJÁLP ÉG
ER PADDA“ Á BRÉFIÐ
TIL ÖMMU?
GREINI-
LEGA
EINHVER
PADDA
Kalvin & Hobbes
FRAM OG TIL BAKA FRAM OG TIL BAKA ÉG VEIT ÞAÐ
EKKI. ÆTLI
BAÐKARIÐ
LEKI EKKI
FLÓÐ-
BYLGJA
Risaeðlugrín
© DARGAUD
HVAÐ Á ÞETTA EIGINLEGA AÐ ÞÝÐA?
HVERNIG EIGUM VIÐ AÐ HANDSAMA
MORÐINGJANN EF FÓRNARLAMBIÐ ER
RISIÐ UPP FRÁ DAUÐUM?
ÞETTA ER ALVEG HREINT SKAMMARLEGT!
ÞAÐ ER RÉTT! HVERNIG STENDUR Á ÞVÍ
AÐ ÞÚ VARST DAUÐUR FYRIR FIMM
MÍNÚTUM SÍÐAN EN ERT LIFANDI NÚNA?
Ö... ÉG SKIL EKKI ALVEG HVAÐ ÞÚ ERT AÐ FARA. ÉG
KOM HINGAÐ Í MORGUN TIL ÞESS AÐ VEIÐA BJELEMIT
VEIÐA
HVAÐ?
BJELEMIT ERU SKELJAR SEM ÉG NOTA OFT Í SALAT EÐA
SÚPU. ÉG HEF AÐ ÖLLUM LÍKINDUM BORÐAÐ OF MIKIÐ
AF ÞEIM, ÞVÍ MÉR VARÐ ILLT Í MAGANUM OG ÞESS
VEGNA LAGÐI ÉG MIG
OG ÞETTA! HVAÐ ER ÞETTA?!
ÞETTA ER SKELIN UTAN AF
BJELEMINUM. ÞAÐ ER EKKI HÆGT
AÐ BORÐA HANA
ANSANS!
ÞAÐ ÞÝÐIR
AÐ ÞÚ ERT...
FÓRNARLÖMBIN Í ÞESSU MÁLI ERU GREINI-
LEGA SKELFISKARNIR. ÞAÐ HEFUR VERIÐ
FRAMIÐ FJÖLDAMORÐ! OG MORÐINGINN ER...
HANN!!
HVAÐ?!?
BEINA LEIÐ Í
STEININN MEÐ ÞIG!
STJÓRI, GÆTIRÐU NOKKUÐ KALLAÐ Á LIÐSAUKA TIL
ÞESS AÐ GERA ÚTLÍNUR Í KRINGUM ÖLL
FÓRNARLÖMBIN
dagbók|velvakandi
Gott fólk á Íslandi
ÉG varð fyrir því óhappi í gær að
detta fyrir utan Rúmfatalagerinn í
Skeifunni. Þar var brugðið skjótt við
og kallaður út sjúkrabíll og fólkið,
bæði viðskiptavinir og starfsfólk,
veitti mér mikla umhyggju og brást
hárrétt við. Sömuleiðis lögregla og
sjúkraflutningamenn.
Ég vil þakka öllu þessu fólki kær-
lega fyrir og sömuleiðis fólkinu á
gjörgæslu Borgarspítalans. Það er
oft verið að gagnrýna þessar starfs-
stéttir og tala um sinnuleysi fólks við
svipaðar aðstæður og mér finnst
sjálfsagt að fram komi það sem vel er
gert.
Kærar þakkir enn og aftur,
Venjuleg húsmóðir
Guðríður Hannesdóttir.
Skattalækkanir
HVAÐ er eiginlega í gangi? Loksins
þegar forsætisráðherra tilkynnir
skattalækkanir til almennings auk
hækkunar á persónufrádrætti sem
er auðvitað alveg frábært þá koma
einhverjir sjálfskipaðir hagfræð-
ingar verkalýðshreyfingarinnar og
telja að vaxtabætur og barnabætur
komi sér betur fyrir almenning því
þær nái til allra. Það vill nú þannig til
að það eru mörg þúsund manns sem
kaupa ekki íbúð fyrr en eftir tvítugt
og fjölmargir eru þeir sem kaupa
aldrei íbúð heldur leigja. Þarna fara
þúsundir á mis við vaxtabætur. Það
vill líka þannig til að langflestir eign-
ast sín fyrstu börn eftir tvítugt og
ansi margir eignast alls ekki börn og
aðrir eiga uppkomin börn. Þarna eru
þúsundir sem fá engar barnabætur.
Hvað skyldu hagfræðingar meina
með því að vaxta- og barnabætur
komi sér best fyrir alla? Almennar
skattalækkanir og hækkun per-
sónufrádráttar kemur öllu vinnandi
fólki til góða og því velur forsætis-
ráðherra alveg hárrétta leið og vil ég
þakka honum fyrir það og vonandi
fer hann ekki að taka of mikið mark á
svokölluðum hagfræðingum verka-
lýðshreyfingarinnar.
Lesandi.
Litlaus Spaugstofa
ÓSKÖP finnst mér Spaugstofan, lit-
laus þessa dagana. Nær allt spaug
horfið og fíflagangur yfirsterkari
öðru. Aukaleikarar hafa komið vel út,
samt finnst mér meðhöndlun Þór-
halls Sigurðssonar sl. laugardags-
kvöld á íslenska fánanum ómerkileg
og til skammar fremur en skemmt-
unar. Vonandi verður Spaugstofan
betri í framtíðinni.
Svanur Jóhannsson.
Góð þjónusta
MIG, undirritaða, langar að þakka
fyrir mjög góða þjónustu í Gler-
augnabúðinni í Hagkaupum í Skeif-
unni. Svo langar mig að vita hvort
einhver eigi bókina Eintal með Gísla
á Uppsölum, útg. 1987. Ég óska eftir
að fá þessa bók annaðhvort gefins
eða ódýrt, eða þá í skiptum fyrir bók-
ina Völvu Suðurnesja. Vinsamlegast
hafið samband við Laufeyju í síma
581-3973.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
ÞESSI fagra mynd var tekin ljósaskiptunum í smábátahöfninni í Keflavík á
sunnudaginn sl. Blankalogn og sléttur sjór og það eina sem gáraði hafflöt-
inn var þessi litli bátur sem stímdi út fjörðinn.
Ljósmynd/Arnór Ragnarsson
Á haf skal nú haldið til veiða
FRÉTTIR
DR. MAMDOUH G. Salameh, olíu-
hagfræðingur og ráðgjafi World
Bank, mun heimsækja Háskóla Ís-
lands þriðjudaginn 16. október nk.
Í fréttatilkynningu segir að af því
tilefni muni hann halda erindi sem
hann nefnir: „Peak Oil: Myth or Rea-
lity?“ og fjallar um stöðu olíuvinnslu í
heiminum, framtíð hennar og þróun.
Þar kemur m.a. fram að hámarks-
framleiðslu olíu í heiminum var náð á
sl. ári og búist er við að hún fari
minnkandi næstu ár með hækkandi
olíuverði í kjölfarið.
Í umræðum um framtíð eldsneytis
á Íslandi er forvitnilegt að heyra
sjónarmið eins helsta sérfræðings
heims á þessu sviði.
Erindið verður flutt kl 17 í húsa-
kynnum Nýsköpunarmiðstöðvar Ís-
lands á Keldnaholti (áður húsakynni
Iðntæknistofnunar), í tilefni af því að
starfsemi Nýsköpunarmiðstöðvar í
samvinnu við Háskóla Íslands o.fl. er
að hefjast undir verkefnisheitinu
„Carbon Center“.
Allir eru velkomnir.
Framtíð olíuvinnslu í heiminum
FORSVARSMENN Vopnafjarðar-
hrepps, Borgarfjarðarhrepps, Seyð-
isfjarðarkaupstaðar, Breiðdals-
hrepps og Djúpavogshrepps fjölluðu
á fundi sínum 12. október 2007 um
vandamál þessara byggðarlaga, sem
stafa m.a. af fólksfækkun, ónógum
tekjum og fyrirsjáanlegum sam-
drætti í kjölfar ákvörðunar um nið-
urskurð á fiskveiðiheimildum.
Eftirfarandi ályktun var sam-
þykkt:
Lagt er til að strax verði skipað í
sérstaka verkefnastjórn um byggða-
áætlun byggðarlaga á Austurlandi
sem standa utan áhrifasvæðis álvers-
framkvæmda. Í verkefnastjórninni
eigi sæti fulltrúar ríkisvaldsins,
fulltrúar hlutaðeigandi sveitarfélaga
og fulltrúar atvinnulífsins. Frum-
kvæði að því að koma verkefnisstjórn-
inni á laggirnar verði á höndum
byggðamálaráðherra og starfið kostað
af opinberu fjármagni.
Hlutverk verkefnisstjórnar verði að
vinna tillögur um hvernig stuðla megi
að uppbyggingu atvinnuveganna í
framangreindum byggðarlögum.
Brýnt er að þessari vinnu verði flýtt
eins og frekast er kostur.
Staða jaðarbyggða
á Austurlandi