Morgunblaðið - 18.10.2007, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Páll, sem hér var nefndur, skrif-
aði þetta í bréfi, sem hann sendi
til kristinna manna í Rómaborg.
Þangað átti hann eftir að fara
síðar og þar var hann tekinn af
lífi sakir trúar sinnar á Krist.
En áður hafði hann verið á ferð
um Grikkland. Þá kom hann við í
sjálfri Aþenu og flutti þar ræðu á
virðulegum samkomustað
skammt þaðan, sem Sókrates var
dæmdur til dauða fjórum öldum
áður og hálfri betur.
Páll vissi vel hvar hann var
staddur.
Aþena var í hugum allra upp-
lýstra manna höfuðborg þeirrar
hellensku hámenningar, sem
hafði sett mót sitt á „heims-
byggðina“. Páll var, eins og aðrir
menntamenn samtímans, vel
mæltur á gríska tungu. Í ræðu
sinni vitnaði hann til grískra
skálda og fór með ljóðlínu eftir
eitt þeirra.
En hann var ekki kominn á
þennan tígulega vettvang til þess
að kynna sjálfan sig og sýna, að
hann stæði hverjum öðrum á
sporði í grískri mennt og andans
fimi. Hann var á ferðinni frá
einni borg til annarrar til þess að
„flytja fagnaðarerindið um Jesú
og upprisuna“, eins og segir í
ferðasögu hans (Post. 17, 18).
Um þetta ræddi hann við Gyð-
inga, sem voru búsettir í Aþenu, í
samkomuhúsi þeirra og við þá
Grikki, sem sóttu það hús af því
að þeir höfðu orðið snortnir af
þeirri guðstrú og siðgæðisboð-
skap, sem þar var að mæta.
Hann ræddi einnig á torgi
borgarinnar hvern dag við þá,
sem þar urðu á vegi hans.
Hann átti og orðastað við
heimspekinga.
Reyndar er sagt, að þeir hafi
átt í orðakasti við hann. Sumir
sögðu: „Hvað mun skraffinnur sá
hafa að flytja?“ Þeim var forvitni
á að heyra það en ekki líklegir til
þess að gangast upp við því.
Lúkas læknir og rithöfundur,
ferðafélagi og aðstoðarmaður
Páls, segir frá þessu og er auð-
finnanlega kímileitur.
Þeim félögum hefur ekki dul-
ist, hvað það virtist skoplega frá-
leitt tiltæki að leggja til atlögu
við þessa háborg hvers kyns
snilldar.
En Páll var óragur.
Honum var raunar boðið að
halda ræðu á veglegum vettvangi.
Þar sýndi hann, að hann kunni
reglur grískrar ræðulistar.
Hann var ekki að auglýsa það.
Honum lá annað á hjarta. Hann
sagði við Aþeninga, að sér virtist
þeir vera miklir trúmenn. Því
hvar sem hann fór í borginni
blöstu við helgidómar og goða-
myndir. Meðal annars, sem hann
hafði séð, var altari, sem á var
ritað: „Ókunnum guði“.
„Þetta, sem þér nú dýrkið og
þekkið ekki, það boða ég yður“,
sagði Páll.
Síðan sagði hann þeim í fáum
orðum, hvað hann hafði að boða.
Frá þessu er skýrt í Postula-
sögunni, 17. kapítula.
Það er læsileg frásögn, ein hin
skemmtilegasta, sem til er á
grískri tungu. Og þó engin
skemmtisaga, heldur áreiðanleg
heimild frá fyrstu hendi um sér-
stæðan stórviðburð á sögulegum
stað.
Á bak við léttan stíl má skynja
þungan nið í straumi heimssög-
unnar, sem er að ryðja sér nýjan
farveg.
Sigurbjörn Einarsson
Hvað viltu, veröld? (19)
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
DAGUR B. Eggertsson, borg-
arstjóri í Reykjavík, segir ljóst að
mannekla á leikskólum og þjón-
ustustofnunum verði ekki leyst á
einum degi. Hann ræddi málin við
sviðsstjóra og embættismenn á við-
komandi sviðum í gærmorgun og
hefur boðað til annars fundar árla
dags í dag fyrir fundinn í borgarráði.
Borgarstjóraskipti urðu í fyrra-
dag og Dagur tók fyrsta vinnudag-
inn í embætti snemma. Hann segir
að mjög mikilvægt sé að huga strax
að því sem snúi að mannauði borg-
arstarfsmanna og stöðunni í þjón-
ustu við fólk, því það sé það sem
brenni á fólki í daglegu lífi. Þess
vegna hafi hann hitt alla helstu lyk-
ilmenn úr hópi embættismanna
borgarinnar og kallað saman stjórn-
málamenn, sem hafi tekið við hinum
ýmsu ráðum, til að fá glöggt yfirlit
yfir stöðuna í þeim tilgangi að geta
sett málin fljótt og vel í ákveðinn
farveg.
Dagur segir að verkefnið snúist
um það að starfsfólkið, sem vinni oft
við erfið skilyrði á leikskólum,
grunnskólum og frístundaheimilum,
skynji að borgaryfirvöld meti störf
þeirra, vilji halda þeim hjá borginni
og bæta við starfsfólki eftir megni.
Í gærmorgun ræddi borgarstjóri
meðal annars við sviðsstjóra ÍTR,
leikskóla-, grunnskóla- og velferð-
arsviðs. Hann segir mikilvægt að
hafa sett málið í skoðun á fyrsta degi
og farið verði nánar yfir stöðuna í
dag.
Efndi gamalt loforð
Eftir að hafa komið umræddu
máli af stað hélt Dagur upp í Árbæ
þar sem hann stikaði út fyrir nýrri
þjónustumiðstöð og heilsugæslu.
Hann segir að gert sé ráð fyrir að
byrjað verði að grafa í dag og stefnt
sé að því að opna strax á næsta ári.
Þaðan lá leiðin í Gerðuberg í
Breiðholti. Dagur segir að þar hafi
hann fengið mjög hlýlegar móttökur
og margir samstarfsaðilar Gerðu-
bergs hafi verið á staðnum, meðal
annars hverfalögreglan, skólastjórn-
endur, leikskólabörn og dans-
flokkur.
Dagur segir að fyrir kosningarnar
2006 hafi eldri borgarar í Gerðu-
bergi brýnt sig til dáða og sagt að
þeir myndu tryggja honum borg-
arstjórastólinn. Hann hafi þá svarað
því til að hann vissi ekki hvort þeir
hefðu lög að mæla en gengi spá
þeirra eftir myndi hann heita á þá og
koma í Gerðuberg fyrsta dag sinn í
embætti. Hann segir að margt af
þessu fólki hafi verið á staðnum í
gær og mikið líf verið í húsinu. „Í
mínum huga er Gerðuberg dæmi um
það sem við eigum að reyna að sækj-
ast eftir, að styrkja hverfin, þjón-
ustuna úti í hverfunum, því það smit-
ar svo mikilli gleði og væntumþykju
út um allt samfélagið. Það skiptir
svo miklu máli fyrir samfélagið allt
að eiga svona hjarta í hverju hverfi.“
Dagur heimsótti líka Fellaskóla
og heilsaði upp á skólastjórnendur,
kennara og nemendur og síðdegis
átti hann meðal annars fund með
lögreglustjóra.
Morgunblaðið/Kristinn
Boðið upp í dans Það var líf og fjör í Gerðubergi í gær sem endranær og Unnur Eyfells tók dansspor með Degi B. Eggertssyni borgarstjóra.
Manneklan
ekki leyst á
einum degi
Morgunblaðið/Kristinn
Gleði Börn á leikskólanum Hraunborg sungu fyrir borgarstjóra.
KOSIÐ var í ráð og nefndir og formenn kjörnir á fundi borgarstjórnar í
fyrradag.
Björn Ingi Hrafnsson er formaður borgarráðs, ÍTR og stjórnar Faxaflóa-
hafna, Margrét Sverrisdóttir er forseti borgarstjórnar og formaður menn-
ingar- og ferðamálaráðs, Óskar Bergsson er formaður framkvæmdaráðs,
Svandís Svavarsdóttir er formaður skipulagsráðs, Sigrún Elsa Smáradóttir
er formaður leikskólaráðs, Oddný Sturludóttir er formaður menntaráðs,
Björk Vilhelmsdóttir er formaður velferðarráðs og Þorleifur Gunnlaugsson
er formaður umhverfisráðs.
Sigrún Elsa
Smáradóttir
Björk
Vilhelmsdóttir
Björn Ingi
Hrafnsson
Óskar
Bergsson
Þorleifur
Gunnlaugsson
Oddný
Sturludóttir
Svandís
Svavarsdóttir
Margrét
Sverrisdóttir
Breytt skipan í ráðum
GUÐMUNDUR
Steingrímsson,
varaþingmaður
Samfylkingar-
innar, verður að-
stoðarmaður
Dags B. Eggerts-
sonar borgar-
stjóra.
„Ég hef fengið
Guðmund Stein-
grímsson til að
hjálpa mér í þessu að minnsta kosti
fyrstu metrana,“ segir Dagur.
Hann segir að byrjunin skipti miklu
og „ég treysti engum betur til að
vinna það með mér“.
Dagur segir að því sé haldið opnu
hvað þeir starfi lengi saman en
Guðmundur verði aðstoðarmaður
sinn að minnsta kosti til áramóta.
Guðmundur
Steingrímsson
aðstoðarmaður
Guðmundur
Steingrímsson
VÖRÐUR, fulltrúaráð Sjálfstæð-
isfélaganna í Reykjavík, ákvað á
fundi í gær að haldinn yrði lokaður
fundur fyrir stjórnir Sjálfstæð-
isfélaganna í Reykjavík klukkan
hálfsex síðdegis í dag. Á fundinum
munu borgarfulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjavík skýra sín
sjónarmið varðandi slit meirihlut-
ans í borgarstjórn og framtíðina
hjá borgarstjórnarflokknum.
Borgarfulltrúar flokksins komu á
fund fulltrúaráðsins í síðustu viku
og skýrðu stöðu sína. Í kjölfarið
lýsti fulltrúaráðið yfir fullum stuðn-
ingi við borgarstjórnarflokk Sjálf-
stæðisflokksins og oddvita hans.
Sjálfstæðis-
menn funda
um borgarmál
NÝ stjórn Orkuveitunnar var kjörin
á fundi borgarstjórnar í fyrradag.
Stjórnin er skipuð sex mönnum,
fimm kjörnum af borgarstjórn
Reykjavíkur og einum kjörnum af
bæjarstjórn Akraness. Nýja stjórn
skipa Bryndís Hlöðversdóttir for-
maður, Ástráður Haraldsson, Jón
Sigurðsson, Kjartan Magnússon og
Júlíus Vífill Ingvarsson. Fulltrúi
Akranessbæjar er áfram Gunnar
Sigurðsson.
Ný stjórn
Orkuveitunnar