Morgunblaðið - 18.10.2007, Síða 24
ferðalög
24 FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Glæsilegur 40 síðna blaðauki
um tísku og förðun fylgir
Morgunblaðinu á morgun.
Ásíðasta ári vorum við mikið að veltafyrir okkur að skipta um húsnæði ogreyna að komast í sérbýli, en eftir aðhafa skoðað töluvert og reiknað enn
meira, varð niðurstaðan sú að fórnarkostnaður-
inn væri of mikill. Við tókum því meðvitaða
ákvörðun um að flytja ekki en leggjast frekar í
ferðalög,“ segja þau Bergdís Kjartansdóttir og
Þórður Kristjánsson sem fóru í fyrsta langa
ferðalagið sitt í sumar sem leið en það var mán-
aðarferð um Suðvestur-Bandaríkin. Þau lögðu
að fótum sér fimm ríki, átta þjóðgarða og rúma
4.000 kílómetra.
„Dætur okkar tvær voru með í för og
tengdasonur og þetta var frábær ferð í alla
staði. Það var gaman að vera öll saman á þess-
um þvælingi. Við Þórður og Þórdís yngri dóttir
okkar byrjuðum á því að fljúga frá Íslandi til
Denver í Colorado og dvöldum í tæpa viku hjá
bróður mínum sem þar býr,“ segir Bergdís og
bætir við að þangað hafi eldri dóttirin Bylgja
og tengdasonurinn Erik komið frá San Franc-
isco á bílaleigubílnum, en þau höfðu flogið út á
undan þeim. „Við keyrðum svo fimm saman til
vesturstrandarinnar og það tók tvær vikur. Á
leiðinni var ótal margt að sjá en við völdum að
keyra eftir sveitavegum en ekki hraðbrautum.
Við byrjuðum á að keyra til Moab í Utah þar
sem við fórum meðal annars í siglingu um flúð-
ir Colorado-árinnar en það reyndist minna fjör
en við áttum von á og var hálfgert flúðaflan, en
vissulega var náttúran stórbrotin þó að sigl-
ingin hafi verið með rólegra móti. Við heimsótt-
um marga þjóðgarða á þessari löngu leið og
þeir voru hver öðrum fegurri, Arches, Canyon-
lands, Capitol Reef, Bryce Canyon, Lake
Powell, Zion og Yosemite National Park. Við
skoðuðum líka Grand Canyon sem var kannski
ekki eins stórbrotið og við héldum en engu að
síður merkilegt.“
Skiptu stundum upp hópnum
Eftir að hafa komið við í Las Vegas lá leiðin
til San Diego og síðan fóru þau í rólegheitum
norður eftir strönd Kaliforníu með stoppi í Los
Angeles, Santa Barbara, Big Sur, Monterey og
Carmel. „Við enduðum ferðalagið á því að vera
viku í San Francisco þar sem Bylgja og Erik
voru í íbúðaskiptum við vini sína.“
Þau segja landslagið hafa verið magnað á
þeirri leið sem þau keyrðu. „Við héldum að
þarna væru bara steppur og auðn, en það var
öðru nær. Gróðurinn var mikill og trén uxu út
úr sprungum í fjöllunum og þau voru himinhá.
Náttúran einkenndist af gulum og rauðum lit-
um ævafornra jarðlaga og sorfins sandsteins.
Við vorum ekki alltaf sammála um hvað ætti að
skoða eða gera, þannig að við skiptum stundum
liði, sumir fóru í skoðunarferðir meðan aðrir
lágu í leti. En þetta gekk á allan hátt upp og
friðurinn hélst allan tímann. Bandaríkjamenn
mega eiga það að þeir eru mjög skipulagðir og
allt stenst hjá þeim.“
Bandaríkjamenn komu á óvart
Mest af tímanum voru þau hátt uppi í fjöllum
og hitinn var því sjaldnast óbærilegur. „Eina
nóttina sváfum við í rúmlega 30 gráða hita og
reykjarmekki frá skógareldum í Zion og það
var vissulega erfið nótt. Annars kólnaði yf-
irleitt vel á nóttunni og þá komu íslensku svefn-
pokarnir sér vel, en við vorum með tjald með
okkur og gistum oftast á tjaldstæðum þar sem
við höfðum pantað stæði með góðum fyrirvara.
Við gistum líka stundum á mótelum eða leigð-
um okkur hús sem var ágæt tilbreyting frá
tjaldinu. Þeir Bandaríkjamenn sem við hittum
voru mjög hjálplegir, indælir, vel menntaðir og
á móti stríðinu í Írak. Þetta kom okkur svolítið
á óvart því við vorum stútfull af fordómum um
að þeir væru leiðinlegir og illa upplýstir.“
Þau hafa þegar lagt á ráðin um næsta ferða-
lag sem verður til Andalúsíu í vor. „Þórdís ætl-
ar í málaskóla á Spáni með vinkonu sinni og við
ætlum að sækja þær þegar námsdvölinni lýkur
og hefja ferðalagið. Síðan stefnum við að því
fara til Suður-Ameríku á þarnæsta ári. Við
sjáum svo sannarlega ekki eftir að hafa valið
ferðalög fram yfir steinsteypu. Ef við hefðum
keypt okkur raðhús hefðum við þurft að borga
20 milljónir á milli og afborganir af þeim á
mánuði eru um 100 þúsund. Það má ferðast
heilmikið fyrir rúma milljón á ári.“
Hrikaleg gljúfur Allt er stórt í Ameríku og landslagið í Colorado-þjóðgarð-
inum var engin undantekning þar sem gljúfrin voru djúp og breið.
Capitol Reef-þjóðgarðurinn Nestistími hjá Þórði, Erik, Þórdísi, Bergdísi og Bylgju.
Arches-þjóðgarðurinn Sorfin fjöll og rauður litur einkenndu náttúruna og
ævintýraleg fjöllin minntu á kúrekamyndir.
Lögðust í ferða-
lög frekar en að
kaupa raðhús
Þau keyrðu í gegnum fimm ríki í Bandaríkjunum og skoðuðu
fjölmarga þjóðgarða. Kristín Heiða Kristinsdóttir hitti fjöl-
skyldu sem leggur meira upp úr ferðalögum en steinsteypu.
www.bna.blog.is
khk@mbl.is
Yosemite Valley Bíllinn góði var
smár í samanburði við fjöllin.
EM 2008 í handbolta
í Þrándheimi
FERÐASKRIFSTOFAN Úrval
Útsýn og Icelandair taka höndum
saman og bjóða áhugafólki um hand-
bolta upp á ferðir
á Evrópu-
keppnina í hand-
bolta sem haldin
verður í Þránd-
heimi í janúar
2008. Flogið verð-
ur beint til Þránd-
heims og gist á
fjögurra stjörnu hótelum í mið-
bænum. Hægt er að velja úr tveimur
ferðum: Annars vegar ferð á riðilinn
17.-21. janúar og er þá um að ræða
ferð á alla þrjá leiki Íslands í D-riðli
þar sem liðið mætir Svíum, Slóvökum
og Frökkum. Hins vegar ferð á leik-
ina í milliriðli sem fer fram 21.-25.
janúar. Þar bætast við þrjú efstu lið
úr C-riðli, en auk þeirra leika lið
Þýskalands, Spánar, Ungverjalands
og Hvíta-Rússlands í riðlinum.
vítt og breitt
www.uu.is