Morgunblaðið - 18.10.2007, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2007 27
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Palestínumaðurinn ZiadAmro, sem er blindur,segir að afar erfitt sé aðvera fatlaður á her-
numdu svæðunum. „Staða fatl-
aðra er hreinlega skelfileg og
einkum tvennt sem veldur því: Í
fyrsta lagi hernám Ísraela, fatl-
aðir geta alltaf gert ráð fyrir að
verða fórnarlömb morðárása af
hálfu ísraelskra hermanna. En
jafnframt er mikill skortur á að-
stoð við fatlaða við að finna sér
vinnu og koma undir sig fótunum
þannig að þeir geti bjargað sér
sjálfir. Atvinnu og mat skortir
fyrir mikinn hluta þjóðarinnar og
fatlaðir eru ekki sérstakt for-
gangsverkefni fyrir stjórnvöld.“
Amro er 41 árs, félagsráðgjafi
að mennt og lauk námi við há-
skóla í Bandaríkjunum, hann sótti
nýlega Íslendinga heim í boði fé-
lagsins Ísland-Palestína. Hann er
fæddur í Hebron en býr nú með
fjölskyldu sinni í Ramallah sem
einnig er á Vesturbakkanum.
Amro hefur verið einn helsti
frumkvöðullinn í baráttu fatlaðra
í Palestínu fyrir bættum kjörum
og var hann um hríð formaður
Öryrkjabandalags Palestínu.
Er hann bauð sig fram til þings
2006 fyrir flokk Mustafa Barg-
uthis læknis bakaði hann sér óvild
Fatah, flokks Mahmoud Abbas
forseta, og var í kjölfarið bolað úr
opinberu starfi sem hann hafði.
Aðspurður segir hann að því mið-
ur sé ekki skipað í embætti sem
sinni hagsmunum fatlaðra eftir
hæfileikum heldur flokkslit. Spill-
ing sé mikil í stjórnsýslu Palest-
ínu. „En við gefumst ekki upp,“
segir hann og brosir.
Amro segir allt starf Palest-
ínustjórnar nú snúast um að
bregðast við neyðarástandi og
sinna almenningi vegna þess að
Ísraelar séu að eyðileggja innviði
heilbrigðiskerfisins og annarra
samfélagsþátta. Hann segir yfir
100 fatlaða Palestínumenn hafa
týnt lífi í árásum Ísraela frá sept-
ember 2000 og yfir 6.000 hafa
orðið öryrkjar. Mörg heimili fyrir
fatlaða hafa verið skemmd eða
eyðilögð.
Stuðningur að utan
– Fá fatlaðir Palestínumenn mikla
aðstoð frá öðrum þjóðum?
„Já, það gerum við, t.d. eigum
við nú samstarf við samtök fatl-
aðra hér á Íslandi og félagið Ís-
land-Palestína hefur einnig stutt
okkur. Við erum mjög þakklát
fyrir þetta og aðra aðstoð sem við
fáum frá fólki um allan heim.
Samtök og stofnanir á Norð-
urlöndunum hafa stutt með pen-
ingum ýmis afmörkuð verkefni
fyrir fatlaða, einkum á endurhæf-
ingarstofnunum.
Við þurfum ekki aðeins fjár-
hagsaðstoð heldur tæknilega ráð-
gjöf á sumum sviðum. En auk
þess biðjum við um siðferðislegan
stuðning, að fólk beiti sér fyrir
því að stöðvuð verði mannrétt-
indabrot Ísraela gegn fötluðum
Palestínumönnum. Einkum á ég
þá við morð hermanna á fötl-
uðum.“
– Ráðast hermenn af ásettu
ráði á fatlaða?
„Stundum vita þeir að þeir eru
að ráðast á fatlaða, þeir gerðu
sprengjuárás á skóla fyrir blinda í
Ramallah og vissu fullvel hvaða
hús var um að ræða. Þetta voru
ekki mistök, hershöfðingjar Ísr-
aela segja að vopnin séu óskap-
lega nákvæm, frávikið þegar
sprengjunum sé miðað sé innan
við metra. Það er ekki hægt að
villast á geysimikilli byggingu á
Gaza og einhverju öðru. Húsið
kostaði tvær milljónir dollara og
var skóli fyrir blinda en var jafn-
að við jörðu.“
– Hvað hafa Ísraelar upp úr því
að gera vísvitandi árás á hús
blindra og annarra fatlaðra?
„Það vantar ekki að Ísraelar
séu alltaf með afsakanir á reiðum
höndum. Þeir segjast hafa miðað
á bíl með nokkrum mönnum ná-
lægt húsinu. En það var verið að
kenna í húsinu og þeir biðu ekki
eftir því að bíllinn færi á brott
heldur byrjuðu þeir að varpa
sprengjum sem tættu húsið í
sundur í leiðinni. Þeir refsuðu af
ásettu ráði öllum, þeir vilja kenna
okkur að veita ekki and-
spyrnumönnum skjól. Skilaboðin
eru: rekið á brott alla and-
spyrnumenn sem nálgast ykkur.
Þeir skutu ungan, heyrn-
arlausan mann í Nablus á Vest-
urbakkanum. Þeir drápu meira að
segja heyrnarlausan gyðing í
grennd við borgina Khalkyliya,
héldu að hann væri Palest-
ínumaður og kölluðu til hans að
nema staðar. En hann heyrði ekki
í þeim og var skotinn til bana.
Og svona er þetta fyrir alla
fatlaða Palestínumenn, það er
skotið og ekki einu sinni gert ráð
fyrir að um heyrnarlausa geti
verið að ræða. Ungur maður var í
hjólastól, lamaður eftir átök í
fyrstu uppreisninni, intifada.
Hann sat og drakk djús í mesta
sakleysi en var skotinn til bana af
hermönnum,“ sagði Palest-
ínumaðurinn Ziad Amro.
Morgunblaðið/RAX
Ótrauður Palestínumaðurinn Ziad Amro er blindur en lætur fötlunina
ekki hindra sig í að vinna að hagsmunum fatlaðra landa sinna.
Illt að vera fatl-
aður á hernumdu
svæðunum
Frammámaður palestínskra öryrkja
segir neyðina koma hart niður á þeim
m.a. Dýraríkið, stærstu gæludýraverslun
landsins, 1.000 fermetra verslun.[...] Við
leiðum fólk um búðina og það upplifir
ákveðinn ævintýraheim um leið og það er
að versla.“ Elías segir að eigendur Leik-
bæjar og Just4Kids hafi boðað fyrir um
ári að þeir ætli sér að ná vöruverðinu nið-
ur um 20%. Nú séu þeir að komast í þá
aðstöðu með opnun stórrar verslunar
sem geri kleift að ná hagkvæmari inn-
kaupum og lægra vöruverði. „Menn
munu strax sjá 20% verðlækkun,“ segir
hann.
u Toys’R’Us annars staðar á
dum og segist eiga von á að
leikföngum hér verði á svipuðu
rslununum í Noregi.
um bæði að opna miklu stærri
eð leikföng en við höfum verið
ð til og við verðum líka með fjöl-
að fyrir börn, s.s. ungbarnavör-
gn í barnaherbergi, fatnað o.fl. – í
llt sem lýtur að börnum, hæfni
þörfum,“ segir Elías Þorvarðar-
rslunina Just4Kids.
fum fengið fleiri til liðs við okkur,
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
ag Fyrsta Toys’R’Us-verslunin á Íslandi verður opnuð í dag við Smáratorg. Leikfangakeðjan rekur verslanir í 35 löndum.
k október Eigendur verslunarinnar Just4Kids segja hana verða ævintýra-
ona mun verslunarhúsið líta út þegar auglýsingaskiltin verða komin upp.
„ÞARNA er um að
ræða markað þar sem
einn aðili var orðinn
mjög stór. Ég tel fulla
ástæðu til þess að fagna
tilkomu þessara
tveggja aðila,“ segir Jó-
hannes Gunnarsson,
formaður Neytenda-
samtakanna, um þær
breytingar sem eru að
eiga sér stað á smá-
sölumarkaði með leikföng hér á landi með
opnun stórverslana Toys’R’Us í dag og
Just4Kids í lok mánaðarins.
Skerpa verulega á samkeppninni
„Þetta mun skerpa verulega á samkeppn-
inni í þessari grein og okkur hefur ekki
sýnst veita af. Þessar keðjur hafa boðað
verðlækkun og miðað við þessar yfirlýs-
ingar mega neytendur vænta þess að jóla-
gjafirnar verði eilítið ódýrari í ár,“ segir
Jóhannes.
Hann segir að yfirlýsingar forsvars-
manna nýrra verslana um að leik-
fangaverð verði 20% lægra en almennt
hefur tíðkast hér á landi gefi neytendum
tilefni til að ætla að verðlækkanir muni
eiga sér stað. „Síðan mun samkeppnin
verða harðari og aðrir munu væntanlega
endurskoða verðlagninguna hjá sér og
neytendur geta unað glaðari við sitt.“
Ódýrari
jólagjafir í ár
Jóhannes
Gunnarsson
þessa
ð að
rðan
ögunum í
viljað
ég held
g standa.
rú – ekki
i er svo-
n á ekki
fur hann
ar. Við
rg sæti
t að ná
eigum við
r því ekki
tel að
nn haldið
r sem
sningar
því betra verði það fyrir íhaldsmenn.
Efnahagurinn sé sterkur en blikur
séu á lofti sem eigi eftir að koma
íhaldsmönnum til góða. Þeir megi
samt ekki sofa á verðinum. Kann-
anir sýni þá núna með mikið forskot
á Verkamannaflokkinn en ekki séu
nema þrjár vikur síðan staðan var
allt önnur. „Það sem mér þykir at-
hyglisvert er á hversu mikilli hreyf-
ingu fylgið virðist vera. Fólk virðist
æ síður tengjast einum flokki órjúf-
anlegum böndum,“ segir Parish.
Parish er sem fyrr segir fulltrúi á
Evrópuþinginu. Hann segir eitt
stærsta málið nú á vettvangi Evr-
ópumála vera tilraunir manna til að
lauma stjórnarskrársáttmálanum
svokallaða inn bakdyramegin, en
sem kunnugt er rann hann út í sand-
inn fyrir tveimur árum þegar kjós-
endur í Frakklandi og Hollandi
höfnuðu samþykkt hans. Parish seg-
ir menn að vísu ekki tala um stjórn-
arskrá núna – þeir séu búnir að læra
sína lexíu – en 96% upprunalega
textans sé að finna í þeim sáttmála
sem menn nú vilji ná í gegn.
Breskir íhaldsmenn eru þó ekki á
móti öllu í sáttmálanum – raunar
segir Parish að nauðsynlega þurfi að
samþykkja tilteknar verklagsbreyt-
ingar sem helgast af því að aðild-
arríki ESB eru nú 27 en voru áður
15. Íhaldsmenn vilji hins vegar ekki
að stjórnvöld afsali sér yfirráðum yf-
ir eigin landamærum eða innflytj-
endamálum. Þá eru þeir engir aðdá-
endur evrunnar. „Ég er sjálfur afar
hlynntur stækkun ESB, bæði inn-
göngu Mið-Evrópuþjóðanna og
Tyrklands, enda vil ég víkka ESB út
en ekki dýpka samstarfið þannig að
það nái til frekari pólitísks samruna
en orðinn er,“ segir Parish.
rown
ar
Morgunblaðið/Frikki
Íhaldsmaður Neil Parish er formaður landbúnaðarnefndar Evrópu-
þingsins. Hann hefur setið á Evrópuþinginu frá 1999.