Morgunblaðið - 18.10.2007, Síða 28
neytendur
28 FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
Skilningur á hegðun neytenda er mjögmikilvægur í þeim nútíma, sem alluralmenningur lifir og hrærist í, þvíval neytenda á hollu eða óhollu fæði
getur haft bein áhrif á heilsufar fólks. Skiln-
ingur á hegðun neytenda er ekki síður mikil-
vægur í ljósi hagsmuna fyrirtækja, sem eru
að markaðssetja og selja matvæli, segir Rich-
ard Shepherd, breskur neytendasálfræð-
ingur, sem var gestur á Matvæladegi Mat-
væla- og næringarfræðafélags Íslands sl.
þriðjudag og gaf m.a. innsýn í áhrifaþætti,
sem hafa áhrif á fæðuval.
Richard er prófessor í sálfræði og aðstoð-
arforstjóri rannsóknarseturs við Surrey-
háskólann í Bretlandi. Rannsóknir hans fjalla
aðallega um að skilja hvaða ástæður liggja að
baki fæðuvali fólks, breytingar á neyslu-
hegðun og áhættu í sambandi við matvæli.
Hann er í forsvari fyrir breskt rannsókn-
arverkefni um miðlun og stjórnun á áhættu
og er verkefnisstjóri fyrir neytendarann-
sóknir í Evrópuverkefni um kornmeti auk
þess að taka þátt í nokkrum áhugaverðum
stórum Evrópuverkefnum m.a. um offitu og
gagnagrunna um efnainnihald matvæla.
Skoða þarf samspil áhrifaþátta
„Fjölmargir þættir hafa áhrif á fæðuval
fólks. Nefna má sem dæmi bragðgæði mat-
væla, viðhorf og sannfæringu neytenda,
markaðssetningu og auglýsingar auk menn-
ingarlegs bakgrunns.
að vera á skjön við foreldrana, en svo ná
menn þroska og taka þá upp lærða góða siði
frá æskuárunum,“ segir Richard og bætir við
að mannlegur breyskleiki snúist svo ekki síst
um það að allir „hinir“ séu í hættu, velji menn
óhollustu umfram hollustu, en alls ekki þeir
sjálfir.
Til að skilja hvað er ráðandi varðandi fæðu-
val neytenda er nauðsynlegt að skoða samspil
allra þessara áhrifaþátta og hvað það er sem
drífur fólk áfram í sínu neyslumynstri,“ segir
Richard.
„Ljóst er að konur eru mun meðvitaðri um
heilsu sína en karlar enda lifa þær að jafnaði
lengur. Karlar hafa ekki jafn miklar áhyggjur
af heilsusamlegu mataræði, en þeim mun
meiri áhyggjur af þeim afleiðingum, sem
óhollustan kann að valda þeim síðar á ævinni.
Einnig hefur komið fram kynslóðamunur í
heilsumynstrinu því eldra fólk velur og borð-
ar að jafnaði mun heilsusamlegri mat en þeir,
sem yngri eru enda er heilsan kannski ekki
efst á vinsældalistanum þegar maður er bara
ungur enn og hefur mörg ár til að láta af
heilsuspillandi ósiðum,“ segir Richard.
Neytendasálfræðingurinn segir það ekki
vera auðvelt verk að breyta neyslumynstri
fólks. „Vandinn er sá að þótt neytendur viti
hvað sé heilsusamlegt og að æskilegt sé að
borða mikið af ávöxtum og grænmeti, lifa
fæstir eftir þeim hollráðum. Nauðsynlegt er
að örva holla lífshætti strax á unga aldri því
ung börn eru áhrifagjörn og meðtaka hratt
það sem þeim er kennt. Á táningsaldri vilja
unglingar hins vegar kannski tjá sig með því
Fæðuval neytenda hefur
bein áhrif á heilsufar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hollusta Nauðsynlegt er að örva holla lífshætti strax á unga aldri því ung börn eru áhrifagjörn og taka hratt inn það sem þeim er kennt og
þó uppreisn geri gjarnan vart við sig á unglingsárum snýr fólk oft aftur til æskusiðanna.
Morgunblaðið/Golli
Neytendasálfræðingurinn Þó fólk viti vel
hvað sé hollt, fara fæstir eftir þeim holl-
ráðum þó konur séu meðvitaðri en karlar
og eldra fólk meðvitaðra en þeir, sem yngri
eru, segir Richard Shepherd.
Vandinn er sá að þótt neyt-
endur viti hvað sé heilsu-
samlegt og að æskilegt sé að
borða mikið af ávöxtum og
grænmeti, lifa fæstir eftir þeim
hollráðum.
Fjarðarkaup
Gildir 18. til 19. okt. verð nú verð áður mælie. verð
Fjallalambs lifrarpylsa, ósoðin, frosin..... 442 632 442 kr. kg
Fjallalambs blóðmör, ósoðin, frosin ....... 424 606 424 kr. kg
Nautagúllas úr kjötborði ....................... 1.398 1.595 1.398 kr. kg
Svínabógsneiðar úr kjötborði ................ 598 798 598 kr. kg
Ferskur 1/1 kjúklingur.......................... 454 699 454 kr. kg
Kjúklingaleggir ..................................... 396 609 396 kr. kg
4x80 g hamborgarar m/brauði.............. 398 498 398 kr. pk.
Fk ís, súkkulaði og vanillu ..................... 119 199 119 kr. ltr
Hagkaup
Gildir 18. til 21. okt. verð nú verð áður mælie. verð
Holta kjúklingalæri með legg, kryddl. ..... 455 759 455 kr. kg
UN nautahakk ..................................... 999 1.449 999 kr. kg
Kjötb. lambalæri, hvítl. og rósmarín ....... 998 1.577 998 kr. kg
Kjötb. ít. kjötb. í tómat rjómasósu.......... 1.498 0 1.498 kr. kg
Kjötb. Marsala kryddl. ungkálfavöðvi...... 2.398 0 2.398 kr. kg
Kjötb. sikileyskur kálfapottréttur ............ 1.998 0 1.998 kr. kg
Kjötb. lambasirloin m/myntu/hvítlauk ... 1.998 0 1.998 kr. kg
Epli, rauð, ný uppskera ......................... 164 194 164 kr. kg
Akursels gulrætur, 500 g ...................... 299 349 299 kr. kg
Bónus
Gildir 18. okt til 21. okt. verð nú verð áður mælie. verð
Kók light 2 ltr....................................... 79 139 39 kr. ltr
KS lambasvið, frosin ............................ 239 399 239 kr. kg
SS svínalundir ..................................... 1.469 2.203 1.469 kr. kg
Mozzarella ostur, ferskur, 125 g............. 149 159 149 kr. pk
Bónus kúmenbollur ,320 g ................... 159 198 159 kr. pk
Freschetta Romapitsur, 400 g............... 259 398 259 kr. pk
KF kofareykt folaldakjöt m/beini ........... 382 573 573 kr. kg
KF sveitabjúgu..................................... 299 359 299 kr. kg
Krónan
Gildir 18.til 21. okt. verð nú verð áður mælie. verð
Lambalæri af nýslátruðu ....................... 975 1.500 975 kr. kg
Lambasúpukjöt af nýslátruðu ................ 499 779 499 kr. kg
Goða saltkjöt, ódýrt.............................. 299 449 299 kr. kg
Ungnautagúllas ................................... 1.398 1.923 1.398 kr. kg
Móa kjúklingalæri, magnpakkning ......... 396 609 396 kr. kg
Goða svið, frosin í poka ........................ 389 598 389 kr. kg
Super franskar kartöflur, 1kg................. 299 369 299 kr. kg
Sprite/Sprite Zero, 2 ltr ........................ 89 153 45 kr. ltr
Krónu eldhúsrúllur ............................... 399 549 399 kr. pk.
Nóatún
Gildir 18. til 21. okt. verð nú verð áður mælie. verð
Grísahnakki, úrbeinaður, sneiðar ........... 899 1.598 899 kr. kg
Grísagúllas.......................................... 798 1.598 798 kr. kg
Grísasnitsel ......................................... 898 1.698 898 kr. kg
Grísa spare ribs ................................... 498 649 498 kr. kg
Ungnautahakk..................................... 998 1.398 998 kr. kg
Laxasteik m/lime & kóriander ............... 1.298 1.698 1.298 kr. kg
Nóatúns bayonneskinka ....................... 899 1.498 899 kr. kg
Riceselect Texmati hrísgr. hvít/brún ....... 314 449 314 kr. pk.
Samkaup/Úrval
Gildir 18. til 21. okt. verð nú verð áður mælie. verð
Kjötborð nautahamborgarar, 120 g ....... 139 186 139 kr. stk.
KEA léttreyktur lambahryggur ................ 1.249 1.795 1.249 kr. kg
Borgarnes Londonlamb, framparts ........ 1.139 1.634 1.139 kr. kg
Matfugl kjúklingur, 1/1 ferskur .............. 449 699 449 kr. kg
Coca cola, 1 ltr .................................... 89 157 89 kr. ltr
Egils mix, 2 ltr...................................... 99 178 45 kr. ltr
Merrild 103, 500 g .............................. 279 397 558 kr. kg
Jacobs pítubrauð fín, 6 stk.................... 99 140 99 kr. stk.
Borgarnes skólaskinka, 165 g............... 179 229 179 kr. stk.
Kjötvörur fyrir hversdagsmat og veislur
helgartilboðin
Leirvogstunga, framtíðarbyggingarlandReykvíkinga,“ eða eitthvað í þá veru var
auglýst í útvarpinu. Það varð Hálfdani Ár-
manni Björnssyni tilefni að bragnum „Hverju
má sökkva?“
Leirvogstunga heitir lagleg jörð,
löngum fóstraði búfjárhjörð.
Fólki, sem þarna forðum bjó,
frjósama moldin veitti nóg.
Nú skal þar reisa borg og bar,
bílfærar steypa göturnar.
Ónýtt skal mold og öllu breytt.
Enginn við þessu segir neitt.
Veita skal hrjóstri grjóta grið,
en götur steypa um frjólendið.
Sigmundur Benediktsson orti tvær ólíkar
haustvísur í síðustu viku: „Í þeirri fyrri er
horft úr rellu Arnarflugs í blíðviðri, en sú
seinni er ort við að flytja vinnutæki í myrkri
og leiðindaveðri.“
Geislar falla, glæstan sal
greypa allan myndum.
Haustið mjallar herðasjal
heklar fjallatindum.
Hreykir sér bára, hörfar nú sólin,
haustmyrkrið skárast að dróttinni.
Herðir sig kári, hrikta til bólin,
himinninn tárast í nóttinni.
Haustið mjallar
herðasjal
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Franskt salamí
Frá Sláturfélagi Suðurlands kemur nú á
markað spægipylsa sem krydduð er á franska
vísu. Hún er sérlega mild og
góð ein sér, auk þess sem
hún þykir henta vel með ost-
um og kexi og á vel við í
ýmsa brauð- og pastarétti. Franska spægipyls-
an fæst í öllum helstu matvöruverslunum.
Spægipylsa með pestó
Spægipylsa sem bragð-
bætt er með pestó er þá líka
komin markað frá SS. En
pestóið þykir eiga vel við
spægipylsubragðið, og er
áleggið því tilvalin á snitt-
urnar eða smurbrauðið og hægt að leika sér
með hana á forréttadiskinum.
Eldsnöggt í matinn
SS-býður einnig upp nýja vörutegund: álegg,
beikon eða kjöt sem búið er að skera, sneiða,
bita niður og jafnvel steikja. Vörurnar eru
hugsaðar til að auka þægindin fyrir neytendur
og spara þeim tíma. Um er
að ræða fjóra mismunandi
vöruliði; skinkustrimla,
pepperóní-sneiðar, eldaða
beikonbita og forsteikt hakk.
Skammtarnir henta sér-
lega vel þegar verið er að
búa til t.d. pitsur, pastarétti, salöt, brauðrétti,
mexíkóskar pönnukökur eða aðra rétti í þess-
um dúr.
nýtt