Morgunblaðið - 10.11.2007, Page 6

Morgunblaðið - 10.11.2007, Page 6
       !                               ! "         Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is LÚÐVÍK Geirsson bæjarstjóri í Hafnarfirði tekur undir ályktun Ungra jafnaðarmanna í skipulags- málum að því er varðar tillögu þeirra um að fara í heildstæða skipulagsvinnu í miðbænum frá Vesturgötu til Íshúss. Lúðvík bend- ir á að undanfarin 2-3 ár hafi farið fram umræða um framtíð svæðisins af hálfu eigenda lóða, þ.e. sveitarfé- lagið, Hafnafjarðarhöfn og einkaað- ilar. „En það hafa engar útfærslur verið lagðar fyrir til alvarlegrar umræðu eða samþykktar,“ segir hann. „Málið er því á byrjunarreit. Ég get alveg tekið undir að það eigi að fara ítarlega yfir þessi mál. Við höfum lagt þá línu að bærinn marki sínar skipulagsáherslur á þessu svæði áður en lengra verður hald- ið.“ Draga sem flesta inn í umræðuna Jafnframt hefur verið samþykkt í miðbæjarnefnd bæjarins að hefja umræðu um miðbæjarsvæðið og þróun og skipulag þar. Hvort sú vinna leiði til upptöku og breytinga á gildandi deiliskipulagi, verður að koma í ljós, að sögn Lúðvíks. „Það hefur verið mikil uppbygg- ing á miðbæjarsvæðinu og ég held að menn séu sammála um að menn vilji horfa yfir sviðið og draga sem flesta að þeirri umræðu og ákveða næstu skref,“ segir hann. Lúðvík segir engar aðrar athuga- semdir hafa borist bæjaryfirvöldum vegna þessa hluta í skipulagsmálum á svæðinu, enda hafi ekkert skipu- lag af svæðinu verið lagt fyrir. Tillögur á borðinu „Menn vita af því að þetta er eitt af þeim svæðum sem eru til um- ræðu,“ segir Lúðvík. „Það sem hangir kannski á þessari umræðu er að horft er til þess að fram- kvæmdaaðilar hafa kynnt tillögur sínar að töluverðri breytingu og íbúðabyggð á svæðinu milli Hval- eyrarbrautar og Óseyrarbrautar. Þessar tillögur liggja eingöngu á borðinu en hafa ekkert verið teknar til formlegrar meðferðar hjá bæn- um. Hafnarstjórn og skipulagsyfir- völd hafa ekki verið tilbúin að sam- þykkja þær eins og þær koma fyrir.“ Málið á byrjunarreit og ekkert skipulag lagt fyrir Bæjarstjórinn í Hafnarfirði vill ítarlegar umræður um skipulagsmál í miðbænum 6 LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR SVEINN Rúnar Hauksson, lækn- ir og formaður Félagsins Ís- land-Palestína, er staddur á her- teknu svæðunum í Palestínu. Sveinn hélt utan 30. september og hefur á síðustu dögum heimsótt og dvalið í Balata-flóttamannabúð- unum, Nablus, Jenin, Hebron, Bethlehem, Ramallah og Austur- Jerúsalem á Vesturbakkanum. Í dag ætlar Sveinn Rúnar að reyna að komast inn á Gaza-svæðið. Hann áætlar að vera í Palestínu til 16. nóvember. Síðustu daga hefur Sveinn Rún- ar m.a. kynnt sér starfsemi fær- anlegra heilsugæslustöðva Palest- ínsku læknahjálparnefndanna, starfsemi Rauða hálfmánans og bráðamótttöku barnadeildar Aug- usta Victoria-spítalans í Austur- Jerúsalem. Í gær sótti Sveinn Rúnar ráð- stefnu um málefni Aðskilnaðar- múrsins í Austur-Jerúsalem. Ætlun Sveins Rúnars er að dvelja á Gaza-svæðinu til 15. nóv- ember og heimsækja Ahli Arab Hospital sem rekið er af anglik- önsku biskupakirkjunni í Gaza borg, heilsugæslu og sjúkrahús á vegum UHWC (Samtök heilbrigð- isstarfsnefnda) og Barnaverkefni á vegum GCMHP (Gaza Community Mental Health Program) í Beit Hanoun, Heilsugæslu UNRWA í Gaza Beach flóttamannabúðum, PRCS endurhæfingarmiðstöðina í Khan Younis og barnaþorp SOS í Rafah. Reynir að komast inn á Gaza-svæðið Sveinn Rúnar Hauksson LANDEYJAHÖFN þykir líklegt nafn á nýja höfn sem gerð verður í Bakkafjöru, að mati Arnars Sigur- mundssonar formanns fram- kvæmda- og hafnarráðs Vestmanna- eyjabæjar. Nafnið þykir lýsandi um svæðið og tengja saman land og Eyjar. Þetta kom fram í héraðs- fréttablaðinu Fréttum í Vestmanna- eyjum. Innan skamms verður stofnaður hafnarsjóður um ferjuhöfnina í Bakkafjöru og verður rekstur henn- ar að 60% eign Vestmannaeyjabæj- ar og 40% í eigu Rangárþings eystra. Landeyja- höfn líklegt nefna fjögurra ára gamalt selspik sem þykir betra eftir því sem það er eldra, líkt og með rauðvín. „Veisluhöldin hafa breyst gríð- arlega á liðnum árum með því að eiginkonurnar eru nú farnar að hópast í veisluna með mönnum sínum. Fólk trúir ekki fyrr en það prófar réttina hvílíkt hnossgæti er SVONEFND Selaveisla Guð- mundar Ragnarssonar frá Flatey er nú orðin ein vinsælasta uppá- koman á veislumarkaðnum og hef- ur slegið það rækilega í gegn að uppselt er á hverju ári. Veislan byrjaði fyrir nokkrum árum sem lítil 40 manna skemmtun en spurð- ist út og er nú orðin að 250 manna stórveislu. Gildið er haldið í Haukahúsinu í Hafnarfirði í kvöld. Grillað selkjöt, súrsuð sels- hreifasulta, grafin gæs, hvalkjöt og hákarl er meðal veislurétta og virðist maturinn falla fólki það vel í geð að nú eru fyrirspurnir um þennan nóvemberfagnað byrjaðar að berast á miðju sumri. Jóhannes Kristjánsson eftirherma skemmtir fólki og að loknu borðhaldi er dansað til klukkan tvö. „Það líta margir á Selaveisluna sem ákveðin tímamót þar sem haustið er kvatt og við tekur upp- haf jólaundirbúningsins,“ segir Guðmundur. „Undanfarin ár hefur fólk nálgast Selaveisluna af miklu meiri alvöru en var á upphafs- árunum. Þarna er boðið upp á 30 tegundir af mat.“ Sem dæmi má um að ræða. Sem dæmi má nefna að kjöt af útselskópum, sem aldrei hafa nærst á öðru en móðurmjólk, bragðast eins og hreindýrakjöt og svartfugl í einum bita. Bragðið er mjög sérstakt og allt annað en fólk ímyndar sér.“ Stemningunni í Selaveislunni lýsir Guðmundur sem „gamaldags og ofurhressri sveitastemningu“. Veislan er aðeins einu sinni á ári og stendur ekki til að breyta því. „Selaveislan er haldin í minn- ingu forfeðranna og sérstaklega hugað að því að leggja rækt við hinar gömlu matarvenjur Íslend- inga,“ segir Guðmundur. Borða fjögurra ára selspik Árleg selaveisla Guðmundar slær í gegn Hnossgæti Guðmundur Ragnarsson með selasteik sem mun vera meira sælgæti en margur heldur. Morgunblaðið/Frikki ♦♦♦ „BRÝNT er að bregðast skjótt við breyttu umhverfi og treysta stöðu ís- lenskrar tungu í samfélaginu. Ef ís- lenska hörfar af einhverjum sviðum samfélagsins er hætt við að torvelt verði að vinna tungunni sinn sess þar á ný,“ segir í ályktun sem Íslensk málnefnd sendi frá sér í gær um stöðu íslenskunnar. „Mikilvægt er því að kveða skýrt á um stöðu íslenskrar tungu í stjórn- arskrá þannig að rétturinn til að nota íslensku í íslensku stjórnkerfi og almannaþjónustu á vegum hins opinbera sé tryggður. Sambúð þjóðtungu við erlend mál er ekki séríslenskt viðfangsefni held- ur alþjóðlegt. Fjölmargar þjóðir stunda alþjóðleg viðskipti um leið og þær standa vörð um tungu sína og menningu. Íslensk fyrirtæki, sem þurfa að ráða sér erlenda starfs- krafta, mega ekki gefa sér að útlend- ingar hafi ekki áhuga á að læra ís- lensku. Íslenska ætti að vera hluti af íslenskri útrás,“ segir ennfremur í ályktuninni. Sterk staða tungunnar Íslensk málnefnd telur að staða ís- lenskrar tungu í samfélaginu sé sterk. Um það vitni til dæmis ört vaxandi bókaútgáfa, aukinn lestur dagblaða og gróska í ýmiss konar vefskrifum. Mikilvægt sé þó að Ís- lendingar hugi að tungunni og sofni ekki á verðinum. Ályktunin birtist í heild á mbl.is. Íslenskan verði hluti af útrásinni Stöðu tungunn- ar skal treysta Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is JÓHANNA Sigurðardóttir félags- málaráðherra fjallaði um stærra hlutverk Vinnumálastofnunar á árs- fundi stofnunarinnar í gær. Ráðherra sagði stór verkefni blasa við sem leysa þyrfti á skömmum tíma vegna nýrra reglna um starf- semi erlendra og innlendra starfs- mannaleigna fyrir skömmu. Hún lýsti yfir mikilli ánægju með verk- efnið „Allt í ljós“, sem þegar hefði skilað viðeigandi árangri. Hún sagði þó nauðsynlegt að endurmeta að- stæður og ákveða framhaldið þegar verkefninu lyki í desember. Vegna samdráttar aflaheimilda og áhrifa hans á vinnuöryggi á lands- byggðinni sagði ráðherra að ýmissa mótvægisaðgerða væri að vænta frá stjórnvöldum. Til dæmis yrði 60 milljónum króna varið aukalega til starfsemi Vinnumálastofnunar næstu tvö árin til að mæta aukinni þörf á vinnumarkaðsráðgjöf og miðl- un. Atvinnusköpun kvenna „Svo mikil innleiðing nýrra laga og reglna á svo skömmum tíma er ekki æskileg, en sýnir að stofnunin býr yfir sveigjanleika og styrk,“ sagði Gissur Pétursson, forstjóri Vinnu- málastofnunar, þegar hann kynnti ársskýrslu fyrir síðasta ár á fund- inum. Með þeim orðum átti hann við breytingar á löggjöf í málefnum út- lendinga á vinnumarkaði sem urðu á síðasta ári. Að sögn Gissurar hafi 10% fólks á vinnumarkaði verið er- lendir ríkisborgarar þegar mest hafi verið og eftirspurn eftir þjónustu evrópsku vinnumiðlunarinnar á Ís- landi hafi margfaldast. Mikla eftirspurn vinnumarkaðar- ins sagði Gissur ekki síður hafa haft áhrif á innlendu vinnumiðlunina og fækkun langtímaatvinnulausra hefði verið mjög mikil á síðasta ári. Vegna samdráttar aflaheimilda sagði hann að félagsmálaráðuneytið stæði m.a. fyrir aukaúthlutun til styrktar atvinnusköpun kvenna á landsbyggðinni sem auglýst yrði inn- an skamms. Stofnunin býr yfir sveigjanleika og styrk Árangur þrátt fyrir mikið álag hjá Vinnumálastofnun

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.