Morgunblaðið - 10.11.2007, Blaðsíða 52
52 LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
AAA...
NÁTTÚRAN
HEYRÐU...
BÍDDU
NÚ VIÐ!
HVAÐ ER HÚN AÐ GERA Í
STOFUNNI MINNI?!?
ÉG
BRAUT
GLUGGA
ÞAÐ ER
HÆGT AÐ
VERA OF
GÓÐUR!
ÉG ÆTLA SKO EKKI AÐ LEYFA
NEINUM AÐ VAÐA YFIR MIG!
NEI, TAKK! ÞAÐ ER ÉG SEM Á
EFTIR AÐ VAÐA YFIR FÓLK!
ÞAÐ ER EINA LEIÐIN TIL AÐ
LIFA AF NÚ TIL DAGS... ÉG
VEÐ YFIR FÓLK ÁÐUR EN
ÞAÐ VEÐUR YFIR MIG!
ÞAÐ HLÝTUR AÐ VERA GOTT
AÐ HAFA LÍFSPEKI SEM
HJÁLPAR ÞÉR AÐ LIFA AF
PABBI! PABBI! ÞAÐ LENTU
GEIMVERUR Í GARÐINUM
HJÁ OKKUR!
HVERNIG
LÍTA ÞÆR
EIGINLEGA
ÚT?
EINS OG
STÓRAR,
BAKAÐAR
KARTÖFLUR.
VIÐ ÆTTUM
AÐ GERA
EINS OG ÞÆR
SEGJA!
OG HVAÐ
VILJA ÞÆR
FÁ?
ÞÆR
VILJA
ÞÚSUND-
KALL!
ÉG
VISSI
ÞAÐ
FYRST ÞÚ ERT
SVONA UPP-
TEKINN... VILTU
EKKI BARA LÁTA
MIG FÁ PENING-
INN OG ÉG KEM
HONUM TIL SKILA
HVAÐ ERTU AÐ
GERA, GUNNAR?
VÍKINGAR
HLAUPA BURTU
MEÐ KONURNAR Á
HERÐUM SÉR!
ÉG ER
MEÐ
BRJÓSKLOS
NEI, VIÐ
HITTUMST
Á NETINU...
ÞRÁTT FYRIR AÐ VERA FALLEG
ÁSÝNDAR ER DREKAFLUGAN
ÓGNVÆNLEGT RÁNDÝR
VEGNA SÉRSTAKRA
VÆNGJA SINNA GETUR HÚN
GRIPIÐ BRÁÐINA Á FLUGI...
OG RIFIÐ SÍÐAN AF HENNI
ÚTLIMINA EINN AF ÖÐRUM
ÞAÐ ER MERKILET AÐ
HORFA Á HEIMILDAR-
MYND HÉR...
ALLT ER SVO STÓRT OG MANNI
LÍÐUR EINS OG MAÐUR SÉ HLUTI
AF MYNDINNI
SEM ER KANNSKI
EKKI MJÖG GOTT Í
ÞESSU TILVIKI
OJJ! UGGH!
MARY JANE! GUÐI SÉ LOF AÐ
ÖRYGGISNETIÐ VAR Á SÍNUM STAÐ!
JÁ!
VIÐ ÆTTUM KANNSKI AÐ
ÞAKKA PETER... SEM ER
GREINILEGA Í GRENDINNI
ÞUNNUR
VEFURINN HANS
STÝRÐI MÉR Í ÁTT
AÐ NETINU
dagbók|velvakandi
Seðlabankann ætti að selja
Seðlabankann ætti að selja og það
strax með öllum sínum gögnum, fyr-
ir utan dyravörðinn. Það hefur sýnt
sig undanfarið að Seðlabankinn ger-
ir miklu meira ógagn en gagn í þjóð-
lífinu. Venjulegir málsmetandi menn
eru sammála um það.
Björn Indriðason
Borasettið hans Úlla
MÁGUR minn kom hingað til Sví-
þjóðar til að flísaleggja baðherbergi
fyrir systurson sinn, en gleymdi að
taka með sér borasettið þegar hann
fór heim aftur.
Ég sendi settið með pósti og varð
að fylla út skýrslu um innihald, sem
ég gerði. Fyllti í reit sem heitir gjöf
og reit sem heitir hvað kostar gjöfin,
ég skrifaði 2.000 sænskar kr., 18.000
ísl. kr.
Síðan skrifar tollurinn bréf til
móttakanda og biður um leyfi til að
skoða í pakkann og að sjálfsögðu var
það í lagi. Þeir kíktu á rykugt bora-
settið hans Úlla, skrifuðu nýtt bréf
til hans og sögðu að þetta væri alltof
dýr gjöf (hámarksgjöf 1.000 skr.) og
hvort hann væri tilbúinn til að borga
söluskatt af 1.000 kr. sænskum svo
hann gæti fengið gamla borasettið
sitt til baka sem löglega gjöf. Til
gamans sagt þá eru svona borasett
seld á 700 kr. hér í Svíþjóð.
Svíar eru ekki óvanir pappírs-
útfyllingum, en þessi skýrsla um
verð gjafar til móttakanda er eins-
dæmi og sérprentuð fyrir Ísland. Af-
greiðsludaman á pósthúsinu sagði
við mig að það hlyti að vera leið-
inlegt að fá skýrslu á undan gjöfinni,
því þá kæmi í ljós hver gjöfin væri,
og líka hvað hún kostaði. Ég svaraði
að það væri ekki í þessu tilfelli því
Úlli veit að þetta er gamla borasettið
hans sem hann gleymdi hér í vor, og
það er enginn reitur fyrir gömul
gleymd borasett á skýrslunni.
Þegar Úlli mágur fékk gamla
borasettið loksins var hann búinn að
bora götin fyrir löngu.
Þröstur Júlíusson
atvinnurekandi í Danaveldi
Vegfarendur athugið
Mér finnst ljótt að sjá hvað fólk ger-
ir í dag, mikið hefur verið um það að
það hafi verið keyrt yfir dýr og svo
bara keyrt í burtu. Fólk, ekki
gleyma því að dýrin eiga sér oftast
eigendur sem þykir vænt um þau,
sem vilja vita ef eitthvað hefur kom-
ið fyrir þau. Ef dýrið er ekki með
nafnspjald og ekki er hægt að
hringja í eiganda, hringja þá í lög-
regluna, þá á dýrið kannski ein-
hverja von um að lifa. Ekki bara
skilja dýr greyið eftir út í vegarkanti
til að deyja þar. Það er bara ekki
rétt! Með þessu er ég að reyna að
opna augu fólks fyrir að gera ekki
svona. Já, það er óþægilegt og leið-
inlegt að fara til eiganda eða hringja
í eiganda og segja frá slysinu, en það
er betra. Þá á greyið dýrið kannski
von á því að lifa eða fá þá að fara á
betri veg en liggjandi út í vegarkanti
í sársauka að bíða eftir að einhver
finni sig. Það er ekki rétt! Alls ekki
og ég vona innilega að fólk reyni að
bæta sig í þessu. Fyrir sumum eru
dýrin bara eins og barnið þitt er fyr-
ir þér. Ekki gleyma því! Takk fyrir
mig.
María Dögg Arnarsdóttir.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
HRINGURINN heldur árlegan handavinnu- og kökubasar sinn á Grand
Hóteli sunnudaginn 11. nóvember kl. 13.
Þar verða til sölu fallegir munir og heimabakaðar kökur ásamt jólakorti
félagsins 2007 sem er hannað af Kolbrúnu Sigurðardóttur myndlistarkonu.
Basarmunir eru til sýnis í glugga Herragarðsins í Kringlunni og Smára-
lind. Allur ágóði af fjáröflun félagsins rennur í Barnaspítalasjóð Hringsins.
Frikki
Jólabasar Hringsins
Lykill að fortíðinni
Sýningin er opin
alla daga frá 10–17
Aðalstræti 16
101 Reykjavík
www.reykjavik871.is