Morgunblaðið - 10.11.2007, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2007 51
Félagsstarf
Barðstrendingafélagið | Bingó og ball í Breiðfirðingabúð
kl. 20.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Haust- og afmælisfagnaður verður í
félagsmiðstöðinni 12. nóvember. Fagnað verður 20 ára
starfsafmæli með veislukaffi kl. 14.30, skemmtiatriði og
happdrætti. Skráning í s. 535-2760.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Opið hús í félagsheim-
ilinu Gjábakka 14. Dagskrá: tískusýning „tískan í þá góðu
gömlu daga“, kaffiveitingar o.fl.
Félagsheimilið Gjábakki | Fræðsluerindi 13. nóv. kl. 20, á
vegum íþróttafélagsins Glóðar. Þá munu Árni Gunnarsson
framkvæmdastj. og Gestur Ólafsson arkitekt kynna fyr-
irhugað heilsuþorp á Spáni.
Félagsheimilið Gjábakki | Krummakaffi kl. 9. Hana-nú
ganga kl. 10.
Félagsstarf Gerðubergs | Alla virka daga er m.a. opnar
vinnustofur og spilasalur, dans, kórstarf o.fl. Mánud. kl. 10
og þriðjud. kl. 13 er postulínsnámskeið. Á föstud. kl. 10 er
prjónakaffi/bragakaffi. Alla föstud. kl. 10. 30 er leikfimi
(frítt) o.fl. í ÍR-heimilinu v/Skógarsel. s. 575-7720.
Hæðargarður 31 | Ganga virka daga kl. 9 og laugard. kl.
10. Ókeypis tölvuleiðbeiningar til 14. des. á miðvikud. og
fimmtud. kl. 13.15-15. Skapandi skrif Þórðar Helgasonar
cand. mag. og framsagnarnámskeið Soffíu Jakobsdóttur
leikkonu. Námskeið í jólapakkaskreytingum, Hjördís Geirs
kl. 13.30 í dag. S. 568-3132.
Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Snælandsskóla, Víðigrund, kl.
9.30-10.30. Uppl. í síma 564-1490.
Kvenfélag Bústaðasóknar | Fundur 12. nóvember kl. 20 í
safnaðarheimilinu. Tískusýning frá versluninni Hjá Hrafn-
hildi. Gestur fundarins er Klara Hannesdóttir. Kaffiveit-
ingar.
Kvenfélag Kópavogs | Fundur verður 14 .nóv. kl. 20, í sal
félagsins í Hamraborg 10, 2.h., gengið inn sunnan til. Gest-
ur fundarins verður Katrín Þorkelsdóttir snyrtifræðingur.
Tískusýning frá versluninni Zik zak í Hamraborg. Gestir
velkomnir.
Laugardalshöll | Fræðslukvöld Glóðar verður 13. nóv. kl.
20. Árni Gunnarsson framkvæmdastjóri og Gestur Gunn-
arsson arkitekt kynna undirbúning að heilsuþorpi á Spáni.
SÁÁ félagsstarf | Félagsvist og dans í Von, Efstaleiti 7.
Vistin hefst kl. 20, dans að vistinni lokinni. Kiddi Bjarna
leikur fyrir dansi.
Slysavarnadeildin Varðan | Félagsfundur 12. nóvember kl.
20 í Gaujabúð við Bakkavör. Á dagskrá verður jólaföndur.
Félagskonur geta tekið með sér gesti, kaffiveitingar.
Kirkjustarf
Áskirkja | Safnaðarfélag Ásprestakalls verður með jóla-
bingó í safnaðarheimilinu kl. 14. Fjöldi eigulegra vinninga.
Fríkirkjan Kefas | Samkirkjulega bænagangan leggur af
stað frá Hallgrímskirkju kl. 14 og endar á Austurvelli þar
sem verður stutt samverustund. Kl. 18 verða tónleikar í
Laugardalshöll þar sem ýmsir tónlistarmenn koma fram.
dagbók
Í dag er laugardagur 10. nóvember, 314. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Á þeim degi munuð þér skilja, að ég er í föður mínum og þér í mér og ég í yður. (Jóh. 14, 20.)
Skyn – félag háskólanema meðsérstaka námsörðugleika,hóf starfsemi við HáskólaÍslands á þessu misseri.
Kári Gunnarsson er formaður félags-
ins og segir frá starfinu: „Félagið er
byggt á grunni Lesblindufélags HÍ,
en er opið námsmönnum með hvers
kyns hömlur sem komið geta niður á
námi, s.s. athyglisbrest og ofvirkni
og Tourette-heilkenni,“ segir Kári.
Línurnar lagðar
Félagsmenn hittast í hádeginu á
þriðjudögum út nóvember, áður en
félagið fer í jólafrí: „Við hittumst í
stofu 205 í Odda. Það sem af er vetri
hafa fundirnir einkum verið notaðir
til að leggja línurnar í starfi félags-
ins, en á næstu skólaönn er ætlunin
að vera með fjölbreytta dagskrá og
m.a. efna til fyrirlestra um námsörð-
ugleika,“ segir Kári.
Skyn hefur það að markmiði að
beita sér fyrir málstað allra þeirra
hópa sem eiga við sérstaka námsörð-
ugleika að stríða: „Ekki hvað síst er
þó félaginu ætlað að bæta úr skorti á
sýnileika fólks með námsörðugleika
innan háskólasamfélagsins,“ segir
Kári.
Ýmsar áskoranir
Að sögn Kára er nokkuð vel búið
að nemendum með námsörðugleika
við Háskóla Íslands: „Námsráðgjöf
háskólans veitir sérhæfða aðstoð
og sérúrræði eru til staðar sem
samræmast þörfum hvers og eins,“
útskýrir Kári. „En einstaklingar
sem eiga við námsörðugleika að
stríða þurfa einnig að líta inn á
við: Auk þess að fást við þær
hindranir sem fylgja námi, þurfa
þessir einstaklingar oft að ganga í
gegnum persónulegt sjálfsskoð-
unarferli sem líkja má við að koma
út úr skápnum. Hver og einn þarf
að átta sig á sjálfum sér, og horf-
ast í augu við takmarkanir sínar.
Við þurfum að glíma við fordóma,
staðalímyndir og væntingar sam-
félagsins og okkar sjálfra, en enn
þann dag í dag er fólki hætt við að
flokka þá sem eiga við erfiðleika í
námi að stríða sem annars flokks á
einhvern hátt.“
Fá má nánari upplýsingar um
starfsemi Skynjar með tölvupóst
til stjórnar á skyn.stjorn@gmail-
.com.
Nám | Félag háskólanema með námsörðugleika hittist alla þriðjudaga
Sýnileiki og stuðningur
Kári Gunnarsson
fæddist í Reykjavík
1979. Hann lauk
hönnunarnámi frá
Iðnskólanum í
Hafnarfirði, stúd-
entsprófi af eðl-
isfræðibraut
Menntaskólans í
Kópavgi og stund-
ar nú nám í landfræði við Háskóla Ís-
lands. Kári hefur starfað við tækni-
teiknun samfara námi. Hann var
meðlimur í stjórn FSS og er einnig
meðlimur JC. Sambýlismaður Kára er
Dan Martin Johannessen.
Tónlist
Café Aroma | Gummi Jóns, lagasmiðurinn úr
Sálinni hans Jóns míns, flytur efni af þrí-
leiknum Japl, Jaml og Fuður, ásamt fl. kl. 21.
Hamrar, Ísafirði | Gunnar Kvaran sellóleikari
og Anna Áslaug Ragnarsdóttir píanóleikari
halda tónleika kl. 15. Á dagskránni eru verk
eftir Bach, Beethoven og Brahms.
Kristskirkja Landakoti | Lokatónleikar Tón-
listardagar verða í Kristskirkju kl. 16. Þar flyt-
ur Dómkórinn í Reykjavík mótettur frá 16. öld
til okkar daga. Meðal þeirra er Jubilate Deo
eftir Gabrieli, Der Geist hilft unser Schwach-
heit auf eftir Bach og De profundis eftir Knut
Nystedt. Aðgangur 1.500 kr.
Laugardalshöll | Tónleikar verða í Laugardals-
höll kl. 18. Fram koma ýmsir Gospelkórar, tón-
leikarnir eru í framhaldi af bænagöngunni. Sjá
www.baenaganga.com
Rauða húsið | Tregasveit Kristjönu Stefáns
skemmtir kl. 21. Kristjana Stefáns söngur,
Agnar Már Magnússon píanó/orgel, Gunnar
Hrafnsson bassi, Scott McLemore trommur.
Skrúðgarðurinn | Nokkrir söngvarar af Skag-
anum flytja margar helstu perlur keltneskrar
tónlistar í kl. 20-23.
Tónberg - Salur Tónlistarskólans | Tónleikar
Vox Feminae og Fóstbræðra verða kl 16, í boði
Norðuráls. Miðaverð í forsölu kr. 2.000 en kr.
2.500 við innganginn. Forsala aðgöngumiða
er í verslun Eymundsson við Dalbraut á Akra-
nesi.
Myndlist
Gallerí Ágúst | 10. nóvember lýkur sýningu
Huldu Stefánsdóttur, hlutlaus, á hreyfingu.
Hulda sýnir málverk, ljósmyndir og mynd-
bandsverk. Opið miðvikudaga-laugardaga, kl.
12-17 og eftir samkomulagi.
Gallerí Fold | Sigurjón Jóhannsson sýnir. Hann
nam við Handíða- og myndlistaskólann og var
einn af fjórum stofnendum SÚM hópsins 1965
og sýndi með þeim fram til ársins 1971 og aft-
ur 1989. Auk þess hefur hann haldið margar
einkasýningar og tekið þátt í samsýningum
hér á landi en einnig í Danmörku og Hollandi.
Nýr sýningasalur | Langagerði 88. Jens
Kristleifsson sýnir málverk. Síðasta sýning-
arhelgi.
Söfn
Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Borg-
arskjalasafn Reykjavíkur og Þjóðskjalasafn Ís-
lands sameinast um dagskrá á opnu húsi að
Laugavegi 162 á norrænum skjaladegi 10. nóv.
kl. 11-15. Fyrirlestrar, skoðunarferðir, sýningar,
spjall, ættfræðingar, getraunir o.fl. Allir vel-
komnir, jafnt börn sem fullorðnir.
Skemmtanir
Café Aroma | Í kjölfar tónleika Gumma Jóns
mun plötusnúðurinn Júlli 15 halda uppi
stemmingu fram á nótt.
Uppákomur
Átthagafélag Vestmannaeyinga | Árlegur
handverksmarkaður Eyjamanna í Mjódd –
Álfabakka verður opnaður kl. 10 og stendur til
kl. 16.30, fjöldi góðra muna og ýmsar uppá-
komur að hætti Eyjamanna.
Kalmansvík | Hin árlega flugeldasýning á
Vökudögum er í boði Orkuveitu Reykjavíkur
og er um leið lokaviðburður hátíðarinnar. Flug-
eldasýningin fer fram í Kalmansvík kl. 20 og
sér Björgunarfélag Akraness um framkvæmd
hennar.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Nú líður að
lokum sýningar á fornminjum og fágætum list-
munum frá Wuhan í Kína í Gerðarsafni. Boðið
er upp á leiðsögn um helgina og hefst hún kl.
15 báða dagana. Að henni lokinni er þeim
gestum sem vilja boðið upp á höfuðnudd að
hætti Kínverja.
Mannfagnaður
Breiðfirðingafélagið | Félagsvist í Breiðfirð-
ingabúð 11. nóvember kl. 14. Fyrsti dagur í
þriggja daga keppni. Sjá nánar heimasíðu
Breiðfirðingafélagsins: www.bf.is
Hallgrímskirkja | Bænaganga, gengið frá
Hallgrimskirkju kl. 14 og áleiðis á Austurvöll.
Kennarasamband Íslands | Gönguferð með
Guðjóni Friðrikssyni sagnfræðingi um slóðir
skóla, nemenda og kennara í miðborg Reykja-
víkur. Mæting við Kennarahúsið Laufásvegi 81
kl. 10.30. Göngunni lýkur í Kennaraháskól-
anum. Léttar veitingar, ókeypis.
MÍR-salurinn | Opið hús verður í MÍR Hverf-
isgötu 105 kl. 17-20. Minnst verður þess að 90
ár eru liðin frá Október-byltingunni í Rússlandi
1917. Margrét Guðnadóttir læknir flytur ávarp
og sýndar verða heimildarkvikmyndir, 2 um
byltinguna, sú 3ja um ferð til Sovét 1954. Veit-
ingar.
Fyrirlestrar og fundir
Þjóðskjalasafn Íslands | Sameiginlegt opið
hús Þjóðskjalasafns og Borgarskjalasafns á
Laugavegi 162, kl. 11-15. Fyrirlestrar, sýningar,
skoðunarferðir, Ættfræðifélagið, ORG ætt-
fræðiþjónusta, Sögufélag, getraun fyrir börn
og fullorðna, kaffiveitingar o.fl. Nánari uppl. á
www.skjaladagur.is
Frístundir og námskeið
Breiðholt | Íslenskur skrappdagur verður
haldinn í Breiðholtsskóla frá kl. 12-19. Sýni-
kennsla verður á staðnum fyrir byrjendur og
lengra komna. Frítt er inn og allir velkomnir.
Nánar á skrappa.is
Morgunblaðið/Ómar
MORGUNBLAÐINU hefur
borist eftirfarandi frá Félagi ís-
lenskra stórkaupmanna:
„Afstaða FÍS til frumvarps til
laga um breytingu ýmissa laga-
ákvæða sem varða sölu áfengis
og tóbaks:
„Allt eða ekkert“
Takmörkun frjálsrar sölu
áfengis, við ákveðið áfengisinni-
hald eins og frumvarpið gerir
ráð fyrir, mun væntanlega leiða
til kærumála vegna röskunar á
samkeppni sem slíkt fyrirkomu-
lag hefur í för með sér. FÍS er
þeirrar skoðunar að afnám ein-
okunar verði að ná til alls áfeng-
is, án tillits til styrkleika þess.
Aðlögunartími
Sala áfengis hefur verið í
höndum ríkisins frá árinu 1922
eða í 85 ár og því er eðlilegt að
markaðurinn þurfi tíma til að
gera ráðstafanir og aðlagast
breytingunum. FÍS telur því að
sá aðlögunartími sem frumvarp-
ið gerir ráð fyrir sé of stuttur og
þurfi að vera a.m.k. eitt ár.
Áfengisgjald verður
að lækka áður eða
á sama tíma
Skattar (áfengisgjöld og virð-
isaukaskattur) eru stór hluti af
útsöluverði áfengis (60-70% af
bjór og léttvíni og 80-90% af
sterku áfengi). Álagning ÁTVR
er mjög lítil (6,85% á sterkt vín
og 13% á léttvín og bjór). Ef
áfengisgjöld verða ekki lækkuð
mun það hafa eftirfarandi í för
með sér:
Sérverslunum verður ekki
stætt á rekstri með svo lága
álagningu og mun því verð á
áfengi hækka verulega frá því
sem nú er.
Af þessu getur síðan leitt fá-
keppni, neyslustýring og minna
vöruúrval, en nú er. Markaður-
inn verður því fyrst og fremst
verðdrifinn.
Aðgengi landsbyggðarinnar
að góðu úrvali vína verður mun
verra.
Íslendingar eiga heimsmetið í
áfengisgjöldum
Áfengisauglýsingar leyfðar
með takmörkunum
Gera verður breytingar á
lagaákvæðum um áfengisauglýs-
ingar og áfengiskynningar ef
sala áfengis verður leyfð á opn-
um markaði.
Ríkt hefur mikil lagaóvissa
varðandi áfengisauglýsingar.
Betra er að hafa skýr lög en lög
sem bjóða upp á að fram hjá
þeim sé farið:
Óljóst er hver ber ábyrgð, sbr.
nýgengnir dómar.
Mikið hefur verið farið á bak
við lögin, sbr. léttbjórsauglýs-
ingar.
Áfengisauglýsingar eru leyfð-
ar í erlendum miðlum sem eru til
sölu í öllum bókabúðum sem og á
vefnum.
FÍS mun leggja áherslu á að
fyrirtæki innan greinarinnar
muni setja sér siðareglur um
áfengisauglýsingar.
FÍS leggur áherslu á að allt
forvarnarstarf verði aukið veru-
lega frá því sem nú er.“
Afnám einokunar
nái til alls áfengis
FRÉTTIR
Á INNKAUPARÁÐSTEFNU
ríkisins, sem haldin var 6. nóv-
ember sl., voru 8 ríkisstofn-
unum veittar viðurkenningar
fyrir að hafa tileinkað sér
notkun á Innkaupakorti rík-
isins og færslusíðu Master-
Card sem hluta af rafrænu
innkaupakerfi ríkisins.
Þetta voru: Sýslumaðurinn á
Selfossi, Heilsugæsla höf-
uðborgarsvæðis, Kenn-
araháskóli Íslands, Íslenskar
orkurannsóknir, Fjölbraut-
arskólinn í Breiðholti, Svæð-
isskrifstofa um málefni fatl-
aðra í Reykjavík,
Landbúnaðarháskólinn Hvann-
eyri og Listaháskólinn.
Auk þess fengu Stuðlar sér-
staka viðurkenningu fyrir
frumkvöðlastarf við innleið-
ingu Innkaupakorts ríkisins en
Stuðlar hafa verið virkir not-
endur frá því fyrstu kortin
voru gefin út.
Innkaupakort ríkisins var
þróað af Kreditkorti hf. í sam-
starfi við Fjársýslu ríkisins og
Ríkiskaup. Markmiðið var að
einfalda innkaupaferla, auð-
velda útgjaldastýringu vegna
smærri innkaupa og þar með
ná fram sem mestu hagræði
við innkaupin. Kortið hefur
verið í notkun frá árinu 2000
og hafa nú nánast allar stofn-
anir ríkisins tekið það í notkun
ásamt færslusíðunni en á henni
má sjá allar úttektir kortsins,
bókhaldsmerkja þær og senda
rafrænt inn í viðkomandi bók-
haldskerfi, hvort sem um er að
ræða innan stofnunar eða til
Ríkisbókhalds, segir í frétta-
tilkynningu.
Viðurkenning Halldór Hauksson, Stuðlum, tekur við viðurkenn-
ingarskjali af Viktori Ólasyni, framkvæmdastjóra Kreditkorts.
Júlíus S. Ólafsson, forstjóri Ríkiskaupa, fylgist með.
Ríkisstofnanir fá
viðurkenningu