Morgunblaðið - 10.11.2007, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 10.11.2007, Blaðsíða 24
530 1800 52.500.000 Glæsilegt 181,7 fm. 5-6 herb. endaraðhús, staðsett innst í botnlanga. Innréttingar sérsmíðaðar frá Fagus, gólfefni ljósar marmara flísar og hnotuparket. Stór sópallur á móti suðri og vönduð sóltjöld frá Ljóra fyrir öllum gluggum. Laust til afhendingar 15. des. 2007 BÓKIÐ SKOÐUN S. 530 1800/1811 Asparholt - 225 Álf. daglegtlíf Lyngholt kalla þau bústaðinn sem minnir helst á rauða rós þar sem hann stendur í hlíðinni upp af Rauðavatni. »26 innlit Í samskiptum við fólk er gott að hafa í huga hvort viðkomandi sé eftir litunum gul, rauð, græn eða blá týpa. »28 daglegt Hjónin Ólafur Sigurjónsson og Bergþóra Guðbergsdóttir breyttu gömlu fjósi í listsýning- arsal. »31 vaxtarsprotar Þægilegur lífsstílsfatnaður nýt- ur æ meiri vinsælda, enda gefst þar með góð leið til að brúa bil á milli tísku- og útivistar. »28 tíska Gera á reiðvegakort um Rang- árvallasýslu og setja á netið svo að prenta megi út reiðleiðir og upplýsingar þeim tengdar. »30 bæjarlífið Ekkert sem ég var að gerabenti til þess að ég færiþessa leið; ég var í minnivinnu og var að hugsa um eitthvað allt annað – ég er trúuð og í gegnum bæn kom það sterkt til mín að fylgja þessari hugmynd eftir. Það gekk vel og allar dyr voru opnar,“ segir Sigurbjörg, sem nefnir fram- leiðslu sína Litlu börnin okkar. „Blessunarorðin nota ég vegna trúar minnar á mátt orðanna og verndandi áhrifa þeirra – mér finnst skrítið þegar foreldrar kaupa boli með vafasömum skilaboðum. Stafa- gerðina og vörumerkið hannaði ég en ég lagði áherslu á að bómullin í föt- unum væri góð, en fötin eru fram- leidd á Indlandi og prentuð í Hol- landi. Ég er ánægð með sniðin en framleiðandi þeirra gerir föt fyrir barnaverslanir um allan heim. Ég er ekki lærður hönnuður og lít ekki á mig sem slíkan – ég er eingöngu millistykki fyrir þessa hugmynd og innblásturinn kom í gegnum trúna. Ég er ekkert viðkvæm fyrir því og fer ekki leynt með trú mína. Ég tel mig vera á jörðinni með hana og ég er á móti því að vera að lemja fólk í hausinn með Biblíunni; en trúin hef- ur veitt mér frið og fjölskyldu minni líka,“ segir Sigurbjörg. „Ég var búin að lesa mikið í og um önnur trúar- brögð, en í gegnum kristna trú fann ég frið. Heimilið var blessað og eftir þennan viðsnúning var annar andi svífandi yfir heimilinu.“ Börnin gjalda fyrir efnahags- kapphlaup foreldranna Sigurbjörg vann áður fulla vinnu en minnkaði við sig vinnu og getur nú betur sinnt heimilinu. „Það er þó ekki þannig að ég sjái um allt – við á heimilinu hjálpumst að með það sem gera þarf. En núna er það þannig að ég er heima og tek á móti börnunum eftir skóla og aðstoða við heimanám og fleira sem þarf að gera; það er rekstur að halda heimili,“ segir hún. „Það er skilgreiningaratriði hvað hamingja er og hver gildi manns eru, en þessi atriði eru mikilvæg fyrir mig. Mér finnast börnin í þjóðfélag- inu oft gjalda fyrir kapphlaupið í efnahagsmálum. Við sem foreldrar erum ekki saklaus og mér finnst að við eigum að axla þá ábyrgð, að koma góðu fólki frá okkur og það er heil- mikil vinna; við hugsum mikið um titla og hvaða stöðum við gegnum í vinnunni. Samviskubitið er oft ráð- andi – full af samviskubiti kaupum við dót fyrir börnin okkar, bæði til að fylla upp tómið okkar gagnvart af- skiptaleysi og til að sýna að okkur sé ekki sama. Það er ekki dótið sem þau vantar – heldur vilja þau vera með okkur og finna að við séum til staðar. Metnaður margra er að eiga dýra veraldlega hluti – það er í sjálfu sér í lagi, en forgangsröðunin er mikil- vægust. Ég myndi vilja að Reykja- víkurborg yrði leiðandi afl í um- ræðunni um fjölskyldumál. Mörg fyrirtæki tala um fjölskyldustefnu, en hún er bara í orði, ekki á borði. Í Danmörku eru fjölskyldumálin alltaf í forgrunni, það væri gott markmið að vinna að.“ Það er skoðun Sigurbjargar að margir Íslendingar séu í kapphlaupi við gerviþarfir og fyrir vikið verði fólk þreytt í lífsgæðahlaupinu – það sé auðvelt að týnast í kapphlaupinu. „Það varð viðsnúningur í mínu lífi þegar ég gat loks horft á íslenskt samfélag úr fjarlægð; meðvitað reyni ég að standa fyrir utan kapphlaupið, en kirkjan og trúin hjálpuðu mér mikið við að forgangsraða og skoða líf mitt upp á nýtt. Það er skilgrein- ingaratriði hvað hamingjan er og hver og einn þarf að huga að sínum gildum. Margir uppgötva það seint. Mér finnst gott að eiga stundir með börnunum – við lesum fyrir þau, heimsækjum ömmu og afa – svona eins og gert var í gamla daga. Strák- urinn minn er í einni íþrótt en ekki mörgum. Ég sækist ekki eftir því að eiga heimili sem er eins og uppstill- ing í blaði; ég vil bara að fjölskyldu og vinum líði vel inni á heimilinu. En það að eiga frið í amstri dags- ins er algjör fjársjóður,“ segir Sig- urbjörg að lokum. Hamingjan skilgreind upp á nýtt Morgunblaðið/Ómar Hönnuðurinn Sigurbjörg Bergsdóttir ásamt börnum sínum þeim Rögnu Marí og Höskuldi Árna. Sigurbjörg Bergsdóttir er lærður stjórnmálafræðingur og starfar sem sérfræðingur á fyrirtækjasviði Landsbankans. Hönnun á barnafötum með blessunarorðum Biblíunnar bættist svo við nýlega. Soffía Guðrún Jóhannsdóttir ræddi við hana. Ungbarnafatnaður Blessunarorðin notar Sigurbjörg í hönnun barna- fatnaðarins enda trúir hún á mátt orðanna og verndandi áhrif þeirra. Með bæn á brjósti Trúin leikur stórt hlutverk í lífi Sigurbjargar og var innblásturinn að fatalínunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.