Morgunblaðið - 10.11.2007, Blaðsíða 28
Krúttlegur
lífsstílsfatnaður
Dúnvesti Hlýtt dúnvesti fyrir
dömur frá Cintamani, 14.990
kr., og „soft shell“ jakki undir,
19.990 kr. Intersport.
Fartölvubakpoki Vatnsheldur
bakpoki fyrir fartölvu frá Dak-
ine, 6.990 kr. Intersport.
Dömukuldaskór Vatnsheldir
dömukuldaskór frá Viking, 12.990
kr. Intersport.
Hlý Góð kuldaúlpa fyrir herra
frá Nord Blanc, 19.995 kr. Ís-
lensku Alparnir.
Kuldabolavernd Prjónuð
dömuhúfa, 1.995 kr., og
flísvettlingar, 1.995 kr.
Íslensku Alparnir.
Loðlúffur Flott-
ar loðlúffur,
5.990 kr. Útilíf.
Þægilegur lífsstílsfatnaður
verður æ vinsælli og brúar bil
á milli tísku- og útivistar.
Hann fylgir tæknilegum eig-
inleikum útivistarfatnaðar
eftir að miklu leyti, en er
öllu frjálslegri í sniðum og
litasamsetningu. Alls
kyns mynstrum, segir Hild-
ur Inga Björnsdóttir, er
blandað saman og þegar hug-
myndafluginu er gefinn laus
taumur verður stíllinn persónulegur og jafnvel
dálítið krúttlegur.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Loðkragi Hlý og vönduð
dömuúlpa frá Carhartt með
loðkraga sem hægt er að
taka af, 22.990 kr. Smash.
tíska
28 LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Ánámskeiðinu verður skoðaðhvernig við hegðum okkurvið fyrstu kynni og á vinnu-
stað; til dæmis hvernig við heilsum
og á hvern hátt við notum brosið.
Fólk sem við þurfum að umgangast í
daglega lífinu er misjafnt að gerð og
því gildir ekki sama „samskiptaað-
ferð“ við alla,“ segir Lísbet, sem
starfar einnig sem ráðgjafi hjá fyr-
irtækinu Inside Learning and Deve-
lopment. „Þar notum við einfalt
kerfi við greiningu á manngerðum,
ef svo má segja, og skiptum ein-
staklingum niður í litina gulan, rauð-
an, grænan eða bláan.
Ef þú ert t.d. í samskiptum við
bláan einstakling þá geturðu verið
viss um að hann er mjög formlegur
og yfirvegaður í öllum háttum. Þú
skalt hvorki kyssa hann á kinn við
fyrstu kynni né fara of nálægt hon-
um; hér þarf allt að vera í röð og
reglu. Í samskiptum við gulan ein-
stakling er mikilvægt að vera alls
ekki formlegur. Þá er heppilegast að
spjalla aðeins fyrst um daginn og
veginn og síðan vinda sér í við-
skiptin.
Gulur, rauður, grænn og blár
Til að skýra þessa skiptingu betur
get ég tekið dæmi um ferð til Egils-
staða sem einstaklingar í þessum
fjórum litum eru að leggja af stað í.
Blár: Hann vill vita nákvæmlega
hvenær verður lagt af stað og hve-
nær komið er á leiðarenda. Hvað
þarf að borga í bensín? Það er ekki
nóg að segja að það sé líklega í
kringum 1.500 krónur, það verður að
vera nákvæm upphæð. Hann verður
að vita hvort stoppað verði á leiðinni
til að borða eða hvort það eigi að
taka með nesti. Og ef svo, hversu
margar samlokur? Dagskráin verð-
ur að vera skipulögð og snyrtilega
útprentuð á blaði, alls ekki krump-
uðu.
Rauður: Hann fer ekki til Egils-
staða nema hann sé handviss um að
það sé skýrt markmið með ferðinni.
Tími hans er mjög dýrmætur; hann
vil alls ekki eyða honum í vitleysu.
Það þarf bara að segja honum
klukkan hvað komið verði á leið-
arenda og hvenær til baka.
Gulur: Hann er til í að koma með
Að þekkja sjálfan sig og aðra
Konum hættir til að
vera ragari við að nýta
sér tengsl en karlar,
segja þær Lísbet Ein-
arsdóttir og Rúna
Magnúsdóttir. Hrund
Hauksdóttir ræddi við
Lísbet, en þær eru að
fara af stað með nám-
skeiðið Tengsl og tæki-
færi.
daglegt líf
ÞAÐ ER MEÐ HUGANN EINS
– ÞÚ GETUR UNNIÐ Á HVORT