Morgunblaðið - 10.11.2007, Page 10
10 LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Eigum við bara að missa ofan af okkur kofann, og ekkert geta rétt lillanum okkar um jólin?
VEÐUR
Hvað er Svandís Svavarsdóttir,oddviti vinstri grænna í borg-
arstjórn, að fara, með nýjustu
meldingum sínum um útrás OR?
Nú gerir borgarfulltrúinn ekkiathugasemdir við þau orð
hins margorða
borgarstjóra, að
stefnan sé sú að
Orkuveitan
verði áfram í út-
rás og að alls
ekki sé útilokað
af hálfu aðaleig-
anda fyrirtæk-
isins að af frek-
ara samstarfi
kunni að verða
við Geysir Green
Energy.
Svandís Svavarsdóttir, leiðtogistýrihóps borgarstjórnar um
stefnumörkun Orkuveitunnar til
framtíðar þarf að skýra þessi
sinnaskipti sín. Hún þarf að skýra
þau með rökum.
Hún þarf að skýra, þannig að al-menningur í Reykjavík, eig-
endur Orkuveitu Reykjavíkur,
skilji hvað felst í þessum orðum
hennar, sem birtust hér í Morg-
unblaðinu í gær:
Ég hef sagt að með niðurstöðuborgarráðs í síðustu viku vor-
um við ekki að útiloka neitt um
næstu skref en við erum jafnframt
þeirrar skoðunar að það verði
ekkert gert nema hagsmunir al-
mennings verði tryggðir. Það er
algjörlega á hreinu...“ Mörg orð
Svandísar þar, rýrt innihald.
Hvaða leið á borgarfulltrúinn tilbaka, þannig að kjósendur
gruni hana ekki um að hafa fengið
sama milljarðaglampann í augu
og hún hefur vænt aðra stjórn-
málamenn um að hafa fengið, þeg-
ar útrás REI hefur borið á góma?
Er milljarðaglampi í augnkrókum
kannski bráðsmitandi fyrirbæri?!
STAKSTEINAR
Svandís
Svavarsdóttir
Hvað meinar Svandís?
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
!
!
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
!
!
"#
$
%
:
*$;<
! "
# $
*!
$$; *!
& ' ( # ' # %)#$*)
=2
=! =2
=! =2
&%#( + ,-").
! -
62
%
&
'
;
( %
) *
*
+,
)-)$.
(
+
/ %
0
1 ! )!
/0 )11 )#$ 2 )"$)+
3'45 >4
>*=5? @A
*B./A=5? @A
,5C0B ).A
! 3
3
3
! !
! !
! !
!
!
!
!
!
! !
! ! 3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3
3 3
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Jón Magnússon | 9. nóvember
Kreppa á húsnæð-
ismarkaðnum?
Lánastofnanir bjóða
nú upp á mun lakari
lánakjör en áður. Vext-
ir hafa verið hækkaðir
verulega af húsnæð-
islánum og lánakjör
gerð óaðgengilegri fyr-
ir lántakendur. Þetta gerist á þeim
tíma sem ætla mátti að færi að draga
úr eða farið var að draga úr þensl-
unni á húsnæðismarkaðnum. Með
þessum aðgerðum sínum geta lána-
stofnanir valdið verulegum erf-
iðleikum á þessum mikilvæga mark-
aði sem munu hafa keðjuverkanir...
Meira: jonmagnusson.blog.is
Dofri Hermannsson | 9. nóvember
Stefnubreyting eða
tækifærismennska?
Það er ekki gott að
segja hvort hér er um
stefnubreytingu eða
tækifærismennsku af
hálfu LV að ræða.
Þeim er væntanlega
orðið ljóst að andstaða
við virkjun í Þjórsá fyrir álbræðslur
er gríðarleg. Þeim er mikið í mun að
fá að virkja þarna og því munu þeir
reyna að finna sér virðingarverðari
viðskiptavini. Þrátt fyrir það er and-
staðan samt sem áður hörð og þeir
eru fjölmargir bæði í héraði og utan
sem t.d. geta ekki hugsað sér …
Meira: dofri.blog.is
Paul Nikolov | 9. nóvember
Tungumál
Ég held að það sé auð-
velt að segja að mik-
ilvægt er að meg-
inþorri starfsmanna
leikskóla og grunn-
skóla hafi íslensku að
móðurmáli. Það er
annað að finna fólk sem vill vinna
fyrir launin sem flestir kennarar fá.
Ég er auðvitað sammála því að
kennarar í leikskóla og grunnskóla á
að vera með íslensku að móðurmáli,
en hvað er verra – kennarar með ís-
lensku að öðru tungumáli, eða eng-
inn að kenna? Það er líka smá-
furðulegt að segja að nefndin telur...
Meira: paul.blog.is
Kári Harðarson | 9. nóvember
Sullað með vatn
Verð á neysluvöru hef-
ur verið í umræðunni.
Sumir segja að þótt
verðið sé hátt séu gæð-
in á vörum hér mikil.
Það er ég ekki svo viss
um. Ég hef áður skrifað
um skinku sem er ekki skinka heldur
svínakjötskurl pressað saman með
vatni, salti og kartöflumjöli. Ég hef
líka skrifað um Mozzarella-ost sem
er bara brauðostur í öðruvísi pakkn-
ingu. Hér eru tvö önnur dæmi. Þegar
ég flutti heim keypti ég kjúkling,
brytjaði niður og ætlaði að steikja.
Ég gat það ekki því hann hafði verið
sprautaður með of miklu vatni: Poll-
urinn í pönnunni er ekki þarna eftir
mig, þetta var bara kjúklingur og 2
matskeiðar af snarpheitri olíu. Steik-
ingarhellan er mjög öflug, kjötið
hefði átt að lokast og brúnast. Ég hef
ekki bragðað steiktan kjúkling eftir
heimkomuna, bara mismunandi soð-
inn.
Hér er annað dæmi. Í Danmörku
áttum við flösku af snafs í frysti til að
bjóða með bjór. Þegar við fluttum
heim keyptum við íslenskt Brennivín
til að setja í frystinn. Sami ísskápur
og geymdi danska snafsinn, hann
kom heim með okkur frá Danmörku.
Þegar ég ætlaði að bjóða upp á snafs-
inn leit flaskan svona út:
Ég hélt að einhver alkinn í vina-
hópnum hefði vatnsþynnt innihaldið
en las svo smáa letrið á flöskunni. Ís-
lenskt brennivín er 37% alkhóhól en
flestir erlendir brenndir drykkir eru
47%. Einu sinni var hægt að frysta
brennivín – ég veit ekki hvenær þeir
þynntu það um 20% til viðbótar.
Sumum kann að virðast það smá-
munasemi að fylgjast með vatns-
magni í kjúklingi og brennivíni.
Neytendafrömuðurinn í Spaugstof-
unni er til að hlæja að, ekki til að taka
sér til fyrirmyndar, halda sumir.
Íslendingar hafa venjulega litið
upp til rudda og berserkja því það
eru fyrirmyndirnar úr Íslandssög-
unni. Slíkir menn voru ekki að rukka
vini sína um eitthvað sem þeir höfðu
fengið lánað, þeir fóru bara í víking ef
þá vantaði meira af einhverju. Ég er
samt ekki viss um að þetta sé hald-
góð fyrirmynd á 21. öldinni.
Nú kemur sífellt betur í ljós
hversu mjög hallar á hlut þeirra sem
álpuðust til að eignast ekki banka og
önnur innflutningsfyrirtæki …
Meira: kari-hardarson.blog.is
BLOG.IS
FRÉTTIR
HÆSTIRÉTTUR hefur ómerkt
dóm Héraðsdóms Vestfjarða frá 27.
febrúar sl. og vísað aftur í hérað til
löglegrar meðferðar og dómsálagn-
ingar. Um er að ræða kynferðisbrot
sem framin voru í júlí árið 2002 en í
héraði var karlmaður sakfelldur og
hlaut hann sex mánaða skilorðs-
bundið fangelsi, auk þess sem hann
átti að greiða fórnarlömbum sínum
tveimur 200 þúsund krónur.
Í dómi Hæstaréttar kemur fram
að aðalmeðferð í málinu hafi farið
fram í janúar á síðasta ári. Þá komu
ákærði og vitni fyrir dóminn og gáfu
skýrslur. Málið var í kjölfarið flutt
og dómtekið en héraðsdómarinn sem
þá fór með málið lauk hins vegar
ekki dómi á réttmætum tíma. Var
málið því endurupptekið, flutt munn-
lega og dómtekið á ný án þess að
ákærði og vitni gæfu skýrslur fyrir
dómi. Dómaranum sem hafði farið
með málið var síðar veitt leyfi frá
störfum vegna veikinda og tók annar
héraðsdómari við meðferð þess. Í
desember á síðasta ári tilkynnti
hann málsaðilum að endurtaka
þyrfti skýrslutökur og málflutning
og boðaði til fyrirtöku í janúar sl.
Ákærði mótmælti og gerði kröfu um
að skýrslutaka og aðalmeðferð færu
ekki fram að nýju. Því var hafnað.
Ákærði mætti hvorki til skýrslutöku
né aðalmeðferðar.
Í niðurstöðu Hæstaréttar segir að
meginreglan í meðferð opinberra
mála skuli vera milliliðalaus, en í því
felst einkum að sönnunarfærsla í
máli skuli fara fram fyrir þeim dóm-
ara sem leysir úr því með dómi.
Því var ekki fyrir að fara í málinu
og því var ekki hjá því komist að
ómerkja dóminn og leggja fyrir hér-
aðsdómara að taka málið upp að
nýju.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Ólafur Börkur Þorvaldsson,
Hjördís Hákonardóttir og Jón Stein-
ar Gunnlaugsson.
Taka þarf mál-
ið upp að nýju
Morgunblaðið/Sverrir
Ómerkt Hæstiréttur ómerkti dóm
Héraðsdóms Vestfjarða.