Morgunblaðið - 10.11.2007, Page 14
14 LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
!"#
!"#
"#$
%%%$
&'
&'
$
$
!"#
%#
(%)
"("
&'(
&%'(
$
$
&'
(
) %("(
)
&%'
&'$
$
$
+,-
&.#
($
)%
&%'
&'%
$
$
!"#
!"#
/
(
%((
&%'%
&')
$
$
!""#
%'$
$#'#
)'$
'$
$'%$
(#'%$
('%$
#$'
"'
%'#
'"#
%('
'()
'#
('
(('
%'%(
%'
$'$
#'
('
%('((
"'
)'$
(("$'
%%'
'$
01
2 3
,
4
563
7 7 7
// 7
/ 7/
/ //
7
7 /
/
77 7
7/
/ 7
7
7 /
/
7
/ 7
/ /
1
/
1
1
7 1
1
78 8
8
8
/8
87
87
8//
8
8
8
8 8
8
8/
1
1
8 1
1
8
78 8
8/
8
/ 8
8
8
7
8
8
/8
8 8
8
8
/ 1
8 8 +9
2 3
7
7
77
/
1
/
1
/
1
1
1
1
& 2 2 0
7 7 7 7
.0
:063
;
% 290
:063
;
-<
;
+=
:063
;
: 0
;
- 3>
?@ 0
:063
;
563A
;
=
;
06 601%600B
+B0
;
, C
;
D60
;
!"#$
;
. @
;
. @
E 0 6
EF+
-
%
+
:063
;
+G0C
% ?@ @
:063
;
"0
;
)H; 0
;
EI!)
,0C 9
;
J 69
;
#% &
K 60C
. 6 6
K
%
:0
;
3
;
ÞETTA HELST ...
● ÚRVALSVÍSITALAN lækkaði um
1,07% í Kauphöll OMX á Íslandi í
gær og var lokagildi hennar
7.223,19 stig. Atlantic Petroleum
hækkaði um 4,45% og 365 hf. um
2,59%. Exista lækkaði um 3,20% og
Flaga um 2,59%.
Krónan veiktist um 0,68% í við-
skiptum gærdagsins samkvæmt
upplýsingum frá Glitni. Gengisvísi-
talan stóð í 116,20 stigum þegar
viðskipti hófust og var hún komin í
117,0 stig þegar þeim lauk. Velta á
millibankamarkaði nam um 47,9
milljörðum króna í gær.
Gengi Bandaríkjadals er nú 60,04
íslenskar krónur, gengi evru 88,12
krónur og pundið kostar nú 125,70
krónur.
Lækkun í kauphöllinni
SAMKVÆMT upplýsingum frá
Fjármálaeftirlitinu hefur umfang út-
lána með veði í íbúðarhúsnæði aukist
hratt frá því að bankar og sparisjóðir
komu inn á húsnæðislánamarkaðinn.
Hafa lánin aukist úr 381 milljarði
króna um mitt síðasta ár í 438 millj-
arða króna um mitt ár 2007.
Ragnar Hafliðason, aðstoðarfor-
stjóri FME, segir á vef eftirlitsins að
um helmingur af heildarútlánum við-
skiptabanka og stærstu sparisjóða
með veði í íbúðarhúsnæði hafi veð-
hlutfall undir 70% sem er töluverð
breyting frá fyrra ári þegar sama
hlutfall var um þriðjungur útlán-
anna. Dreifing veðhlutfalla sé því
jafnari nú en fyrir ári.
Þinglýstir kaupsamningar á höf-
uðborgarsvæðinu á tímabilinu 2.-8.
nóvember voru nokkuð undir með-
altali síðustu tólf vikna. Alls var 151
samningi þinglýst nú samanborið við
meðaltal upp á 204 þinglýsingar. Þar
af voru 109 samningar um eignir í
fjölbýli, 26 samningar um sérbýli og
16 samningar um annars konar eign-
ir.
Heildarveltan var 5.556 milljónir
króna og meðalupphæð á samning
36,8 milljónir króna, samkvæmt upp-
lýsingum á vef Fasteignamats ríkis-
ins.
Á sama tíma var 16 kaupsamning-
um þinglýst á Akureyri og 22 á Ár-
borgarsvæðinu.
Aukið umfang
veðtryggðra útlána
● MARKAÐSVIRÐI fyrirtækja á ís-
lenska hlutabréfamarkaðnum hefur
aukist 6,5 sinnum frá árinu 2001.
Samanlagt hefur markaðsvirðið farið
úr því að vera 55% af landsfram-
leiðslu í 266%. Á
sama tímabili hef-
ur veltan á hluta-
bréfamarkaði 22-
faldast og hluta-
bréfaverð hefur
sexfaldast. Þá
hefur markaðs-
virði hvers skráðs
félags að meðal-
tali tuttuguogtvö-
faldast þó svo að skráðum fyrir-
tækjum hafi fækkað úr 75 í 26 á
þessum árum.
Þetta kom fram í erindi Þórðar
Friðjónssonar, forstjóra OMX á Ís-
landi, á fundi FVH í gær. Hann sagði
kauphöllina hér líklega þá stærstu í
heimi miðað við stærð þjóðarbús-
ins.
Stefnt er að því að formlega verði
gengið frá samruna OMX við Nasdaq
í febrúar næstkomandi.
Virðið hefur aukist
6,5 sinnum frá 2001
● GREININGARDEILDIR Kaupþings
og Landsbankans spá 0,3% hækkun
vísitölu neysluverðs í nóvember en
Hagstofan birtir upplýsingar um vísi-
töluna á mánudagsmorguninn. Glitn-
ir heldur hins vegar óbreyttri spá
sinni um að vísitalan hækki um
0,4%. Forsendan fyrir hækkunarspá
Kaupþings og Landsbankans má
rekja til hækkunar eldsneytisverðs í
lok mánaðar.
Gangi spá greiningardeilda Kaup-
þings og Landsbankans eftir mun
tólf mánaða verðbólga mælast 4,8%
samanborið við 4,5% í október. En
gangi spá Greiningar Glitnis eftir
mun tólf mánaða verðbólga hækka
úr 4,5% í 4,9%.
Spá 0,3-0,4% hækkun
vísitölu neysluverðs
Eftir Soffíu Haraldsdóttur
soffia@mbl.is
LÍKLEGT er að evran ryðji krón-
unni smám saman brott í atvinnu- og
viðskiptalífinu, að mati Ólafs Ísleifs-
sonar, lektors í Háskólanum í
Reykjavík. Evran taki sig þannig
upp sjálf. Þórður Friðjónsson, for-
stjóri OMX kauphallarinnar á Ís-
landi, tekur í svipaðan streng þar
sem hann segir krónuna og evruna
geta lifað ágætu lífi saman á næstu
árum. Formleg upptaka evru sé hins
vegar lengri tíma mál. Þetta kom
fram á fundi Félags viðskipta- og
hagfræðinga í gær undir yfirskrift-
inni „Evran inn bakdyramegin?“
Án opinberra ákvarðana
Ólafur telur að í aðsigi kunni að
vera breytt skipan gjaldeyrismála
þótt hún verði ekki formleg. „Sú
breyting verður fyrir tilverknað
sjálfsprottinna ákvarðana sem eru
teknar víðs vegar um viðskiptalífið.
Þetta eru ákvarðanir sem eru teknar
af hverjum í sínum ranni með yfir-
veguðum hætti og í ljósi þeirra hags-
muna sem eiga við á hverjum stað
hverju sinni. Stjórnvöld verða að
íhuga þann möguleika að evran verði
með þessum hætti ráðandi mynt í
viðskiptalífi landsmanna. Þetta get-
ur gerst án þess að nein allsherjar-
ákvörðun hafi verið tekin af hálfu
opinberra aðila,“ segir Ólafur.
Þórður Friðjónsson telur að hvert
og eitt fyrirtæki eigi sjálft að ákveða
hvenær hagkvæmast er fyrir það að
breyta skráningu sinni í kauphöllinni
yfir í evrur. Hann bendir á að 75% af
tekjum skráðra félaga komi að utan.
„Auðvitað eru þarfir fyrirtækj-
anna mismunandi, eftir hversu stór
þau eru og hversu mikil umsvif
þeirra eru erlendis. Það er augljóst
að á einhverju stigi stærðar [fyrir-
tækis] og samtvinnunar við alþjóða-
umhverfi kemur einfaldlega að því
að krónan hentar ekki fyrir fyrir-
tækið. Stjórnendur og eigendur fyr-
irtækisins verða að ákveða hvenær
að þessu stigi kemur og hvað fyrir-
tækinu er fyrir bestu,“ segir hann.
Þórður nefnir sem kosti við skrán-
ingu í evrum m.a. að það laði erlenda
fjárfesta að fyrirtæki og gæti því
verið forsenda áframhaldandi vaxtar
þess auk þess sem auðveldara væri
að fara í yfirtökur og laða að hæft
starfsfólk erlendis.
Hann segir rétt og sjálfsagt að
greiða götu evrunnar inn í íslenskt
efnahagslíf en umræðan má ekki
hægja á framfaramálum.
Evran ryðji krónu
og taki sig upp sjálf
Morgunblaðið/Golli
Evra Þórður Friðjónsson, forstjóri
OMX, var meðal frummælenda.
GENGIÐ hefur verið endanlega frá
sölu á Bifreiðum & landbúnaðarvél-
um, B&L, en eigendaskiptin biðu
samþykkis þeirra bílaframleiðenda
sem B&L hefur umboð fyrir; þ.e.
BMW, Land Rover, Hyundai og
Renault. Sem kunnugt er keypti
fjárfestingafélagið Sund umboðið,
ásamt fleiri fjárfestum, af Gísla Guð-
mundssyni og fjölskyldu. Erna
Gísladóttir verður þó áfram forstjóri
fyrirtækisins. Nýr stjórnarformaður
B&L er Kristinn Geirsson, fram-
kvæmdastjóri Sunds. Félagið Sæv-
arhöfði stóð að kaupunum en það á
einnig Ingvar Helgason hf. og fleiri
fyrirtæki. Munu engar sameiningar
vera fyrirhugaðar og B&L áfram
rekið í óbreyttri mynd. Að sögn
Kristins er það marks um góðan ár-
angur Ernu og starfsfólks hennar að
hún haldi áfram sem forstjóri. Erna
hafi gríðarlega reynslu úr bílabrans-
anum og nýir eigendur telji hana vel
til þess fallna að leiða B&L áfram.
Skipti Gísli Guðmundsson afhend-
ir Kristni Þór Geirssyni lyklana að
fyrirtækinu og á milli þeirra er
Erna Gísladóttir forstjóri B&L.
Salan á
B&L frá-
gengin
ALMENNUR hluthafafundur
Vinnslustöðvarinnar samþykkti á
fimmtudag afskráningu félagsins
úr kauphöll OMX á Íslandi. Mættir
voru hluthafar er fóru fyrir 99,57%
alls hlutafjár. Afskráningin var
hins vegar ekki samhljóða sam-
þykkt því neitun kom frá 33,4%
hluthafa. Já sögðu 61% og auðir
seðlar voru 5,6%. Þriðjungurinn
svarar til þess hlutar sem Guð-
mundur Kristjánsson í Brim, og
tengdir aðilar, eiga í Vinnslustöð-
inni, en þeir reyndu sem kunnugt
er yfirtöku á félaginu og höfðu lýst
sig andsnúna afskráningu.
Afskráning
samþykkt af
61% hluta
OLÍUVERÐ hélt áfram að hækka í
gær og kostaði fatið af hráolíu 96,32
dali við lokun markaða í New York,
sem er hækkun um 0,9% frá deg-
inum áður. Koma þessar hækkanir
þrátt fyrir að Petrobras, olíufélag
brasilíska ríkisins, opinberaði upp-
götvun á mjög auðugum olíulindum
undan ströndum Brasilíu. Talið er
að í lindunum sé að finna allt að 8
milljarða fata af olíu sem er álíka
mikið og allur olíuforði Noregs.
Olíuforði Brasilíu er í dag um 14,4
milljarðar fata og gæti hann því auk-
ist um meira en 50% reynist lind-
irnar nýfundnu jafnauðugar og talið
er. Góðar fréttir komu einnig frá
Noregi þar sem óveður það sem
geisað hefur á olíusvæðum þar er að
lægja.
Mikilvægur
olíufundur
♦♦♦
UNDANFARNA þrjá daga hefur
Nasdaq-vísitalan lækkað um tæp 7%
og Dow Jones um 4,5%. Er þetta
versta þriggja daga tímabil í sögu
beggja vísitalnanna frá nóvember
2002.
Bréf lækkuðu almennt framan af
degi í Bandaríkjunum í gær og voru
það helst bréf fjármála- og hátækni-
fyrirtækja sem urðu verst úti í upp-
hafi dags. Tölvukubbaframleiðand-
inn Qualcomm skilaði verra
árshlutauppgjöri en gert var ráð fyr-
ir þrátt fyrir að velta hafi vaxið um
84% á síðasta ársfjórðungi miðað við
sama tíma í fyrra.
Segir í frétt Financial Times að
líklega megi rekja slæmt gengi há-
tæknibréfa til þess að fjárfestar geri
nú ráð fyrir samdrætti í efnahagslíf-
inu vestra og hafi áhyggjur af vax-
andi rekstrarkostnaði margra
tæknifyrirtækja.
Bréf Qualcomm lækkuðu um
4,18%, bréf Google um 4,3% og
Apple um 4,3% í gær.
Hingað til hafa það helst verið
fjármálafyrirtæki sem þurft hafa að
þola slæmt gengi á mörkuðum. Wac-
hovia-bankinn tilkynnti um afskriftir
á lánum upp á um 1,1 milljarð dollara
og fyrr í vikunni tilkynnti Morgan
Stanley um 3,7 milljarða dala tap á
fasteignalánum. Í kjölfarið var MS
settur á athugunarlista hjá lánshæf-
ismatsfyrirtækjum til hugsanlegrar
lækkunar.
Vöruskiptahalli lækkar
Líklegt má einnig telja að ummæli
Bens Bernanke, formanns banka-
stjórnar Seðlabanka Bandaríkjanna,
um að hann teldi að lítið myndi þok-
ast í rétta átt á fjármálamarkaði á yf-
irstandandi ársfjórðungi hafi haft
neikvæð áhrif á markaði.
Þrátt fyrir þessar fréttir hækkuðu
bréf Wachovia um 0,9% og Morgan
Stanley um 1% í gær, en í frétt FT
segir að líklega megi rekja hækkanir
á fjármálafyrirtækjum til þess að
fjárfestar hafi þar séð kauptækifæri
í undirverðlögðum bréfum eftir
lækkanirnar undanfarið.
Ekki eru þó allar fréttir slæmar af
bandarísku efnahagslífi en greint
var frá því að vöruskiptahalli lækk-
aði óvænt um 0,6% í september eða
niður í 56,5 milljarða Bandaríkjadala
og er hallinn minni en greiningarað-
ilar höfðu gert ráð fyrir.
Nasdaq niður um
7% á þremur dögum
Reuters
Kauphöll Miðlari í kauphöllinni í
New York fylgist með hreyfingum.
♦♦♦