Morgunblaðið - 10.11.2007, Síða 26
innlit
26 LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Snyrtingin Mikil bót var að því að fá þessa litlu snyrt-
ingu í staðinn fyrir að þurfa að nota útikamarinn.
Eftir Fríðu Björnsdóttur
fridavob@islandia.is
Íþessu litla rauða húsi, semstendur í hæðinni skammtfyrir ofan Morgunblaðshúsiní Hádegismóum, hafa Gréta
Steinþórsdóttir og Bragi Þorsteins-
son eytt ófáum sumardögum allt
frá því snemma á sjötta áratug síð-
ustu aldar. Á veturna eru ferðirnar
í bústaðinn færri vegna þess að í
honum er ekki upphitun nema frá
kolavélinni í eldhúsinu. Því getur
orðið allkalt innan dyra í kalsaveðr-
um vetrarins. Þegar hlíðin ofan við
Rauðavatn er snævi þakin er bú-
staðurinn ósköp fallegur og litir
hans og grenitrjánna njóta sín frá-
bærlega vel. Það mætti kalla búa-
staðinn „chocolate box“ bústað,
eins og Bretar nefna gömul og fal-
leg sveitahús en rómantískar
myndir af þeim skreyta iðulega
dýrindis konfektkassa þar í landi.
Fyrst kom lítill kofi
„Gömlu hjónin, foreldrar Braga,
þau Þorsteinn Pétursson og Kristín
Sigurðardóttir, settust hér fyrst að
og svo komum við á eftir og byggð-
um við húsið,“ segir Gréta og Bragi
skýtur inn í að elsti hluti hússins,
lítill skúr með flötu þaki, hafi verið
fluttur þarna uppeftir árið 1954.
Um það leyti bauð borgin upp á
sumarbústaðalönd allt frá efsta
hluta Árbæjarhverfisins og upp að
Rauðavatni. Búið var að úthluta lóð
framan við lóðina sem bústaðurinn
stendur á en sá sem hana hlaut var
óánægður vegna þess hvað hún var
grýtt! Þorsteinn, faðir Braga, greip
tækifærið og fékk þarna land undir
bústaðinn og lét sér fátt um finnast
þótt í því væri svolítið grjót. Nú eru
þarna fallegar skjólsælar lautir og
hávaxin tré, mörg hver frá fyrstu
árum fjölskyldunnar á staðnum.
Bústaðurinn er 28 fermetrar að
stærð og gengið er beint inn í stof-
una af veröndinni. Áður fyrr var lít-
ið svefnherbergi inn af stofunni og
eldhúsið til hliðar við það. Gréta og
Bragi ákváðu síðan að taka niður
vegginn milli herbergis og stofu
þegar ekki þurfti lengur að hafa
þar kojur sonanna, og þau gistu
þarna sjaldnar en áður. Eftir að
veggurinn fór varð bústaðurinn
miklu rýmri og meira pláss fyrir
gesti sem eru ófáir á góðviðr-
isdögum á sumrin. Gréta segist
muna verslunarmannahelgi þegar
óvenju gestkvæmt var og það svo
að á einum degi komu 20 manns.
„Sem betur fer var vinkona mín hjá
Miklir gluggar Hjónin, Gréta og Bragi, sitja við stofuborðið og drekka kaffið sitt. Gluggarnir í húsinu eru
stórir svo enginn fer á mis við fallegt útsýnið sem blasir við frá Lyngholti.
Veggurinn fór Stofan stækkaði þegar
svefnherbergisveggurinn var rifinn.
Eins og rauð rós Lyngholt er bústaðurinn nefndur. Hann er fallegur á lit og líkastur rauðri rós þar sem hann sprettur upp úr hlíðinni við Rauðavatn.
Kolaeldavélin Í eldhúsinu er kolaeldavélin og þar eru veggir enn klæddir striga og mask-
ínupappír. Eldavélin er eini varmagjafinn í húsinu.
Rauða húsið
í hæðinni
Lyngholt kalla þau bú-
staðinn sem minnir
helst á rauða rós þar
sem hann stendur utan
í hlíðinni upp af Rauða-
vatni. Á sumrin er um-
hverfið iðagrænt og
þótt komið sé langt
fram á haust halda
barrtrén að sjálfsögðu
sínum græna lit sem
fer einstaklega vel við
rauða húsveggi, grænt
þak og snjakahvíta
glugga.