Morgunblaðið - 10.11.2007, Side 30

Morgunblaðið - 10.11.2007, Side 30
úr bæjarlífinu 30 LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Árni Helgason Stykkishólmi ritar bréf: „Mig langar að senda til birt- ingar í Vísnahorninu eftirfarandi vísur í tilefni af frumvarpi um sölu áfengis í matvörubúðum um allt land, en ég á erfitt með að skilja hvernig þeir sem flytja það tala um „frelsi“ í sambandi við þetta frumvarp: Í dag er drukkið ölið og dásamað þetta frelsi en síðan byrjar bölið og bölið skapar helsi. Það er auðséð ekkert grín hve alltof margur þrammar, drekkur eins og vatnið vín og verður sér til skammar. Það er eins og þessir „frelsisunn- endur“ hafi ekki nóg af útsölustöð- um áfengis í landinu. Alltaf þurfi að bæta við. Nú nenna þeir ekki að sækja það í veitingahús eða versl- anir ÁTVR. Mér dettur í hug vísa sem ég lærði í æsku: Lýðurinn kýs hin léttu spor lóuflug og kvakið. En alltaf sýnir afl og þor arnar vængjatakið. Læt þetta nægja í bili.“ VÍSNAHORNIÐ Af böli og áfengi pebl@mbl.is Hjúkrunar- og dvalarheimilið Lundur á Hellu á 30 ára starfsafmæli um þess- ar mundir. Á dögunum var haldið upp á það með kaffisamsæti þar sem allir voru velkomnir og mættu um 300 gest- ir. Veitt voru þakkarskjöl þeim félaga- samtökum sem hafa styrkt Lund á árinu. Til skemmtunar á afmælisdag- inn söng stúlknakórinn Hekla og barnakór Oddakirkju, Nína Moravek og Írena Steindórsdóttir spiluðu, Öð- lingarnir sungu nokkur lög og systk- inin Gísli Stefánsson og Kristjana Stefánsdóttir sungu. Í lokin var það kór íbúa Lundar sem söng lag í tilefni dagsins með frumsömdum texta. Eins og komið hefur fram í fréttum fékk Lundur viðurkenningu Vinnu- eftirlits ríkisins sem fyrirmyndar fyr- irtæki í vinnuverndarvikunni.    Þemadagar standa yfir þessa dagana í Grunnskólanum á Hellu þar sem þemað er 80 ára afmæli Hellu sem byggðar á þessu ári. Nemendur gera ýmislegt í tilefni þessa, s.s. bjóða þeir foreldrum til hátíðarkaffis og halda málfundi um byggðina og umhverfið. Ýmislegt fleira skemmtilegt og gef- andi hefur verið á dagskrá undan- farið í grunnskólanum, t.d. var sett á stofn verkefnið „jól í skókassa“ í sam- starfi við KFUM og K, þar sem safn- að er jólagjöfum í skókassa handa börnum í Úkraínu. 125 kassar voru sendir frá nemendum skólans. Nem- endur 10. bekkjar unnu að verkefninu „Hugsað um barn“ sem er byggt á að allir nemendur taka að sér að hugsa um tölvustýrða dúkku sem hagar sér eins og barn og þurfa „foreldrarnir“ að leggja sínar eigin þarfir til hliðar á meðan. Markmiðið er að nemendur fái betri skilning á hegðun og þörfum nýfæddra barna og þeirri ábyrgð sem felst í því að eignast barn. Að lokum má nefna starfskynningar sem nem- endur fara í, bæði hér á svæðinu og á höfuðborgarsvæðinu.    Er þér alveg sama um barnið þitt? Misjafn er sauður í mörgu fé og til eru þeir unglingar sem verða heild- inni til skammar og standa fyrir óknyttum og skemmdarverkum af ýmsum toga. „Er þér alveg sama um barnið þitt?“ er yfirskriftin á auglýs- ingu um opinn fund sem Foreldra- og kennarafélag Grunnskólans á Hellu stendur fyrir nk. miðvikudagskvöld kl. 20. Tilefnið er m.a. að nokkuð hef- ur borið á því að unglingar hafi skemmt bíla, brotið rúður, kveikt í, jafnvel upp við íbúðarhús og skapað stórhættu með því. Í einhverjum til- fellum hafa bæði unglingar og for- eldrar neitað sök fyrst í stað, en síðan þegar lögregla kemur að málinu hef- ur játning náðst fram. Vegna þessara mála fóru m.a. sveitarstjóri og yfir- lögregluþjónn í heimsókn í efstu bekki grunnskólans, fengu þar góðar móttökur og ljóst er að um tiltölulega fáa einstaklinga er að ræða sem stunda þessa iðju. Fundinum er ætlað m.a. að hvetja foreldra til að fylgjast náið með hvað börn þeirra hafa fyrir stafni og að reglur um útivistartíma verði virtar.    Nýlegur fundur Hestamannafélags- ins Geysis, 20 ferðaþjónustuaðila, Landgræðslunnar og sveitarfélag- anna þriggja í Rangárvallasýslu kaus sér verkefnisstjórn til að fullvinna reiðvegakort fyrir sýsluna og hálend- ið upp af henni. Jafnframt á að kynna þjónustu aðila sem eru nálægt þess- um reiðvegum. Fyrirhugað er að sækja um að verkefnið fari inn í Vaxt- arsamning Suðurlands og Vest- mannaeyja. Í fyrstu verður unnið að því að reiðvegakort og þjónusta verði aðgengileg á heimasíðu verkefnisins og verði hún komin í gagnið fyrir landsmót hestamanna í júní á næsta ári sem fram fer á Gaddstaðaflötum við Hellu. Þar eiga notendur að geta prentað út reiðleiðir og aðrar upplýs- ingar sem tengjast þeim.    Föndur og hvers konar handverk kemst oft í hámæli þegar jólin nálg- ast. Hekla handverkshús á Hellu aug- lýsir nú námskeið af ýmsu tagi fyrir áhugasama íbúa. Má þar nefna kynn- ingu á knipli, þæfingu á ull og silki og þæfingu á jólaskrauti. Jafnframt er hverskonar handverk til sölu í hand- verkshúsinu. Hekla handverkshús hvetur sveitungana til að versla í heimabyggð fyrir jólin sem endra- nær. Taka má heilshugar undir slíkt, því í þessu má nota gamla og góða málsháttinn, „enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur“. HELLA Óli Már Aronsson fréttaritari Morgunblaðið/Óli Már Aronsson Hestafólk Reiðleiðir í Rangárvallasýslu og á hálendinu eru væntanlegar á netið fyrir landsmót hestamanna 2008. Á myndinni eru glæsileg ungmenni úr Hestamannafélaginu Geysi á Gaddstaðaflötum FASTEIGNASALA STÓRHÖFÐA 27 Sími 594 5000 Halla Unnur Helgadóttir löggiltur fasteignasali. Sérlega falleg 113,3 fm2 4ra herbergja á 3ju hæð í lyftuhúsi. Forstofa með flísum. Merbau parket. Vitrými eru flísalögð. Björt stofa og borðstofa. Rúmgóð svefnherbergi m/ skápum. Einu herb. hefur verið breytt í sjónvarpsherbergi. Gott eld- hús með borðkrók. Snyrtilegt baðherbergi með sturtu og baðkeri. Sérþvottahús í íbúð og geym- sla í kjallara. Vönduð eign! VERÐ: 30.9 millj. Nánari upplýsingar gefur Bjarni 896 3875 hjá Akkurat OPIÐ HÚS Í DAG KL. 14-15 NÚPALIND 6, íbúð 301 MasterCard Mundu ferðaávísunina! Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 Akureyri sími: 461 1099 • Hafnarfjörður sími: 510 9500 frá 29.990kr.* Skíðaveisla í Austurríki - Flachau - Lungau - Zell am See Bókaðu strax! Ótrúleg kjör – örfá herbergi í boði Kr. 69.990 – 11 nátta ferð með hálfu fæði Heimsferðir bjóða beint morgunflug til Salzburgar næsta vetur og þar með tryggjum við þér aðgang að bestu skíða- svæðum Austurríkis, s.s. Flachau, Lungau og Zell am See. Tryggðu þér flugsæti og gistingu á besta verðinu og taktu þátt í skíðaveislu Heimsferða í Austurríki næsta vetur. Frábært verð Kr. 29.990 * Flugsæti með sköttum, fargjald A. Kr. 69.990 – 11 nátta ferð með hálfu fæði Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á Skihotel Speiereck í Lungau með hálfu fæði í 11 nætur. Sértilboð 15. janúar. Kr. 89.990 – Frábært **** hótel með hálfu fæði Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn (2-15 ára) í fjölskylduherbergi á Hotel Unterberghof í Flachau með hálfu fæði í 11 nætur. Sértilboð 15. janúar. Kr. 103.990 Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á Hotel Unterberghof **** í Flachau með hálfu fæði í 11 nætur. Sértilboð 15. janúar. Kr. 114.990 – 14 nátta jólaferð Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á Pension Wolfgang í Saalbach / Hinterglem með morgunv. í 14 nætur. Sértilboð 22. des. Kr. 159.990 – jólaferð Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á Hotel Unterberghof **** í Flachau með hálfu fæði í 14 nætur. Sértilboð 22. des. Beint flug Frábær sértilboð 22. des. - 14 nátta jólaferð 15. janúar - 11 nátta ferð E N N E M M / S IA • N M 3 0 66 1

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.