Morgunblaðið - 15.11.2007, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 15.11.2007, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2007 29 Í leiðara Morgunblaðsins 29.ágúst síðastliðinn var fjallaðum gildi almannaþjónustufyrir einstaklinginn og sam- félagið í heild. Leiðarahöfundur lýsir þar afstöðu blaðsins til fjár- framlaga úr sameiginlegum sjóð- um til heilbrigðisþjónustunnar hér á landi í ljósi danskra viðhorfa til sama málefnis. Sam- kvæmt könnunum vill almenningur í Dan- mörku fremur að vel sé séð fyrir sameig- inlegum skyldum við aldraða, sjúka og fatl- aða en að stjórnvöld beiti sér fyrir skatta- lækkunum. Leið- arahöfundur Morg- unblaðsins segir um þá afstöðu Dana að þeir séu „…komnir býsna langt á þroska- brautinni og aðrir geta af þeim lært“. Nýlega var sýnd hér á landi kvikmynd Michaels Moore, Sicko. Efni myndarinnar er eins og sterkt krydd í skrif Morgunblaðs- ins. Á aðra höndina dregur Moore fram þá staðreynd að milljónir Bandaríkjamanna eru án sjúkra- tryggingar beri slys eða sjúkdóm að höndum og rekur afleiðingar þess fyrir hlutaðeigandi. Á hinn bóginn dregur hann upp mynd af ofgnótt félagslegra réttinda sem eru að sliga hagkerfi sumra landa, t.d. Frakklands. Sarkozy, forseti Frakklands, hefur reyndar sagt að breytingar séu nauðsynlegar. Verkföllin þar í landi að und- anförnu eru forsmekkur breytinga og snúast um hvort samfélagið geti staðið undir afar ríflegum eft- irlaunaréttindum. Ójöfnuður særir réttlætiskennd Hvaða stöðu höfum við markað okkur hér á landi í þessari um- ræðu og hvernig teljum við ráð- legast að þróa félagslega þjónustu hér á landi, s.s. heilbrigðisþjón- ustu? Spyrja má hvort heilbrigði og heilbrigðisþjónusta eigi að vera á ábyrgð einstaklingsins eða sam- eiginlega á ábyrgð okkar allra og hvaða gildi hún hafi fyrir sam- félagsgerðina. Almenningur er kröfuharður notandi eða kaupandi heilbrigðisþjónustu hér á landi eins og annars staðar og á vafa- laust eftir að eflast enn frekar enda styrkist réttarstaða hans stöðugt í þessu efni og væntingar vaxa. Í okkar huga er þetta sjálf- sagt samfélagslegt viðfangsefni og skylda. Óháð því hvort heilbrigðisþjón- ustan okkar er fjármögnuð úr sameiginlegum sjóðum eða með kaupum einstaklinga og trygg- ingafélaga þá ganga „þarfirnar framar greiðsluvilja“. Í löndum þar sem heilbrigðisþjónusta er veitt af hinu opinbera takmarkast hún iðulega af ónógum fjármunum sem leiðir til biðlista og þess að sum viðfangsefni eru vel leyst en önnur síður. Þar sem sjúkling- arnir greiða sjálfir eða trygginga- félög fyrir þeirra hönd standa menn aftur á móti frammi fyrir þeirri staðreynd að sumir eru tryggðir og njóta góðrar þjónustu en aðrir lítillar eða alls engrar. Ójöfnuður skapast og slíkt særir réttlætiskennd landsmanna og þykir ljóður á samfélagi. Banda- ríkin eru oft nefnd sem dæmi um þetta enda leitast margir stjórn- málamenn þar í landi nú við að koma á lágmarks sjúkratryggingu fyrir alla landsmenn. Michael Porter, prófessor við Harvard Business School, sem er harður markaðshyggjumaður, hefur lýst þeirri skoðun sinni að mannsæm- andi sjúkratryggingu þar í landi verði aðeins komið á fyrir til- stuðlan hins opinbera. Engin önn- ur öfl ráði við það viðfangsefni. Hriktir í stoðum Þegar horft er um öxl hefur okkur farnast harla vel við mótun og þróun samfélagsins. Sam- keppnishæfni landsins er eftirtekt- arverð, hagvöxtur mikill og samfélags- gerðin að mörgu leyti til fyr- irmyndar. Okkur ber að standa vörð um þetta. Vissulega hefur dregið úr op- inberum afskiptum á mörgum sviðum samfélagsins og það leitt til framfara en nú stöndum við and- spænis því að svara sömu spurningu og Danir svöruðu skil- merkilega, þ.e. hvort við viljum veikja veigamikil samfélags- viðfangsefni eins og menntun og heilbrigðisþjónustu fyrir skatta- lækkanir og lægri ríkisútgjöld. Um þessar mundir er litið gagn- rýnni augum en oft áður á hið op- inbera heilbrigðiskerfi og það sagt ofhlaðið fjármunum og að við- fangsefnið verði betur leyst af einkaaðilum. Við höfum valið að standa sameiginlega að heilbrigð- isþjónustunni, enginn mælir op- inberlega fyrir annarri stefnu en mér sýnist farið að hrikta í þeim stoðum. Áleitnara verður hins vegar með hverjum deginum hvernig mæta eigi vaxandi óskum almennings til þjónustu og standa undir kostnaðinum sem því fylgir. Ekki nóg að hagræða og breyta rekstrarformi Stjórnvöldum hefur verið gjarnt að líta svo á að þörfunum, eftir- spurninni, verði best mætt með því að hagræða í heilbrigðisþjón- ustunni, jafnvel færa þjón- ustuþætti í breytt rekstrarform eða til einkaaðila. Sumt af þessu er sjónarspil. Stöðugt á að ætlast til hagræðingar, hvort sem í hlut eiga opinberir aðilar eða einkaað- ilar, það segir sig sjálft. En sterkt vaxandi kröfu um að auka heil- brigðisþjónustu verður ekki mætt með hagræðingu eða breyttum rekstrarformum einum saman. Oft er fullyrt að opinbera heilbrigðis- þjónustan standi ekki undir þeim væntingum og skyldum sem henni eru lagðar á herðar. Sjúkrahúsum og hjúkrunarheimilum eru settar fjárhagslegar skorður í ósamræmi við skyldur og væntingar og sjálf- stætt starfandi heilbrigðisstarfs- menn, sem starfa samkvæmt samningi við heilbrigðisráðherra og TR, tæma umsamda kvóta áður en árið er úti. Fátt ef nokkuð staðfestir hins vegar að um slæ- legan rekstur eða sóun sé að ræða í starfseminni. Ríkisendurskoðun hefur a.m.k. ekki fundið slíku stað í þeim úttektum sem stofnunin hefur gert t.d. á Landspítala. Fjárlög 2008 munu gefa tóninn Stærstur hluti heilbrigðisþjón- ustunnar hér á landi er greiddur úr sameiginlegum sjóðum, hvort sem þjónustan er veitt af opinber- um stofnunum eða einkaaðilum. Nokkrir þættir hennar falla samt utan greiðsluþátttöku almanna- trygginga, s.s. hluti tannlækninga, augnlækningar að vissu marki og lýtalækningar sem sumar hverjar ættu á læknisfræðilegum for- sendum allt eins að vera innan sjúkratrygginganna. Þá má minna á að hjartalæknar sögðu á sl. ári upp samningi við Trygg- ingastofnun ríkisins (TR) og starfa nú algjörlega á einkaforsendum án nokkurra tengsla við sjúkra- eða almannatryggingarnar. Verðlagn- ing þjónustu þeirra er frjáls og það er alfarið undir TR komið hvaða kostnaður fæst end- urgreiddur. Talmeinafræðingar hafa sömuleiðis nýlega sagt upp samningum við TR og sálfræð- ingar starfa sjálfstætt án samn- ings. Þá kaupa einstaklingar læknisþjónustu erlendis sem er greidd úr eigin vasa, af vinnuveit- endum eða einkatryggingum. Almenningur mun án nokkurs efa halda áfram að leita eftir enn meiri heilbrigðisþjónustu en nú er veitt, m.a. í ljósi bætts efnahags fólks og samfélagsins í heild. Ný þekking og möguleg lækning skipta hér vitanlega einnig miklu máli. Ónóg fjárframlög til op- inberu heilbrigðisþjónustunnar munu óhjákvæmilega leiða til þess að fleiri þættir heilbrigðisþjónust- unnar flytjast út fyrir almanna- trygginguna og einkarekin starf- semi eflistog einkasjúkratryggingar bjóðast. Mér sýnist jarðvegur vera að myndast fyrir einkatryggingar sem tryggi einstaklingana fyrir því sem hið opinbera er ekki reiðubúið að standa undir eða til þess að leysa hið opinbera alfarið undan skyldum sínum. Þetta er reynslan í löndum eins og Hol- landi og Írlandi svo nærtæk dæmi séu tekin. Íslenskt samfélag stefn- ir að mínu mati í þessa átt, hvort sem mönnum líkar það betur eða verr. Fram til þessa höfum við varla treyst okkur í umræðu um þessa þróun en nú verður illa und- an henni vikist. Afgreiðsla Alþing- is á fjárlögum fyrir árið 2008 mun gefa tóninn. Gildi samfélagslegrar heilbrigðisþjónustu Einstaklingar munu í framtíð- inni óska eftir aukinni þjónustu sem jafnframt felur í sér aukinn kostnað. Stefna stjórnvalda er að draga úr eða að minnsta kosti hemja vöxt heildarútgjalda til heil- brigðismála. Hvort samfélagið ver 10 eða 12% þjóðarteknanna til heilbrigðismála er ekki áhyggju- efni í sjálfu sér. Viðfangsefni stjórnvalda á fremur að snúast um það hvers konar heilbrigðisþjón- ustu við viljum veita á grundvelli samhjálpar og hverju sé kostað til hennar. Heilbrigðisþjónustan er hluti af lífsgæðum okkar og sam- félagslegu öryggi og arðsemi heil- brigðisútgjalda er mikil. Gott heil- brigði landsmanna er afar mikilvægur þáttur sterks efnahags hvers samfélags og heilbrigð- isþjónustan á ríkan þátt í hagvexti þjóða. Danir kjósa samfélagslegt ör- yggi í heilbrigðiskerfinu frekar en skattalækkanir. Um mikilvægi sanngirni innan heilbrigðisþjónust- unnar fjallaði Moore í kvikmynd sinni. Í leiðaranum sem vitnað var til í upphafi ítrekaði Morgunblaðið þá skoðun sína að Íslendingar sjái ekki eftir skattpeningi sínum til þess að tryggja samfélaginu gott heilbrigðiskerfi. Ég tek undir þetta sjónarmið. Hriktir í stoðum sameiginlegrar heil- brigðisþjónustu? Eftir Magnús Pétursson » Sterkt vaxandikröfu um að auka heilbrigðisþjónustu verður ekki mætt með hagræðingu eða breytt- um rekstrarformum einum saman. Magnús Pétursson Höfundur er forstjóri Landspítala – háskólasjúkrahúss. sögu, sagða með nútímalegum hætti. „Það er hluti af mínu starfi sem leik- listarráðunautur að fylgjast með því sem er að gerast úti í heimi, og lesa eins mikið og ég kemst yfir. Svo er ég svo heppinn að hafa þetta að áhugamáli líka, þannig komast verk eins og þetta inn í líf mitt.“ Hann segir þýskt leikhús hafa verið öflugt um aldir og sé það enn. „Í hinum þýskumælandi heimi er lögð mikil áhersla á leikhús, og á list- ir yfirleitt. Þar eins og víða annars- staðar eru listir stór hluti lífsgæða. Það er leikhús í hverri borg, tónlist- arhús í hverri borg,“ – hann brosir – „við eigum í basli með þetta.“ Laus undan pólitík og sögu „Þeir leggja mikla áherslu á nýja leikritun. Mörg leikhúsanna eru með hóp ungs fólks í þjálfun við að skrifa leikrit; þau fá jafnvel laun meðan þeim er hjálpað af stað. Leikhúsið er hluti af menningar- lífinu, og af lífinu yfirleitt. Það er ekki bara fyrir alþýðufólk eða gáfu- fólk heldur er þar líka að finna leik- hús fyrir alla hina. Sumir hafa haft þá mynd af þýsku leikhúsi að það sé þungt og erfitt, og vissulega hefur ákveðin áreynsla einkennt sum leik- skáldanna sem stunduðu leikrita- skrif á sjötta og sjöunda áratugnum. 1960. En þetta unga fólk sem byrjaði að skrifa á tíunda áratugnum, eftir fall múrsins, er svo miklu frjálsara, það hefur losað sig undan pólitík og sögu, og þessari eilífu umfjöllun um Þýskaland,“ segir Hafliði. Í vetur helgar Þjóðleikhúsið Smíðaverkstæðið erlendri nútíma- leikritun. Konan áður er fyrsta leik- ritið. Annað verður Vígaguðinn eftir frönsku skáldkonuna Yasminu Reza, og í apríl verður frumsýnt leikritið Hinn ljóti eftir annað þýskt leik- skáld, Marius von Mayenburg. ndur- íminn son í n efni Morgunblaðið/Einar Falur Leikhúsmaðurinn „Heppinn að hafa þetta að áhugamáli líka.“ semi útiloka hvort annað. Þess vegna er r í ástinni, alltaf: harmleikur svika, von- ig svarar þýska leikskáldið Roland Schim- m þá skilyrðislausu ást sem sett er fram í ur, sem frumsýnt verður á Smíðaverkstæði völd. sett á svið í Vínarborg fyrir þremur ár- mætir fjölskyldufaðir fortíð sinni í dyra- ýr kona, æskuástin, og krefst þess að gamalt loforð um að elska stúlkuna sína að am af fullri hörku og hefur ýmsar afleið- sem er að flytja yfir hafið og hugðist þýðir verkið og leikstýrir því, en leik- Trausti Hreinsson, Edda Arnljótsdóttir, r, Vignir Rafn Valþórsson og Þórunn einþórsson hannar leikmynd og búninga, st lýsingu. tin knýr dyra segir Mjólkursamsöluna og Hvíta eiga mikið hrós skilið fyrir að hafa vefnum á laggirnar. „Það mun eng- nar hugsa um tunguna og náttúruna kkur svo við verðum að gera það g þá er það sérstaklega hrósvert einkafyrirtæki ganga fyrir með góðu fordæmi,“ segir Páll sem telur vefinn vera eina bestu afmælisgjöf sem Jónas hefði getað kosið sér. „Þarna er Ís- landslýsingin hans komin og hann hefði haft gaman af þessari tækni sem vefurinn er.“ asar á vefnum Morgunblaðið/Ómar tti Jónasarvefnum formlega viðtöku í Iðnó í gær. TENGLAR ......................................................... www.jonas.ms.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.