Morgunblaðið - 17.11.2007, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2007 25
LANDIÐ
-hágæðaheimilistæki
Kraftmiklar ryksugur
fyrir öll heimili
Verð frá kr.:
15.990
Miele ryksugurnar eru traustar og kraftmiklar. Þær eru með
stillanlegu röri og mikið úrval fylgihluta er fáanlegt með vélini.
Verið velkomin í glæsilegar verslanir Eirvíkur á Akureyri
og í Reykjavík og kynnið ykkur Miele ryksugurnar.
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Baldursnes 6, Akureyri | Sími 588 0200
Miele
ryksugur
– litlar og liprar.
www.eirvik.is
Hraunbraut 26, Kópavogi Opið
hús laugardag og sunnudag
á milli 13 og 14
Gott og vel skipulagt einbýli ásamt bílskúr og stórri geymslu í
kjallara. Húsið er skráð 191,4 fm. en er stærra þar sem
geymsla í kjallara er ekki skráð. Glæsilegt sjávarútsýni er frá
efri hæð hússins.
Halldór sýnir húsið laugardag og sunnudag
á milli 13 og 14. Mb
l 9
37
69
5
Borgarnes | Tónlistarskóli Borgar-
fjarðar fagnar 40 ára afmæli um þess-
ar mundir. Fyrir skömmu stóð skól-
inn fyrir afmælistónleikum í Borgar-
neskirkju. Flytjendurnir á tónleik-
unum komu úr röðum núverandi og
fyrrverandi nemenda og kennara
skólans.
Dagskráin var fjölbreytt; gítar-
samspil, einsöngur, einleikur, sam-
söngur, kórsöngur svo eitthvað sé
nefnt. Á tónleikunum var frumflutt
tónverk eftir fyrrverandi nemanda
tónlistarskólans, Önnu Sigríði Þor-
valdsdóttur, en hún samdi verkið sér-
staklega í tilefni afmælisins. Verkið
heitir „Á kunnar slóðir“ og vísar
nafnið til þess að tónskáldið lítur aft-
ur til heimahaganna eftir að hafa ver-
ið lengi fjarverandi. Að tónleikunum
loknum var gestum boðið til kaffi-
samsætis í Tónlistarskólahúsinu í
Borgarnesi.
Tónlistarskóli Borgarfjarðar var
stofnaður haustið 1967. Aðdragand-
inn að stofnun hans var að nokkrum
árum áður varð til nefnd sem hét
Æskulýðs- og menningarmálanefnd
Mýra- og Borgarfjarðarsýslu. For-
maður nefndarinnar var Ásgeir Pét-
ursson, þáverandi sýslumaður.
Nefndin stofnaði Tónlistarfélag
Borgarfjarðar sem meðal annars
hafði það hlutverk að stofna og starf-
rækja tónlistarskóla. Stjórn tónlistar-
félagsins útvegaði tónlistarfólk til
starfa en tónlistarfélagið kemur ekki
að starfsemi tónlistarskólans að öðru
leyti en því að það hefur alla tíð átt
sinn fulltrúa í skólanefnd skólans. Á
afmælistónleikum kom Ásgeir Pét-
ursson að máli við Theodóru Þor-
steinsdóttur, núverandi skólastjóra,
og sagði: „Það er gaman að sjá að
kvistur sem var gróðursettur fyrir 40
árum er orðinn að stóru tré!“ Fleiri
viðburðir eru áformaðir vegna af-
mælisins, en á fjörutíu ára afmælisári
skólans eru einnig tuttugu ár frá því
að söngdeildin við skólann var stofn-
uð. Verður haldið upp á þau tímamót
eftir áramótin með því að setja upp
óperettuna Sígaunabaróninn eftir
Johann Strauss. Sýningin verður sett
upp í Gamla Mjólkursamlaginu
Borgarnesi og mun hún marka opnun
hússins eftir gagngerar endurbætur.
Tónlist Kammersveit Tónlistarskóla Borgarfjarðar frumflytur verkið „Á kunnar slóðir.“
40 ára afmæli Tónlistar-
skóla Borgarfjarðar
Vestfirðir | Vestfirsku skáldin
nefnist dagskrá sem boðið verður
upp á í Holti í Önundarfirði sunnu-
daginn 18. nóvember kl. 16:00. Það
er Vestfjarðaakademían í samstarfi
við afmælisnefnd Guðmundar Inga
Kristjánssonar sem efnir til þessa
skáldskaparþings. Boðið verður
upp á umfjöllun í tali og tónum um
vestfirsk skáld frá ýmsum tímum.
Ólafur Þ. Harðarson stjórnmála-
fræðingur mun flytja erindi um
Guðmund Inga Kristjánsson. Andr-
ea Harðardóttir mun fjalla um Jón
úr Vör og Jakobínu Sigurðardótt-
ur. Fluttur verður fyrirlestur Jónu
Símoníu Bjarnadóttur um Stein-
gerði Guðmundsdóttur – leikskáld-
ið sem týndist í bókmenntasögunni.
Bjargey Ingibjörg Gunnlaugsdóttir
mun syngja lög af vestfirskum upp-
runa.
Ólína Þorvarðardóttir þjóðfræð-
ingur mun kveða stemmur við vest-
firskar vísur og þulur og fjalla um
vestfirsku skáldin. Hrafnhildur
Hafberg mun lesa upp úr verkum
Guðmundar G. Hagalín og Viðar
Konráðsson kemur fram í hlutverki
Grasa-Guddu úr leikritinu Skugga-
Sveini.
Dagskráin er helguð minningu
Guðmundar Inga Kristjánssonar
skálds sem hefði átt aldarafmæli á
þessu ári. Til sýnis og sölu verður
afmælisdagabók með ljóðum
skáldsins sem kemur út um næstu
helgi. Bókina samdi Guðmundur
Ingi á árunum 1927-32 og orti ljóð
við hvern dag ársins.
Boðið verður upp á kaffiveiting-
ar meðan á dagskránni stendur og
er hún öllum opin meðan húsrúm
leyfir.
Vestfirsku
skáldin í
Önundarfirði
Eftir Hafþór Hreiðarsson
Húsavík | Að undanförnu hafa staðið
yfir æfingar hjá Leikfélagi Húsavíkur
á Íslandsklukkunni eftir Halldór Lax-
ness. Sýningin er byggð á leikgerð frá
árinu 1980 sem Bríet Héðinsdóttir
gerði fyrir Leiklistarskólann.
Leikstjórn sýningarinnar er í
höndum Arnórs Benónýssonar og er
þetta í annað skipti sem hann leik-
stýrir hjá LH. Guðni Bragason er
tónlistarstjóri sýningarinnar. Hann
semur einnig alla tónlist í sýningunni
og flytur hana ásamt Jóni Indriða-
syni. Með helstu hlutverk í sýning-
unni fara Hjálmar Bogi Hafliðason
sem leikur Arnas Arnæus, Snæfríði
Íslandssól unga leikur Helga Sigur-
jónsdóttir en þá eldri Þorbjörg
Björnsdóttir. Hagyrðingurinn snjalli
úr Mývatnssveit, Friðrik Steingríms-
son, er í hlutverki Jóns Hreggviðs-
sonar. Feðgarnir Gunnar Jóhannsson
og Jóhann Kr. Gunnarsson fara með
stór hlutverk í sýningunni, Gunnar er
í hlutverki Magnúsar í Bræðratungu
og Jóhann Kr. leikur dómkirkju-
prestinn. Þá eru hinir gamalreyndu
leikarar Þorkell Björnsson og Jón Fr.
Benónýsson í hlutverkum þeirra Jóns
Grindvicensis og Jóns Marteinsson-
ar.
Íslandsklukkan verður frumsýnd á
morgun, laugardaginn 17. nóvember,
í gamla samkomuhúsinu á Húsavík.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Leiklist Þorbjörg Björnsdóttir og Hjálmar Bogi Hafliðason í hlutverkum
sínum sem Snæfríður Íslandssól og Arnas Arnæus í Íslandsklukkunni.
Íslandsklukkan á svið
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111