Morgunblaðið - 22.11.2007, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
VM – félag vélstjóra og málm-
tæknimanna hélt fund með pólsk-
um starfsmönnum þriðjudaginn 20.
nóvember sl. Í tilkynningu frá VM
kemur fram að atvinnurekandi
nokkurra pólskra starfsmanna,
sem sóttu fundinn, hafi mætt á
fundinn og gert tilraun til að reka
starfsmenn sína af fundinum, en
þeir sátu sem fastast. Að lokum
þurfti að vísa atvinnurekandanum
og fylgdarmanni hans úr fundar-
sal.
Starfmenn félagsins stóðu í
nokkru stappi við atvinnurekand-
ann sem sífellt krafðist þess að
starfsmennirnir færu af fundinum
og vísaði til félagafrelsis í því sam-
bandi. Hann yfirgaf þó fundinn áð-
ur en til þess kæmi að lögreglan
væri kölluð til.
Morgunblaðið/Ómar
Upphlaup á fé-
lagsfundi VM
ALLS veiddust 386 rjúpur á fyrstu
fjórum dögum veiðitímabilsins,
samkvæmt upplýsingum úr rafræn-
um veiðidagbókum Umhverfis-
stofnunar.
Flestir voru veiðimennirnir
fyrsta daginn eða 53 og veiddu þeir
177 rjúpur.
Rjúpnaveiði er heimil í nóvemb-
ermánuði og er aðeins heimilt að
veiða frá fimmtudegi fram til
sunnudags.
Veiðimenn
flestir 53
FYRIRLESTUR verður haldinn um
fornleifauppgröft og rannsóknir
að Hólum í Hjaltadal á vegum
Minja og sögu í Þjóðminjasafni Ís-
lands í dag, fimmtudag, kl. 17.
Fyrirlesari verður Ragnheiður
Traustadóttir, fornleifafræðingur
og stjórnandi Hólarannsóknar-
innar. Ragnheiður sýnir myndir
frá uppgreftinum og fjallar um
fornleifarannsóknir á Hólum sem
um aldabil voru biskupsstóll og
fræðasetur og geymir í jörðu mikl-
ar upplýsingar um sögu kirkju og
þjóðar. Að rannsóknunum komu
innlendir og erlendir sérfræðingar
úr flestum greinum menningar-
sögulegra rannsókna.
Hólafyrirlestur
STJÓRN Sam-
taka iðnaðarins
hefur ráðið Jón
Steindór Valdi-
marsson í stöðu
framkvæmda-
stjóra samtak-
anna. Tekur
hann við starf-
inu af Sveini
Hannessyni sem
verður forstjóri
Gámaþjónustunnar. Jón Steindór
er stúdent frá Menntaskólanum á
Akureyri 1978. Hann er lögfræð-
ingur að mennt og útskrifaðist frá
Háskóla Íslands árið 1985. Að
loknu námi starfaði hann um tíma
í fjármálaráðuneytinu en síðan
hjá VSÍ. Árið 1988 hóf hann störf
hjá Félagi íslenskra iðnrekenda
og síðan hjá Samtökum iðnaðar-
ins frá 1993, lengst af sem aðstoð-
arframkvæmdastjóri. Jón Stein-
dór er kvæntur Gerði Bjarna-
dóttur kennara og eiga þau þrjár
dætur.
Nýr fram-
kvæmdastjóri
Jón Steindór
Valdimarsson
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
„MARKAÐURINN er að breytast,
hann er að þroskast og gullæðið er
búið. Það er ekki lengur hægt að
kaupa lóð, reyna að byggja upp með
sem hröðustum hætti og selja. […]
Það er ekki lengur þessi sjálfvirka
hækkun sem allir verktakar hafa
fengið í verkgjöf. Hún er ekki lengur
sjálfsögð,“ sagði Ásgeir Jónsson,
forstöðumaður greiningardeildar
Kaupþings, á ráðstefnu um horfur á
fasteignamarkaði sem haldin var á
Hilton Reykjavík Nordica í gær.
Hann sagði vísbendingar um að
framboð nýs húsnæðis hefði náð há-
marki á árinu og reiknar með 3-4%
hækkunum á fasteignamarkaði á
næsta ári, samanborið við 10% í ár.
Tvær ólíkar ræður Dags
Greiningardeildin birti í gær tvær
skýrslur, annars vegar um íbúðar-
húsnæði og hins vegar atvinnuhús-
næði, en áður en farið var yfir töl-
urnar hélt Dagur B. Eggertsson
borgarstjóri erindi um stöðuna í
Reykjavík.
Dagur sagðist geta haldið tvær
ólíkar ræður um stöðu á fasteigna-
markaðnum. Aðra um það hvernig á
undanförnum árum hefði aldrei ver-
ið jafn mikið skipulagt og samþykkt
af nýju atvinnu- og íbúðarhúsnæði
en hina um þann stóra hóp sem
þenslan gleymdi. „Þrátt fyrir þessa
miklu uppbyggingu og sveiflu eru
ámóta margir að bíða eftir félagslegu
íbúðarhúsnæði í Reykjavík nú og ár-
ið 2003,“ sagði Dagur og vísaði í nið-
urstöður nýrrar könnunar sem
Rannsóknarstofnun þjóðmála tók
saman.
Þar kemur fram að rúmlega 1.600
manns séu á biðlista hjá sveitarfélög-
um og Öryrkjabandalaginu eftir fé-
lagslegu húsnæði á höfuðborgar-
svæðinu. Þar af eru 747 í Reykjavík
og það þrátt fyrir að fjöldi íbúða hafi
tvöfaldast á síðustu tíu árum. „En
Reykjavík er raunar eina sveitarfé-
lagið á landinu þar sem biðlistar hafa
styst á þessum [fjórum] árum og
merkilegt nokk, þá eru afar fá önnur
sveitarfélög sem hyggja á fjölgun fé-
lagslegra íbúða.“
Í raun hefði Dagur haldið þrjár
ræður því hann fór einnig inn á mál-
efni nágrannasveitarfélaga höfuð-
borgarsvæðisins og benti á að eng-
inn hefði dregið það saman að öll
sveitarfélög, frá Reykjanestá, að Ár-
borg og upp í Borgarnes væru með
gríðarlega stórhuga áform um að
fjölga íbúum og atvinnufyrirtækjum
hjá sér. „Mér sýnist á öllu að sér-
staklega þau sveitarfélög sem fá-
mennari eru, reikni með því að fjölga
íbúum tvöfalt á næstu fimm árum.
Ekki sum, mér sýnist að næstum því
öll ætli að gera þetta. Það mun ekki
gerast og í raun má velta fyrir sér
hvort uppbygging þessara nýju út-
hverfa Reykjavíkur getur ekki talist
áhætturekstur, eða áhættusækinn
rekstur, í fjármálum sveitarfélaga.
Þarna þarf miklu betri greiningar og
framtíðarsýn.“
Í erindi sínu varaði Ásgeir Jóns-
son raunar einnig sveitarfélögin í
kringum höfuðborgarsvæðið við því
að fara of geyst í þessum efnum.
Hvað varðar umsvif á fasteigna-
markaði á næstunni sagði Ásgeir að
á margan hátt myndi niðursveifla í
hagkerfinu á næsta ári endurspegla
fasteignamarkaðinn. „Við gerum ráð
fyrir að hagkerfið fari í aðlögun, fari
í það sem við köllum niðursveiflu á
næsta ári sem nær eitthvað fram á
2009. Við sjáum ekki kaupmátt
aukast á þessum tíma og jafnvel
minnka lítillega.“ Auk þess að spá
kólnun í hagkerfinu reiknar grein-
ingardeildin með að vinnumarkaður-
inn fari í jafnvægi.
Markaðurinn yfirfyllist ekki
„Það sem er einkum gott fyrir
íbúðamarkaðinn er að svo virðist
sem framboð af nýju húsnæði hafi
náð hámarki á þessu ári,“ sagði Ás-
geir sem telur það lykilatriði, þar
sem skapast gæti lækkun á mark-
aðnum væri of mikið framboð ofan í
minnkandi eftirspurn. „Búið er að
byggja upp alveg gríðarlega fram-
leiðslugetu í byggingariðnaði og við
gætum séð það á einhverjum tíma-
punkti að þessi öflugi geiri gæti yf-
irfyllt markaðinn, en það er ekki að
fara að gerast á næsta ári eða árinu
þar á eftir.“
Með minnkandi umsvifum á mark-
aðnum telur Ásgeir að meira muni
bera á þáttum líkt og staðsetningu,
hönnun og gæðum. Hann segist sjá
fyrir sér 3-4% hækkun á næsta ári en
það verði mjög misskipt á milli
hverfa og á meðan verðið sé að
hækka á einu svæði gæti það lækkað
á öðru.
Hvað varðar atvinnuhúsnæði ger-
ir greiningardeildin ráð fyrir um
18% hækkun í ár en verulega muni
draga úr henni á næsta ári – verði
hugsanlega um 5% að nafnvirði.
Sölvi Blöndal, sérfræðingur af
greiningardeild bankans, sagði upp-
byggingu á nýju verslunar- og skrif-
stofuhúsnæði hafa tekið kipp að und-
anförnu, en svo virtist sem flestir
verktakar hefðu einkum byggt íbúð-
arhúsnæði, sérstaklega eftir að fast-
eignaverð hækkaði mikið á árinu
2004. Umframeftirspurn eftir versl-
unar- og skrifstofuhúsnæði eftir
2005 hafi endurspeglast í 33% verð-
hækkun og tæplega 12% hækkun
leiguverðs á árinu 2006.
Framboð er í hámarki
„Gullæðið er búið,“ sagði forstöðumaður greiningardeildar Kaupþings um horf-
ur á fasteignamarkaði Deildin gerir ráð fyrir kólnun en ekki frosti á næsta ári
Morgunblaðið/Jim Smart
Húsnæði Greiningardeild Kaupþings telur að eftirspurn eftir íbúðar-
húsnæði muni dragast saman á næsta ári og hagkerfið kólni.
Í HNOTSKURN
»Á fjórða hundrað mannsmættu á Hilton Reykjavík
Nordica til að forvitnast um
horfur á fasteignamarkaði.
»Háir vextir, erfiðara að-gengi að lánsfé og kóln-
andi vinnumarkaður eru með-
al þeirra þátta sem munu
draga úr eftispurn á fast-
eignamarkaði.
»Gert er ráð fyrir um-skiptum á árinu 2009 sam-
hliða því að vextir lækka.