Morgunblaðið - 22.11.2007, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2007 15
TÓNLISTARVIÐBURÐUR:
Nýútkomin hljóðritun eins mesta listaverks tónlistarsögunnar
MESSA Í H-MOLL KYNNING Í
HALLGRÍMSKIRKJU - ÓKEYPIS
Allir seldir diskar eru númeraðir og gilda sem miði í happdrætti,
sem jafnframt er fyrsta styrkveiting sjóðsins, námsstyrkur að
upphæð 1.000.000, ein milljón króna.
Dregið verður í happadrættinu í 50 ára afmælishófi Pólýfónkórsins hinn 8. apríl nk.
Vinninga má framselja í samráði við stjórn félagsins.
Gullvægar hljóðritanir á kynningarverði með happdrættisnúmeri. - Milljón króna vinningur.
PÓLÝFÓNFÉLAGIÐ - polyfon50@gmail.com - www.polyfon50.is
Í rómaðri Spánarför Pólýfónkórsins,
Kammersveitar Reykjavíkur og einsöngvar-
anna Kristins Sigmundssonar, Jóns Þor-
steinssonar og Nancy Argenta voru t.d.
frumfluttir fyrstu þættirnir úr stærsta tón-
verki Jóns Leifs, EDDU ÓRATÓRÍU,
ásamt úrvali vinsælla verka frá barokk til
nútímans, t.d. Vatnasvíta Händels, kaflar úr
Messíasi, s.s. Hallelúja-kórinn og hin glæsi-
lega tónsmíð F. Poulencs, Gloria. Spennandi
sýnishorn af rómuðum tónleikaferðum
Pólýfónkórsins um Evrópu.
PÓLÝFÓNFÉLAGIÐ og TÓNMENNTA-
SJÓÐUR INGÓLFS standa að þessari
veglegu útgáfu í tilefni þess að 50 ár eru
liðin frá stofnun Pólýfónkórsins, auk þess
að sýna hið besta frá ferli Pólýfónkórsins.
Þessa veglegu tónútgáfu er almenningi
gefinn kostur á að eignast á sérkjörum
aðeins þennan dag, 25. nóvember, en
diskarnir fást síðan í hljómplötuverslunum.
Ómissandi gjöf í jólapakkann á hvert
heimili.
í flutningi Pólýfónkórsins, Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands og 4 frægra einsöngvara
undir stjórn Ingólfs Guðbrandssonar, alls
um 150 flytjendur.
Einstök söguleg hljóðritun, á tveimur
hljómdiskum, gerð á 300 ára afmælisdegi
J. S. Bachs.
FYRSTA HLJÓMÚTGÁFA
VERKSINS
Á NORÐURLÖNDUM
(UTAN SVÍÞJÓÐAR).
Fyrir tilstilli EVRÓPURÁÐSINS
sem einstakt framlag á ári tónlistar,
1985, mun útgáfan fara á Evrópu-
markað / heimsmarkað. Tryggðu
þér eintak í tíma af þessari sögu-
legu hljóðritun.
sunnudag 25. nóvember
kl. 16.30. Kirkjan opin frá
kl. 16.
Tónlist J. S. Bachs hljómar enn jafn-ný og
fersk og vex stöðugt í áliti við aukin kynni.
H-moll messan er einn mesti dýrgripur í
sögu tónlistar - og vegleg jólagjöf eða við
hvert tækifæri, síung og spannar í raun og
veru öll svið mannlífsins. Slíkt verk ætti
að vera til á hverju heimili til endurtekinn-
ar hlustunar og blessunar fyrir anda húss-
ins. Á kynningunni verður verkið flutt af
hinum nýju geisladiskum, nokkuð stytt.
Aðgangur að kynningunni er ókeypis, og
sala diskanna fer fram í anddyri kirkjunnar
frá kl. 16 og að lokinni kynningu á sér-
stöku kynningarverði. Einnig er gefinn
magnafsláttur.
„Flutningur Pólýfónkórsins og Sinfóníuhljómsveitar Íslands á
H-moll messu Bachs er sá besti, sem ég hef heyrt hingað til
en ég hef sungið þetta verk víða um heim. Meðlimir kórsins,
hljóðfæraleikarar í Sinfóníuhljómsveitinni, að ógleymdum
stjórnandanum, gera greinilega miklar kröfur og því verður
útkomana svona góð“.
Jacquelyn Fugelle, sópransöngkona
(Morgunblaðið, 23. mars 1985)
„Ingólfur Guðbrandsson og Pólýfónkórinn flytja þessa
risatónsmíð nú í þriðja sinn og af því tilefni mætti spyrja
hvort við Íslendingar hefðum haft uppburði í okkur til að
halda upp á afmæli meistarans með þessum hætti án þátttöku
Ingólfs og Pólýfónkórsins“.
Jón Ásgeirsson
(Morgunblaðið, 23. mars 1985)
Nokkrar tilvitnanir í gagnrýni um flutning Pólýfónkórsins og Sinfóníuhljómsveitar
Íslands á Messu í h-moll eftir J.S. Bach 21.mars 1985 í Háskólabíói.
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
MINNI átök í Írak síðustu mánuði
valda því að þúsundir fátækra flótta-
manna, sem margir hafa flúið til Sýr-
lands, eru nú farnar að snúa aftur
heim, að sögn íraskra stjórnvalda.
Mjög fáir sem hafa flúið til Jórdaníu
hafa hins vegar ákveðið að fara heim
á ný en yfirleitt eru þar betur stæðir
flóttamenn en þeir sem hafa flúið til
Sýrlands.
Flóttafólkið í Jórdaníu er sumt
sagt hafa meira sparifé milli hand-
anna og það geti því þraukað lengur.
Samkvæmt vefsíðu breska útvarps-
ins, BBC, í gær koma nú um 1.000
manns daglega aftur til Íraks og sam-
kvæmt upplýsingum frá flótta-
mannahjálp Sameinuðu þjóðanna,
UNHCR, sneru um 45 þúsund Írakar
aftur heim í liðnum mánuði frá Sýr-
landi.
Ekki er það einvörðungu betra
ástand í öryggismálum sem veldur
umskiptunum heldur einnig skortur
á atvinnu fyrir Íraka í Sýrlandi. Svo
mikill var straumurinn til Sýrlands
að íbúum landsins fjölgaði um 10% og
hafa þarlend stjórnvöld nú byrjað að
stugga við flóttafólki og sama er upp
á teningnum í Jórdaníu. Þangað fá
ekki fleiri íraskir flóttamenn að fara
og Sýrlendingar krefjast vegabréfs-
áritana af fólkinu.
Færri árásir en friður
ekki enn í augsýn
Þótt árásum í Írak hafi fækkað
verulega og dregið úr mannfalli er
enn langt frá því að friðsamlegt sé al-
mennt orðið í Írak. Að minnsta kosti
fimm manns féllu í sjálfsvígsárás í
borginni Ramadi í gær. Slíkar árásir
voru lengi tíðar í borginni en þeim
hefur fækkað mikið eftir að samstarf
hófst milli ættflokkahöfðingja
súnníta og herja Bandaríkjamanna
um að kveða niður hryðjuverk liðs-
manna al-Qaeda á svæðinu.
Stjórnvöld í Bagdad hafa reynt að
lokka flóttafólk heim á ný, meðal ann-
ars með því að bjóða því fríar ferðir
með rútum til Íraks. Yfir 4,4 milljónir
Íraka hafa flúið ofbeldið í landinu frá
innrás bandamanna í mars 2003, þar
af er helmingurinn innanlands en
ekki á heimilum sínum, þ.e. flótta-
menn í eigin landi. Ofbeldið í Bagdad
hefur minnkað mjög og stjórnin hef-
ur reynt að fá borgarbúa sem sest
hafa að tímabundið annars staðar til
að snúa aftur heim gegn 800 dollara
greiðslu, nær 50.000 ísl. krónum. Alls
hafa 4.700 fjölskyldur tekið boðinu.
Fyrrverandi lögreglumaður, Abu
Naseem, fylgdist með málurum lag-
færa húsið sem hann hafði yfirgefið í
höfuðstaðnum. Hann sagðist vona að
ekki kæmi aftur til bardaga. „En ég
held að aftur verði unnin ofbeldis-
verk,“ sagði hann.
Athygli vakti í gær að bandarískur
undirhershöfðingi, James Dubik,
sagði að Íranar legðu nú hönd á plóg-
inn við að efla öryggi í Írak. Bendir
þetta til þess að ráðamenn í Teheran
vilji nú standa við loforð sem þeir
hafa gefið íröskum ráðamönnum um
aðstoð við að kveða niður óöldina. Du-
bik hefur yfirumsjón með þjálfun
liðsmanna öryggissveita ríkisstjórn-
ar Íraks. „Við erum öll þakklát fyrir
að Íranar skuli nú leggja sig fram um
að stöðva straum vopna, sprengiefnis
[frá Íran] og einnig þjálfun öfga-
manna í Írak,“ sagði hann.
Íraskir flóttamenn farnir
að snúa aftur á heimaslóðir
Flóttamannahjálp SÞ segir 45.000 manns hafa komið frá Sýrlandi í október
Reuters
Guðsmóðir Íraskur lögreglumaður virðir fyrir sér styttu af Maríu mey í
Dora-hverfinu í Bagdad í gær. Hundruð þúsunda Íraka eru kristnir.
Moskvu. AP. |
Vladímír Pútín,
forseti Rúss-
lands, lýsti póli-
tískum andstæð-
ingum sínum sem
„undirlægjum“
erlendra ríkja og
sakaði þá um að
ætla að veikja
Rússland. Er
þetta harðasta árás Pútíns til þessa
á stjórnarandstöðuna fyrir þing-
kosningarnar 2. desember.
Pútín flutti ræðu á íþrótta-
leikvangi þar sem um 5.000 stuðn-
ingsmenn hans hvöttu hann til að
vera áfram „leiðtogi þjóðarinar“ eft-
ir að síðara kjörtímabili hans lýkur.
Samkvæmt stjórnarskránni getur
enginn gegnt forsetaembættinu
lengur en í tvö kjörtímabil í röð.
Kosningarnar hafa í raun orðið að
þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort
Pútín eigi að halda völdunum með
einhverjum hætti, hugsanlega sem
forsætisráðherra. Nær 80% lands-
manna styðja forsetann sem er í
efsta sæti á lista flokksins Samein-
aðs Rússlands. Skoðanakannanir
benda til þess að flokkurinn fái tvo
þriðju atkvæðanna og átta af hverj-
um tíu þingsætum.
Pútín lýsti kosningunum sem vali
á milli áframhaldandi efnahags-
uppgangs og glundroðans sem ein-
kenndi fyrstu árin eftir hrun Sov-
étríkjanna 1991.
„Hér á landi eru því miður til
menn sem nærast á erlendum sendi-
ráðum eins og undirlægjur og reiða
sig á stuðning erlendra sjóða og rík-
isstjórna,“ sagði Pútín.
Deilt á
„undir-
lægjur“
Vladímír Pútín