Morgunblaðið - 22.11.2007, Page 20
20 FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AUSTURLAND
- kemur þér við
REI og GGE hætta
við á Filippseyjum
Meðaltekjur duga
ekki fyrir íbúð
Diddú í rússíbanareið
Netumferðin féll
með Torrent.is
Tölvuleikjafíklar
skrópa í skólanum
Hver er glæpatíðnin
í þínu hverfi?
Hvað ætlar þú
að lesa í dag?
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
Egilsstaðir | Jökulsá á Dal rennur
nú úr Hálslóni eftir aðrennslis-
göngum Kárahnjúkavirkjunar til
Fljótsdalsstöðvar og þaðan út í far-
veg Jökulsár í Fljótsdal og í Lag-
arfljót. Má búast við að sjá einhver
áhrif þess innan skamms á fljótið,
fyrst í formi litabreytinga sem
aukast munu á næstu mánuðum.
Missir Lagarfljót þá hinn grængol-
andi mysulit sinn og verður grárra
og dekkra vegna hins mikla aur-
burðar Jöklu.
Í bók Helga Hallgrímssonar nátt-
úrufræðings, Lagarfljót, mesta
vatnsfall Íslands, sem út kom fyrir
tveimur árum, segir að heldur hafi
vafist fyrir mönnum að lýsa lit Lag-
arfljóts og fágætt sé að hitta tvo
menn sem sammála séu um meginlit
þess. Flestir hafa talið hann ljósgrá-
grænan, gulgrágrænan eða jafnvel
hvítleitan við venjulegar aðstæður.
Silfraðir og bláir litir koma einnig
við sögu og þá himinblár, jökulblár
og jafnvel Vatnajökulsblár.
Litaspilið horfið um áramót
„Lagarfljót hefur tekið á sig
margvíslegan blæ og stýrist lita-
spilið af árstíðum, veðurfari, vind-
áttum, skýjafari og sólarhæð,“ segir
Helgi og telur líklegt að um sól-
stöður á næsta ári verði þetta lita-
spil horfið og fljótið orðið grá-
brúnleitt og dekkra en áður. Vísast
muni þá mörgum bregða í brún.
Fleiri áhrif en litabreytingar seg-
ir Helgi verða á Lagarfljóti við að
jökulvatnshluta Jökulsár á Dal er
veitt þangað. „Þetta verða að með-
altali um 90 rúmmetrar (tonn) á
sekúndu sem er um það bil tvöföld-
un á núverandi rennsli í Löginn, en
nokkru minna miðað við rennsli um
Lagarfoss. Aukningin verður hlut-
fallslega mest að vetrarlagi, en til-
tölulega lítil að vorlagi og fyrri part
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Bryddingar Lagarfljótið hefur til skamms tíma átt sér marga liti sem veðurfar og aðrir umhverfisþættir hafa ráð-
ið mestu um, en eftir því sem Jökla rennur lengur í fljótið verður litur þess grábrúnleitur og eitthvað dekkri.
Grængolandi mysulitur
víkur fyrir grábrúnum
Jökla rennur nú í Lagarfljót og mun valda breytingum
SUÐURNES
Eftir Svanhildi Eiríksdóttur
Reykjanesbær | „Við erum stolt af
því að vera fyrsti grunnskólinn í
Reykjanesbæ til að fá grænfánann
og vonum að við verðum öðrum
skólum hvatning,“ sagði Lára Guð-
mundsdóttir, skólastjóri Njarðvík-
urskóla, þegar Landvernd afhenti
skólanum grænfánann í gær. Árni
Sigfússon bæjarstjóri sagðist jafn-
framt vera afar stoltur yfir því að
Njarðvíkurskóli væri fyrsti skólinn
á Suðurnesjum til að flagga græn-
fánanum.
Rík umhverfisvitund hefur lengi
verið áherslumál í Njarðvíkur-
skóla. Í mörg ár hafa starfsfólk og
nemendur unnið eftir umhverfis-
stefnu með það að leiðarljósi að
vera grænfánaskóli. Því markmiði
hefur nú verið náð með árangurs-
ríkri fræðslu. Fánanum getur
Njarðvíkurskóli flaggað næstu tvö
árin og má hvergi slá slöku við í
umhverfismálum. Þá verður staðan
endurmetin.
Foreldrar taki þátt
Ásgerður Þorgeirsdóttir aðstoð-
arskólastjóri sagði í samtali við
Morgunblaðið að farið hafi verið
að vinna eftir umhverfisstefnu í
skólastjóratíð Gylfa Guðmundsson-
ar og í raun hefði skólinn geta sótt
um grænfánann miklu fyrr. „Auk
endurnýtingar á fernum, pappír,
plasti og þeim efnum sem hægt er
að endurnýta, höfum við lengi end-
urnýtt kerti í textílmennt undir
stjórn Margrétar Stefánsdóttur,
sem er formaður umhverfisnefnd-
ar skólans, auk þess að fræða
börnin um orkunotkun og vatns-
notkun. Við hvetjum þau til að
slökkva á tölvuskjánum og skrúfa
fyrir vatnið þegar þau eru ekki að
nota það. Foreldrafélag skólans
hefur líka stutt þetta verkefni með
því að virkja grenndarsamfélagið.
Þau hafa sent börnin heim með
blöð þar sem fram koma upplýs-
ingar um flokkun sorps og for-
eldrar þannig hvattir til að taka
þátt í umhverfisstefnunni.“
Lára Guðmundsdóttir sagði við
athöfnina að Reykjanesbær styddi
við framtakið með umhverfisstefnu
og nýverið efndi bærinn til um-
hverfisverkefnis meðal grunn-
skólanema. Þrír nemendur úr
Njarðvíkurskóla fengu viðurkenn-
ingu, þær Ingibjörg Jóna Guðrún-
ardóttir, Særún Sævarsdóttir og
Marín Hrund Magnúsdóttir. Verk-
efnin verða notuð til að efla um-
hverfisvitund íbúa Reykjanesbæj-
ar og minna þá á mikilvægi þess
að ganga vel um bæinn sinn.
Lára afhenti við athöfnina
Reykjanesbæ og Landvernd hand-
verk sem unnin voru af nemendum
í Njarðvíkurskóla úr endurunnum
efnum, glerskál með kerti í.
Rík áhersla er lögð
á umhverfisvitund
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Flaggað Grænfáninn blaktir nú við
hún fyrir utan Njarðvíkurskóla og
langþráðum áfanga þar með náð.
Njarðvíkurskóli
fær grænfánann,
fyrstur skóla
á Suðurnesjum
Í HNOTSKURN
»Ingibjörg Jóna Guðrún-ardóttir fékk viðurkenningu
í umhverfisverkefni grunn-
skólanema fyrir slagorðið „Bær-
inn okkar, ábyrgðin okkar“.
»Starfsfólk og stjórnendurAusturbæjarskóla í Reykja-
vík heimsóttu nýverið grunn-
skólana í Reykjanesbæ og höfðu
við heimkomuna orð á góðri um-
gengni í skólunum þar.
»Með Grænfánaverkefninu erstefnt að því að útskrifa nem-
endur með ríka umhverfisvitund,
sem muni vonandi skila sér í um-
hverfisvænni heimilum og fyr-
irtækjum.