Morgunblaðið - 22.11.2007, Side 32
32 FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
REYKJAVÍKURBORG á í um-
talsverðri tilvistarkreppu nú um
stundir, sem endurspeglar vísast sál-
arástand íbúanna, sem þjást vegna
nýfengins auðs. Hættuástand hefur
skapast í miðborginni,
því athafnamenn, vopn-
aðir peningum fá ekki
hamið sig – eða öllu
heldur; það er ekki er
hægt að hemja þá. Lóð-
ir í miðbænum eru dýr-
ar og arðsemiskrafan
ströng. Peningavá er
fyrir dyrum.
Torfusamtökin unnu
á sínum tíma þarft verk
með því að bjarga hús-
unum á Bernhöft-
storfunni. Standa þau
þar enn þann dag í dag
og eru bæjarprýði.
Ekki fékk húsið hinu megin götunar,
Lækjargata 4, að vera „kyrrt á sinni
rót“; en - guði sé lof - var það flutt upp
á Árbæjarsafn og er þar mikil stað-
arprýði. Nú eru hins vegar uppi hug-
myndir að flytja það aftur niður á
Lækjartorg. Í Morgunblaðinu 8. sept.
síðastliðnum birtist viðtal við borg-
arminjavörð, Guðnýju Gerði Gunn-
arsdóttur og virtist henni nokkuð
brugðið við þessi tíðindi sem vonlegt
var. Þeir Árbæjarsafnsmenn höfðu af
mikilli kunnáttu gert húsið að dýrgrip
og varið til þess talsverðum fjár-
munum. Sú spurning vaknar, hvort
skynsamlegt er að þvæla þessu
ágæta húsi fram og aftur um borgina,
þótt það sé vissulega hvarvetna mikið
augnayndi.
Nútíma steinsteypuháhýsi eiga
ekki heima í núverandi miðbæ
Reykjavíkur vegna nástöðu við lítil,
fíngerð og falleg hús horfinna lands-
manna. Vegna hnattstöðu Íslands
eiga háhýsi tæplega heima á þessu
landi vegna norðlægs sólargangs.
Þau varpa of löngum skuggum og auk
þess myndast vindstrengir við þau,
sem ótækt er að búa við. Hvernig hús
á þá að byggja í mið-
bænum? Auðvitað timb-
urhús. Timbur er fyr-
irtaks byggingarefni í
bland við bárujárn. Það
mætti einfaldlega taka
upp þráðinn í þeirri
timburbyggingahefð,
sem þróast hefur hér-
lendis með hléum frá
því á miðöldum, og
byggja falleg timburhús
á þeim lóðum, sem fal-
leg hús þurfa að standa
á vegna nágrennis við
önnur falleg hús. Það
væri ekki amalegt að fá
fleiri hús eins og Næpuna í Þingholt-
unum. Iðnskólar landsins hafa
menntað fjöldann allan af snjöllum
húsasmiðum, sem hefðu áreiðanlega
gaman af því að fást við svo upp-
byggileg verkefni, sem þeir gætu ver-
ið stoltir af.
Sem íbúi á norðanverðu Skóla-
vörðuholti er undirrituð mjög hnípin
yfir fyrirætlunum um að byggja stór-
fenglega steinsteypukumbalda og
kringlu á Barónsreitnum. Nóg er
mæðan með háhýsin, sem þegar eru
risin við Skúlagötu milli Klapparstígs
og Vitastígs. Í öngum mínum varð
mér hugsað til bryggjuhverfanna í
Björgvin og í Þrándheimi. Þau hús
eru glæsileg byggingarlist, sem á sér
rætur í sögu Norðurlanda. Því ekki
að byggja þarna hús í þeim stíl? Þar
gæti meira að segja orðið til snotur
kringla, sem hentaði nágrenninu.
Stundum er minna meira!
Í Fréttablaðinu 8. september birt-
ist grein eftir Þórð Snæ Júlíusson
arkitekt, þar sem hann viðrar hug-
myndir sínar um miðborg milli Súða-
vogs og Ártúnshöfða. Með þessum
hætti mætti leysa alvarleg umferð-
arvandamál, sem dýrt er að leysa í
núverandi skipulagi, sem hann líkti
við Títanik-slys. Með þessu fengju at-
hafnamennirnir okkar viðfangsefni
við sitt hæfi og peningavánni væri
bægt frá okkur miðbæjarbúum. Svo
væru hæg heimatökin fyrir fólkið,
sem starfar eða á erindi í þessa nýju
niðborg að bregða sér upp á Árbæj-
arsafn til þess að dást að fornri ís-
lenskri byggingarlist, fá sér kaffisopa
og rifja upp fyrir sér fortíð lands og
þjóðar. Erlendis eru til borgir með
marga miðbæi og nefni ég t.d. Berlín,
sem er með skemmtilegri borgum.
Íslendingar eru lítil þjóð og það er
alveg lögmætt. Reykvík er lítil borg
og Reykvíkingar ættu að byggja hús
af hóflegri stærð í gömlu miðborginni
sinni – spóka sig þar og drekka kaffi –
og láta sér þykja vænt um sína borg.
Timbur
Vilborg Auður Ísleifsdóttir vill
byggja timburhús í miðbæ
Reykjavíkur
» Peningavá í mið-bænum og afleið-
ingar hennar. Um
menningar- og tilfinn-
ingagildi gamalla húsa
og um byggingu nýs
miðbæjar og „bryggju-
hverfis“.
Vilborg Auður
Ísleifsdóttir
Höfundur er sagnfræðingur
og býr við Vitastíg.
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
FRAMTÍÐ Kolaportsins í húsi toll-
stjóra hefur verið í umræðunni.
Tollstjóra vantar bílastæði.
Til að skilja vandamálið, þá hátt-
ar þannig til að fyrir allmörgum ár-
um var sett á skipulag hraðbraut
yfir hafnarsvæðið. Bútur af hrað-
brautinni og bílastæði við hana var
byggt ofan á neðstu hæð tollstjóra-
hússins, þegar húsið var byggt. Síð-
an hafa framkvæmdir við hrað-
brautina legið niðri nema hvað
trébrú (langur rampi) var byggð,
þannig að hægt var aka upp á
stubbinn og nýta bílastæðin.
Ekki veit ég hvort erlendir sér-
fræðingar voru höfundar skipulags-
ins. Líkt og þeir, sem nú hafa verið
verðlaunaðir fyrir spítala í láreistri
byggingu frá Miklatorgi niður að
Hljómskálagarði.
Allflestir vilja hafa Kolaportið
áfram á sama stað, en nú vantar
tollstjóra fleiri bílastæði, því búið er
að rífa rampann. Rætt hefur verið
um að flytja Kolaportið eitthvað
annað, en flestir vilja hafa það
áfram á sama stað. Einnig hefur
komið fram að tollstjóri þurfi ekki
allt plássið undir bílastæði, en Kola-
portinu verði að loka meðan á bygg-
ingarframkvæmdum stendur. Það
er ekki góð lausn. Ólíklegt er að
Kolaportið lifi af lokun til lengri eða
skemmri tíma. Villi sagðist finna
Kolaportinu nýjan stað og hefði ef-
laust gert það. Dagur ætlar að
skaffa tollstjóra ný stæði hinumegin
við götuna. Það gæti orðið dýrt.
Einfaldari lausn væri að flytja
Kolaportið upp á planið, þar sem
áður voru bílastæði tollstjóra. Ekki
þarf langan rampa til að flytja fólk
og vörur upp á efri hæðina. Það má
gera með fólks- og vörulyftum utan
á húsinu, þar sem áður var ramp-
urinn. Yfir Kolaportið upp á planinu
mætti svo byggja glerþak borið
uppi af léttu burðarvirki úr límtré
eða stáli. Kolaportið mætti svo
tengja við hafnarbakkann með
göngubrú. Þannig mætti nýta pláss-
ið sem þar er yfir sumarið og fram
á haust til sölu á t.d. á fersku ís-
lensku grænmeti. Ferskt sjávarfang
mætti selja úr fiskibátum, sem lagt
væri við kæann. Einnig hafa veit-
ingahús um borð í bátum við bakk-
ann með músík og möguleika að
taka snúning á þilfarinu. Svæðið allt
ætti svo að tengja til vesturs að Sæ-
greifanum og því sem þar er í
kring.
Dagur, hvernig væri að efna til
verðlaunasamkeppni um skiplagn-
ingu heildarsvæðisins? Við eigum
mikið af góðum arkitektum og þurf-
um ekki að leita út fyrir landstein-
ana. Þeir gætu skipulagt nýtt,
stærra og betra Kolaport á sama
stað.
SIGURÐUR ODDSSON,
verkfræðingur.
Kolaportið,
einföld lausn
Frá Sigurði Oddssyni
Nánari upplýsingar veita:
Hallur Ólafur Agnarsson,
löggiltur fasteignasali á Spáni
Finnbogi Hilmarsson,
löggiltur fasteignasali
KYNNINGARFUNDUR Í DAG
LA ROTONDA – AQUA MARINA
La Rotonda íbúðarhótelið er staðsett rétt fyrir utan borgina Torrevieja.
Íbúðin er með tveim svefnherbergjum og svefnsófa í stofu, gistiaðstaða
fyrir allt að 6 manns. Aðeins 300 m að sjó og í göngufæri við alla
þjónustu. Sameiginleg sundlaug og bílastæði í kjallara.
199.000 €FRÁ
ESTRELLA – AQUA MARINA
Falleg penthouse íbúð staðsett í Aqua Marina hverfinu. Íbúðin er ný og
hefur aldrei verið búið í henni. Mjög gott útsýni út á miðjarðarhaf.
Sameiginleg sundlaug fylgir og bílastæði í lokuðum garði. Kjarakaup.
235.000 €
ALDEAS 49 – AQUA MARINA
Endaraðhús staðsett í nýju hverfi sem heitir Aqua Marina sem margir
þekkja undir nafninu Cabo Roig skammt frá Torrevieja. Öll þjónusta er í
hverfinu. Öll húsgögn fylgja. Skemmtileg sameiginleg sundlaug er við
hliðin á húsinu.
249.000 €
Er draumahúsið þitt á Spáni?
Frá kl. 16–18 að Síðumúla 13, Reykjavík
Fasteigna- og leigumiðlun Íslendinga á Spáni
Síðumúli 13 – Sími 517 5280 – www.gloriacasa.isSíðumúli 13 – Sími 530 6500 – www.heimili.is
PALACE SARADON
LÚXUSÍBÚÐIR FYRIR 55 ÁRA OG ELDRI
Palace Saradon er fjölbýlishús byggt á einum heilsusamlegasta stað í heiminum á Villa Martin svæðinu, Orihuela Costa
rétt við Torrevieja. Örstutt er í alla þjónustu, golfvelli, útimarkaði og aðeins um 5 mínútna akstur að strönd. Úrval
gönguleiða og afþreyingamöguleikar eru óþrjótandi. Veðurfarið er hvetjandi til útiveru, hreyfingar og heilsueflingar. VERÐ
FRÁ
199.
000 €
Fimm
ti hve
r
kaup
andi
getur
unni
ð
splun
kuný
jan
golfb
íl!
Möguleiki á makaskiptum á eignum á Íslandi. Nánari upplýsingar í síma 517 5280